Þjóðviljinn - 01.03.1985, Síða 23
ÍÞRÓTT1R
Digranes
Pressuleikur
í karate
Landslið íslands í karate fær
sitt fyrsta verkefni á þessu ári um
helgina. Á morgun, laugardag,
kl. 16.30 mætir það pressuliði í
Digranesi í Kópavogi. Ólafur
Wallevik hefur tilkynnt iandslið-
ið sem er skipað eftirtöldum sex
mönnum:
Atli Erlendsson, Árni Einars-
son, Karl Sigurjónsson, Stefán
Alfreðsson, Omar ívarsson og
Sigþór Markússon.
Lið pressunnar er þannig
skipað: Ágúst Österby, Einar K.
Karlsson, Erlendur Arnarsson,
Gísli Klemenzson, Hannes Hilm-
arsson, Sigurjón Kristjánsson,
Svanur Eyþórsson og Ævar t*or-
steinsson, en sá síðastnefndi
stjórnar liðinu jafnframt.
Þetta er fyrsta viðureign sinnar
tegundar hér á landi og kjörið
tækifæri fyrir Kópavogsbúa og
fleiri að kynna sér karateíþrótt-
ina sem á ört vaxandi vinsældum
að fagna hér á landi. - VS
Hafnarfjarðarmálsháttur
Helgar-
sportid
Handbolti
að
FH
Stórleikur helgarinnar er
þessu sinni í 1. deild kvenna
og Fram leika í Hafnarfirði kl. 14
á laugardag og getur sá leikur
ráðið úrslitum um meistaratitil-
inn. Fram dugir jafntefli til að
standa uppi sem íslandsmeistari,
en ef FH sigrar verða úrslitaleikir
milli Fram, FH og Vals, ef Valur
vinnur ÍBV í Eyjum kl. 14.45
sama dag og FH sigrar lokaleik
sinn við 1A. Tveir aðrir leikir fara
fram í deildinni, Þór A. og Víking-
ur kl. 14 á Akureyri og KR-ÍA kl.
14.45 í Laugardalshöllinni.
í 1. deild karla fara fram þrír
leikir. FH-Stjarnan í Hafnarfirði
kl. 15.15 á morgun, Þór Ve.-
Valur í Eyjum kl. 13.30 sama dag
og loks Þróttur-Breiðablik í Höll-
inni kl. 21.15 á sunnudagskvöld-
ið. í 2. deild karla eru tveir leikir í
kvöld. Grótta-HK á Seltjarnar-
nesi ki. 20 og Haukar-KA í Hafn-
arfirði kl. 21.15. Á morgun leika
Fylkir og KA í Seljaskóla kl.
13.30 og á sama tíma mætast Ár-
mann og Fram í Laugardalshöll.
Körfubolti
Tveir síðustu leikir úrvals-
deildarinnar fara fram um helg-
ina. KR og Njarðvík leika í Haga-
skóla kl. 14 á morgun og Valur
leikur við Hauka kl. 20 á sunnu-
dagskvöldið í Seljaskóla. Athygl-
isverðir leikir því einmitt þessi fé-
lög leika innbyrðis í úrslitakeppn-
inni um meistaratitilinn sem hefst
á miðvikudagskvöldið.
í 1. deild kvenna leika KR og
Njarðvík kl. 15.30 á morgun í
Hagaskóla. í 1. deild karla eru
tveir leikir kl. 14 á sunnudag.
Reynir og Þór A. leika í Sand-
gerði og Fram-Grindavík í Haga-
skóla. Tveir bikarleikir karla kl.
20 í kvöld. Fram-KR b. í Haga-
skóia og ÍBK-Breiðablik í Kefla-
vík.
Skíði
Bikarmót í alpagreinum full-
orðinna fer fram í Hlíðarfjalli við
Akureyri um helgina. Bikarmót
unglinga 15-16 ára í alpagreinum
fer fram á Isafirði og bikarmót í
göngu og stökki fullorðinna og
unglinga fer fram á Ólafsfirði.
Blak
Mikið af leikjum um helgina -
þeir markverðustu eru í Digranesi
í kvöld. Þar leika kl. 20 HKog ÍS í
1. deild karla og síðan toppliðin í
1. deild kvenna., Breiðablik og
ÍS.
Júdó
íslandsmeistaramótið, fyrri
hluti, fer fram í íþróttahúsi Kenn-
araháskólans á morgun, laugar-
dag, og hefst kl. 15.
Karate
Pressuleikur í karate fer fram í
Digranesi í Kópavogi á morgun,
laugardag, og hefst kl. 16.30. Sjá
annars staðar á síðunni.
Körfubolti
Fullreynt í
fjórtánda sinn!
Haukar sigruðu Njarðvík í 14. tilraun og eru komnir í
undanúrslit bikarkeppninnar
Nýr málsháttur tók gildi í
Hafnarfirðinum í gær: „Fullreynt
í fjórtánda sinn!“ Eftir 13 tapleiki
í röð gegn Njarðvíkingum tóku
Haukarnir sig til í gærkvöldi og
sigruðu íslandsmeistarana 76-75 í
8-liða úrslitum bikarkeppninnar í
körfuknattleik, og það suður í
Njarðvík. Þar með eru aðeins tvö
úrvalsdeildarlið, Haukar og KR,
eftir í keppninni.
Haukar skoruðu fyrstu körfu
leiksins en síðan náði Njarðvík
yfirhöndinni og leiddi uns ívar
Ásgrímsson jafnaði, 24-24. Aftur
tók UMFN forystuna og var yfir í
hálfleik, 32-31. Ekki mikið
skorað, taugaspennan tók sinn
toll.
Haukar komust fljótlega yfir
eftir hlé, 36-38, en þá náðu
Njarðvíkingar sínum besta kafla
IR-basl
Marði Stúdenta,
79-77
IR-ingar áttu í hinu mesta basli með
ÍS er liðin áttust við í íþróttasal Kenn-
araháskólans í gærkvöldi. Leikurinn
var allan tímann hið mesta hnoð. í
hálfleik höfðu Stúdentar sjö stiga
forskot 38-31 en ÍR var sterkara liðið
seinni hlutann og tryggði sér tveggja
stiga sigur, 79-77. Þetta var síðasti
leikur liðanna í sjálfri úrvalsdeildinni
en liðin þurfa að heyja 3 leikja viður-
eign um áframhaldandi veru í henni.
Stig ÍR: Björn Steffensen 17, Kristinn
Jörundsson 13, Hjörtur Oddsson 12, Gylfi
Þorkelsson 8, Hreinn Þorkelsson og Bragi
Reynissgn 6, Ragnar Torfason 4.
Stig ÍS: Valdimar Guðlaugsson 18,
Ragnar Bjartmarz 17, Árni Guðmundsson
15, Guðmundur Jóhannesson 12, Helgi
Gústafsson 11, Ágúst Jóhannesson 4,
Þórir Þórisson 2.
- Frosti.
Körfubolti
Fram á
von
Framarar halda enn í veika von
um að komast uppfyrir
Keflvíkinga og uppí úrvals-
deildina eftir öruggan sigur á
Reyni í Hagaskóla á laugardag-
inn, 89-68. Til þess þurfa þó bæði
Reynir og Fram að vinna sigra í
Keflavík í lokaleikjunum. Staðan
í 1. deild karla er þessi:
IBK....... 18 16 2 1513-1196 32
Fram...... 17 13 4 1286-984 26
ReynirS... 17 9 8 1145-1179 18
Þór Ak.... 17 8 9 1088-1131 16
Grindavik. 15 6 9 801-933 12
Laugdælir..20 0 20 540-950 0
Laugdælir gáfu síðustu sjö leiki
sína í deildinni og eru fallnir í 2.
deild.
Ólafur Rafnsson lék vel eins og Haukaliöið allt I
skoraði 15 stig í leiknum.
Njarðvík í gærkvöldi. Hann
Sérsamband
Karatemenn
r
I
Veitt aðild í gœrkvöldi
Sérsamböndunum innan ÍSÍ
fjölgaði um eitt í jjærkvöldi -
Karate-samband Islands var
formlega stofnað og var veitt að-
ild að Iþróttasambandi íslands.
Hannes Hilmarsson úr Stjörn-
unni var kjörinn fyrsti formaður
sambandsins en aðrir í stjórn eru
Karl Gauti Hjaltason, Ævar Þor-
steinsson, David Haraldsson og
Stefán Alfreðsson.
- VS
Samningur
FRI bara í Adidas
Samningur tilfjögurra ára. FRÍfœr mikið magn af
íþróttavörum á ári. Andvirði í dag 700þúsund
Frjálsíþróttasamband Islands
hefur gert samning við
Heildverslun Björgvins Schram
hf., umboðsaðila Adidas á ís-
landi. Samningurinn gildir til
fjögurra ára, frá deginum í dag til
31. desember 1988, og framleng-
ist um eitt ár í einu nema annar-
hvor aðilinn segi honum upp með
þriggja mánaða fyrirvara.
Samningurinn hljóðar uppá að
Adidas mun láta FRÍ hafa visst
magn af íþróttavörum á ári
hverju og nemur verðgildi þess í
ár um 700 þúsundum króna.
Þarna er um að ræða 50 æfingag-
alla, 50 trimmgalla, 100 T-boli,
50töskur, llOvesti, lOOstuttbux-
ur, 100 sokkapör, 50 pör af kepp-
nisskóm og 50 pör af æfi jaskóm
á ári hverju. Útúr búð í dag kost-
ar þessi búnaður um 700 þúsund
krónur. Þetta tryggir íslensku
landsliðs- og úrvalsflokkafólki í
frjálsum íþróttum allan nauðsyn-
legan íþróttabúnað.
Á móti skuldbindur FRÍ sig til
að allir þeir sem keppa á vegum
og ruku framúr, 50-44. Haukar
kvittuðu, 52-52 og náðu síðan
forystunni og létu hana ekki af
hendi eftir það. Komust í 56-61,
ÚMFN minnkaði í 63-65, Haukar
juku í 65-72 og 71-76 en Njarðvík
saxaði á í lokin. Árni Lárusson
fékk tvö vítaskot hálfri mínútu
fyrir leikslok en nýtti bara annað,
74-76. Njarðvík fékk boltann aft-
ur og ísak Tómasson fékk færi á
að jafna úr tveimur vítaskotum 3
sekúndum fyrir leikslok. Aðeins
það síðara tókst, Haukar höfðu
sigrað. Baráttan var mikil í lokin
og leikmenn tíndust af leikvelli
með 5 villur einn af öðrum í
hamaganginum.
Haukaliðið var mjög jafnt í
þetta skiptið. Pálmar Sigurðsson
og ívar Webster einbeita sér að
því að leika meira fyrir liðið en
áður og er það vel því mannskap-
urinn er nægur. Hreiðar
Hreiðarsson og fsak voru bestir
Njarðvíkinga og Valur Ingi-
mundarson var drjúgur að vanda.
Þá lék Jón Viðar Matthíasson
með liðinu að nýju og átti gott
„comeback".
Stig Hauka: Ólafur Rafnsson 15, Hálf-
dán Markússon 15, Ivar W. 13, Pálmar 11,
Henning Henningsson 10, Kristinn Krist-
insson 6 og Ivar Á. 6.
Stig UMFN: Valur 18, Hreiðar 15, Isak
12, Ellert Magnússon 10, Jón Viðar 8,
Helgi Ratnsson 6, Árni Lárusson 4 og
Gunnar Þorvarðarson 2.
Kristinn Albertsson og Rob
Iliffe dæmdu leikinn vel.
-SÓM/Suðurnesjum.
Sovét og
A-þýskir
Sovétmenn og Austur-
Þjóðverjar leika til úrslita um sig-
urinn í B-keppninni í handknatt-
leik sem nú stendur yfir í Noregi.
Sovétmenn unnu Tékka 22-21 í
gærkvöldi og A.Þjóðverjar sigr-
uðu Pólverja 25-21.
Önnur úrslit urðu: Noregur-
Finnland 29-24, Spánn-
Frakkland 30-22, Ungverjaland-
Holland 25-29 og Búlgaría-
Bandaríkin 18-16. Tékkar og Pól-
verjar leika um 3. sætið, Spán-
verjar og Ungverjar um 5. sætið,
Norðmenn og Búlgarir um 7. sæt-
ið, Finnar og Bandaríkjamenn
um 9. sætið og Frakkar og Hol-
lendingar um 11. sætið. -VS
sambandsins muni einungis klæð-
ast vörum frá Adidas í öllum
mótum, innanlands sem utan,
sem og í viðtölum við frétta-
menn. FRÍ heimilar Adidas að
kalla sig „opinberan veitanda (of-
ficial supplier) Frjálsíþróttas-
ambandsins", og samþykkir að
gera ekki auglýsingasamning við
samkeppnisaðila Adidas.
Brot á samningnum varðar
sekt sem er ákveðin 20 þúsund
pund, eða um 260 þúsund ís-
lenskar krónur. - Frosti/VS.
Föstudagur 1. mars 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 23
4. deildin
Tjörnes
styrkist
Tjörnesingarnir, sem komu
mjög á óvart í fyrra á sínu fyrsta
ári í 4. deildarkeppninni í knatt-
spyrnu, hyggja á enn stærri hlut á
komandi sumri. Þeir hafa fengið
til sín fjölmarga nýja leikmenn,
kunnastir eru Pétur Pétursson og
Sigurður Illugason, sem léku
með Völsungi í fyrra, Arnar Sig-
urðsson, einn af efnilegustu leik-
mönnum Völsungs, og Gunnar
Bogason, áður Völsungur, sem
lék með HSÞ.b í 3. deildinni í
fyrra. Tjörnes komst í úrslita-
keppnina í fyrra - hvað gerist í
ár? - VS