Þjóðviljinn - 19.02.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.02.1985, Blaðsíða 1
VIÐHORF MANNLÍF ÍÞRÓTTIR HEIMURINN ísland Hemaðarframkvæmdir Heildaráætlun nemur 12 milliörðum króna! „Hugmyndir um nýjar ratsjár- stöðvar eru nátengdar öðrum framkvæmdum og áætlunum, sem varða Keflavíkurstöðina eins og byggingu á styrktum flug- skýlum í Keflavík, endurnýjun þeirra orrustuflugvéia sem þar eru, byggingu olíugeyma í Helgu- vík o.fl.“, scgir í skýrslu Örygg- ismálancfndar eftir Gunnar Gunnarsson sem ber heitið Kefla- víkurstöðin: Aætlanir og fram- kvæmdir og kom út í gær. „Allt tengist þetta loftvörnum á einn eða annan hátt. Út frá hernaðarlegu sjónarmiði er því eðlilegra að h'ta á þessar áætlanir sem eina heild, áður en litið er á hvert einstakt atriði fyrir sig“, segir í skýrslu nefndarinnar. Flestar áætlanirnar og fram- kvæmdirnar eru byggðar á endur- skoðun sem bandaríska herfor- ingjaráðið framkvæmdi í júlí og nóvember 1980. Sumar þeirra hafa einungis verið til meðferðar á vegum bandarískra hernaðaryf- irvalda og bandaríska þingsins en aðrar hafa komist til umræðu hjá íslenskum yfirvöldum, þó loka- ákvarðanir liggi þar ekki fyrir. Meðal þess sem felst í áætluð- um framkvæmdum eru: olíu- geymar, olíuhöfn, bygging styrktra flugskýla, bygging styrktrar stjórnstöðvar. Hinsveg- ar er kostnaðurinn við flugstöð- ina og einhver hluti ratsjárstöðv- anna ekki inní heildarupphæð- inni sem hér er nefnd að ofan. Getið er um fjölgun nýrra orr- ustuflugvéla af gerðinni F-15 Eagale hér á landi og um stjórn- stöðinaerm.a. sagt: „Stjórnstöð- in á að vera þannig útbúin að starfslið á að geta verið innilokað í stöðinni í sjö daga án nokkurs sambands við umheiminn nema í gegnum talstöðvar. Hreinsi- stöðvar og útbúnaður vegna mengunar frá eiturefna- og lífefn- avopnum verður innbyggður í stöðina. Heildarkostnaður vegna byggingar og kaupa á stjórnunar- útbúnaði fyrir loftvarnir er áætl- aður 55 miljónir bandaríkja- dala“. Þá er og getið um hugsan- lega fjölgun AWACS ratsjárvéla um tvær, en talið mögulegt að annað ratsjárkerfi verði byggt hér upp. - óg Fréttir á blaðsíðum, 2, 3,13,19 og 20 Mikið af loðnu hefur nú borist á land í Vestmannaeyjum sem og annars staðar en nú stöðvast loðnuflotinn í dag og á morgun. Þessi mynd var tekin í Vestmannaeyjum í gær. Ljósm. E.ÓI. að hefur nákvæmlega ekk- ert gerst á samningafund- unum um heigina og í gær. Út- gerðarmenn hafa hafnað öllum sáttatillögum okkar, án þess að koma með neitt í stað- inn sjálfír, sagði Hafþór Rós- mundsson hjá Sjómannasam- bandi íslands í samtali við Þjóðviljann í gærkvöldi. Hafþór sagði að sumir sjó- menn hefðu verið óánægðir með hvað samninganefnd sjó- manna teygði sig langt með sáttatilboðinu sl. sunnudag sem útgerðarmenn höfnuðu þá um kvöldið. Það kæmi sjálfsagt engum á óvart þó hlé yrði gert á samningafundun- um, eftir daginn í dag, svo mikið ber á milli, sagði Haf- þór. í samtökum forystumanna sjómanna og ráðherra í gær gerðist ekki neitt markvert og ekkert frá ríkisstjórninni komið varðandi þau mál sem að henni snýr. Um miðja vikuna verður allur bátaflotinn stopp vegna verkfallsins og stói hluti tog- araflotans. í dag kl. 10 hefur verið boð- aður sáttafundur í deilunni. - S.dór Kjaradómur í öfuga átt? Úrskurður Kjaradóms frá laugardegi um aðalkjarasamn- inga Bandalags háskólamanna og ríkisins hefur ekki orðið forystu- mönnum BHM tilefni mikilla yfirlýsinga. „Ekkert um hann að segja“ segir formaður launamál- aráðs BHM, „hef varla neina skoðun“ segir oddviti kennara, en bætir við að úrskurðurinn hafl ekki áhrif á kennarauppsagnirn- ar! Formaður samninganefndar ríkisins segir líka „ósköp Iítið“, - þeir telja allir að ekki komi til stykkisins fyrrcn í sérkjarasamn- ingum sem nú hefjast loks í al- vöru. Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ telur að þótt ekki verði dreg- in endanleg ályktun um niður- stöðu af þessum úrskurði sé með honum stefnt „til öfugrar áttar“ - til aukins ójafnaðar meðal há- skólamanna innbyrðis og í samfé- laginu öllu. - m Sjá bls 2 og 20 Skákin 6. umferð á afmælisskákmóti Skáksambands íslands var tefld í gærkvöldi. Úrslit urðu þessi: Spassky - Van der Wiel: V2-V2 Larsen - Hort: Bið Karl - Jón L.: V2-V2 Helgi - Guðmundur: V2-V2 Margeir - Hansen: Bið Jóhann - Jusupov: 0-1 Staðan eftir 6 umferðir: 1. Larsen 4 + biðskák 2. Spassky 4 3. Margeir 3'/2 + biðskák 4. Jusupov 3Vi 5. Van der Wiel 3'/2 6. Guðmundur 3 7. Jóhann 2V2 8. Helgi 2*/2 9. Karl 2V2 10. Hort 2 + biðskák 11. Jón L. 2 12. Hansen 1 + biðskák Sjá bls, 8

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.