Þjóðviljinn - 01.03.1985, Qupperneq 17
MINNING
Marteinn M. Skaftfells
Fœddur 14. ágúst 1903 - Dáinn 20. febrúar 1985 ■
í dag kveðjum við hugsjóna-
og baráttumanninn Martein
Skaftfells. Marteinn var fæddur
að Auðnum, Meðallandi 14. ág-
úst 1903, en ólst að mestu upp á
Álftanesi.
Hann tók kennarapróf árið
1933 og bætti síðar við menntun
sína í Askov, Kennaraháskóla
Kaupmannahafnar og Háskóla
íslands auk ýmissa námskeiða
bæði utanlands og innan.
Kennslu stundaði hann þar til
hann fór á eftirlaun.
Hann hóf sambúð með Þór-
unni Björnsdóttur árið 1931, en
þau slitu samvistum að sex árum
liðnum. Þau áttu tvö börn saman,
Heiðar kvikmyndagerðarmann í
Vestmannaeyjum og Venný
Keyth, gift og búsett í Vestur-
heimi.
Eftirlifandi kona hans er Ast-
rid fædd Vik, hjúkrunarkona ætt-
uð frá Noregi. Þeirra sonur er
Hákon sem nú er framkvæmda-
stjóri heildverslunarinnar Elm-
aro.
Marteinn lagði á sinni löngu
ævi gjörva hönd á margt fleira en
kennslustörf. Hann sat allra
manna lengst í stjórn Náttúru-
lækningafélags íslands og var
einn aðalhvatamaður að stofnun
Heilsuhælis NLFÍ í Hveragerði
og NLFÍ búðarinnar. Hann var
lengi formaður Dýraverndarfé-
lags Reykjavíkur, vann að mál-
efnum Sólskríkjusjóðsins og
ýmsum öðrum dýraverndunar-
málum.
Þá þýddi hann eða frumsamdi
fjölda barnabóka auk annarra
rita um ýmis málefni. Þekktastur
var Marteinn þó sennilega fyrir
ótölulegan fjölda greina um
heilsufræðileg efni, sem birst
hafa í dagblöðum og tímaritum
um heilbrigðismál, sérstaklega
Heilsuvernd og Hollefni og
heilsurækt, sem Heilsuhringur-
inn gefur út, en Marteinn var
fyrsti formaður hans.
Marteinn var hugsjóna- og bar-
áttumaður. Eigin reynsla ásamt
skarpri greind og opnum hug
fékk hann til þess að endurskoða
hefðbundnar hugmyndir um
sjúkdóma og heilbrigði. Hann
veiktist mjög alvarlega árið 1946
og var þá ekki hugað líf. Hinn
þekkti frumkvöðull og baráttu-
maður Jónas Kristjánsson, lækn-
ir, kom honum þá til aðstoðar og
óbilandi viljaþrek Marteins og
lækniskunnátta og hæfileikar
Jónasar unnu það kraftaverk að
koma honum til heilsu, þó að lík-
amsþrek Marteins hafi þó líklega
aldrei náð sér að fullu.
Þetta opnaði augu hans fyrir
því að læknisfræði væri að mörgu
leyti á villigötum. Orsök ýmissa
sjúkdóma mætti rekja til rangra
lífsvenja og alveg sérstaklega til
rangrar og ófullnægjandi næring-
ar, sem fylgir efnaskertri mat-
vöru í nútíma þjóðfélögum.
Þetta leiddi til þess að hann fór
að kynna sér gagnsemi bætiefna
og hvernig skortur þeirra leiðir til
sjúkdóma og vanheilsu. f milli
þrjátíu og fjörutíu ár las hann allt
sem hann náði í um vísindalegar
rannsóknir um þessi efni og var
áskrifandi að fjölda erlendra
tímarita um slíkar rannsóknir og
einnig um það sem á nágrannam-
álunum er nefnt „alternativ me-
dicin“, þ.e.a.s. óhefðbundnar
lækningaaðferðir, sem sannan-
lega gefa oft athyglisverðan ár-
angur.
Hann stofnaði innflutningsfyr-
irtækið Elmaro árið 1946 til að
bæta úr tilfinnanlegum skorti
fæðubótaefna hér á landi. Mart-
einn notaði þekkingu sína á þess-
um vörum til að velja til innflutn-
ings það sem hann taldi best og
nauðsynlegast að fólk hefði að-
gang að hér á landi. Fljótlega
fóru þó vissir sterkir aðilar, sem
ætla má að hagsmuna hafi átt að
gæta í sambandi við innflutning
lyfja, að reyna að hindra inn-
flutning þessara efna. Beittu þeir
til þess aðferðum sem Marteinn
taldi brjóta í bága við lög og
reglugerðir auk þess að vera ögr-
un við heilbrigða skynsemi og
rannsóknir þekktra erlendra vís-
indamanna. Þá bendi hann á það
með réttu, að túlkun hliðstæðra
laga í nágrannalöndunum væri öll
önnur en hér á landi og flest þau
heilsubótarefni sem hér hefur
verið reynt að banna sölu á væru
seld hindrunarlaust þar.
Vel má vera að einhverjum
sem les þessar línur finnist ó-
smekklegt í minningargrein að
rifja upp þessi mál. Um það verð-
ur vitanlega hver og einn að hafa
sína skoðun, en það er hreinlega
ekki hægt að skrifa um Martein
Skaftfells án þess að þetta sé rætt.
Ég er þess fullviss að hvar sem
andi Marteins dvelur nú, þá ætl-
ast hann beinlínis til þess að ég
minni á baráttumál hans í meira
en þrjátíu ár í þessari grein. Hann
barðist lengi vel, að mestu einn,
við ofureflið og í fjölda greina í
dagblöðum sést, að á stundum
var sú barátta óvægin á báða
bóga. Andstæðingar hans
skreyttu nöfn sín oft með allskon-
ar lærdómstitlum, en hann varð
að láta sér kennaranafnbótina
nægja. Þekking hans var þó svo
yfirgripsmikil, að í fræðilegum
efnum máttu „sérfræðingarnir"
vara sig.
Marteinn hafði hvassan stíl og
var ófeiminn að segja það sem
hann taldi sannast og réttast.
Sumt af því var þess eðlis, að
hefðu andstæðingar hans verið
með algerlega hreinan skjöld
málefnalega séð, þá hefðu þeir
auðveldlega átt að geta höfðað
mál á hendur honum og fengið
orð hans dæmd ómerk. Engin
hafði þó kjark til þess og sýnir
það e.t.v. betur en flest annað
hver hafði rétt fyrir sér. Sumt af
hugsjónum Marteins er nú orðið
að veruleika og hugmyndir hans
hafa smátt og smátt síast út í
þjóðfélagið, og einnig læknar
hafa tileinkað sér þær. Annað
bíður framtíðarinnar.
Marteinn leitaði ávallt sann-
leikans í hverju máli og þó að
hann væri oft óvæginn í skrifum
um andstæðinga sína, fyndist
honum réttu máli hallað, var
hann mikill mannþekkjari og
fljótur til sátta ef hann taldi að
einhver hefði af fljótfærni eða fá-
visku fremur en af illvilja veist að
honum eða sagt eitthvað sem
hann taldi rangt. Hann hafði
andstyggð á undirferli og flærð,
enda voru þeir þættir skapgerðar
einna fjarst eðli hans. Einnig var
hroki í öllum myndum honum lítt
að skapi. Sjálfur var hann allra
manna ljúfastur, þrátt fyrir heita
skapgerð, og allra vanda reyndi
hann að leysa, væri það á færi
hans.
í blaðadeilum var oft reynt að
láta líta svo út að hagsmunir Elm-
aro væru það eina sem skipti máli
fyrir Martein og fyrir hann væru
hagnaðarsjónarmið aðalatriðið.
Slík skrif verkuðu þó sem argasta
öfugmæli á þá sem þekktu hann
eitthvað. Fáa veit ég sem pening-
agræðgi hefur minna þjáð en
Martein. Allthans starf varunnið
af hreinni hugsjón, en vitanlega
getur enginn látið leggja ævistarf
sitt í rúst án þess að bera hönd
fyrir höfuð sér. Hversu margir
hafa ekki heimsótt heimili þess-
ara hjóna á liðnum árum og verið
leystir út með gjöfum í formi bæt-
iefna og hollra ráðlegginga?
Kynni okkar Marteins hófust í
Heilsuhringnum árið 1978 og hef
ég síðan verið tíður gestur á
heimili þeirra hjóna. Það er ávallt
mikið lán að kynnast góðu fólki.
Marteinn var óvanalegur og sér-
stæður persónuleiki, sem öllum
sem kynntust hlaut að þykja vænt
um og verður ógleymanlegur í
minningunni.
Um þátt Astrid konu hans í lífs-
starfi hans mætti skrifa langa
grein en hún hefur alltaf staðið
sem klettur við hlið hans í blíðu
og stríðu, auk þess að búa honum
fallegt heimili. Missir hennar er
því sárastur, en ég veit þó, að hún
býr yfir þeirri trúarvissu að skiln-
aðurinn sé aðeins tímabundinn.
Nú kveðjum við hugsjónamann-
inn, baráttumanninn og mann-
vininn Martein Skaftfells. Ég og
fjölskylda mín biðjum þess að sá
er öllu ræður veiti ástvinum hans
styrk og óska þess um leið að við
ættum fleiri menn sem líktust
Marteini Skaftfells.
Ævar Jóhannesson.
Vinur minn Marteinn
Skaftfells er látinn.
Mikill baráttumaður hefur lok-
ið ævistarfi sínu. Maður, sem
þorði að standa við skoðanir
sínar hvar og hvenær sem var.
Eldhugi, sem aldrei þreyttist á
því að vekja skilning manna á
þeim einfalda sannleika að góð
heilsa er dýrmætasta eign hvers
manns, að við getum aflað okkur
vitneskju um hvað er líkama okk-
ar til uppbyggingar og hvað við
verðum að forðast ef við óskum
eftir því að lifa góðu lífi lengi.
Marteinn Skaftfells missti
heilsuna á besta aldri og barðist
við sjúkdóminn af slíkri karl-
mennsku og einurð að með ein-
dæmum var. Árangurinn lét ekki
á sér standa. Árin urðu áttatíu og
eitt og þrekið síst minna en al-
mennt gerist. Marteinn var aðal-
hvatamaður að stofnun Heilsu-
hringsins árið 1977. Byrjað var að
gefa út tímarit félgsins Hollefni
og heilsurækt árið 1978. Fyrstu
árin var Marteinn formaður fél-
agsins og átti alltaf glæsta drauma
um framtíð þess. Sumir þeirra
hafa ræst, aðrir eru enn í
deiglunni, en árangur starfs hans
og annarra innanlands sem utan,
er vinna að því að glæða áhuga
manna á heilbrigðu lífi, lýsir sér í
því, sem glöggt má sjá hvarvetna í
dag: áhugi fólks og skilningur á
þessum efnum hefur stóraukist
og fer stöðugt vaxandi.
Digur sjóður er enginn til í eigu
félagsmanna og vinna við blaðið
er öll unnin í sjálfboðavinnu, en
samvinna er góð. Við óskum þess
af alhug að draumur vinar okkar
Marteins Skaftfells megi rætast -
að maðurinn læri að varðveita
líkamlega heilsu sína og vinni
gegn mengun og niðurrífandi efn-
um í umhverfinu.
Móðir mín og ég þökkum
Marteini holl ráð á síðastliðnum
áratug og óskum honum farsæld-
ar á nýjum leiðum. Astrid konu
hans vottum við innilega samúð.
Hún hefur með huga og höndum
hjálpað svo mörgum, að hún
hlýtur að fá ríkuleg laun.
Elfa-Björk Gunnarsdóttir
Kveðja frá Heiisuhringnum
Marteinn Skaftfells, vinur okk-
ar og félagi átti frumkvæðið að
stofnun Heilsuhringsins árið 1977
og var fyrsti formaður félagsins.
Með honum hverfur af sjónar-
sviðinu iitríkur, sterkur og heill-
andi persónuleiki, sem verður
öllum ógleymanlegur sem
kynntust honum. Hann var flest-
um fróðari um allt er snerti holla
lifnaðarhætti og fagurt mannlíf
og var óspar á að miðla öðrum af
þekkingu sinni, sem hann stöðugt
bætti við og endurnýjaði. Hann
var mikill höfðingi heim að sækja
og verða okkur ógleymanlegar
margar stundir á heimili hans og
Astrid, sem hvatti mann sinn til
allra góðra verka.
Hann fræddi og leiðbeindi án
þess að prédika og dæma eða
skipa fyrir. Hann var örlátur og
gaf af sjálfum sér og var ákaflega
næmur á tilfinningar og líðan
annarra, ekki einungis manna
heldur einnig málleysingja. Hann
lét því ekkert tækifæri ónotað ef
hann taldi sig geta orðið þeim að
liði, sem voru hjálparþurfi og
minni máttar.
Marteinn var fullhugi og bar-
áttumaður allt til hinstu stundar
og hopaði hvergi, þótt stundum
sýndist við ofurefli að etja. Hann
lét aldrei sinn hlut ef honum þótti
gengið á rétt almennings til
greiðari aðgangs að heilsubæt-
andi fæðuefnum.
Við þökkum Marteini sam-
fylgdina og allt það góða, sem
hann gaf af örlæti hjarta síns.
Astrid eiginkonu hans, börnum
og öðrum ástvinum sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Stjórn Heilsuhringsins
Deildarþroskaþjálfi
Þroskahjálp á Suöurnesjum óskar aö ráöa deildar-
þroskaþjálfa og þroskaþjálfa til starfa við Ragnarssel
dag- og skammtíma heimili félagsins að Suðurvöllum
7 í Keflavík.
Allar nánari upplýsingar veitir rekstrarstjóri, Hjördís
Árnadóttir í síma 92-4333.
Stjórnin
Tilkynning til
skattgreiðenda
Dráttarvextir vegna vangreiddra þinggjalda verða
reiknaðir að kvöldi mánudagsins 4. mars nk.
Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma.
Fjármálaráðuneytið,
26. febrúar 1985
SJ4IST
mcd
endurskini
Umferöarr^ö
eSt. Jósefsspítali
Landakoti
Lausar stöður á eftirtöldum deildum:
Hjúkrunarfræðingar:
- Handlækningad./augndeild l-B
- Gjörgæsludeild
- Lyflækningadeildum l-A og l-A
- Barnadeild
- Skurðdeild
Sjúkraliðar:
- Lyflækningadeild
- Handlækningadeild
Einnig óskast hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar til
sumarafleysinga.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsing-
ar í síma 19600 frá kl. 11.00 -12.00 og 13.00 -14.00
alla virka daga.
Reykjavík 26/2 1985
Skrifstofa hjúkrunarforstjóra