Þjóðviljinn - 25.07.1984, Qupperneq 11
MINNING
Lífsvefurinn er ofinn úr ævum
einstaklinga. Þræðirnir sýnast
okkur mislangir og gildir en eru
þó eins langir og jafngildir lífinu
sjálfu. Þess vegna er hver og einn
ómissandi og óendanlega dýr-
mætur. Samt verða oftastnær
ekki nema örfáir varir við þegar
einhver deyr. í hvert sinn, ekki
nema örfáir til að sakna og syrgja
og skynja hið óbætanlega. Þá ger-
ist líka hið undarlega að maður
uppgötvar, veit þá fyrst fyrir víst,
að dáinn vinur mun aldrei hverfa
manni.
Við kynntumst Reinaldi strax í
barnaskóla og leiðir skildu ekki
fyrr en að afloknu stúdentsprófi í
Flensborg. Pá fór hann einn vetur
í Háskóla íslands í grísku og lat-
ínu, síðan til Þýskalands að nema
guðfræði við kaþólskan háskóla,
og kom fæstum á óvart. Hann
hafði einmitt lokið því námi þeg-
ar hann féll svona óskiljanlega
snöggt frá og hafði víst fullan hug
á doktorsnámi þar úti. Hann var
kaþólskur sósíalisti, mikill náms-
maður og það sem öllu skipti;
góður drengur. Það voru ekki
alltaf innantóm orð, ef marka má
Snorra Sturluson: „Drengir heita
vaskir menn og batnandi.“
Við munum ákaflega vel eftir
Reinaldi á barnaskólaárunum og
í skátunum. Hann var fjörkálfur,
kraftmikill og galsafenginn en
h'ka foringi félaga sinna og upp-
findingasamur skipuleggjari. Við
munum einnig mætavel eftir hon-
um í menntaskóla, íhugulum og
alvörugefnum, stundum nokkuð
einangruðum. Þá var hann náms-
hestur og dúx.
Um síðustu jól kom hann heim
í frí. Við sáum ekki betur en íhug-
Reinald Reinaldsson
/• 27.
unarmaðurinn og æringinn í hon-
um væru að ná sáttum og hvorug-
ur þyrfti að skyggja á hinn. Held-
ur bættu þeir hvorn annan upp.
Þá hktist Reinald þroskuðum
eldhuga.
Hann var fæddur 27. apríl
1958. Foreldrar hans, Renald
Brauner tónlistarmaður í Þýska-
landi og Þorbjörg Björnsdóttir
bókavörður í Hafnarfirði.
Reinald ólst upp hjá móður sinni,
lengst af við Olduslóð rétt hjá
klaustrinu. Út um stofugluggann
þeirra sást hafið og, ef vel var að
gáð, sjö kirkjur sem Reinald
benti gestum sínum stundum á.
Mæðginin voru mjög samrýmd
og samtaka og stoð hvors annars
alla tíð. Missir Þorbjargar er
meiri en orð fá lýst. En það er
huggun að minning hans lifir, að
þræðirnir eru ekki stakir og að-
skildir heldur mynda þeir einn
vef.
Við vottum Þorbjörgu okkar
dýpstu samúð og samhryggjumst
vinum og vandamönnum.
fyrir hönd skólasystkina:
Árni M. Mathiesen
Hjálmar Sveinsson
Við erum búnar að kveikja á
kertinu og kaffið er komið á
borðið. Sumsé allt tilbúið til að
umræður hefjist. Hvar byrjum
við? í kerskninni um aukaatriðin
er greina lífsskoðanir okkar að?
Með nokkrum góðum sögum um
einkennilega karla og kerlur?
Eða víkur talinu strax að framtíð-
inni sem við erum mestanpart
apríl 1958 - d. 12. jú
/
sammála um hvernig á að verða?
Vitanlega skiptir ekki máli hvar
við byrjum en við erum strax
farnar að hlakka til. Við bíðum
t.d. eftir örvunum þínum, þess-
um sem þykjast vera yfirlætis-
legar og hinum sem látast vera
beittar; örvunum þínum öllum,
sem er svo gott að fá í sig og svara
jafnharðan með öðrum ámóta.
Við bíðum líka spenntar einsog
smástelpur eftir að þú glæsi-
mennið, tággrannur og einnogni-
utíu á hæð, breytist í persónuna
sem saganfjallarum, t.d. íhruma
konu á níræðisaldri sem höktir
um stofuna með slitrótta rödd.
Og við bíðum þess ekki síst að sjá
alvöruna breiðast yfir andlit þitt
meðan rómur þinn lýsir fegurð
himinsins sem koma skal og
stjörnunum björtu á festingunni
sem skína yfir jörð jafnréttis og
yndis.
Okkur er sagt að þú sért farinn
- en þú ert nú samt bara rétt ó-
r 1984
kominn hérna innum dyrnar og
hjá okkur muntu verða svo lengi
sem önnur tórir. Ekki svo að
skilja, við vitum að kveðjustund-
in er í vissum skilningi upp runn-
in. M.a. þess vegna sitjum við hér
saman nú og innaní okkur ungur
sársauki sem við reynum að
leyna. Höfuð okkar viðurkenna
aðdauðinnersjálfsagðasta stað-
reyndlífsins en kenndir okkar
taka fjarveru þína ekki gilda.
Þess vegna - drífum okkur í disk-
ússjónina og komum okkur síðan
að verki. Þú sérð auðvitað um
skipulagninguna, Reinald, eins
og alltaf stóð til. Kannski verður
auðveldara núna en fyrr að halda
okkur hinum að verki. Við vitum
jú að fegurð himinsins er á
ábyrgð mannanna og nú ætti okk-
ur að vera ljóst að það er oftast
áliðnara en við höldum.
b-|l
Alles geben die Götter,
die Unendlichen,
Ihren Lieblingen ganz:
Alle Freuden, die unendlichen,
Alle Schmerzen, die unend-
lichen, Ganz.
-Goethe-
Þeir sem guðirnir elska, deyja
ungir. Aldrei hafa þessi gömlu
orð reynst svo sönn sem nú.
Aldrei hefur neitt virst svo
óskiljanlegt, óútskýranlegt sem
nú.
Reinald er dáinn. Enn hefur
þessi harmafregn ekki fyllilega
náð vitund minni, en kuldinn sem
umlykur mig er staðreynd. Ég -
og allir sem þekktum Reinald hér
heima vorum farin að hlakka enn
einu sinni til að fá að sjá hann
koma heim í leyfi. Hann flutti
alltaf með sér eitthvað ferskt og
fagurt og heilt og göfgaði allt og
alla sem áttu því láni að fagna að
njóta samvista við hann. Per-
sónuleiki hans var svo sterkur að
hann fyllti allt umhverfið, hann
var gáfaður og réttsýnn, óhrædd-
ur að láta skoðanir sínar í ljós og
sameinaði sína sterku guðstrú og
róttækar jafnréttishugsjónir á
dásamlegan hátt. Hann var heill.
Þó hann síðastur allra viður-
kenndi það, þá vissu allir að hann
bjó yfir mjög óvenjulegum og
miklum hæfileikum sem aðeins
þeim hlotnast sem ætlað er stórt
hlutverk. Það hlutverk rækir
hann nú vonandi á æðri stöðum.
Við sem nú syrgjum Reinald
megum því vera þakklát fyrir að
hafa þekkt hann. Hann heldur
alltaf áfram að lifa með okkur í
minningunni og auðga okkur öll
og gera okkur að betri manneskj-
um.
Ég veit að þú, Þorbjörg, hefur
öðlast hina dýpstu gleði með því
að eiga son sem Reinald. Þess
vegna veit ég að sorg þín er nú
jafn djúp og sú gleði. Én ég veit
jafnframt að Reinald hefur skilið
eitthvað af krafti sínum eftir þér
til handa sem mun lyfta þér upp
úr djúpinu og opna augu þín á ný
fyrir fegurðinni sem hann mat svo
mikils.
Ég votta þér, Þorbjörg, Vald-
imar, Svönu og öllum aðstand-
endum mína dýpstu samúð og bið
Almættið að veita ykkur styrk og
lýsa veginn framundan.
Gróa Finnsdóttir.
FRÁ LESENDUM
Nú skal látið til skarar skríða
W Það fólk, sem er fætt á árunum
1908 til 1918, sem enn er á lífi er
nú komið á ellilaun. Á því tfma-
bili, sem það starfaði til elli-
áranna, hafa aldrei orðið í sögu
þjóðarinnar eins miklar framfar-
‘Ir í efnahags- og menningarmál-
um og þá. Raforkuver voru reist
víðsvegar um landið, hitaveitur
lagðar, hafnarmannvirki gerð,
báta- og skipakostur stóraukinn,
verksmiðjur reistar, skólar og
sjúkrahús reist og íbúðarhús
aukin og endurbætt. Þetta var
ævistarf þeirra, sem enn eru á lífi
og þiggja ellilaun, svo og alda-
mótamannanna, sem flestir eru
látnir.
Nú verður kannski einhverjum
á að spyrja, hvernig kjör þessa
fólks eru og hafa verið á elli-
dögunum, hvort það hafi ekki allt
efnast vel á þessum árum og þurfi
nokkra aðstoð í ellinni.
En því er til að svara að flest af
þessu fólki hugsaði lítið um að
auðga sjálft sig og þeir, sem
höfðu stritað alla sína ævi og
eignast hús og kannski bát, lentu í
klónum á fjárbröskurum og lána-
stofnunum, sem sölsuðu eigur
þeirra undir sig, og létu þá svo
lönd og leið þegar þeir höfðu ekki
þrek til að vinna meira.
Svo var það að nokkrir góðir
menn sáu, að svona aðferð við
gamla fólkið sem hafði skilað
þjóðinni svo miklu dagsverki var
ekki sæmandi siðuðu þjóðfélagi
og gátu komið því til leiðar að
það fengi lífeyri svo það gæti lifað
mannsæmandi lífi í ellinni og
Tryggingarstofnun ríkisins kom-
ið á fót. Þetta var mikil hjálp við
gamla fólkið og minnkuðu
áhyggjur þess mikið fyrir fram-
tíðinni. Nú var óttinn við sveita-
flutninga og gömlu hreppstjór-
ana liðinn.
Hreppstjóri
að vestan
En svo alltíeinu kom reiðar-
slagið. Það var kominn hrepp-
stjóri að vestan, sem átti að ráðs-
kast með gamla fólkið, öryrkjana
og sjúklingana.
Nýir herrar voru komnir í vald-
astól. Nú varð að spara fyrir
þjóðfélagið svo að embættis-
menn þjóðarinnar gætu haft
mannsæmandi laun. Gamla
íhaldsafturgangan var komin á
kreik, það varð að byrja á þeim
lægstlaunuðu, og til þess þurfti að
fá mann að vestan til að fram-
kvæma skítverkið. Og árangur-
inn lét ekki á sér standa. Sjúkra-
stofum var lokað fyrir öryrkjum
og sjúkum, lyf og læknishjálp
hækkuðu um helming og greiðsla
úr tryggingum lækkaðar úr 7 þús.
kr. niður í 5 þús. kr. á mán. Nú
var alveg öruggt að gamla fólkið
gat ekki lifað á þessum launum.
Það var líka sparnaður fyrir ríkið.
Þessi allsherjar hreppstjóri gat nú
leikið sér með tilfinningar gamla
fólksins eftir geðþótta sínum. Nú
mátti enginn vera að því að taka
upp hanskann fyrir það.
Nr. 6253-3889.
Skipuleggjum sóknina
HaUdór Pjetursson skrifar:
Þess skal fyrst getið , að mér
líka vel breytingarnar á Þjóðvilj-
anum nema það, að sumt af les-
máli hans stendur á haus, en um
það skai ekki fengist.
Meira af samþjöppuðum smá-
greinum, sem lengjast við lestur.
Einnig fleiri, smærri viðtöl við
allskonar fólk, sem vill lífsfyll-
ingu án þess að vera með lífið í
lúkunum. Ekki má síður benda á
þýðingar í stuttu máli á glímu al-
mennings við samskonar erfíð-
leika og við erum að fást við. Þes-
skonar tengsl eru bráð-
nauðsynleg. Gleymum ekki að í
raun er heimurinn alltaf að
minnka þótt málið sé hið sama.
Skilningur og tengsl þarf að
aukast milli þeirra, sem verið er
að mylja undir fótum.
Höldum uppi hróðri þeirra,
sem harðast hafa barist fyrir frelsi
og menningu, og vitnum í orð
þeirra og gerðir. Kynslóðaskipti
og pólitík eu oft notuð í lágkúru-
legum tilgangi. Menn úr flokkn-
um með ýmsum nöfnum börðust
stundum óhikað við hlið svo-
nefndrar alþýðu. Tilgang þeirra
og verk má ekki alltaf tengja við
flokkanöfn. Séra Halldór á Hofi
var konungkjörinn en gekk tign-
um skrefum úr þingsalnum og af
þingi er Danir ætluðu að þvinga
af okkar síðasta neistann, sem
nafnið maður tengist. Gleymum
aldrei því, sem viturlega og vel er
gert. Slíkt lifir og blómstrar enn í
dag í elstu bókum þessa hnattar.
Ráðamenn okkar, sem kann-
ski er mismæli, eru svo ráðskertir
að þess eru fá dæmi. Þeir eru það
tvístimi, sem selja vill land okkar
undir þann vígvöll, sem djöful-
legastur er allra þeirra, sem sögur
fara af. Þó eru menjar hans enn
lifandi í Japan, sem heiðursmerki
Bandaríkjanna.
Ráðherrar hinna verstu afla
þjóðlífsins hafa nú eðlað sig sam-
an og ætla að mynda nýja fortíð.
Þessvegna verða allir hugsandi
menn að taka höndum saman
áður en ný spellvirki verða unnin.
Sóknina verður að skipuleggja nú
þegar.
MINNING
Gunnar Tryggvason
í dag verður til moldar borinn Gunnar Tryggvason frá Skrauthól-
um sem andaðist í Landspítalanum 15. júlí s.l.
Gunnar var búsettur í Seljahverfi og starfaði þar sem umsjónar-
maður við Ölduselsskólann frá 1977.
Á þeim tíma vora skólinn og hið unga Seljahverfi í öram vexti og
fylgdist Gunnar af miklum áhuga með allri uppbyggingu þar.
Við stofnun Seljasafnaðar 15. júní 1980 var Gunnar kosinn í
sóknarnefnd og reyndist hann hinn traustasti liðsmaður í því mikla
starfi sem framundan var í hinum nýja og fjölmenna söfnuði. Ótal
verkefni biðu úrlausnar. Útvega þurfti bráðabirgðahúsnæði til
guðsþjónustuhalds og annars safnaðarstarfs og átti Gunnar drjúg-
an þátt í að leysa þau mál á farsælan hátt. Eftir að guðsþjónustuhald
var flutt frá Seljabraut 54 í Ölduselsskólann veittu þau hjón Gunn-
ar og Hallfríður margháttaða aðstoð og fyrirgreiðslu í sambandi við
athafnir þar.
Um leið og sóknarnefndin þakkar Gunnari samfylgdina og fórn-
fúst starf er konu hans og sonum vottuð innileg samúð.
Sóknarnefnd
Seljasóknar
Búnaðardeild
Skiptist í þrjár undirdeildir
Svo sem frá hefur verið skýrt
hér í blaðinu var Véladeild SÍS
lögð niður hinn 1. júlí sl. í stað
hennar kom Búnaðardeild, sem
skiptast mun í þrjár undirdeildir:
Skrifstofustjórn, Vélar og
Rekstrarvörur.
Búnaðarvöradeildin tekur nú
við þeim þáttum, sem áður til-
heyrðu Búvörudeild Véladeildar
og varahlutaverslun hennar,
Fóðurvöradeild Innflutnings-
deildar og sölu hennar á girðing-
arefni, ásamt öllum þeim rekstri,
sem áður tilheyrði Dráttarvélum.
Megintilgangurinn með stofn-
un Búnaðardeildar er að sameina
verslun með allar helstu rekstrar-
vörar landbúnaðarins, aðlaga
viðskiptin breyttum verslunar-
háttum og veita betri þjónustu.
- mhg
Birgðastöð endurgreiðir
Tæpar 9 milj. til kaupfélaganna
Birgðastöð SlS hefur nú endur-
greitt kaupfélögunum 8.9 milj.
kr. í tekjuafgang af viðskiptum
síðasta árs. Er það um það bil 3%
af vörukaupum kaupfélaganna
hjá Birgðastöðinni á sl. ári.
Samkvæmt samningi, sem
gerður var fyrir allmörgum árum,
er þessi upphæð lögð í séreigna-
Mlðvikudagur 25.
sjóð Birgðastöðvarinnar hjá
Sambandinu þar sem hún
geymist á fullum vöxtum í 5 ár, en
er þá greidd út. Afkoma Birgð-
astöðvarinnar hefur hinsvegar
ekki leyft svona endurgreiðslur
allt frá 1977, er síðast var lagt í
sjóðinn.
- mhg
júlí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11