Þjóðviljinn - 13.07.1984, Page 7
HEIMURINN
Bankakerfi án vaxta í Iran
Klerkaveldið reynir að samrœma kröfur Kóransins og þarfir nútíma peningakerfis.
Vextirnir heita bara öðru nafni, segja gagnrýnendur.
Konur hylji andlit sin, bankar lúti Kóraninum...
Klerkaveldið í Iran hefur
ekki aðeins skipað konum að
bera blæju, látið handhöggva
þjófa og berja áfengisneyt-
endur til óbóta. Þar er verið að
gera mjög sérstæða tilraun í
bankamálum. Hið íslamska
bankakerfi, sem verið er að
taka upp, fylgir fyrirmælum
Kóransins, sem bannar að
taka vexti af lánum og inn-
eignum. Þess í stað er tekið
upp kerfi sem felst í „þjón-
ustugjaldi fyrir lán, eða því að
lánveitandi fær vissan hluta af
hagnaði lántakanda.
Allt frá því keisaranum var
steypt af stóli í byltingunni 1979
hefur verið unnið að því að sam-
ræma bankakerfið fyrirmælum
spámannsins. Það hefur gengið
upp og ofan - að sönnu eru fleiri
sagðir eiga bankareikninga en
áður, en heildarinnistæður hafa
mjög skroppið saman og kann
það að stafa af efnahagslegri óár-
an í landinu, miklum herkostnaði
og fleiru. En nú í mars hófst um-
þóttunartímabil sem á að standa í
14 mánuði og að því loknu á ís-
lam að hafa eignast sitt banka-
kerfi í íran.
Breytt staða
Viðskiptavinir banka í íran
munu eiga tveggja kosta völ.
Annarsvegar fá þeir ávísana-
reikning og aðra skylda þjónustu
til skamms tíma - og fá hvorki
vexti né greiða. Ellegar þeir fá sér
innistæðureikning eða fjárfest-
ingarreikning til lengri tíma og fá
síðan vissa hlutdeild í gróða
bankans af lánastarfsemi í heild.
Seðlabanki landsins mun kveða á
um lágmarkshagnað af innistæð-
um, en ekki er enn vitað um
hvaða prósentu verður að ræða.
Staða lántakanda breytist
mjög. Þeir munu ekki fá lán til
ákveðins tíma gegn ákveðnum
vöxtum. Þeir munu fá vaxtalaus
lán, en verða síðan að greiða
þjónustugjald svonefnd til bank-
ans eða láta bankann fá hlutdeild
í arði síns fyrirtækis. Þetta getur
svo annarsvegar þýtt það, að
bankarnir fái meiri rétt til af-
skipta um rekstur lántakandans
en áður þekktist'- en hinsvegar
munu einstaklingar eða fyrirtæki
sem tapa fé eftir að hafa gert
lánasamning við banka um skipt-
ingu hagnaðar ekki verða skuld-
bundin til að endurgreiða skuld-
ina. Þetta getur þá þýtt aukna
þátttöku bankans í áhættu.
Klerkarnir sem íran stjórna
vona að þetta nýja kerfi muni fá
sanntrúaða Múslíma til að nota
banka í vaxandi mæli. En fyrst
verða þeir að ná niður verðbólg-
unni (sem nú er um 20%) - ann-
ars hefur fólk lítinn áhuga á að
spara og þeir sem peninga hafa
aflögu munu, eins og nú er siður,
flýta sér að koma þeim í einhver
áþreifanleg verðmæti.
Engar reglur
Eins og að líkum lætur líst ekki
öllum á þessar fjármálablikur,
þótt gagnrýni fari ekki hátt í íran
ajatollanna. Haft er eftir bisness-
mönnum, að það sé að vísu hægt
að fá núna vaxtalaus lán - en það
þýði bara að bankinn taki sér rétt
til að vera með sína fingur í
rekstrinum. Auk þess segja
menn, eins og vonlegt er, að vex-
tir verði áfram við lýði í hinu ís-
lamska bankakerfi - þótt þeir séu
dulbúnir sem þjónustugjald eða
lágmarkstrygging fyrir hlutdeild í
hagnaði. Þeir minna á það, að
þegar Múhammeð var og hét á
sjöundu öld, þá hafi eyðimerkur-
búar Arabíuskaga hvorki þurft
að glíma við banka né heldur
verðbólgu, og því sé það út í hött
á tuttugustu öld að reyna að taka
bókstaflega fyrirmæli Kóransins
sem bannar að taka vexti af
dauðu fé. (Kaþólska kirkjan
hafði líka mikið á móti vöxtum og
annarri „okurstarfsemi" fyrr á
öldum - en nú er svo komið að
Vatikanið rekur meiriháttar
bankastarfsemi, sem stundum
hefur illræmd orðið).
Þeir sem gagnrýna hið nýja
kerfi segja einnig sem svo, að
með því séu afnumdar allar
skynsamlegar reglur um það hver
skuli fá lán. Þess f stað komi upp
allskonar klíkuskapur og þar með
spilling sem sé verri en hin fyrri,
því það verði fyrst og fremst geð-
þóttaákvörðun bankastjóranna
hver situr að hinum „vaxtalausu"
lánum íslams.
ÁB byggði á South.
Einn af fyrrverandi vinum
ajatolla Khomeinis, alvalds í
íran, ajatolla Tehrani, heldur
því fram, að Khomeini sjálfur
stjórni stríðinu gegn írak og að
helsta markmið hans sé að
skapa stórveldi áttatíu miljóna
sanntrúaðra, sem væri stær-
sti olíuframleiðandi heims og
hefði gífurleg tök á efnahags-
lífi heimsins. Tehrani er nú í
útlegð hjá erkiféndum Khom-
einis í Bagdad.
Tehrani segir í viðtali sem fyrir
nokkru birtist í vesturþýska viku-
ritinu Spiegel, að Khomeini ák-
veði sjálfur hvenær áhlaup skuli
gerð á vígstöðvunum og tefli síð-
an liði sínu fram með svipaðri
grimmd og áður gerðu Mongólar
og Tatarar. Hann hefur það eftir
nánum trúnaðarvini Khomeinis,
Rafansjani þingforseta, að ef
fran geti lagt undir sig írak, þá
muni klerkabyltingin upp frá því
stjórna fjölmennu olíurisaveldi
sem hefði „gífurlegt vald yfir
heimsbúskapnum“. Saudi-
Arabía væri sem lömuð og litlu
ríkin við Persaflóa munu „falla
oss sem dúfur í skaut“.
Trú barna misnotuð
Tehrani gerir minna úr trúar-
ákefð íranskra hermanna. Hann
segir að annarsvegar misnoti
Khomeini trú bama og unglinga
sem eru send í stríðið með fyrir-
heit um skjóta Paradísarvist.
Hinsvegar séu hermennirnir
reknir áfram af byltingarvörðun-
um svonefndu - sá sem ekki vill
berjast er skotinn. Byltingar-
verðirnir eru svo hvattir til dáða,
segir Tehrani, með því að þeir fá
betra húsnæði og ýmiskonar
aukagreiðslur fyrir sína iðju.
Tehrani heldur því einnig
fram, að Khomeini viti vel af
þeim pyntingum og morðum sem
Khomeini ætlar
að koma á fót
olíurisaveldi
íranskur ajatolla í útlegð fordœmir klerkaveldið.
Khomeini leggur blessun Kóransins
yfir pyntingar og morð
Ajatolla Khomeini og sonur hans Ahmed: „sá svarti Satan“ ræður æ meiru...“
byltingarverðir hans hafa framið í
stómm stíl á raunverulegum og
ímynduðum andstæðingum. Hafi
Khomeini réttlætt pyntingarnar
með tilvísun til nauðsynjar Islam-
strúar og til múhameðskra laga.
Tehrani segir að hér sé um fölsun
á fyrirmælum Kóransins að ræða,
þar sé kveðið á um vissar refsing-
ar fyrir tiltekin afbrot, en þar sé
ekkert um refsingu áður en sekt
er fundin og ekkert um pynting-
ar.
Samsæri
Tehrani hefur það eftir Khom-
eini, að útsendarar hans séu að
verki í Líbanon og víðar og hafi
þeir staðið fyrir sjálfsmorðsárás-
unum á franska og bandaríska
hermenn í Beirút. Hann heldur
því líka fram, að í íraríséu starf-
andi þrjár búðir sem þjálfa stuðn-
ingsmenn Ajatollans úr hinum
ýmsu löndum. Hann heldur því
einnig fram að hertaka banda-
ríska sendiráðsins í Teheran og
gíslatakan hafi gerst að fyrirmæl-
um Khomeinis og sonar hans
Ahmeds. Tehrani liggur sérlega
illt orð til Ahmeds, sem hann
segir að taki æ meira að sér að
stýra ríkinu - enda sé faðir hans
gamall orðinn og mjög lasburða.
Tehrani kallar Ahmed reyndar
„þann stóra Satan“ - en það er
nafngift sem Khomeini og hans
menn hafa haft um Bandaríkin -
og nú um hríð um Sovétríkin
einnig...
Tehrani heldur því einnig fram
að um allnáið samstarf hafi verið
að ræða milli Khomeinis og So-
vétríkjanna bæði þegar keisaran-
um var steypt af stóli og fyrst eftir
það. En þegar styrjöldin milli ír-
aks og írans var komin á það stig,
að írakar voru hraktir frá írönsku
landi og engu líklegra en að þeir
mundu tapa stríðinu, þá hafi So-
vétmenn seð sig tilneydda til að
taka aftur upp vopnasendingar til
íraka, sem höfðu í mörgum
greinum verið bandamenn
þeirra. Það hafi Khomeini ekki
getað fyrirgefið og tekið til við að
uppræta hinn Moskvuholla kom-
múnistaflokk írans, Tudeh...
Það var leiðinlegt, segir þessi
fyrrverandi vinur og samherji
Khomeinis að lokum, að keisar-
anum tókst ekki að myrða hann.
Þá hefði hann alltaf haldið sínum
vinsældum...
Ajatollah Tehrani átti áður
náið samstarf við Khomeini þeg-
ar þeir báðir voru í andstöðu við
keisarann. Khomeini bauð hon-
um ýmis metorð eftir byltinguna,
en Tehrani var einn þeirra sem
leist ekki á höfuðklerka í ráð-
herrastólum, ættu þeir að sinna
öðrum verkefnum. Tehrani var
1981 settur í fangelsi og síðar
stofufangelsi fyrir andóf sitt. í
mars flúði hann til höfuðfénd-
anna í írak og eys þaðan eldi og
brennisteini yfir „falsspámann-
inn“ Khomeini.
-ÁB endursagði.
Föstudagur 13. júlí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 7