Þjóðviljinn - 25.07.1984, Side 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsfmi: 81348. Helgarsími: 81663.
DJQÐVIUINN
Miðvikudagur 25. júlí 1984 165. tölublað 49. órgangur
Kröfugerð BSRB
30% á afla flokka
Nái þessi krafafram að ganga þýðir hún 4-6000 króna launa hækkun
fyrir obbann af opinberum starfsmönnum
Kröfugerð opinberra starfs
manna var ákveðin á fundi
stjórnar og samninganefndar
BSRB í gærkvöldi. Var samþykkt
tillaga frá formanni samtakanna,
Kristjáni Thorlacius, um að 1.
september skyldu öll laun innan
launastiga BSRB hækka um
30%. Kæmi sú hækkun í stað 3%
hækkunnar samkvæmt núgild-
andi kjarasamningi en auk þess
hækkuðu launin um 5% 1. janúar
i stað 3% hækkuníe sem núgild-
andi samningur við ríkið kveður
á um.
„Pað var algjör einhugur um
þessa kröfugerð á okkar fundi og
hún samþykkt einróma“, sagði
Kristján Thorlacius í samtali við
Pjóðviljann í gærkvöldi. Auk
meginkröfunnar er gerð krafa um
að vaktaálag verði framvegis
miðað við efsta þrep 16. launa-
flokks og að lögum um kjara-
samninga opinberra starfsmanna
verði breytt á þann veg að að-
ildarfélög BSRB fá samningsrétt
hvert um sig um öll atriði kjara-
samninga.
„Pessi kröfugerð þýðir um það
bil 4000-6000 króna hækkun
launa hjá opinberum starfsmönn-
um, það er nú allt og sumt. Lág-
markslaun okkar yrðu 14.373 kr.
miðað við efsta þrep en með
þeirri kröfu erum við fyrst og
fremst að lýsa yfír stuðningi við
kjarakröfur VMSÍ og fleiri
verkalýðssambanda. Sem dæmi
má nefna að 6. launaflokkur
myndi gefa 16.623 kr. í launum,
10. launaflokkur rúmlega 19.000
kr. og 19. launaflokkur gæfí um
26.205 kr. á mánuði. Obbinn af
okkar fólki er í 6.-19. launaflokki
þannig að þrátt fyrir þessa 30%
tölu hækka launin á mánuði að-
eins um 4-6000 kr. ef okkar
kröfugerð nær fram“, sagði Krist-
ján Thorlacius að síðustu.
Áður hafði gengið treglega að
ná samkomulagi en tvær megin-
hugmyndir voru uppi og gerði
önnur ráð fyrir 16 til um 25 prós-
ent launahækkun eftir launa-
flokkum og hin 16 til tæpar 45
prósent kauphækkunar. Tillaga
Kristjáns mun hafa verið hugsuð
sem nokkurs konar sáttatillaga
eftir alllangar umræður á fundi
forystufólks í BSRB undanfarna
tvo daga.
-v/ös
Stykkishólmur
30 milljóna
bensínstöð
Áœtlað að framkvœmdum Ijúki á einu ári
Framkvæmdir við eina stærstu
bensínstöð landsins eru hafnar
í Stykkishólmi. Jarðvinna er haf-
in á 4.500 mJ svæði undir stöðina.
Þjóðviljamenn á ferð í Hólminum
í vikunni heyrðu að áætlaður
kostnaður við framkvæmdir
verði 30 milljónir króna.
„Næsta vor verður gengið frá
Sveinbjörn Sveinsson umboðsmað-
ur olíufélaganna í Stykkishólmi. Þar
eru hafnar framkvæmdir við eina
stærstu bensínstöð á landinu og gert
er ráð fyrir að hún verði fullbúin á ári. í
baksýn má sjá skólabygginguna sem
byrjað var á fyrir 6 árum og hótelið
sem einnig var mörg ár í byggingu.
Mynd - eik.
byggingu 180 m2 húss á planinu
ásamt því að lokið verður við
stöðina“, sagði Guðni Magnús-
son hjá Olís við Þjóðviljann. Að
sögn Guðna verður jarðvinnu við
nýju stöðina lokið í sumar og ef til
vill einhverri steypuvinnu.
„Það er löngu tímabært að fá
nýja bensínstöð í Stykkishólmi.
Ég er satt að segja undrandi yfir
hvað bæjarbúar hafa sýnt mikið
langlundargeð því aðstaðan hef-
ur verið svo léleg“, sagði
Sveinbjörn Sveinsson umboðs-
maður olíufélaganna í Stykkis-
hólmi. Olís, Essó og Shell sjá í
sameiningu um bensínafgreiðslu
á staðnum.
Raforkuverðið
20 mills í Grikklandi
Nýfallinn alþjóðlegur gerðardómur um 20.5 mills á nœsta ári.
Afturvirkar hœkkanir. Deilan við Alusuisse vartekin úr slíkum gerðardómi!
Gerðardómur í Lausanne í Sviss
hefur kveðið upp úrskurð í
deilu franska álhringsins Pechin-
ey og grískra stjórnvalda. Raf-
orkuverð til álvers Pechiney í
- Nú er það uppi að kanna
hvort ekki er hægt að gera sátt í
málinu, nefndirnar halda áfram
þangað til að sú sátt er komin,
sagði Jóhannes Nordal formaður
samninganefndar Islands og AIu-
suisse í viðtali við Þjóðviljann í
gær. Við gerð bráðabirgðasam-
komulagsins í september í fyrra
var ákveðið að taka ágreinings-
málin úr alþjóðlegum gerðar-
dómi, og setja þau í þrjár gerðar-
dómsnefndir.
Jóhannes Nordal sagði að ef
gerð yrði sátt, þá myndi hún
væntanlega ná yfír öll ágreinings-
atriðin. „Þessi hugmynd kom upp
á þessum fundi sem var að ljúka
og umræður um þann þátt svo-
Grikklandi verður 20.5 mills á
næsta ári samkvæmt niðurstöðu
gerðardómsins samkvæmt Metal
Bulletin 20. júlí. Við gerð bráða-
birgðasamkomulags íslands og
leiðis að það á eftir að ræða það
allt saman meira“, sagði Jóhann-
es.
Jóhannes kvað útilokað að
sættir næðust um ágreiningsmálin
áður en næsti fundur viðræðu-
nefndanna yrði haldinn 23. og 24.
ágúst. Málin væru keyrð sam-
hliða.
Fordœmi
um hœkkun?
Þá var Jóhannes Nordal spurð-
ur hvort úrslit gerðardómsins
sem féll á dögunum í Sviss í deilu
franska álhringsins Pechiney og
grískra stjórnvalda, sem felur í
sér hækkun uppí 20.5 mills á
Alusuisse sem nú er í gildi, var
ákveðið að draga deilumálin úr
alþjóðlegum gerðardómi sem þá
hafði málið til meðferðar og setja
í staðinn á þrjá gerðardóma
næsta ári, fælu ekki í sér fordæm-
isgildi fyrir raforkuverð til Alu-
suisse?
„Ég get nú ekki sagt um það, ég
þekki ekki forsendur og eðli
þessa dóms, það getur vel vefið
að þær forsendur hafi gildi fyrir
okkur“.
Að lokum spurði Þjóðviljinn
Jóhannes Nordal hvort hann væri
bjartsýnn á að gangi saman í
næstu lotu. „Ég er ekki bjartsýnn
á að það gangi saman í næstu
lotu, en ég held að það geti þá
komið í ljós hvort málið sé komið
á það stig að samningar séu að
nálgast“, sagði Jóhannes Nordal
formaður álviðræðunefndar.
-óg
skipaða' fulltrúum deiluaðilja.
Frá þeim hefur ekkert komið.
Gerðardómurinn í Sviss ákvað
að raforkuverðið yrði hækkað
fyrir árið 1983 úr 15 mills í 18.6
mills - þ.e. afturvirk hækkun. Á
yfirstandandi ári, 1984, verður
raforkuverðið til álversins 19.5
mills og á næsta ári 20.5 mills.
Álverið í Grikklandi sem hér
um ræðir notar um 10% raförku-
framleiðslunnar í landinu, en ál-
verið í Straumsvík fær um helm-
ing allrar raforkuframleiðslu hér
á landi.
Aðgerðarleysi
Togarar
stopp
í dag halda útgerðarmenn á
Austfjörðum fund með þing-
mönnum kjördæmisins og sjávar-
útvegsráðherra á Egilsstöðum.
Ef ekkert kemur út úr þessum
fundi frá stjórnvöldum má telja
nær öruggt að stöðvunin nái til
allra togara á Austfjörðum um
kvöldmat í kvöld.
Fimm togaranna fyrir austan
sem óvíst var hvort yrðu stöðvað-
ir eru gerðir út í tengslum við
kaupfélögin, en nú er reiknað
með að jafnvel þeir stöðvist einn-
ig í kvöld. - óg
Nordal
Viljum kanna sættir
Gerðardómsnefndirnar verða þá felldar niður
-og
Staðfesta
„Kom aldrei til greina“
Sverrir Hcrmannsson um gerðar-
dómsnefndirnar:
„Það lá alveg ljóst fyrir að ég
gat aldrei sætt mig við nertt, neina
niðurstöðu í þessum málum
nema þá sem gæti talist dómur
eða dóms-ígildi. Það vil ég leggja
áherslu á. Það kom aidrei til
geina, þó eftir væri leitað, að ég
væri til viðræðna um samninga
um þessi deiluatriði.
(Þessi ummæli Sverris iðnaðar-
ráðherra féllu í umræðum utan
dagskrár, sem Hjörleifur Gutt-
ormsson hóf 10. maí á alþingi).
-óg