Þjóðviljinn - 25.07.1984, Side 8
MENNING
Sjónvarp
Verkfallssöngurinn sem
breyttist í kvennasöng
Arja Sajonmaa söng á tón-
leikum á Listahátíð í sumar
m.a. ítalskan söng, La Lega ,
sem var snúið upp á sænsku.
Sjónvarpsáhorfendur máttu
heyra þennan söng með öðr-
um nú á sunnudagskvöldið.
Þeir hafa sjálfsagt tekið eftir
því, að textinn er urp galvask-
ar kvenréttindakonur í sam-
tímanum, sem skáka allskon-
ar karlarössum með tungum
hvössum og fleira í þeim í dúr.
Á ítölsku var þessi söngur, eða
hefur að minnsta kosti verið tölu-
vert öðruvísi. Hann er lagður í
munn kvenna, en snýst reyndar
ekki um jafnréttisslag og femin-
isma heldur um verkfall. Textinn
er svona í lauslegri þýðingu:
Þótt við séum konur
erum við ekki hræddar
við elskum börnin okkar
og því viljum við sósíalisma
Viðlag: Ojlíolíola
og samtökin eru að eflast
við þessir sósíalistar
heimtum frelsi.
Og frelsið fáum við ekki
meðan ekki ríkir eining
verfallsbrjótum og húsbændum
ættum við að koma fyrir kattarn-
ef
(viðlag)
Og þið þessir ríkisbubbar
sem sýnir okkur hroka
lækkið í ykkur rostann
og opnið peningaveskið...
(viðlag)
Eins og menn sjá er ekki lítill
munur á þessum ítalska söng og
textanum sem hin ágæta finnska
söngkona fór með.
Þar með er ekki verið að halda
ARJA
SAJONMAA
því fram, að hér sé um einhvers-
konar óleyfilegt fals á alþýð-
legum arfi að ræða (textann hefi
ég úr safni sem heitir „Söngvar úr
hinni Ítalíunni"). Það eru til
mörg tilbrigði við gamla og nýja
ítalska baráttusöngva og því
mættu konar ekki taka upp á sinn
eyk jafn hressilegt lag og La Lega
og laga í hendi sér? En það er
annað sem er kannski ómaksins
vert að vekja athygli á.
Kvenréttindasöngurinn sem
Arja fór með á Broadway rann
niður athugasemdalaust. Það
gerði enginn athugasemd við
hann þegar hann var fluttur og
varla er þess von að það verði nú
gert. En ef að hin upphaflega
merking verkfallssöngsins ögr-
andi hefði verið komin á sænsku á
Broadway og síðan þýdd á ís-
lensku í sjónvarpi: skyldi góð-
borgurum þá ekki hafa hitnað í
hamsi? Skyldu þau Arja Sajon-
maa, Listahátíð og Ríkisútvarpið
þá ekki hafa fengið meiriháttar
skammir í sína hatta?
Það er hætt viðjjví.
Arni Bergman.
Vlft gamla sýnlngarklefann, þann
elna sem vltað er um í heiminum
frá dögum þöglu myndanna.
Upphækkaður pallur er í öðrum
enda, 8 álna langur, en í hinum
endanum eru svalir með upp-
hækkuðum sætum, sem taka um
hundrað manns. Á gólfinu eru
um 14 bekkjaraðir yfir þvert hús-
ið. Útgangurinn er rúmgóður og
geta 50 manns farið í einu niður
tröppurnar. í húsinu eru sæti fyrir
300 manns en alls geta þar verið
um 400. Hr. Jensen hefur sagt
fyrir um alla gerð hússins að
innan og segir hann hús þetta
vera betur útbúið en sum leikhús
gerast í dönskum bæjum, enda
ætlar hann að það muni nægja
Reykjavík í 100 ár. Tjöldin eru
olíumáluð og hefur það gert hr.
Lauritz Jörgensen. í tjöldin háfa
farið um 700 álnir af dúk.“
Eufemia Waage hefur skrifað
heilmikið um leiksýningar í
Fjalakettinum í æviminningum
sínum og segir þar m.a. um húsið:
„Var húsið kallað „Fjala-
köttur“, af því að það þótti svo
mikið gálgatimbur. Fyrst var
gengið upp háar tröppur inn í
áhorfendasalinn, en fremstu
bekkirnir voru með stoppuðum
flossessum og var það mikil bót
frá því, sem áður hafði verið. Al-
mennu sætin voru aðeins tré-
bekkir með bökum. Barnasætin
voru svo baklausir bekkir, því að
það var svo sem ekki verið að
vanda krakkagreyjunum kveðj-
umar.
Aftast í áhorfendasalnum voru
svalir, og mig minnir, að af þeim,
frekar en úr áhorfendasalnum
sjálfum, hafi verið gengið út á
aðrar svalir, sem lágu innanvert á
húsinu, inn í portið, sem húsið
var byggt utan um. Yfir þessu
porti var svo glerþak. Þarna áttu
víst áhorfendur að spóka sig milli
þátta. Niður af þessum svölum
var gríðarlega hár stigi eða stigar
son kaupmaður, sem sat alltaf á
aftastabekk, næst sýningarklef-
anum, Klemens Jónsson landrit-
ari, Tryggvi Gunnarsson banka-
stjóri, Lúðvík Hafliðason kaup-
maður o.fl. Áttu þessir menn það
sameiginlegt við fjölda annarra,
að þeir höfðu strax frá byrjun
áhuga fyrir þessari nýju tegund
dægrastyttingar, sem síðan hefur
þróast og nú er orðin sjálfstæð
listgrein. En svo voru aftur aðrir,
sem litu þetta öðrum augum. Það
var venja, að daginn áður en
skipta átti um myndir, vom límd-
ir yfir auglýsingaspjöldin miðar,
sem á var letrað: „I síðasta sinn“.
Og kom það oft fyrir, að ég
heyrði fólk, sem stóð við þessi
auglýsingaspjöld segja:
„Áuðvitað gat þetta ekki
gengið til lengdar“,
eða
„loksins hættir þetta helvíti“.
Daglega leið yfir
40-50 manns
Aðsókn að kvikmyndasýning-
um hefur þó stöðugt aukist, og
sýningar haldnar stöðugt, að
undanskildum tveim mánuðum
1918, er spánska veikin geisaði,
og hálfum mánuði árið 1921, þeg-
ar óttast var að veikin væri að
koma upp aftur.
Ef sýndar væru nú myndir þær,
sem þóttu framúrskarandi góðar
1906, myndu þær líklega kalla
fram brosið hjá áhorfendum. En
þrátt fyrir það, hve öll tækni var
léleg um þær mundir, eru margir,
sem enn muna eftir t.d. myndun-
um „Vendetta“ og „Nautaat í
Barcelona“, sem sýndar voru er
kvikmyndahúsið var opnað.
„Hvíta rottan“, frönsk ein-þátta
mynd, var svo áhrifamikil, að
meira að segja margir karlmenn
„Geta 50 manns farlft f elnu niöur
tröppurnar".
urðu að þerra tárin úr augunum
að sýningu lokinni. Ekki má
gleyma myndinni „Uppskurðir
Dr. Doyens“, sem sýnd var sér-
staklega á eftir hinni venjulegu
sýningarskrá, og kostaði að-
gangur að henni 35 aura. Á með-
an hún var sýnd leið daglega yfir
40 til 50 manns, og voru þeir
„vaktir til Iífs“ aftur með Hoff-
mannsdropum! Er hún hafði ver-
ið sýnd í viku, bað Jón Magnús-
son, bæjarfógeti, mig að hætta að
sýna hana og gerði ég það. Ein-
kennilegt var, að þeir sem
veikastir voru fyrir, voru allir háir
og sterkvaxnir karlmenn. Man ég
sérstaklega eftir togaraeiganda
nokkrum. Hann stakk nefinu rétt
inn um dyrnar og horfði á mynd-
ina augnablik. Þegar hann kom
út buðum við honum Hoffmanns-
dropa, en hann sagðist eigi þurfa
þeirra með. í sömu andránni leið
yfir hann og datt hann niður
tröppurnar niður í forstofuna, en
sakaði þó ekki. Kvöldið eftir fór
alveg eins fyrir ungum manni, er
starfaði í stjórnarráðinu".
Já, þannig var upphaf kvik-
myndasýninga á íslandi. Eftir að
Gamla bíó flutti árið 1927 var
ýmis konar starfsemi í þessum sal
og á árunum 1932-1935 hafði
Kommúnistaflokkur íslands
hann á leigu og þá gerðust margir
sögulegir atburðir í honum sem
ekki verða raktir hér.
Það er sorglegt þegar þjóð-
minjar eru í eigu einstaklinga sem
ekki vilja halda þeim til haga eða
koma til móts við þá sem vildu
gera þeim til góða. Hér er um að
ræða fyrstu leikhúsbyggingu fs-
lands og fyrsta bíósalinn og segja
fróðir að ekki finnist annar eldri í
heiminum. En það fer sem fer og
því segjum við nú: „Farvel
Frans!“ -GFr
Andrei
Tarkovskí
við töku
Nostalgiu.
Bfósalur Gamla Bíós f Fjalakettlnum er hann var enn í notkun.
niður í portið. Þetta þótti hálf-
glæfralegt byggingalag og fékk
húsið því þetta Fjalakattarnafn,
sem loðir við það enn. í daglegu
tali var það þó bara kallað
„Kötturinn".
Leiksviðið var ekki lítið, en
fyrir því var fortjald með íslensk-
um blæ og var vetrarlandslag í
kring. Þegar maður kom inn, þá
hryllti mann við, því að þetta var
svo kuldalegt. Fortjald þetta var
allt málað með húsamálningu og
svo þungt, að það þurfti fíleflda
menn til þess að draga það upp.“
í Þjóðólfi 19. júlí 1893 er lýsing
á vígslu þessa fyrsta leikhúss á
íslandi. Þar segir m.a.:
„Leikstjórinn (E. Jensen) kom
fyrst inn á sviðið og mælti fram
stutt inngangs- eða vígsluljóð.
Gamanleikurinn „Ikke en smule
jaloux" eftir P. Engell er ekki
hefur áður verið leikinn hér þótti
einkar skemmtilegur og verður
eflaust leikinn oftar. Einnig þótti
það skemmtun hin besta þá er
Wulf söng nýjar tækifærisvísur í
„Onkels Kjærlighedshistorie".
Var þar m.a. minnst á vestur-
heimsku agentana og hrakfarir
þeirra o. fl. og þótti allt broslegt“.
Fjölmargir af þekktustu alda-
mótaleikurum okkar léku í
Breiðfjörðsleikhúsi en árið 1897
var Leikfélag Reykjavíkur stofn-
að með samruna þess og Góð-
templarahússins og dró þá fljót-
lega úr leiksýningum í Fjalakett-
inum.
„Að fara í bíó“
Fyrstu kvikmyndasýningarnar
í heiminum voru í Berlín og París
árið 1895. Aðeins 11 árum síðar
er búið að stofna sérstakt kvik-
myndahús í Reykjavík. Það hét
„Reykjavíkur Biograftheater" og
hafði aðsetur í leikhússalnum í
Fjalakettinum. Þessi salur sem
nú er verið að rífa er allur með
svipuðum ummerkjum og var í
upphafi. Leifar skreytinga eru á
veggjunum, sýningarklefinn er á
sínum stað uppi á vegg og sýning-
artjaldið beint á móti. M.a.s.
pallurinn sem píanóið stóð á, sem
leikið var undir á, er enn í einu
horninu.
FJALAKÖTTURINN
IN MEMORIAM
Hið langa nafn þessa kvik-
myndahúss var fljótlega stytt og
aðeins sagt „að fara í bíó“ og það-
an kemur þetta nafn „bíó“. Árið
1912 er annað bíó stofnað sem
fær nafnið Nýja bíó og þá fljót-
lega er farið að kalla hitt Gamla
bíó. Það var í Fjalakettinum til
1927 að það fluttist í Ingólfs-
stræti. Sá sem stjórnaði sýningum
og eignaðist síðan bíóið var P.
Petersen, í daglegu tali kallaður
Bíó-Petersen. Þegar Gamla bíó
var 40 ára skrifaði hann grein í
tilefni afmælisins og er kafli úr
henni birtur hér til gamans:
Sýningarklefinn var að stærð 1
fermetri, klæddur gips-plötum að
innan vegna eldhættu. Vélin, sem
notuð var fyrstu árin, var hand-
knúin. í þessum klefa stóð ég og
sýndi í mörg ár - hvert kvöld og 4
stundir á sunnudögum. Mikinn
hita lagði af vélinni, og loftræst-
ing næsta engin, svo að ekki var
óalgengt, að hitinn yrði þarna um
40 stig.
Margir kunnir reykvíkingar
voru frá byrjun fastir gestir , og
sumir þeirra sátu alltaf í ákveðn-
um sætum, t.d. T.h. Thorsteins-
Tarkovskí kvikmyndasljóri
snýr ekki heim til Sovét
hans Nostalgia fyrstu verðlaun
fyrir leiknar myndir.
Sex frœgar
kvikmyndir
Tarkovskí er fæddur árið 1932
og var faðir hans ljóðskáld. Hann
lagði fyrst stund á tónlistarnám
en fékk inngöngu í sovéska kvik-
myndaskólann árið 1956 og var
Mikhail Romm hans helsti
meistari. Árið 1962 fékk hann
„gullljónið“ á kvikmyndahátíð í
Feneyjum fyrir fyrstu kvikmynd
sína, „Bemska ívans“, sem fjall-
ar um ungan dreng sem leggur sig
í mikinn háska í stríðinu þegar
hann tekur það að sér að fylgjast
með herflutningum Þjóðverja -
lætur hann líf sitt að lokum.
Tarkvovskí hefur alls leikstýrt
sex kvikmyndum. Árið 1966
gerði hann mynd um Andrei Rú-
bljóv, frægasta helgimyndamál-
ara rússneskra miðalda. Sovéskir
gagnrýnendur tóku myndinni
heldur illa, sögðu hana um of
trúarlegs eðlis og iangt frá sam-
tímanum - en kannski var mynd-
in einmitt of nálægt samtíma-
num: hún fjallaði ekki síst um
listamanninn á grimmri öld of-
beldis og valdníðslu. Svo undar-
lega vildi til, að þótt ákveðið væri
að hætta að sýna þessa „skað-
legu“ mynd í Sovétríkjunum
sjálfum, þá var hún send á kvik-
myndahátíð í Cannes árið 1968.
Þar fékk hún svo góðar viðtökur,
að sovésk yfirvöld neyddust til að
leyfa að hún yrði sýnd heima fyrir
- en þó ekki nema í nokkrum litl-
um kvikmyndahúsum.
Næsta mynd Tarkovskís var
„Solaris“ (1972) sem er gerð eftir
vísindaskáldsögu pólska rithöf-
undarins Stanislaws Lems.
Nokkru síðar kom „Spegillinn",
sem er að nokkru leyti sjálfsæfi-
söguleg, og hlaut hún vægast sagt
blendnar viðtökur. Gestir
næstsfðustu kvikmyndahátíðar
hér í Reykjavík muna að líkind-
um eftir sérstæðri mynd Tarkov-
skís, „Stalker“, mynd sem víða
hefur orðið fræg, og er nógu „dul-
arfull“ til þess að sovésk yfirvöld
gátu látið sem þau tækju ekki
eftir því sem að þeim sneri í
myndinni.
k Tarkovskí hefur beðið um að
'böm hans fái að koma til hans á
Ítalíu, en ekki fengið nein svör
önnur en tilmæli um að koma til
Moskvu að ræða málin. Það
áræddi Tarkovskí ekki að gera og
bætist nú í hóp sovéskra útlaga í
listum.
áb byggði á Liberation.
Fyrir nokkrum dögum til-
kynnti heimskunnur sovéskur
kvikmyndastjóri, Andrei Tark-
ovskí, að hann mundi ekki snúa
aftur til Sovétríkjanna, en hann
hefur nú í meira en ár unnið við
kvikmyndagerð á Ítalíu. Tarkov-
skí hefur áður átt í erfiðleikum
með starf sitt heima fyrir, en ekki
beinllnis átt í útistöðum við yfir-
völd - sem hafa stundum verið því
fegin að geta sent hinar sérstæðu
kvikmyndir hans á alþjóðlegar
kvikmyndahátíðir, þar sem þær
hafa getið sér gott orð.
Blaðamannafundurinn, sem
Tarkovskí hélt, minnti mjög
rækilega á þá blóðtöku sem so-
véskar listir hafa að undanfömu
orðið fyrir. Við hlið kvikmynda-
stóðu þeir Rostropovitsj
sem hefur verið í út-
íratug eða svo og leikhússt-
Júrí Ljúbímof, sem í fyrra
ákvað að snúa ekki heim til
leikhússins á Taganka sem hann
hefur gert heimsfrægt. Ástæðan
var sú, að tvær sýningar, sem
hann var að æfa, höfðu verið
bannaðar.
Tarkovskí er rösklega fimm-
tugur. Á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í fyrra hlaut kvikmynd
Dagana 23. og 24 júní sl. héldu
Menningarsamtök Norðlendinga
aðalfund sinn á Blönduósi. Sam-
tökin eru frjáls félagsskapur
áhugafélaga og áhugamanna
um listir á Norðurlandi og mark-
mið þeirra að efla menningarlíf
og menningarsamskipti norðan-
lands, í samstarfi við Fjórðungs-
samband Norðlendinga.
Samtökin voru stofnuð fyrir
tveimur ámm og hafa þegar unn-
ið nokkurt starf varðandi upplýs-
ingamiðlun, ráðningu fyrirlesara
og leiðbeinenda og staðið fyrir
myndlistarsýningum og tónlistar-
dagskrám.
I sambandi við aðalfundinn fór
fram myndlistarsýning á verkum
þeirra Elíasar B. Halldórssonar,
Maríu Hjaltadóttur, Marinós
verði upp menningarmiðstöð á Akureyri
Björnssonar og Örlygs Kristfinn-
sonar. Guðmundur Halldórsson
frá Bergsstöðum las úr eigin
verkum. Söngvararnir Jóhann
Már Jóhannsson og Svavar Jó-
hannsson sungu lög eftir tón-
skáldin Eyþór Stefánsson og Jón
Björnsson, við undirleik Guðj-
óns Pálssonar píanóleikara.
Tryggvi Gíslason skólameistari á
Akureyri, flutti erindi: „List á
landsbyggðinni, heimalnings-
háttur eða listsköpun“, en um-
ræður fóru síðan fram um erind-
ið.
Stjórn Samtakanna var endur-
kjörin en þær breytingar gerðar
innan hennar, að Átli Guðlaugs-
son, sem verið hefur gjaldkeri,
tekur við formannsstarfi af
Kristni G. Jóhannssyni, en hann
hefur verið formaður frá stofnun
samtakanna.
Eftirfarandi ályktanir voru
samþykktar á fundinum:
Frá tónlistarmönnum innan MN:
Tilverurétt
tónlistarskólanna
ógnað
Aðalfundurinn . . .„varar ein-
dregið við þeirri uggvænlegu
breytingu á rekstrarfyrirkomu-
lagi tónlistarskólanna, sem yfir-
vofandi er og beinir þeim tilmæl-
um til stjórnva 1 da, að tilverurétti
skólanna verði ekki ógnað á
þennan hátt. Jafnframt vill fund-
urinn mótmæla niðurfellingu á
starfi námstjóra, sem þegar er
farið að skila árangri"
Frá leiklistarhópnum komu
tvær ályktanir:
Óónœgja með
leiklistargagnrýni
fjölmiðla
Aðalfundurinn. . .“lýsir yfir
megnri óánægju með leiklistar-
gagnrýni fjölmiðla. Mælst verður
til þess, að sýningar áhugaleikfé-
laga fái heiðarlega umfjöllun.
Lagt verði sama mat á list hvar á
landinu sem hún er fram borin.
Ekki má sætta sig við það, að sýn-
ing sé afgreidd þannig, að hún sé
annað hvort góð eða vond, „af
því að það sé áhugaleikhús, sem
að henni stendur“.
Sýningarferðir
atvinnuleikhúsa
Aðalfundurinn . . .„harmar
það, að Þjóðleikhúsið eða önnur
atvinnuleikhús skuli hafa lagt
niður sýningarferðir út á lands-
byggðina og skorar á viðkomandi
að taka þessar ferðir upp að
nýju“.
Frá myndlistarmönnum:
Skapa þarf
listamönnum
starfsgrundvöll
Aðalfundurinn . . .„telur
nauðsynlegt að skapa myndlistar-
mönnum viðunandi starfsskilyrði
eins og öðrum starfsstéttum.
Enn er Reykjavík eina
sveitarfélagið, sem veitir lista-
mönnum starfslaun. Þess ber að
vænta, að önnur sveitarfélög taki
einnig upp slíkt fyrirkomulag,
sem lið í því, að skapa lista-
mönnum eðlilegan starfsgrund-
völl og uppörvun.
Fundurinn telur að efla verði
listkennslu og listþjálfun í al-
mennum skólum.
Myndlistarskólinn á Akureyri
gegnir nú miklu hlutverki í
menntunarmálum í myndlist í
fjórðungnum.
Fundurinn leggur til að á Ak-
ureyri verði komið á legg menn-
ingarmiðstöð, sem gæti þjónað
öllum fjórðungnum".
Frá rithöfundum:
Róðstefna um
listir í landinu
Aðalfundurinn . . .„leggur
áherslu á að listgreinar í fjórð-
ungnum einangrist ekki í listalífi í
landinu. Þessvegna skorar hann á
fjölmiðla á Norðurlandi, svo og
landsfjölmiðla, að sýna listum í
fjórðungnum verðugan áhuga og
veita þeim heiðarlega gagnrýni.
Aðalfundurinn vekur athygli
á, að eftirtekt og viðurkenning sé
verulega hvetjandi fyrir störf
listamanna. Aðalfundurinn
leggur því til við Bandalag ís-
lenskra listamanna, að það
gangist fyrir ráðstefnu um listir í
landinu sem heild, jafnt jarðveg
þeirra sem listsköpun". -mhg
Aðalfundur MN. Kristinn G. Jóhannsson ávarpar fundarmenn. Mynd: ÓTH.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 25. júlí 1984
Mlðvlkudagur 25. júlf 1984 ÞJÓÐVIUINN - SfÐA 9