Þjóðviljinn - 01.03.1985, Side 8
GLÆTAN
Sigurður sinnir kallinu. Ljósm. - E.ÓI.
Hér er fjörið
Föstudagur 1. mars
Ársel: Diskótek frá 8 til 11.30
Bústaðir: Diskótek frá 8 til 12
Fellahellir: Diskótek frá 8 til 12
Tónabær: Diskótek frá 8 til 11
Þróttheimar: Diskótek frá 8 til
12.
Á laugardag 2. mars
Agnarögn: Diskótek frá kl. 9 til
1.
Traffic: Diskótek föstudags-
og laugardagskvöld frá kl. 10
til 3.
Á laugardagskvöld er einnig á
dagskrá kynning á Tískunni
’85 í snyrtivörum, hárgreiðslu
og fötum.
Talía, leiklistarsviö Mennta-
skólans við Sund sýnir Drauga-
sónötuna eftir Strindberg í hús-
næði skólans föstudagskvöldið
1. mars og sunnudagskvöldið 3.
mars kl. 20.30.
Atriði úr Draugasónötunni.
Túkall
verður
Útkall
Rœtt við Sigurð B. Stefánsson, 17 ára ritstjóra ung-
lingablaðsins
Nýlega barst hingað í Glætuna
2. tölublað unglingablaðsins Út-
kalls. I „leiðara" þess stendur að
því sé fyrst og fremst ætlað að
vara afþreyingarblað fyrir ungt
fólk. Ritstjóri og ábyrðarmaður
er Sigurður B. Stefánsson 17 ára
unglingur úr Kópavogi en sér til
aðstoðar hefur hann Guðna
Björnsson. Þar sem það er ekki á
hverjum degi að ungt fólk ræðst í
blaðaútgáfu fengum við Sigurð til
að segja aðeins frá sér og blaða-
mennskunni.
- Ahuginn vaknaði þegar ég
starfaði við félagsblað. Svo var ég
í starfskynningu á Tímanum vor-
ið 83. Blaðið Útkall vinn ég að
mestu leyti sjálfur nema Guðni
teiknaði forsíðuna á báðum blöð-
unum. Ég hef aðgang að ritvél og
kom mér upp ljósaborði heima
og lími allt upp á því. Blaðið er
offsetfjölritað á fjölritunarstofu.
Það er dálítið dýrt að gefa út blað
en ég reyni að fjármagna útgáf-
una með auglýsingum. Það gekk
ágætlega með seinna blaðið.
Nafn blaðsins? Ja það er dregið af
orðinu túkall, umsnúið verður
það útkall.
Það er ætlunin að gefa út 3-4
blöð á ári og ég býst við að reyna
að fá annan með mér. Blaðið er
selt í lausasölu, ég reyndi að fá
áskrifendur í fyrra en það gekk
illa og ég hætti við það. Þá er líka
komin aukavinna í kringum það.
Blaðinu er dreift í sjoppur og fé-
lagsmiðstöðvar, og kostar 5o
krónur. Næsta blað kemur út
sennilega um mánaðamótin
apríl-maí. Efni blaðsins er komið
á hreint í meginatriðum. Það
verða í því 2 viðtöl, 1 aðal og 1
auka. Viðtölin tek ég upp á segul-
band og breyti engu en reyni að
láta málfarið koma skemmtilega
út. Viðmælandi fær auðvita að sjá
viðtalið áður en ég set það. Einn-
ig verður grein um popphljóm-
sveit. Ég fylgist með flestöllu
poppi og les bæði erlend blöð og
innlend. Greinarnar sem ég svo
upp úr því sem ég hef lesið og
veit. Uppáhaldshljómsveit á ég
samt ekki. Það fylgir með blaðinu
popp-„plaggat“. Einnig verður
grein um Islandsmótið í fótbolta.
Keppnistímabilið hefst um það
leyti sem blaðið kemur út. Að
lokum verður svo grein um
skemmtistaði almennt. Allt efni
utanað er líka vel þegið. Það er
ætlunin að stækka blaðið úr 12
síðum upp í 24.
Einn
■ óbyggðum
Það hefur verið tekið afskap-
lega vel í útgáfuna. Ég hef fengið
stuðning hjá Eðvarði (Ingólfs-
syni) og Jens (Guðmundssyn) en
þeir þekkja báðir vel til í blaðaút-
gáfu. Éðvard er ritstjóri
Æskunnar og Jens er ritstjóri
Hjáguðs. Kunningi minn sem er
mikið í blaðamennsku hefur
einnig leiðbeint mér.
Það fer geysilegur tími í þetta
en fyrir utan blaðamennsku
stunda ég lítillega fótbolta og er
formaður í Hrönn.félagi ung-
templara. Hrönn er 25 ára gamalt
félag, en starfsemin hefur verið í
miklum dvala, við erum að reyna
að lyfta félaginu upp. Það eru um
200 manns á skrá félagsins. Innan
þess er starfrækt skíðadeild og
knattspyrnudeild. Við gáfum út
söngbókina Spangólínu sem seld-
ist geysilega vel. Það er alltaf yfir-
drifið nóg að gera.
í nánustu framtíð ætla ég að fá
mér vinnu, hef von um vinnu
hálfan daginn, þó ekki í sam-
bandi við blaðaútgáfu. í haust
ætla ég í skóla. Mig langar til að
læra eitthvað í sambandi við blað-
amennsku en verð þá að fara til
útlanda eftir stúdentspróf.
í sumar segi ég sennilega skilið
við blaðamennskuna í bili og
sækji um starf sem landvörður í
Galtalækjarskógi. Þar hef ég ver-
ið undanfarin sumar og vona að
ég komist þangað í sumar líka.
Þetta er vel borgað starf og
skemmtilegt. Ég sé um tjaldstæð-
in, rukka inn fyrir þau og svo vinn
ég að undirbúningi mótsins sem
er þar á hverju sumri um verslun-
armannahelgi. Það má segja að
þetta sé vinna allan sólarhring-
inn. Það er skrýtið að vera þarna,
þetta er langt uppí landi, fyrir
ofan Búrfell. Stundum hef ég ver-
ið einn þarna í miðri viku ef engir
gestir eru og langt á næstu bæi.
Þarna er heldur enginn sími svo
maður er svo sannarlega einn upp
í óbyggðum, sagði þessi starfs-
glaði piltur og var þar með rok-
inn.
aró
Vinsældalistar Þjóöviljans
Fellahellir ( 1) 1. Forever young - Alphaville ( —) 2. This is not America - David Bowie ( 4) 3. Method of modern love - Hall and Oates ( 5) 4. Sounds like a melody - Alphaville ( -) 5. Solid - Ashford and Simpson ( -) 6.1 want to know what love is Foreigner ( -) 7. We belong - Pat Benatar ( 6) 8. Invisible - Alison Moyet ( 9) 9. Don’t look any further- Dennis Edwards (10)10. Neutron dance - Pointer Sisters Rás 2 ( 2) 1. Save a Prayer - Duran Duran ( 3) 2. Love and Pride - King ( 1) 3. Moment of Truth - Survivor (12) 4. Solid - Ashford and Simpson ( 6) 5. Shode - Tears and Fears ( 5) 6. Everything she wants - Wham! ( 7) 7. Forever young - Alphaville (11) 8.1 know him so well - Paige og Dickson ( 4) 9.1 want to know what love is - Foreigner (17) 10. This is notAmerica - David Bowie og Pat Metheny Group Grammið ( 1) 1. Hateful of hollow - The Smiths ( 4) 2. Dreamtime - Cult ( 6) 3. The walking hour- Dali’s Car ( 5) 4. Aura - King Sunny Adé and African Beats ( 8) 5. The wonderful and frightening world of the Fall ( 3) 6. Pop - Tones on Tail ( 7) 7. It’s my life - Talk Talk ( -) 8. She’s the boss - Mick Jagger ( ~) 9- This is not America — David Bowie ( —)10. Fans - Malcolm MacLaren