Þjóðviljinn - 19.12.1984, Blaðsíða 7
Þessir krakkar gáfu sér örskotsstund til að líta upp frá málverkinu á myndverk-
stæðinu til að brosa framan í Ijósmyndarann. Ljósm. eik.
Glatt á hjalla í
flokksmiðstöð
Myndasmiöur Þjóöviljans
heimsækir Opið hús hjá
Alþýðubandalaginu í Reykjavík
Opið hús hjá Alþýðubandalaginu í Reykjavík sl. laugardag þótti
takast afar vel. Fjöldi barna, einsömul ellegar í fylgd foreldra,
kom til leiks og átti saman ánægjulega dagstund í miðjum
jólaönnum. Margrét Pála Ólafsdóttir fóstra hafði veg og vanda
af þessari skemmtan en auk hennar skemmtu þau Kristín
Ólafsdóttir, Silja Aðalsteinsdóttirog ÞórhallurSigurðsson. Það
var sungið og lesið, jólasveinninn kom í heimsókn og krakkarnir
létu hendur standa f ram úr ermum og komu sér upp mynd-
verkstæði þar sem mörg meistaraverk sáu dagsins Ijós. En við
látum myndirnartala.
Þegar maður er lítill og tekur sér pensil í hönd er vissara að bregða yfir sig
plaststakk til að óhreinka ekki jólafötin.
Ætli þau séu að hlusta á Tíu litlar Ijúflingsmeyjar eftir Theódóru Thoroddsen?
Bók með þeirri ágætu þulu kom út fyrir jólin með frábærum myndskreytingum
Katrínar Thoroddsen. Ljósm. eik
Beðið eftir jólasveininum - og eftirvæntingin leynir sér ekki. Ljósm. eik
UMSJÓN: JÓNA PÁLSDÓTTIR
Miðvikudagur 19. desember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7