Þjóðviljinn - 13.07.1984, Síða 11
LANDB
Uppgangur á ísafirði
Með sjávarútveginn beint í æð
Starfsmenn Pólsins hafa framleitt tölvuvogir og rafeindabúnað fyrir rúmlega hundrað fyrirtœki hérlend
oggerast œ glaðbeittari utan lands teina. Kjörorðið: fiskveiði á þurru landi,
Að sjá úr Aðalstræti á ísa-
firði virðist fyrirtækið Póllinn
ósköp venjuleg raftækjaversl-
un; grammófónar, ryksugur,
myndbönd og úrval af nýjustu
plötunum í gluggum. En þeg-
ar nánar er að gáð kemur í Ijós
mikið völundarhús út, upp og
suður af búðinni. - Átján gólf,
segja brosmildir séffar, senni-
lega um þúsund fermetrar.
Þeir Pólsmenn hafa lagt undir
sig húsið við hliðina og byggt
myndarlega afturúr elsta hús-
inu í átt að höfninni sem blasir
við af svölum, - af þeim
svölum upplýsist gátan um
uppgang þessa ísfirska út-
varpsviðgerðafyrirtækis og
rafmagnsverkstæðis: „Við
erum hér með sjávarútveginn
beint í æð“ segir, Jónas sölu-
stjóri Ágústsson. Hinum-
megin hafnargötunnar er búið
að fylla upp útí sjó og verið að
hugsa um að bæta við enn
einni byggingunni.
Tölvuvæðing í frystihúsum og
öðrum fiskvinnslufyrirtækjum er
nú helsta verkefni Pólsmanna.
Þeir hafa selt framleiðslu sína til
rúmlega hundrað fyrirtækja inn-
anlands, þar af eru milli sextíu og
sjötíu frystihús af um hundrað.
Fullkomnar tölvuvogir á hverjum
stað í fiskvinnslukerfinu sýna nýt-
inguna nákvæmlega og bæta hana
þarmeð. Til dæmis eru vigtaref-
tirlitskerfi í pökkunarsal, - við
hvert borð er vog sem veitir upp-
lýsingum inní tölvu, - skermur
hjá verkstjóra, fjöldi pakka og
samanlögð vinna er á hreinu
strax, bónusinn reiknast út jafn-
óðum, verkafólk og verkstjórar
hafa á reiðum höndum allar
vinnslutölur, stakar og í meðal-
tali.
Þeir Jónas Ágústsson og Ás-
geir Gunnarsson, einn fram-
kvæmdastjóra, sýna okkur meðal
annars svonefnda samvalsvél, -
hún er notuð til að flýta leit að
réttri þyngd við að pakka fi-
skinum. Fiskinum er skellt á tölv-
uvog sem er tengd kassa með fjöl-
da hólfa, undir er færiband. Vog-
in tékkar á þyngdinni og ljós
kviknar yfir einu hólfanna til
merkis um að þangað skuli fisk-
urinn fara. Sé verið að framleiða
tveggjakflóapakkningar velur
töivan í hólfin þangað til nokk-
ARNARFLUG
EAGLE AIR
HÓLMAVÍK
Fljúgðu með Arnarflugi til
Hólmavíkur. Þar er tilvalið
að hefja ferðina um Strandir
og njóta svipmikils lands-
lags og náttúrufegurðar.
Flogið til Hólmavíkur tvisvar
í viku.
GJÖGUR
Fljúgðu með Arnarflugi til
Gjögurs og leggðu þaðan
upp í gönguferð með tjaldið
og bakpokann um Norður-
Strandir.
Flogið til Gjögurs tvisvar í
viku.
umveginn nákvæmlega tvö kfló
eru í hverju, sleppir síðan úr fullu
hólfi niðurá færibandið. Þetta
sparar mikla vinnu við að finna í
hálffullan pakka fiskflak réttrar
þyngdar og tryggir nákvæma vog
í hverjum pakka. Of léttur pakki
samasem óánægður kaupandi, og
þungur pakki samasem tap fyrir
fiskvinnsluna.
Vel tekið af starfsmönnum
Það er þessi aukna nákvæmni
og betri nýting sem Pólsmenn
eiga við þegar þeir tala um fisk-
veiðar á þurru landi. Á tímum
aflasamdráttar og kvótakerfis
skiptir öllu máli að auka verð-
mæti fagurra fiska úr sjó. Nú má
ekkert fara til spillis. Og enn er
verk að vinna, - þótt meirihluti
fiskvinnslufyrirtækja eigi góðar
vogir er minnstur hluti þeirra bú-
inn fullkomnu samtengdu tölvu-
kerfi, aðeins um fimmtán.
Menn eru mjög jákvæðir, segja
Pólsmenn, - líka þeir gömlu, þeir
sjá jafnvel betur hvað það þýðir
að geta nýtt betur aflann. Og nýj-
ungunum er alstaðar vel tekið af
starfsfólki. Nákvæmt eftirlit og
markviss stjórnun getur vissulega
haft með í för að verkafólk lendir
undir smásjá, en fullkomið kerfi
tryggir starfsfólk jafnframt gegn
allskyns mistökum við talningu
og útreikninga, vafamálum fækk-
ar, og sé hundur í verkstjóra er
eðlilegt að fara framá rökstuðn-
ing frá töivunni. Þetta nýja kerfi
fækkar ekki starfsmönnum, segja
þeir Jónas og Ásgeir, - að
minnsta kosti ekki að neinu ráði.
Hinsvegar fækkar eftilvill eftir-
litsmönnum.
Frá útvarpsviðgerðum á
verðlaunapalla
Póllinn var stofnaður 1966 sem
rafmagnsverkstæði og útvarps-
viðgerðastofa. Meginverkefni
verða fljótt allskyns snúningar og
reddingar kringum útgerð og
fiskvinnslu. Fyrsta eiginlega
framleiðslan var spennustillir
sem hentaði íslenskum aðstæð-
um, - fyrir rafala í fiskibátum.
íslenskar aðstæður sem ekki er
reiknað með í verksmiðjum ytra:
kuldi, brjálað veður, salt, bleyta.
Árið 1978 smíða Pólsmenn
innvigtunarvog fyrir frystihús og
úr því farið hjólin að snúast í takt
við örtölvubyltinguna - nú starfa
tæplega sex tugir manna hjá
Pólnum, útibú komið í Kópavog-
inn fyrir sunnlendinga, góour ár-
angur í útflutningi til Færeyja,
verið að undirbúa sölu til Noregs,
Grænlands, Danmerkur, samn-
ingar í gangi við bandarískt fyrir-
tæki um framleiðsluleyfi í Vestur-
heimi.
Jónas sölustjóri er oltið mont-
inn þegar hann sýnir okkur skjal
um heiðursverðlaun Verðlauna-
sjóðs iðnaðarins frá í fyrra, og
spænskan verðlaunagrip: alþjóð-
leg gæðaverðlaun, og aðrir verð-
launaþegar eru ekki af verra tæ-
inu. Kristinn Err fór og tók við
þeim í Madríd. Viðurkenning er
auðvitað vel þegin, enda fer sí-
aukin kraftur í sölustarf. Næsta
stórverkefni er sjávarút-
vegssýningin í haust í Laugardals-
höll þarsem Póllinn er auðvitað
með bás; Jónas glottir: „slorsýn-
ingin“.
Póllinn gerir ennþá við útvörp,
- en framleiðsla á tölvubúnaði er
aðalmálið. Þjónusta við kaup-
endur skipar líka stóran sess, á
einum vegg er ótal litlum fánum
stungið í Islandskort og sýna við-
skiptamenn. Og í fyrirtækinu er
farið að segja sögur af hinum
nýju landpóstum: Halli var að
leggja upp í þjónustuferð þegar
Bfldudalur hringir: eitthvert
klikk í forrituninni. Á Bíldudal er
þriggja tíma keyrsla og illt í efni.
Halli skellir á, fer í loftið á rell-
unni, og eftir tíu mínútur vaggar
hann vængjum utanvið
skrifstofugluggana á frystihúsinu
á Bíldudal og fleygir niður
forritunardiskinum...
NISSAN CHERRY
Nissan Cherry
kom best út
_ 26. 5-
Danska tímaritiö, Penge &
j Piivatökonomi, sem gefiö er út af
Börsen, geröi víötæka könnun á því
hvaða bíll kæmi best út í rekstri
'j
I væri miöað við þriggja ára tímabil,
I 45 þúsund km akstur.
í sínum verðflokki kom Nissan
Cherry út sem sigurvegari með
meðaltalsútgjöld 3,90 kr. á kílómetra
og í annað sæti kom Nissan Sunny
meö 4,07 kr. á km. Næstir í röðinni
voru meðal annarra Ford Escort,
Opel Kadett, Mazda 323, Toyota
Corolla, Fiat Hitmo ES og VW Golf.
ÞÚ GETUR VARIÐ PENINGUNUM ÞÍNUM VEL
OG KEYPT NISSAN. ÞÁ ERTU ÖRUGGUR.
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.