Þjóðviljinn - 25.07.1984, Síða 15
IÞROlflR
Sund- yngri flokkar
Bolvíkingar bestir
Ægir laut í lægra haldi í fyrsta sinn á aldursflokkamótinu í Eyjum.
Þrjú íslandsmet-mikil þátttaka.
- Þau bestu á landinu, sagði
þjálfari Bolvíkinga um sundfólk
sitt við Þjóðviljamenn í Vest-
fjarðarispu fyrir skömmu. A
aldursilokkamótinu í sundi í
Vestmannaeyjum um síðustu
helgi kom í |jós að Hugi Harðar-
son hafði rétt fyrir sér: UMFB
vann stigakeppnina og er það í
fyrsta sinn sem Reykjavíkurfé-
lagið Ægir lætur fyrsta sætið af
hendi í þessu móti.
Ægir átti þó tvö íslandsmet í
Eyjalauginni, Ingibjörg Arnar-
dóttir átti meyjarmet í 50 m flug-
sundi (34,7 sek) og í 50 m skrið-
sundi (31 sek). Símon Þór Jóns-
son, Bolungarvík, synti 100 m
flugsund á nýju drengjameti,
1:09,1 mín.
UMFB fékk alls 178,5 stig á
mótinu, Ægir 166,8 stig. í þriðja
sæti var HSK með 116 stig, því-
næst Vestri og SH með 83 stig, og
í sjötta sæti Skagamenn (75,1
sdg). KR fékk 26 stig, Óðinn 25,
Vestur-Húnvetningar 20, Ár-
mann og Siglfirðingar 15, Njarð-
vík 14, Bo
heimamenn 6 stig
rgfirðingar 10,5,
stig, UIA ekert.
Alls var keppt í 34 greinum og
var þátttaka mjög mikil. Bryndís
Ólafsdóttir, HSK sigraði í 5
greinum, Ingibjörg Arnardóttir
Ægi í fjórum.
Sigurvegararnir:
Stúlkur
200 m bringa
Sigurlaug Guðmundsdóttir, ÍA..02:54,80
100 m bak
Bryndís Ólafsdóttir HSK.......01:16,80
100 m skrlð
Bryndís Ólafsdóttir HSK.......01:01,10
400 m skrið
Bryndís Ólafsdóttir HSK.......05:02,30
100 flug
Bryndís Ólafsdóttir HSK.......01:10,90
200 m fjórsund
Bryndís Ólafsdóttir HSK.......02:39,80
4x100 m fjórsund
HSK-a.........................05:07,20
Telpur
100 m bringa
Bára Guðmundsdóttir Vestra....01.25,40
100 bak
Hugrún Ólafsdóttir HSK........01:20,20
100 m skrlð
HugrúnÓlafsdóttirHSK..........01:06,10
4x100 m skrið
HSK-a.........................04:33,30
100 flug
Ásta HalldórsdóttirUMFB.......01:15,90
200 m fjórsund
Hugrún Olafsdóttir HSK........02:43,50
Meyjar
50 m bringa
Ingibjörg Amardóttir Ægi......00:41,40
50 m bak
IngibjörgAmardóttirÆgi.......00:38,60
50 m skrið
Ingibjörg Amardóttir Ægi.....00:31,00
50 m flug
Ingibjörg Amardóttir Ægi.....00:34,70
Piltar
200 m bringa
Amjjór Ragnarsson SH..........02:42,20
100 m bak
ÞórirM. SigurðssonÆgi........01:12,80
100 m skrið
IngólfurArnarson Vestra......00:58,70
(Arnþór Ragnarsson SH á sama tíma)
400 m skrlð
Amþór Ragnarsson SH...........04:35,47
100 m flug
Ingi Þór Einarsson KR.........01:07,70
(Þórir M. Sigurðsson Ægi á sama tíma)
200 m fjórsund
Ingólfur Amarson Vestra......02:29,00
4x100 m fiórsund
Ægir.........................'04:47,20
Hugi Harðarson:
landinu...
þau bestu á
Inglbjörg Arnardóttir; sigur í öílum grelnum í meyjaflokki og tvö islandsmet
Drengir
100 m bringa
Símon Þór Jónsson UMFB.....01:13,10
100 m bak
SvavarÞórGuðnasonÓðni......01:15,00
100 m skrið
Hannes M. Sigurðsson UMFB..01:02,40
(Slmon Þór Jónsson UMFB á sama tíma)
4x100 m skrið
UMFB.......................04:29,60
100 m fiug
Símon Þór Jónsson UMFB.....01:09,10
200 m fjórsund
Símon Þór Jónsson UMFB.....02:32,10
Sveinar
50 m bringa
Rögnvaldur Ólafsson UMFB...00:40,50
50 m bak
Þorvaldur Hermannsson USVH 00:39,20
50 m skrið
Karl Pálmason Ægi..........00:31,10
50 m flug Bryndís Ólafsdóttir; sigur f
Astmar Ingvarsson UMFB 00:37,80 f|mm grelnum
-m
/ kvöld
Blikar -
í kvöld halda Skagamenn í
Kópavog og leika við Breiðablik í
8-liða-úrslitum Bikarkeppni KSÍ.
Islands- og bikarmeistarar IA eru
nú með eina og hálfa hönd á
meistaratigninni eftir sigurinn í
Keflavík og hyggja gott til glóðar
að endurtaka afrek sitt frá í fyrra,
- að vinna bikarinn líka. Til þess
þurfa þeir að yfirbuga Breiða-
bliksliðið og verður þrautin
þyngri á Kópavogsvelli fullum á-
kafra stuðningsmanna sem
heimta sigur eftir slaka heima-
vallarframmistöðu Blikanna í
sumar. Akranes vann Eyjamenn í
Skaginn
sextánliðaúrslitum (3:0) og Blikar
Víði í Garðinum (5:1). Leikurinn
hefst klukkan átta, - jafntefli ekki
mögulegt. Sigurliðið keppir
heima við Þrótt í undanúrslitum
næsta þriðjudag.
Á sama tíma og Skagamenn
kljást við Breiðablik í bikarnum
keppa í 2. deild þau lið sem út
voru slegin, Víðir-ÍBV, í Garðin-
um (komist Eyjamenn í land). 13.
deild verða sex leikir: Fylkir-
Grindavík, Víkingur Ó.-Selfoss,
Stjarnan-Snæfell, Magni-Þróttur
N., HSÞb-Huginn, Valur Rf.-
Austri. -m
/ 3. deild-SV
ÍK heppið
ÍK, sem í Þjóðviljanum í
gær var kallað lánlausasta lið
landsins, var heppið að ná
2-2 jafntefli gegn HV á Skagan-
um í gærkvöld. HV átti leikinn og
sótti látlaust á löngum köflum.
Hörður Sigurðsson skoraði
eina mark fyrri hálfleiks úr víti
fyrir ÍK, en eftir 5 mínútur af
síðari hálfleik jafnar HV (Egill
Ragnarsson). Að vörmu spori
komust hinir heppnu lánleys-
ingjar aftur yfir með marki Ólafs
Petersen. HV jafnaði svo úr víti
þegar um kortér var eftir (Elís
Víglundsson) en tókst ekki að
hirða öll stigin þrátt fyrir öflugar
tilraunir, þarámeðal sláarskot
Sæmundar Víglundssonar beint
úr aukaspyrnu rétt fyrir leikslok.
Þeir Víglundssynir fengu við
þetta tækifæri mikla blómvendi;
hundraðasti leikur beggja með
HV, sem er aðeins fimm ára ga-
malt.
VS/m
Firmakeppni Vals
Pakkað í 1. sæti
Propac, lið frá fyrirtækinu
Pökkun og flutningar, vann
firma- og félagahópakeppni Vals
í fótbolta og fékk að launum
heiður, auglýsingu, verðlauna-
pening, silfurplatta, farandbikar
og kampavín. Rúmlega fjörutíu
lið tóku þátt í keppninni og þurfti
tvær helgar til að knýja fram úr-
slit. f liði pakkara léku margir
kunnir íþróttamenn, körfubolta-
valsarinn Leifur Gústavsson og
þrír KR-ingar, Guðmundur Al-
bertsson handknattleiksmaður
og þeir Willum Þórsson og Sævar
Leifsson sem öllu jöfnu sparka í
röndóttum búningum í 1.
deildinni. -m
Hoppoghí
Hildibrandur
í heimsókn
Sýningarleikur við
Augnablik á föstudag.
Valsarar í hóp norður.
Tvö ævintýralegustu lið á
landinu etja kappi að hálfnuðum
leik Breiðabliks og Þórs í 1. deild
á Kópavogsvelli á föstudaginn,
Hildibrandur úr Vestmanna-
eyjum og Augnablik í Kópavogi.
Liðin hafa vakið athygli vall-
argesta fyrir óvænta sviðsfram-
komu og leggja bæði mikla rækt
við stfl og útíit innan vallar og
utan, - hafa raunar bæði staðið
sig með ágætum hvort í sínum
fjórðudeildarriðli, og hafa eflaust
sitthvað í pokahorni handa
jafnteflisþreyttum
fy rstudeildaráhorfendum.
En aðaláherslan verður lögð á
hopp og hí, bæði í leikhléi og fyrir
leik Blika og Þórsara.
Það er víðar en í Kópavogi sem
menn horfa til leikjanna á föstu-
dagskvöld með glýju í augum.
Valsarar ætla sér að leggja KA
fyrir norðan og stuðningsmenn
hafa leigt sér rútu til að fylgjast
með niðursölluninni. Farið kost-
ar 1100 krónur og má skrá sig hjá
Jóhanni á daginn (s. 54499) og
Ellert á kvöldin (s. 79193). Sjalla-
ferð um kvöldið er háð úrslitum í
leiknum. . . -m
Áttu að skora
miklu fleiri
Arnljótur Daviðsson maður vallarins í 4—0 sigri á
Fœreyjum. Svíar rúlluðu upp dönsku meisturunum.
Fjögur mörk gegn Færeyingum
á Króknum og samt var íslcnska
vörnin mun betri en sóknin. I
hana vantar samvinnumenn og
sóknarmönnum tókst að klúðra
hverju færinu eftir annað, -
verða að gera betur ef þeir ætla
að vinna mótið!
Á fyrstu mínútu björguðu Fær-
eyingar á línu en Arnljótur Da-
víðsson markaði stefnuna þrem-
ur mínútum síðar, 1:0. Ingvi R.
Gunnarsson á næsta mark á ell-
eftu mínútu með hálfgerðri hjól-
hestaspyrnu, mjög fallegt mark,
2:0. Eftir færeyskt sjálfsmark um
miðjan fyrri hálfleik var enginn
vafi á úrslitum en fleiri mörk
létu á sérstanda í bili; markmaður
bjargar af fótum Amljóts komn-
um innúr, Heimir Guðjónsson
skallar yfir af stuttu færi, Árnljót-
ur er enn í dauðafæri en mark-
vörður ver. Rétt fyrir leikhlé
kemur fyrsta hættuskot gesta, í
stöng.
Stangarskot frá Alexander
Högnasyni í upphafi seinni hálf-
leiks, og bjargað á línu frá Arn-
ljóti, á fimmtu mínútu skallar
Ingvi naumlega framhjá og
Heimir aftur á tíundu í dauða-
færi. Arnljótur skorar loks fjórða
mark íslendinga á þrettándu mín-
útu. Skot frá Ingva sleikir slána
þegar um kortér er eftir og
skömmu síðar er færeyskt mark
dæmt af vegna rangstöðu sem
þótti vafasöm. Það sem eftir lifði
var í sama dúr: Ingvi hittir ekki
opið mark, Alexander skot og
yfir í hlussufæri, Heimir í stöng,
Amljótur skallar úr horni hárfínt
framhjá. Fjögur núll.
Á Húsavík skildu Finnar og
Norðmenn jafnir án marka í á-
takalitlum leik. Finnar voru
betri.
Svíarnir sterkir
Svíar unnu sætan fimm marka
sigur á Norðurlandameisturum
Dana. Mörkin skomðu Kaj Esk-
elinen, Peter Wibran, Per Olsen,
Peter Wallentin og Jörgen Pers-
son sem var besti maður vallar-
ins. í hálfleik var staðan 1:0. Þótt
tvö markanna megi skrifa á
reikning danska markmannsins
endurspegla úrslitin yfirburði
Svía. Þeir léku nú mun betur en
gegn íslendingum í fyrradag og
eru líklegastir til sigurs í mótinu.
Staðan:
Finnland............2 1 1 0 8:1 3
Svíþjóó.............2 1 1 0 6:1 3
Island.............2 110 5:1 3
Noregur.............2 1 1 o 3:2 3
Danmörk.............2 0 0 2 2:8 0
Færayjar............2 0 0 2 1:12 0
Næstu leikir verða á morgun á
Akureyri. íslenska liðið keppir
við Norðmenn á aðalvelli klukk-
an átta, Finnar mæta Dönum
klukkan sex á KA-velli og Færey-
ingar Svíum á sama líma á velli
Þórsara. PS/AB/m
N