Þjóðviljinn - 25.07.1984, Side 10
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýöubandalagið í Reykjavík
Skundum á Þingvöll
Sumarferð Alþýðubandalagsins í Reykjavík í ár verður sunnudaginn 19.
ágúst. Að þessu sinni verður farið á Þingvöll.
Valinkunnir leiðsögumenn, vönduð dagskrá, leikir og þrautir fyrir börn á
öllum aldri munu gera þessa ferð bráðskemmtilega. Miðaverði er mjög still í
hóf en það verður kr. 300.- fyrir fullorðna en kr. 150,- fyrir börn sem taka
sæti.
Allar nánari upplýsingar verða birtar í Þjóðviljanum. Skráning farþega og
sala farmiða fer fram á skrifstofu ABR og eru alli hvattir til að panta sér far í
líma og eigi síðar en 16. ágúst. Síminn er 17500.
Ferðanefnd ABR
Alþýðbandalagið í Reykjavík
Munið Gíróseðlana fyrir fyrsta hluta flokks og
félagsgjalda ársins 1984
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur þá sem enn hafa ekki gert
skil á fyrsta hluta flokks- og félagsgjalds ársins að gera það nú um þessi
mánaðamót.
Verum öll minnug þess að starf ABR byggist á því að félagsmenn (allir)
standi í skilum með félagsgjöldin. ....
Allir samtaka nú. bt,orn A
Alþýðubandalagið Vesturlandi
Verslunarmannahelgin - Sumarferð
Alþýðubandalagið á Vesturlandi fer í sína árlegu sumarferð í Eyjafjörð og
Þingeyjarsýslu um verslunarmannahelgina 4. til 6. ágúst.
Farið verður frá Akranesi og Borgarnesi á laugardagsmorgun 4. ágúst.
Gist að Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði í tvær nætur. Tjaldstæði -
svefnpokapláss - hótelherbergi, eftir ósk hvers og eins. Leiðsögumaður
Erlingur Sigurðarson. í hagstæöu veðri verður farið Sprengisand aðra
leiðina. Þátttaka tilkynnist til eftirtalinna sem allra fyrst: Akranes Jóna s.
1894 - Ingunn 2698 - Guðbjörg 2251. Borgarfjörður Ríkharð s. 7072 -
Halldór 7355. Hellissandur Skúli s. 6619. Ólafsvík Jóhannes s. 6438.
Grundarfjörður Ólöf s. 8811. Stykkishólmur Þórunn s. 8421. Dallr Kristjón
4175. Ferðin er öllum opin og fyrir alla fjölskylduna.
- Kjördæmisráð.
Alþýðubandalagið Norðurlandi vestra
Sumarferð á Kjöl og í Hvítárnes
um verslunarmannahelgina 4.-6. ágúst.
Sumarferðir Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra hafa verið mjög
vinsælar. Að þessu sinni verður farið um Kjalveg og tjaldað í Hvítárnesi um
verslunarmannahelgina.
Lagt verður af stað laugardaginn 4. ágúst, annars vegar frá Siglufirði og
farið um Hofsós og Sauðárkrók, en hins vegar Hvammstanga um Blöndu-
ós. Allur hópurinn mætist við Svartárbrú í Langadal kl. 10.30. Síðan liggur
leiðin um Blönduvirkjunarsvæðið og Hveravelli suður í Hvítárnes suð-
austan Langjökuls. Daginn eftir verður sérstök ferð farin í Kerlingarfjöll fyrir
þá sem vilja. Kvöldvaka verður í ferðinni. Á mánudaginn verður ekið af stað
heim á leið og ýmsir markverðir staðir skoðaðir.
Ferðin kostar 1200 kr. en börn og unglingar undir 14 ára aldri græða hálft
gjald.
Nánari upplýsingar gefa:
Sverrir Hjaltason Hvammstanga (s: 1474), Elísabet Bjarnadóttir
Hvammstanga (s: 1435), Eðvarð Hallgrímsson Skagaströnd (s: 4685),
Guðmundur Theodórsson Blönduósi (s: 4196), Hulda Sigurbjörnsdóttir
Sauðárkróki (s: 5289), Stefán Guðmundsson Sauðárkróki (s: 5428), Gísli
Kristjánsson Hofsósi (s: 6341), Hannes Baldvinsson Siglufirði (s: 96-
71255) og Ragnar Arnalds Varmahlíð (s: 6128) og Reykjavík (s: 83695).
ÆSKULÝÐSFYLKING
ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Skaftafell! Skaftafell!
Hæ!
Komið með í Skaftafell um næstu helgi, 27.-29. júlí. Þetta er
ódýrasta ferð sem um getur, aðeins 700 kr. og er fæði
innifalið allan tímann.
Hafið samband í síma 17500 eða komið á Hverfisgötuna
105 fyrir fimmtudagskvöld.
Við förum á föstudagskvöldið kl. 21.00 frá Hverfisgötu 105.
Það verður glens og gaman - gleðjumst öll saman!
Ferðanefndin.
MUNIÐ
FERÐJ
VA$A
BOKINA
Handhægt uppsláttarrit sem veitir fleiri almennar
upplýsingar um ferðalög og ferðamöguleika
innanlands og utan en nokkur önnur íslensk bók.
Meðal efnis eru 48 litprentuð kort, vegalengdatöflur,
upplýsingar um gististaði og aðra
ferðamannaþjónustu, um sendiráð og ræðismenn
erlendis, vegaþjónustu, veðurfar á ýmsum stöðum og
margt fleira. Fæst í bókabúðum og
söluturnumumallt land.
Ferðavasabókin; ómissandi ferðafélagi!
FJÖLVÍS
Síðumúla 6 Reykjavík
Sími 91-81290
LJÓSMÓÐUR
vantar á Sjúkrahúsiö á Egilsstööum tímabiliö
ágúst - desember 1984.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
97-1631 eða 97-1400.
Grunnskóli Þorlákshafnar
Handavinnukennara vantar aö grunnskóla
Þorlákshafnar. Umsóknarfrestur til 15. ág-
úst. Nánari upplýsingar hjá formanni skóla-
nefndar í síma 99-3828 e.kl. 19.00.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Steingrímur Þórðarson
byggingameistari
Efstasundi 37
andaðist 24. júlí að Ási Hveragerði.
Valgerður Steingrímsdóttir
Kolbrún Steingrímsdóttir
Sveinbjörg Steingrímsdóttir
Guðrún Steingrimsdóttir
Guðmunda Steingrímsdóttir
Þórlaug Steingrimsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Sigþór R. Steingrímsson
Þorvaldur Björnsson
Elís Guðmundsson
Pétur Ingi Ágústsson
Guðmundur Jensson
Jón Einarsson
Hjartans þakkir fyrir auösýnda vináttu, hlýhug og samúö við
andlát og útför
Einars Jóhannssonar
skipstjóra
ísafiröi
Elísabet H. Jóhannsson
Lovísa Einarsdóttir OskarKarlsson
Elísabet Einarsdóttir HörðurHögnason
Einar Einarsson
Margrét Einarsdóttir Sverrir Magnússon
Konráð Einarsson Anna Jónsdóttir
Kristinn Einarsson Sigríður Jónsdóttir
Barnabörn og aðrir vandamenn
i
BRIDGE
Hjónin Valgerður Kristjónsdótt-
ir og Björn, forseti, Theódórsson
stóðu sig með prýði í Landsliðs-
keppninni, s.l. helgi!
Undir „dulnefninu" Sigurðurog
Valur skiluðu þau 2. besta árangri
af 6 pörum, ásamt Sigurði B.,
Stefáni Páls., og Val Sig.
Sem sé; „skrap" í veikindafor-
föllum Sigurðar Sverrissonar. I
eftirfarandi spili sköffuðu þau
hjónin Jóni og Símoni og Guð-
laugi og Erni góða sveiflu: S gef-
ur, allir utan:
Norður
S 7
H -
TG1097653
L KD1092
Vestur Austur
S DG954 SA1063
HG762 H K10985
TK4 T 2
L 74 L853
Suður
S K82
H AD43
T AD8
L AG6
Valgerður og Björn runnu í 6
lauf, í suður og þokkaleg slemma
var í húsi þegar Guðmundur P.
fann ekki spaðaútspilið.
Ásmundur og Karl, sem einnig
sátu N/S varð eilítið á í messunni,
en þeir spiluðu gegn Jóni og
Símoni. Sagnir:
S V N A
1-L pass 1-H dobl
pass 3-H 4-T pass
4-H pass 6-T(l?) pass
Opnunin sterk, 1-H 6 plús
punktar, neitaði 3 kontrólum, do-
blið í austur eðlilegt. Ásmundur
var nokkuð fljótur á sér að sýna
ekki hinn litinn í lelðinni (6 lauf).
Símon var ekki í vafa um útspil-
ið, spaðaás og tapað spil. Það er
ekki ólíklegt að Karl sitji í 6
laufum, ef horft er á hávöld hans í
hálitunum, en Jón Ásbj. á að finna
spaða útspil, eftir sem áður.
Björn Eysteinsson og Guð-
mundur Hermannsson fóru einn-
ig flatt á N/S spilunum, í tígul
slemmu.
Þau hjónin spiluðu 2 umf. á
sunnudag og skoruðu 69 (m.tal
60), sem framreiknað (allar set-
umar) hefði gefið 173 vinnings-
stig OG 1. SÆTI!
SKÁK
Það má kannski segja sem svo
að fyrir nokkrum árum hafi menn
alls ekki vitað hvort Kínverjar
kynnu að tefla. En þeir hafa held-
ur betur sýnt hið gagnstæða og
það er á undanförnum Ólympíu-
mótum sem þeir hafa velgt hinum
sterku skákþjóðum undir uggum.
*■■*■*■ f
Gheorghiu hinn sterki fyrsta
borðsmaður Rúmena hefur ef-
laust átt sér einskis ills von er
hann fékk þessa stöðu með hvítu
gegn Liu nokkrum frá Kína, á Ól-
ympíumótinu í Luzern 1982. Hon-
um hefur sennilega reynst það
erfitt að stoppa klukkuna eftir
næsta leik Liu 24.-Dg1-H! (Kxg1
He1 mát).
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN