Þjóðviljinn - 16.12.1984, Side 19
Fótbolta-
engillinn
Fótboltaengillinn frægi
fjármála goð og sól,
gulls við glitrandi ægi
garpur á framastól.
Litfríð með sínu lagi
lof honum tíkin gól.
Illþýði af ýmsu tagi
öfundar brýndi tól.
Lucy er vænst í lundi
lávarðar, kæn og fróð.
Á hagvaxtarhundasundi
hún bjargar landi og þjóð.
Með samvisku -
vonda verki
vakna mun þjóðarhyggja
og lotningar minnismerki
manni og tík hans byggja.
H.H.
Hertœkni
Tindátarnir
snúa aftur
Að þessu sinni eru þeir ekki í barnaher-
bergjunum heldurávígvellinumsjálfum
Sú tíö er væntanlega fyrir bí
að börn leiki sér með tindáta.
Nú heita leikföngin Pleimó,
Aksjónman og þess háttarog
eru úrplasti. En nú bendirallt
til þess að tindátarnir stigi aft-
ur inn á sjónarsviðið, ekki í
barnaherbergjunum heldur á
hinum raunverulegavígvelli.
Framfarir á sviði tölvutækni og
sjálfvirkni eru farnar að teygja sig
inn á svið „gervihermanna“ ef
svo má að orði komast og í það
vélmennum sem geta annast
hættulegustu og óþrifalegustu
störfin á vígvellinum. Þeir sjá
fyrir sér vélmenni sem geta ekið
um vígvöllinn, fundið skotmörk,
komið fyrir sprengjum og varist
árásum óvinarins. Allt án þess að
kosta þurfi til nokkru mannslífi.
Þeir sjá fyrir sér her framtíðar-
innar þar sem hermenn af holdi
og blóði verða í minnihluta.
Tölvu- og rafeindafyrirtæki eru
þegar farin að bjóða upp á gervi-
hermenn. Grumman flugvéla-
verksmiðjurnar vinna að fram-
leiðslu á Ranger sem er 100
ur að gerð vélmenna til að gegna
ýmsum hlutverkum. Sum þeirra
eru til njósna, önnur geta hlaðið
fallbyssur margfalt hraðar en
mannshöndin, enn önnur geta
gert tundurdufl óvirk. Bandaríski
flotinn vinnur nú að gerð vél-
menna sem geta varað við óveðri,
eldsvoðum og árásum óvinarins.
Þessi vélmenni, sem nefnast Ro-
bart I, hafa 400 orða forða og
ganga fyrir rafhlöðum. Ef hleðsl-
an er að verða búin geta þau
stungið sér sjálf í samband og
hlaðið sig á nýjan leik.
minnsta í Bandaríkjunum er
þessari þróun tekið með fögnuði.
Þar í landi hafa herforingjar og
ráðamenn áhyggjur af því að
lækkandi fæðingartt'ðni komi nið-
ur á aðsókn í herinn. Það gæti
orðið skortur á fallbyssufóðri
þegar næstu kynslóðir vaxa úr
grasi.
Glœst
framtíðarsýn
Það þýðir að nú er reynt að
eyða 50 miljónum dollara í rann-
sóknir á þessu sviði. f skýrslu sem
nýlega kom út á vegum Banda-
ríkjahers er m.a. dregin upp þessi
framtíðarsýn: „Við því má búast
við að vígvöllur 21. aldarinnar
verði þéttsetinn háþróuðum víg-
vélum búnum eiginleikum, svo
sem eyðingarmætti og vígaradí-
us, sem tekur langt fram öllu því
sem nú þekkist á sviði vígbúnað-
ar.“
Herforingjarnir stefna því að
því að koma sér upp fjarstýrðum
punda vélmenni og getur ferðast
um torfærur á allt að 100 km
hraða á klukkustund, miðað út
brynvarin farartæki óvinarins og
grandað þeim með sprengjum.
Ranger er fjarstýrt úr allt að 10
km fjarlægð. Reyndar byggist
hugmyndin sem liggur að baki
Ranger á teikningum vopnasér-
fræðinga Hitlers af fjarstýrðum
smáskriðdreka sem gerðar voru í
síðari heimsstyrjöldinni en kom-
ust ekki lengra en á teikniborðið.
Annað fyrirtæki, Odetics Inc.,
hefur sett á markað sexfætt vél-
menni sem nefnist Odex. Það er
180 cm á hæð en getur ef þörf
krefur þrýst sér saman í 120 cm.
Það getur borið byrði sem vegur
meira en tonn og annast ýmis
verkefni. Þessi vélmenni eru þró-
uð upp úr sjálfvirkum vaktvél-
mennum sem þegar hafa verið
tekin í notkun sem næturverðir,
fangaverðir o.fl.
Mannfall ekki
úr sögunni
Bandaríski herinn vinnur sjálf-
Reyndar hafa sjálfvirkar flug-
vélar þegar sannað gildi sitt. í Ví-
etnamstríðinu notaði bandaríski
herinn þær til njósna og til að
velja skotmörk fyrir sprengjuvél-
ar og ísraelsmenn beita þeim
mikið um þessar mundir. Þessar
vélar eru þó enn mjög ófullkomn-
ar.
Æstustu fylgismenn nýju tin-
dátanna sjá þegar í hillingum þá
tíma að nýliðar í hernum fái alla
sína leiðsögn frá vélmennum.
Einn þeirra, Dennis Crumley of-
ursti, bætir þó við: „Að sjálf-
sögðu verða einhverjar mann-
legar verur eftir til þess að nýlið-
arnir fái á tilfinninguna að þeir
séu að ganga í her sem lúti mann-
legri yfirstjórn.“
Og hann viðurkennir einnig að
tilkoma vélmennanna muni ekki í
koma í veg fyrir eitthvert mann-
fall. En einnig þá koma vél-
mennin að liði. Eða svo vitnað sé
í Crumley: „Vélmennin geta flutt
fallna og særða af vígvellinum.
Það þarf ekki annað en að ýta á
einn hnapp að gefa vélmennun-
um skipun um að flytja þá föllnu í
næstu kapellu.“
ÞH endursagði
JÓLABLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19