Þjóðviljinn - 13.07.1984, Qupperneq 1
Jarðhitasvœði
Virkir í
N-Jemen?
Islendingum boðið
að stjórna borunum
íslenskt fyrirtæki, Virkir, er
eitt af sex fyrirtækjum sem boðið
var að hafa yfirumsjónar- og eft-
irlitsmenn í N-Jemen vegna bor-
ana á jarðhitasvæði.
í N-Jemen er verið að athuga
hvort hægt sé að nota jarðhita til
raforkuvinnslu. ítalir hafa veitt
landinu þróunaraðstoð og það
var ítalskt fyrirtæki sem vann þar
að jarðhitaleit. Alþjóðabankinn
hefur áhuga á að lána N-Jemen til
að rannsaka þá staði sem líklegir
eru.
Alþjóðabankinn gerði þá
kröfu að verkið yrði boðið út og
að þeir réðu sér alþjóðlega aðila
til að framkvæma verkið. Virki
var boðið ásamt fimm öðrum að
gera tilboð í að verða eftirlitsaðili
með þessari rannsókn.
í N-Jemen eru jarðhitasvæði
svipuð og á íslandi. Þar hafa ver-
ið eldgos ekki ólík þeim sem ger-
ast hér á landi.
HS.
Landið
Búinn
með kvótann!
Blaðauki frá ísafjarðardjúpi
Guðmundur Rósmundsson utgerðarmað-
ur í Bolungarvík klaraði kvótann sinn í maí -
ekkert að gera nema bjóða bátinn upp, segir
hann og er búinn að fara erindisleysu á fund
þingmanna og ráðherra.
Viðtal við Guðmund er meðal efnis í Landi
blaðsins í dag, en kálfurinn er helgaður byggð-
inni við Isafjarðardjúp.
Þar lýsir Kristinn Gunnarsson fámennisveldi í
Bolungarvík, skýrt er frá vegaframkvæmdum við
Óshlíð, heimsótt rækjustöð, rætt við einn for-
ráðamanna í fótboltanum á ísafirði og fleira.
Síðari hluti rispu frá ísafjarðardjúpi verður í
blaðinu 19. júlí. Ljósm. Atli.
Úrgangsolía
íslensk
olíu-
hreinsi-
stöð
Arlega falla
til um 1000 tonn
af úrgangsolíu frá
fiskiskipa-
flotanum.
Vitað er að öll
olían skilar sér
ekki til baka
Samkvæmt skrá sem olíufé-
lögin hafa haldið undanfarinn
áratug um móttöku úrgangsolíu
virðist ljóst að verulegt magn olíu
skilar sér ekki aftur til félaganna.
Vitað er að víða er úrgangsolíu
brennt en menn óttast að sums
staðar sé pottur brotinn í þessum
efnum.
Siglingamálastofnun hefur í
samráöi við olíufélögin hvatt til
þess að settir verði upp geymar á
hafnarsvæðum til móttöku á úr-
gangsolíu. Þar sem slíkir geymar
hafa verið settir upp hefur það
sýnt sig að þeir eru mikið notaðir,
að því er fram kemur í nýjasta
fréttabréfi Siglingamálastofnun-
ar.
Talið er að sú úrgangsolía sem
fellur til árlega frá fiskiskipaflot-
anum geti numið allt að 1000
tonnum á ári. Olíuverslun íslands
er nú í þann veginn að taka í notk-
un hreinsistöð sem hreinsa mun
alla úrgangsolíu sem þeir taka á
móti og verða afköst stöðvarinn-
ar um 2000 lítrar á klst. Er ljóst að
forráðamenn Olís líta hér til
framtíðarinnar því árið 1982 var
alls endurheimt af úrgangsolíu
rúmar 1100 lestir.
Heilbrigðiskerfið
Fjallháir læknareikningar
Sumarfjölskyldur geta þurft að borga yfir 3000 krónur
á mánuði fyrir lœknisaðstoð
- og þá eru lyfin eftir!
Fjölskyldur þar sem mörg börn eru haldin
þrálátum sjúkdómum geta nú þurft að
greiða yfir þrjú þúsund krónur á mánuði
fyrir iæknisaðstoð. Þetta er sökum hækk-
unarinnar á lyfjum og sérhæfðri læknis-
ly álp sem ríkisstjórnin heimilaði frá 1. júní.
Læknir sem Þjóðviljinn hafði tal af sagði
að þess væru nokkur dæmi að í einni fjöl-
skyldu væru ef til vill upp í þrjú börn sem
ættu við sjúkdóma að stríða, sem leiddu til
vikulegrar heimsóknar til læknis. Hann tók
ofnæmissjúkdóma sérstaklega sem dæmi,
en þeir herja gjarnan á fleiri en eitt barn í
fjölskyldu og þar sem fyrir kemur að hvert
bam þarf stundum á vikulegri meðferð hjá
sérfræðingi að halda, til dæmis sprautum.
Eftir hækkunina sem ríkisstjórnin
heimilaði á verðlagningu á sérhæfðri lækn-
isaðstoð, þá kostar nú ein slík heimsókn 270
krónur. Væru þrjú börn í fjölskyldu sem
þyrftu á slíkri meðferð að halda - og hann
tók fram að dæmi væru um það og á Trygg-
ingastofnun var það staðfest - þá myndi það
á einum mánuði kosta 3.240 krónur bara
fyrir læknisheimsóknirnar.
Ef í ofanálag börnin þyrftu á lyfjum að
halda, myndi þessi reikningur vaxa enn, því
eftir hækkunina þarf að greiða 240 krónur
fyrir hvert lyf.
Rætt var við lögfræðing á Trygginga-
stofnun sem staðfesti að engin undanþága
um greiðslur væri fyrir barnmargar fjöl-
skyldur sem ættu að stríða við vandamál af
þessu tagi.
-ÖS