Þjóðviljinn - 01.03.1985, Qupperneq 14
LANDBÚNAÐUR I
Eyrnamerkin frá Reykjalundi hafa verið notuð með
mjög góðum árangri um nokkurra ára skeið.
Nokkrir byrjunarerfiðleikar voru framan af, en nú
teljum við að þeir séu að baki.
Skriflegar pantanir er tilgreini bæjarnúmer, lit og
óskir um raðtölumerkingar þurfa að berast okkur
sem fyrst, til að tryggja afgreiðslu fyrir vorið.
REYKJALUNDUR
Reykjalundur Söludeild
270 Varmá
Mosfellssveit.
fóöurblöndur
búmannsins
Islenskar fóðurblöndur framleiddar
hjá Fóðurblöndunni h.f.
FOÐURBLANDAN H.F
Tegundir
KÚAKÖGGLAR -10-
KÚAKÖGGLAR -13-
KÁLFAKÖGGLAR
HESTAKÖGGLAR
GYLTUKÖGGLAR
GRISAKÖGGLAR I
GRÍSAKÖGGLAR II
Varpmjöl 14
VARPKÖGGLAR -15-
Ungafóðurkurl I
Ungafóðurkurl II
Maísmjöl
Notkun
Fyrir geldneyti og fyrir kýr, sem
mjólka minna en 15 kg a dag
Fyrir sauófé og fyrir kyr, sem mjólka
meira en 15 kg a dag, og fyrir kalfa
fra 4 manaða aldri til 1 árs aldurs
Vaxtarfoður fyrir kalfa fra 3 vikna
til 4 mánaða aldurs
Serstaklega ætlað hestum sem notaðir eru
til utreiða til aö þeir fái fjör og friskleika
Handa gyltum bæði i geldstöðu og á mjaltaskeiði
Eldiskögglar fra 7 vikna til 12 vikna aldurs
Eldissvinafóður fra 2 mánaða aldri til slatrunar
Varpfóður fyrir hænur svo þær nái fullu varpi
bæði a golfi og i burum og gefur fallega
rauða eggjarauóu
Byrjunarfóður fyrir varphænuunga til
2 manaða aldurs Inniheldur hnislasóttarlyf
Vaxtarfóður fyrir varphænuunga fra 2—5 manaða
aldurs Inniheldur hnislasottarlyf
Hentugt fóóur i flestar skepnur. Hentar mjög vel
fyrir kindur með Fiskimj'ölsgjöf og fyrir geldneyti
og lágmjólka kyr meö steinefnagjÖf
FÓÐURBLANDAN H/F
GRANDAVEGI42, SÍMI28777
KJARNFOÐUR
Æðardúnninn
Ör sala,
hækk-
andi
verð
Fyrir ekki alllöngu var undan
því kvartað að erfiðlega gengi að
selja æðardún og söfnuðust fyrir
talsverðar birgðir af honum. Nú
hefur brugðið til betri tíðar í þess-
um efnum. Má heita að allur æð-
ardúnn frá liðnu ári sé nú seldur
og fyrir hærra verð en áður.
Þetta er einkum þakkað því, að
á síðasta ári náðust hagstæðir
samningar við nýjan viðskiptaað-
ila í Bretlandi. í>á hefur ör afsetn-
ing gert mögulegt að afreikna
dúninn oftar en áður, - með fjög-
urra mánaða millibili, sem kemur
sér að sjálfsögðu vel fyrir æðar-
bændur. Líklegt er talið, að sá
æðardúnn frá síðasta ári, sem
kemur til sölumeðferðar hjá Bú-
vörudeild, vegi um 1400 kg.
-mhg
Utanlandsferð
Páskaferð
til
Tromsö
Bændasamtökin efna til páska-
ferðar til Tromsö í Noregi dagana
4.-11. aprfl n.k.. Flogið verður
beint frá Keflavík til Tromsö og
gist þar á SAS hótelinu í 7 nætur.
Gert er ráð fyrir að skoða loð-
dýrabú og kynnast sjávareldi á
laxi. Þá er gert ráð fyrir að
skreppa dagsferð til Finnlands.
Fundur er fyrirhugaður með
ráðunautum og bændum í
Tromsfylki. Reiknað er með að
þátttakendur haldi hópinn og
geri sér dagamun á þessu glæsi-
lega SAS hóteli. Sýnist raunar
fátt sjálfsagðara.
Verð er ekki endanlega ákveð-
ið en fullyrða má, að þetta verði
ein ódýrasta utanlandsferð, sem
til boða verður nú í ár. Upplýs-
ingar um ferðina er að fá hjá
Búnðarfélagi íslands eða Stétt-
arsambandi bænda í síma 19200.
-mhg.