Þjóðviljinn - 06.02.1985, Page 2

Þjóðviljinn - 06.02.1985, Page 2
FRETTIR TORGIÐ Félagshyggja Stofnfundur í kvöld Ríkt land, lág laun - umrœðuefnið áfyrstafundi Málfundafélags félagshyggjufólks á Hótel Borg í kvöld. Ikvöld verður haldinn stofn- fundur Málfundafélags félags- hyggjufólks og hefst hann kl. 20.30 á Hótel Borg. Að fundinum stendur hópur áhugamanna sem í vor og haust hélt fundi um vel- ferðarríkið - stefnu félagshyggju- manna í Gerðubergi og á Borg- inni. Á stofnfundinum í kvöld verð- ur rætt um efnið: Ríkt land, lág laun, hvert fara peningarnir? Fundarstjóri verður Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi, en meðal málshefjenda eru Birgir Björn Sigurjónsson hagfræðing- ur hjá BHM. Jón Sæmundur Sig- urjónsson deildarstjóri í heilbrigðisráðuneytinu og Birgir Árnason hagfræðingur á Þjóð- hagsstofnun. I stuttu spjalli við Þjóðviljann sagði Birgir Árnason að það væri lögnu orðið tímabært að íslenskir vinstrimenn hristu af sér slyðru- orði'5 og kvæðu frjálshyggju- ósvinnuna í kútinn.Málfundafé- lagið væri kjörinn vettvangur fyrir vinstri menn, þar gætu þeir tekið höndum saman við að móta hugmyndafræðilegt svar við hægri stefnunni í landinu. „Mér finnst einkum vera brýnt“, sagði Birgir, „að félags- hyggjufólk velti því fyrir sér hvernig eigi að standa straum af kostnaði við velferðarríkið í framtíðinni, - með öðrum orðum er brýnt að við mörkum skýra hagvaxtarstefnu, ólíka markaðs- hyggjunni. Um þetta ætla ég að fjalla í mínu framsöguerindi." Fundurinn er opinn öllum áhugamönnum. Háskóli íslands 20 endurmenntunarnámskeið Aætlað er að halda um 20 end- urmenntunarnámskeið á vor- misseri fyrir ýmsa hópa háskóla- manna. Frá hausti 1983 hefur Háskóli íslands í samvinnu við Bandalag Háskólamanna og fleiri aðila staðið fyrir endurmenntunar- námskeiðum fyrir starfandi há- skólamenn. Á þessum tíma hafa verið haldin rúmlega 30 nám- skeið með tæplega 700 þátttak- endum. Námskeið vormisseris eru sum hver þegar hafin, má þar nefna tölvunámskeið sem stend- ur til 7. feb. og viðamikið nám- skeið um umhverfisrétt en því lýkur 16. feb. Umsjónarmaður námskeiðanna er Margrét S. Björnsdóttir. Nú eru efnahagsaðgerðir í gerjun. Það á að drekka sig út úr vandanum! Birgir Árnason: kjörinn vettvangur til að móta svar við hægri stefnunni. Mynd: E.ÓI. Alþingi Tveir nýir varamenn Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir skrifstofumaður, tók í gær sæti Sverris Hermannssonar á alþingi, en hann situr norrænan iðnað- armálafund í Helsinki þessa dag- ana. Þá tók Siggeir Björnsson bóndi, sæti sem varamaður Egg- erts Haukdals, sem hefur leyfi frá störfum í þinginu vegna anna heima fyrir. _ Mótorskip hf. Leiðrétting í Innsýnargrein um helgina var meinleg prentvilla. Sagt var á ein- um stað „Dæmið af Mótorsport hf...“ en í stað Mótorspor/ átti auðvitað að vera Mótor skip. Þetta leiðréttist hér með og eigandi Mótorsports beðinn vel- virðingar á þessum mistökum. Stjomarfonnanni Hafskips hf. svarað Athugasemd vegna viðtala við Ragnar Kjartansson stjórnarformann Hafskips hf í Morgunblaðinu 30.1. 1985 ogíPjóðviljanum3.2.1985 Stjórnarformanni Hafskips hf. er mikið niðri fyrir þessa dagana og í viðtölum er birst hafa í dag- blöðum að undanförnu hefur hann haft í frammi áróður og róg- burð í garð Skipadeildar Sam- bandsins og er helst á honum að skilja að þar sé komin skýringin á því hvernig nú er komið fyrir Hafskip hf. Samkeppni skipafélaganna Frá því á seinni hluta síðasta áratugar hefur orðið mikil breyting á sviði reglubundinna flutninga á sjó til og frá landinu. í byrjun þessa tímabils var Eim- skipafélag íslands allsráðandi í þessum flutningum með yfirráð yfir um 80% markaðarins og Haf- skip varþá, skv. uppiýsingum nú- verandi stjórnarformanns, gjald- þrota. Þessi einokunaraðstaða Eim- skips var að sjálfsögðu algjörlega óviðunandi fyrir verslunina í landinu, enda frjáls samkeppni á sviði sjóflutninga forsenda frelsis og eðlilegrar verðmyndunar bæði í inn- og útflutningsverslun. Samvinnumenn voru orðnir langþreyttir á þessu ástandi og því var mörkuð sú stefna hjá Skipadeiid Sambandsins að byggja upp á vegum samvinnu- manna traust og hagkvæmt flutn- ingakerfi er veitti reglubundna þjónustu til og frá helstu viðskipt- ahöfnum, í samræmi við þarfir markaðarins. Þessi uppbygging hefur gefist vel. Þrátt fyrir vax- andi samkeppni hafa viðskipti aukist og hagnaður orðið af starf- seminni. Á svipuðum tíma tóku nýir menn við stjórn hjá Hafskip hf., fýrirtækið breytti um svip, bauð lág flutningsgjöld í byrjun og jók mjög umsvif sín. Hefur öðru fyr- irtæki vart verið hossað meir í fjölmiðlum á síðari árum sem dæmi um „stórhug‘% „hag- kvæmni“ og „fjölhæfni". Síðustu árin hefur svo átt sér stað mikil og harðnandi sam- keppni þessara þriggja félaga á sviði áætlunarsiglinga og hefur á ýmsu gengið. Skiparekstur og þá ekki síst fastar áætlunarsiglingar eru mjög fjármagnsfrek atvinnu- grein og öllum félögunum því nauðsynlegt að tryggja arðsaman rekstur. Lækkandi farmgjöld og mikill tilkostnaður hafa að und- anförnu undirstrikað nauðsyn þess að félögin byggi upp hag- kvæm flutningakerfi til þess að komið verði í veg fyrir rekstrar- halla. Forsendur samkeppnishæfni á þessu sviði eru því að geta fram- leitt flutningsgetu á sem lægstu verði og ná góðri nýtingu þeirrar flutningsgetu sem framleidd er. Hvort tveggja þarf að vera fyrir hendi ef reksturinn á að vera arð- bær því það er hvorki nóg að fylla skip af vörum ef rekstur þess er of dýr né heldur er nægjanlegt að kaupa stórt og hagkvæmt flutn- ingaskip ef farmur er ekki fyrir hendi til að nýta hagkvæmnina. Við þessi vandamál hafa fé- lögin öll verið að glíma og þrátt fyrir harða innbyrðis samkeppni hafa aðilar fram til þessa haldið Eftir Axel Gíslason sér frá opinberum illdeilum og í stað þess einbeitt sér að lausn fyrirliggjandi verkefna hver á sinn hátt. Á þessu hefur nú orðið breyting. Asökunum vísað á bug í tveimur viðtölum er Ragnar Kjartansson stjórnarformaður Hafskips hf. lætur hafa við sig í Morgunblaðinu 30. 1. ’85 og í Þjóðviljanum 3. 2. ’85, kveður allt í einu við nýjan tón. Vanda- mál félagsins, sem hann nú kallar „neikvæð eiginfjárstaða", er að sjálfsögðu talin öðrum að kenna og í rökþroti sínu grípur stjórn- arformaðurinn til þess eina úr- ræðis er hann nú hefur, að ata samkeppnisaðila auri, einkum Skipadeild Sambandsins. í viðtali því er birtist í Þjóðvilj- anum segir Ragnar: „Við höfum heyrt það að menn frá Skipa- deildinni hafi boðið jafna taxta eða lægri með því fororði að óvarlegt væri að treysta Hafskip nú vegna erfiðleikanna. Við- skiptavinir stæðu frammi fyrir þeirri hættu að vörur lokuðust inni hjá Hafskip". Því er hér með alfarið vísað á bug að starfsmenn Skipadeildar Sambandsins hafi notað bága stöðu Hafskips til þess að ná við- skiptum frá félaginu. Það er uppspuni frá rótum og sú umræða sem er í gangi um stöðu Hafskips er ekki frá Sambandinu komin. Skipadeild Sambandsins hefur ekki og þarf ekki á slíkum aðferð- um að halda til að selja þjónustu sína. Lægri taxtar Það er hins vegar bæði satt og rétt sent haft er eftir Ragnari Kjartanssyni að Skipadeild Sam- bandsins hafi boðið lægri taxta en Hafskip hefur boðið viðskipta- vinum sínum. Það er í samræmi við tilgang með starfsemi Skipa- deildar Sambandsins að bjóða á flutningamarkaði góða og ódýra þjónustu og það þarf ekki að koma Ragnari Kjartanssyni neitt á óvart, einum af postulum frelsis og samkeppni, að hann er ekki einn í heiminum og hann og félag hans verða að standa sig í sam- keppninni eins og aðrir. Þegar Hafskip hóf sókn sína á markaði með stórlega lækkuðum farmgjöldum fyrir nokkrum árum, hét það á þeirra máli „Við tókum upp breyttar vinnuaðferð- ir og breytingar á töxtum“. Þegar svo þeir mæta breyttum vinnuaðferðum og breytingum á töxtum hjá öðrum, er gripið til óhróðurs og hrópað einokun, auðhringur, undirboð. Þetta er tónn sem oft hefur heyrst áður úr sömu átt þegar gróðaöflin fara halloka í sam- keppninni. Það er okkur sam- vinnumönnum vísbending um að félagslega rekin atvinnustarfsemi er nauðsynleg við hlið einkafram- taksins til tryggingar sanngjarnri verðmyndun. Það er leitt til þess að vita að Ragnar Kjartansson sem oftast hefur haft í frammi prúðmann- lega framkomu hafi lent í þeirri aðstöðu að sjá ekki aðrar leiðir en að útbreiða ósóma um sam- keppnisaðila en í því sambandi er þó vert að hafa í huga eftirfarandi vísu: Taktu ekki níðróginn nœrri þér, það ncesta gömul er saga, að lakasti gróðurinn ekki það er, sem ormarnir helst vilja naga. 4. febrúar 1985 A.G. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 6. febrúar 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.