Þjóðviljinn - 19.02.1985, Blaðsíða 7
Óli S. Runólfsson stjórnarmaður í Nemendasambandi Félagsmálaskólans,
afhenti skólanum skóflu að gjöf frá nemendasambandinu. Gjöfinni fylgdu óskir
um að ekki dragist um of að hún verði notuð til að taka fyrstu skóflustunguna að
nýju skólahúsi.
skólinn hljóti fulla viðurkenn-
ingu á við aðra skóla sem kenna á
framhaldsskólastigi.
Nú stendur yfir 2. önn skólans,
en annimar eru þrjár, sú níunda
frá upphafi. Tvær fyrstu annir era
fyrirhugaðar til vors, hefst sú
fyrri þann 10. mars og hin síðari í
apríl. Verður sú önn sérstaklega
ætluð ungu fólki í verkalýðs-
hreyfingunni (25 ára og yngri).
í afmælishófi sem nemendur
og starfsfólk skólans efndu til í
Ölfusborgum færði Nemenda-
samband skólans honum skóflu
að gjöf. Afhenti Óli S. Runólfs-
son stjórnarmaður í nemenda-
sambandinu formanni skóla-
stjórnarinnar skófluna með þeim
ummælum að hún ætti að vera
tiltæk til að taka fyrstu skóflust-
unguna að hinu nýja húsi sem
fyrst.
-hágé.
Þrlðjudagur 19, tebrúar 1985ÞJ6ÐVILJINN - SÍÐA 7
Á hverri önn í Félagsmálaskólanum eru u.þ.b. 20 nemendur að meðaltali. Á þeirri önn sem nú stendur yfir eru 19 nemendur. Sést hér hluti hópsins ræða málin. Talið frá vinstri, Sigurður V.
Magnússon, Jóhannes Lange, Ásdís Petersen Kjeld Nielsen, Valdís Kristjánsdóttir, Vilborg Þorsteinsdóttir, Björk Jónsdóttir.
MFA
Félagsmálaskólinn tíu ára
Fyrrverandi nemendur gáfu skóflu til að taka fyrstu
skóflustunguna að nýju húsi fyrir skólann
Fjölmargir listamenn hafa komið fram á kvöldvökum félagsmálaskólans.
Félagsmálaskóli Alþýðu tók til
starfa 16. febrúar 1975 og er því
tíu ára um þessar mundir.
Skólinn er ætlaður félags-
mönnum stéttarfélaganna innan
Alþýðusambandsins. Menning-
ar- og fræðslusamband alþýðu
rekur skólann og er stjóm MFA
jafnfram stjórn skólans.
Viðfangsefni skólans sem rek-
inn er með annasniði, og stendur
hver önn í 2 vikur, era m.a. fél-
agsstörf ræðumennska, fram-
sögn, samningar, hagfræði, fé-
lagsfræði, launakerfi o.fl.
Þrítugasta og fimmta þing Al-
þýðusambandsins sem haldið var
á sl. hausti fól stjórn MFA og
miðstjórn ASÍ að undirbúa smíði
húss fýrir skólann í Ölfusborgum
og vinna jafnframt að því að