Þjóðviljinn - 19.12.1984, Qupperneq 1
MANNLlF
MENNIN6
ÍÞRÓTTIR
Bruð[
Stórlaxar í laxi
Á síðasta ári keyptuforstöðumenn opinberra stofnana laxveiðileyfifyrir 700.000 krónur
Landsbanki og Seðlabanki drýgstir við að eyða opinberufé til kaupa á laxveiðileyfum
Opinberar stofnanir og ríkis-
fyrirtæki hafa undanfarin 4
ár keypt laxveiðileyfi fyrir er-
lenda viðskiptavini sína og for-
stöðumenn að upphæð rúm 1
Vi miljón króna á verðgildi síns
tíma. Þar af voru keypt laxveiði-
leyfi í fyrra fyrir 669 þúsund
krónur.
Þessar fróðlegu upplýsingar
komu fram í skriflegu svari for-
sætisráðherra á alþingi í gær við
fyrirspurn Stefáns Benedikts-
sonar en nokkuð hefur dregist að
fyrirspurninni væri svarað.
Landsbankinn hefur verið
stórtækastur í laxveiðikaupum
undanfarin ár og keypt fyrir sam-
tals 712.600 kr. árin 1980-1983,
þar af fyrir 387.900 kr. á síðasta
ári sem sýnir betur raungildisverð
laxveiðileyfanna fyrir hvert ár.
Veiðileyfi þessi voru notuð að
hluta af fulltrúum bankans, inn-
lendum gestum og erlendum, þar
á meðal bæði sendiherrum
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
á íslandi.
Seðlabankinn hefur einnig ver-
ið drjúgur við laxveiðileyfakaup
fyrir almenningsfé. Síðustu 4 ár
hefur bankinn keypt leyfi fyrir
tæpar 440 þús. krónur, þar af
246.000 kr. á sl. ári. Þessi leyfi
voru notuð af forráðamönnum
bankans,innlendum og erlendum
gestum þeirra.
Aðrar ríkisstofnanir og fyrir-
tæki sem keypt hafa laxveiðileyfi
síðustu ár fyrir vini og vanda-
menn eru Framkvæmdastofnun,
Járnblendifélagið og Landsvirkj-
un. Fjármálaráðuneytið segir í
svari sínu að eigi sé það í manna
minnum í ráðuneytinu að lceypt
hafi verið laxveiðileyfi undanfar-
in ár, en á þessu ári hafi ráðuneyt-
ið varið 500 kr. til kaupa á
tveimur silungsveiðileyfum fyrir
viðsemjendur ríkisins um skatta-
mál.
-•g
Hörpuskelfiskur
Verðfall
fyrir
vestan
Veiðar leyfðar á ný
undan ströndum Flórída.
Algert verðhrun hefur orðið á
hörpuskelfiski á Bandaríkja-
markaði að undanförnu. Ástæð-
an er sú að óhemju mikið magn af
hörpuskelfiski veiðist nú undan
ströndum Flórída, af smáum en
nyög ódýrum fiski. Veiðar á
þessu svæði hafa verið bannaðar í
ein tvö ár, en sökum þess hve sjór-
inn þarna er hlýr vex fiskurinn
mjög hratt og nú hafa veiðar ver-
ið leyfðar á ný.
Jólaumferðin
Bflar í
bankann
Ólöglegir bílarfluttir á
bás í Arnarhólnum
Annasamt er hjá umferðar-
lögreglunni þessa siðustu
daga fyrir jól. Allmikið var um
árekstra í gær, og lögreglan er
stöðugt með kranabíl í gangi til
þess að f jarlægja bíla sem hef-
ur verið lagt ólöglega.
Seinni partinn í gær hafði lög-
reglan flutt 15-20 bíla í bílastæðið
undir Seðlabankabyggingunni í
Arnarhóli. „Þetta er eins og að
venja kýr á bás“, sagði vaktmað-
ur á lögreglustöðinn í samtali við
Þjóðviljann. -óig
Strandið
Sem dæmi um verðhrunið má
nefna að íslenskir aðilar, sem
hafa verið að flytja hörpuskelfisk
til Bandaríkjanna á þessu ári,
hafa selt pund með 40-60 stykkj-
um í frá 2.50 $ og uppí 2.85 $,
og pundið með 30-40 stykkjum í
frá 3.60 $ uppí 4 $ og 80-100
stykki á um eða rúma 2 $.
Þessi hörpuskelfiskur frá Flór-
ída er smár, 80-100 stykki í pundi
og 100-130 stykki í pundi og er
hann seldur á 1.15 $ og fer lækk-
andi vegna þess hve mikið
veiðist.
Að sögn Óttars Yngvasonar,
sem flytur hörpuskelfisk til
Bandaríkjanna og hefur náð jafn
hæstu verði allra íslensku útflytj-
endanna vestra, er nú svo komið í
fyrsta sinn í á annan áratug, að
Bandaríkjamenn eru farnir að
reyna að selja hörpuskelfisk á
markaði í Évrópu. Sennilega
tekst þeim það vegna þess hve
verðið er hagstætt.
Á sama tíma og þetta gerist,
eru miklar óseldar birgðir af
hörpuskelfiski til hér á landi, sem
mjög lítil von er til að hægt verði
að selja meðan Flórída fiskurinn
flæðir nú yfir Bandaríkin á rúman
dollar pundið.
-S.dór
Jól framundan: innkaup, tiltektir og svo þarf að snyrta sjálfan sig fyrir hátíðarnar og annir miklar
hjá rökurum og á hárgreiðslustofum. Myndin sýnirsyfjaðan fylgdarmann á einni stofunni að bíða eftir
mömmu. (Mynd: EÓI)
Komust
ekki um
borð
I gær könnuðu menn aðstæður
til að komast um borð í Sæbjörgu
þar sem hún liggur utanvið
Stokksnes, en Htt eða ekki hafði
slegið á brimið frá strandinu og
urðu menn frá að hverfa. Ekkert
er hægt að segja enn um hvort
skipi eða skipsgóssi (þar á meðal
nótinni) verður náð.
Kristján Sveinsson var annar
þeirra sem fór frá Tryggingamið-
stöðinni að strandstað og sagði
hann að þeir hefðu ásamt skip-
stjóra og björgunarsveitar-
mönnum á Höfn ætlað að freista
þess að komast í gúmmíbát að
skipinu en sjór hafi verið of mikill
til að taka neina áhættu. Fóru
tryggingarmenn og skipstjóri,
Ögmundur Magnússon, til
Reykjavíkur við svo búið. Spáð
er norðlægri átt og skárra veðri á
fimmtudag og er ætlunin að reyna
þá aftur. -m