Þjóðviljinn - 01.03.1985, Blaðsíða 24
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Föstudagur 1. mars 1985 50. tölublað 50. örgangur
DJÖÐVIUINN
Sjómannadeilan
Farmenn semja - sjómenn ekki
Óskar Vigfússon: Úrslitakröfum okkar sópað af borðinu. Ríkisstjórnin beitti sér ímálinu.
Ég lýsi það helber ósannindi að
Sjómannasambandið hafi lagt
fram nýjar og óvaentar kröfur
einsog LÍÚ hefur sagt. Við
slógum af okkar kröfum einsog
hægt var en útvegsmenn sópuðu
kröfum okkar af borðinu. Þá
höfðum við ekkert lengur að gera
þarna og gengum út.
Þetta sagði Óskar Vigfússon í
viðtali við Þjóðviljann seint í gær-,
kvöldi, eftir að sjómenn höfðu
gengið út af samningafundi.
Farmanna- og fiskimannasam-
bandið samdi hins vegar við LÍÚ
á grundvelli miðlunartillögu sem
sáttasemjari lagði fram um fimm-
leytið í fyrrinótt.
Guðlaugur Þorvaldssson,
ríkissáttasemjari, sagði í gær-
kvöldi við blaðið að sáttatillaga
hans hefði miðast við ákveðna
yfirlýsingu frá ríkisstjórninni um
mögulegar aðgerðir hennar, sem
hann gæti ekki greint frá fyrr en
það hefði verið kynnt á félags-
fundum hjá FFSÍ.
Óskar Vigfússon sagði að um
klukkan 18 í gærkvöldi, þegar í
undirbúningi voru viðræður við
FFSÍ án beinnar vitneskju sjó-
manna þá hefðu þeir lagt fram
sínar úrslitakröfur, þar sem með-
al annars voru sektarákvæði
sökum verkfallsbrota, sem út-
gerðarmenn hefðu fyrst og fremst
staðið að.
„Síðan sömdu FFSÍ við útvegs-
menn á grundvelli miðlunartil-
lögu sáttasemjara sem við
höfðum hafnað. Þá komu útvegs-
menn og höfðu sópað úrslitatil-
lögum okkar af borðinu og vildu
einungis láta okkur fá grunninn
sem við vorum búnir að hafna. Þá
gengum við út“.
Guðlaugur Þorvaldsson sagði
að hann myndi hitta sjómenn að
máli í hádeginu í dag.
-ÖS
Hafnarfjörður
„Við
söfnuni
liði“
A 3. hundrað manns sóttu op-
inn fund í Hafnarfjarðarbíó í
gærkvöldi þar sem þingflokkur
Alþýðubandalagsins sat fyrir
svörum.
Fjörugar umræður urðu á
fundinum sem stóð langt fram á
kvöld. Fjöldi fyrirspurna var bor-
inn upp m.a. um stefnu Alþýðu-
bandalagsins í kjara-, atvinnu-,
sjávarútvegs-, húsnæðis- og
skattamálum. Geir Gunnarsson,
Guðrún Flelgadóttir og Svavar
Gestsson fluttu ávörp á fundin-
um. Svavar sagði m.a. í fundar-
lok að nú þyrfti félagshyggjufólk
að samstilla sig í baráttunni.
„Fyrsta skrefið er að safna liði í
faglegri og pólitískri baráttu
verkalýðsins og annað skrefið að
koma stjórninni frá. Við erum
þegar farin að safna liði“, sagði
Svavar Gestsson. -lg
Landsbankinn
Fer Bjami til ÚA?
Gísli Konráðsson framkvstj. ÚA: Of dýrt en ekki um
aðra kosti að velja
Síminn
Sex-
bilun
Um klukkan 17 í gærdag sló út
öllum númerum í Reykjavík sem
byrja á sex. Þessi sex-bilun hjá
Reykjavíkursímanum olli því að
hvorki var hægt að hringja í sex-
númer eða úr þeim.
Hjá Bilanadeild Pósts og Síma
fengust þær upplýsingar að þrír
menn væru önnum kafnir við við-
gerðir á stöðinni, og var búist við
að sexið myndi verða í lagi í við-
komandi númerum þegar liði á
nóttina.
-ÖS
að er alveg Ijóst að verðið sem
borgað verður fyrir þetta
skip, hver sem hefði keypt það, er
allt of hátt verð fyrir skipið raun-
verulega. Það er bara ekki um
neina kosti að velja í dag fyrir þá
sem þurfa að fá skip“, sagði Gísli
Konráðsson framkvæmdastjóri
Útgerðarfélags Akureyringa h/f.
Landsbankinn hefur samþykkt
að ganga til samninga við Útgerð-
arfélagið um sölu á togaranum
Bjarna Herjólfssyni AR sem
bankanum var sleginn á nauð-
ungaruppboði skömmu fyrir ára-
mót, og eru viðræður þegar hafn-
ar um kaupin.
Bankinn bauð 82 miljónir í tog-
arann á sínum tíma og fékk síðan
8 tilboð frá útgerðarfyrirtækjum í
hann. Segir bankastjórnin að til-
boð ÚA hafi verið hagstætt auk
þess sem fjárhagur fyrirtækisins
geri því kleift að taka á sig þær
skuldbindingar sem kaupunum
fylgja.
Gísli Konráðsson vildi í gær
ekki segja hvert tilboð ÚA hefði
verið. „Ég ætla ekki að gefa út
um það, en bankinn hefur sjálf-
sagt haft í huga að sleppa skað-
laust út úr þessu“.
-Ig-
Framsóknarflokkurinn
Óánægja með forystuna
Bœndafulltrúar Framsóknar á Búnaðarþingi öskureiðir við flokksforystuna
Oánægja Framsóknarmanna
með frammistöðu ráðherra
flokksins hefur verið mjög áber-
andi á Búnaðarþingi scm nú
stendur. Á fundi þar sem flokks-
forystan var mætt á dögunum
með fulltrúum á Búnaðarþingi
munu sumir forystumanna
bændasamtakanna hafa hótað
úrsögn úr flokknum ef undanlát-
seminni við Sjálfstæðisflokkinn í
ríkisstjórninni linnti ekki.
Gífurleg óánægja bænda með
ríkisstjórnina og þá sérstaklega
eftirgjafir Framsóknarflokksins í
málefnum Framleiðsluráðs land-
búnaðarins hefur hvað eftir ann-
að komið uppá yfirborðið. Val-
inkunnir forrystumenn bænda-
samtakanna sem einnig eru í
flokknum eru sagðir hafa gefið út
yfirlýsingar um að þeir myndu
ganga úr flokknum ef hann gæfi
eftir gagnvart Sjálfstæðisflokkn-
um í því málþófi sem nú stendur
yfir milli sjórnarflokkanna um
breytingar á lögum um Fram-
leiðsluráð Landbúnaðarins. Full-
trúar flokksforystunnar hafa
fengið óblíðar viðtökur meðal
bænda á Búnaðarþingi.
-óg
Flotinn
Lögðu
ekki í
smokkinn
Þrátt fyrir miklar smokkfísk-
göngur fyrir vesturlandi og vest-
fjörðum á sl. hausti veiddust að-
eins tæpar 1500 lestir af þessari
úrvals beitu. Þcgar í janúarlok
var víðast hvar orðið smokkfisks-
laust og Ijóst er að flytja þarf hátt
í 2000 lestir af smokkfiski til
landsins í beitu á þessu ári og
kemur hluti af þeirri sendingu allt
frá Falklandseyjum eins og Þjóð-
viljinn hefur áður skýrt frá.
Smokkfiskveiðarnar á liðnu ári
urðu tilefni umræðna á Alþingi á
dögunum er Skúli Alexandersson
spurði sjávarútvegsráðherra
hvaða ráðstafanir hafi verið gerð-
ar til að auðvelda og tryggja veiði
úr smokkfisksgöngunum. Sagði
Skúli það mikið slys að ráðuneyt-
ið hefði ekki haft betri stjórn á
þessum veiðum og greitt fyrir
þeim. Ein höfuðástæðan fyrir því
að bátar fóru ekki á smokkfisk-
veiðar væri sú, að þeir lögðu ekki
í að hætta þorskveiðum þar sem
þeir óttuðust að þorskveiðitími
smábátanna yrði styttur eins og
raun varð á. ,