Þjóðviljinn - 09.01.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 09.01.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Miðvikudagur 9. janúar 1985 6. tölublað 50. árgangur Norðurlandaráðsþing 700 gestir Ping Norðurlanda- ráðs verður í Reykjavík í mars Þing Norðurlandaráðs verður að þessu sinni haldið í Reykjavík dagana 4.-8. mars nk. Þingið verður haldið í Þjóðleikhúsinu og kemur mikill fjöldi norrænna gesta til borgarinnar í því tilefni eða um 500 fulltrúar og starfs- menn og um 200 blaðamenn. Páll Pétursson verður að þessu sinni forseti þingsins en Snjólaug Ólafsdóttir ritari íslandsdeildar Norðurlandaráðs verður fram- kvæmdastjóri þess. Á síðasta þingi í Stokkhólmi var tekin upp sú nýbreytni að gefa út þingtíðindi sem dreift var í hvert einasta hús í borginni. Þetta átti að gera enn á ný í Reykjavík en fulltrúar íslands lögðust gegn því að eyða stórfé í slíka blaðaút- gáfu og sögðu að íslensk dagblöð hefðu sýnt að þau væru einfær um að sinna fréttaflutningi af þing- inu. -GFr Fiskútflutningur Ekkert eftirlit Enginn opinber aðili fylgist með því hvort uppgefið söluverð er rétt eða rangt Eins og skýrt var frá í Þjóðvilj- anum í gær, hefur vaknað grunur um að uppgefíð söluverð á gáma- físki og hörpuskelfíski hjá nokkr- um aðilum sé ekki rétt. Hið raun- verulega söluverð sé hærra en það sem gefið er upp. Þjóðviljinn innti Þórhall Ás- geirsson ráðuneytisstjóra í við- skiptaráðuneytinu eftir því hvernig opinberir aðilar fylgdust með hinu raunverulega söluverði og því skilaverði sem frá söluaðil- unum kemur. Sagði hann að eng- inn aðili hér á landi fylgdist með þessu hvað varðar ísfisk í gámum og hörpuskelfisk. Aftur á móti reyndi viðskiptaráðuneytið eftir mætti að fylgjast með heims- markaðsverði á ýmsum afurðum, svo sem lýsi og mjöli. Það væri auðveldara þar sem um fast heimsmarkaðsverð er að ræða. Aftur á móti er um uppboðsverð að ræða í ísfisksölunni, sem væri misjafnt frá uppboði til uppboðs. Á síðasta ári voru meira en 10 þúsund lestir fluttar út af ísuðum fiski í gámum og fer þessi útflutn- ingur hratt vaxandi. Hér er því ekki um neitt smámál að ræða varðandi skatta og önnur gjöld, ef það er rétt sem ýmsir halda fram að skilaverð sé allt að helm- ingi lægra en söluverðið. -S.dór UðÐVIUINN Landssmiðjan Ljótsaga Árna Kristbjörnssyni sagt upp eftir 30 ára starf3 árum áður en hannfer á eftirlaun - Tryggva Benediktssyni sagt upp vegna þess að hann var talsmaður starfsfólksins Eins og komið hefur fram í Þjóðviljanum var 15 manns sagt upp störfum hjá Landssmiðj- unni þegar nýir eigendur, flestir fyrrum yfirmenn þar, keyptu smiðjuna af ríkinu um áramót. Varðandi tvo þeirra sem sagt var upp störfum, er um Ijóta sögu að ræða. Annar þeirra er Árni Kristbjörnsson járnsmiður sem hefur starfað í Landssmiðjunni í 30 ár. Hann er 64 ára gamall og því aðeins 3 ár þar til hann fer á eftirlaun. Fyrir þetta fullorðinn mann, sem þar að auki er heilsuveill er ekki auðvelt að fá atvinnu. Tryggva Benediktssyni sem starf- að hefur um langt árabil í Lands- smiðjunni var einnig sagt upp störfum og var hann látinn gjalda þess að hann hefur verið málsvari þeirra starfsmanna sem ekki vildu taka þátt í kaupum smiðj- unnar og að auki er hann í stjórn Félags járniðnaðarmanna. Árni sagði í gær að það hefði komið sér mjög á óvart þegar honum var sagt upp störfum. Á fundi sem kaupendahópurinn hélt í september var lagður fram listi með nöfnum þeirra sem ekki Árni Kristbjörnsson: Uppsögnin eitt það versta sem fyrir mig hefur komið. Ljósm. —eik yrðu endurráðnir. Það voru flest- ir elstu mennirnir. Daginn eftir sagði Árni að komið hefði til sín einn af þessum mönnum og sagt sér að hann fengi ekki vinnu áfram frá og með 1. janúar 1985. Þá sögðu forráðamenn fyrir- tækisins Árna frá því að maður frá iðnaðarráðuneytinu, Halldór Kristjánsson ætti að annast mál þeirra sem ekki yrðu endurráðnir og yrði Árna sinnt alveg sérstak- lega sem manni með langan starfsaldur. „Ég hef ekkert frá þessum manni heyrt um að út- vega mér atvinnu“, sagði Árni. „Þegar farið var að tala um að starfsmenn keyptu fyrirtækið sagði ég strax að ég væri orðinn of gamall til að taka á mig fjárskuld- bindingar varðandi kaup á fyrir- tæki. En ég vonaðist hinsvegar til að fá að vinna þarna áfram þau 3 ár sem eftir eru þar til ég fer á eftirlaun, en sú von brást. Það sem mér sárnaði mest var að verkstjóri minn, sem er einn af kaupendunum vissi af því lengi að ég yrði ekki endurráðinn, en hann lét mig aldrei vita neitt um það. Ég skal játa að uppsögnin var mikill skellur fyrir mig, eitt það versta sem ég hef orðið fyrir,“ sagði Árni Kristbjörnsson að lokum. „ ., Aldraðir B-álman bíður enn Mikill skortur á sjúkrarúmum fyrir aldraða fyrirsjáanlegur. Aðeins 8 milljónum veitt til B-álmu. Þörfin 61,5 milljón til að verkinu miði skv. áœtlun Illa horfír með styttingu biðlista á sjúkraplássum fyrir aldraða. A fjárlögum þessa árs stendur að- eins til að vcita 8 milljónum til etta margbrotna bákn, Sjálf- stæðisflokkurinn, verður á einhvern hátt að leysa sín innan- búðarmál. Fyrr verður hann ekki nothæfur í stjórnarsamstarf“, segir í leiðara NT, málgagni for- sætisráðherra í gær. Farið er afar hörðum orðum um samstarfs- flokkinn í ríkisstjórn og ríkis- stjórnina sjálfa: „Ríkisstjórnin er innbyrðis veik, mest vegna þess að stærri stjórnarflokkurinn hefur alls ekki byggingar B-áimu Borgarspítal- ans sem miklar vonir voru bundn- ar við að lokið yrði á árinu 1986, og hefði bætt úr skorti á sjúkra- þann innri styrk til að geta heilshugar tekið þátt í stjórnar- samstarfi. Þar standa nú yfir log- andi illdeilur og átök“. í leiðaranum er sagt að allt flokkakerfið sé í deiglunni og tek- ist á um grundvallarmál í Alþýðu- bandalaginu, Sjálfstæðisfloickn- um og Alþýðuflokknum. „Þannig virðist kreppan í þjóð- arbúskapnum knýja á um upp- gjör í gömlu og grónu flokkun- um. Uppgjör sem vissulega er rúmum til muna. 61 milljón þyrfti að renna til B-álmunnar á þessu ári ef áætlun ætti að standast. Úr framkvæmdasjóði aldraðra, sem nauðsynlegt, því að í mörgum til- fellum virðast menn innan flokka eiga minna sameiginlegt en menn milli flokka. Flokkakerfið hér minnir rneira á ættbálkabanda- lagskerfi, en að það skipti mönnum niður eftir því hvaða lífsviðhorf þeir aðhyllast“. -óg Sjá bls. 4. landsmenn allir greiða nefskatt í, verður cinungis varið 16,5 milljónum til hjúkrunardeilda aldraðra á þessu ári. „Núverandi ríkisstjórn hefur fyrst og fremst komið í veg fyrir að hægt væri að standa við áætl- anir um uppbyggingu B- álmunnar, með alltof lágum fjár- veitingum í fyrra og ennþá lægri í ár“, sagði Adda Bára Sigfúsdóttir varaformaður Framkvæmda- sjóðs aldraðra við Þjóðviljann. Ríkið á skv. lögum að fjár- magna 85% af byggingu sjúkra- húsa og sveitarfélögin 15%. „Ríkissjóður sparar sitt framlag á þessum lið. Fjárveitinganefnd sá um útdeilingu fjármagnsins og af- greiddi ekki nema 8 milljónir til B-álmunnar. í fyrra fékkst einnig miklu minna en þurfti til verksins svo áætlanir stæðust. Adda Bára sagöi að 30% af fjármagni Framkvæmdasjóðs aldraðra væri varið til hjúkrunar- deilda. „Af sjálfu leiðir að þær 16,5 milljónir sem til þeirrar ráð- stöfunar eru á árinu geta ekki all- ar runnið til B-álmunnar. En þótt þær rynnu allar þangað yrðu fjár- veitingar alls til B-álmunnar ekki nema 22,5 milljónir sem eru 37% af þörf þessa árs.“ _. Sjúkdómslýsingar Ónothæfur flokkur Leiðari málgagns forsœtisráðherra: Sjálfstœðisflokkurinn ónothœfur í stjórnarsamstarfi. Ríkisstjórnin innbyrðis veik

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.