Þjóðviljinn - 07.03.1985, Blaðsíða 8
ALÞÝÐUBANDAIAGIÐ
Kvennastefna
9. og 10. mars
Konur í Alþýðubandalaginu gangast fyrir kvennastefnu í Ölfus-
borgum 9. og 10. mars.
Dagskrá:
1. Atvinnu- og kjaramál
2. Staða heimavinnandi fólks
3. Baráttuleiðir kvenna
4. Störf kvenna í AB - Kvennafylkingin - Fundaröð í vor.
(Sjá nánar um dagskrána í Þjóðviljanum 27. febrúar).
Kvennastefnan er opin öllum konum í Alþýðubandalaginu og öðr-
um stuðningskonum flokksins.
Tilkynningar um þátttöku þurfa að berast skrifstofu flokksins
Hverfisgötu 105( sími 17500) sem allra fyrst.
Þær sem hafa í huga að taka börn með eru beðnar að taka það
fram við þátttökutilkynningar.
* Nánari upplýsingar um kostnað o.fl. á skrifstofunni.
Alþýðubandalagið
Atvinnumálaráöstefna
á Hvammstanga
Ráðstefna um atvinnumál á Hvammstanga og V-Húnavatnssýslu
verður haldin í Félagsheimilinu á Hvammstanga nk. laugardag 9.
mars og hefst kl. 14.00 ,
jón Bjarnason skólastjóri á Hólum ræðir um framtiðarmoguleika i
landbúnaði og úrvinnslu landbúnaðarafurða.
Þórður Skúlason sveitastjóri ræðir um atvinnumál í sýslunm.
Ragnar Amalds alþingismaður ræöir um byggðaþróun og eflingu
atvinnulífs.
Fundurinn er öllum opinn. Alþýðubandalagið
Leiksýning ársins? Jón Baldvin leikur inngöngu sína í fundarstað Norðurlandaráðs, Þjóðleikhúsið, í gær fyrir norska
sjónvarpið. Ljósm. - eik.
Alþýðuflokkurinn
Þórður Ragnar Jón
ÆSKUIÝDSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin
Aðalfundur ÆF Reykjavík
verður haldinn laugardaginn 9. mars nk.
Fundurinn hefst kl. 10.00 fyrir hádegi og er ætlunin að Ijúka venju-
legum aðalfundarstörfum þá fyrir hádegið, meðtaka og ræða
skýrslu fráfarandi stjórnar og kjósa nýja.
- skipulagsmál ÆFR
- fjármál/fjáröflun
- útgáfuma'l
- fræðsluefni og námskeið
- léttmeti (ferðalög, skemmtikvöld...)
Bráðnauðsynlegt er, að sem flestir mæti á þennan fund.
Skólafóik
Æskulýðsfylkingarfólk i öllum skólum.
Skólamálahópur Æskulýðsfylkingarinnar í Reykjavík ætlar að hitt-
ast nk. fimmtudag 7. mars kl. 20.00. Tengiliðar í öllum skólum látið
endilega sjá ykkur. Umræðurefnið: Pólitík í skólum og skólamál
almennt.
Skólamálahópurinn
Ungir sósíalistar
Rabbfundur um alþjóðamál
Ungir sósíalistar á Norðurlandaráðsþingi (frá Noregi, Danmörku
og Svíþjóð) koma og segja frá samtökum sínum og alþjóðastarfi
þeirra. Staðurog stund: Hverfisgata 105 fimmtudaginn 7. mars kl.
20.00.
Utanríkismálanefnd ÆF
Æskulýðsfylkingin
Skólafólk
Æskulýðsfylkingarfólk úr öllum skólum! Skólamálahópur Æsku-
lýðsfylkingarinnar í Reykjavík ætlar að hittast á fimmtudaginn (7.3.)
klukkan átta. Tengiliðar í skólum, látið endilega sjá ykkur.
Umræðuefni: Pólitik í skólum - almenn skólamál.
Nefndin
Finnar eins
og Afganir
Línnulausar árásir Jóns Baldvins á jafnaðarmanna-
flokka á Norðurlöndum vekja mikla athygli. Erlendir
fjölmiðlar:
Yfirlýsingar formanns Alþýð-
uflokksins undanfarna daga og
endurteknar árásir hans á bræðr-
aflokkana og forystumenn þeirra
í Skandinavíu urðu til sérkenni-
legrar uppákomu í fundarhúsi
Norðurlandaráðs í gær. 50-60
norrænir blaðamenn króuðu Jón
Baldvin Hannibalsson og Brynd-
ísi Schram af þegar þau komu í
heimsókn í Þjóðleikhúsið og
endaði öll hersingin á óboðuðum
blaðamannafundi í kjallara húss-
ins.
Tilefni þessa skyndilega áhuga
skandinavísku pressunnar á Jóni
Baldvin var grein, sem birtast á í
DV í dag og Magnús Guðmunds-
son, fréttaritari Ritzau fréttastof-
unnar hafði sent glefsur úr í frétt-
askeytum til Norðurlandanna í
fyrradag. í greininni sendir Jón
Baldvin forystumönnum jafnað-
armanna á Norðurlöndum tóninn
og lýsir stefnu sinni í öryggis- og
varnarmálum Norðurlanda. I
ljósi þess að Jón hefur nú einang-
rað sig lengst til hægri meðal jafn-
aðarmanna á Norðurlöndum er
yfirskrift greinarinnar næsta
spaugileg, en hún er: Vinstra
megin við miðju!
Finnar
Á blaðamannafundinum harð-
neitaði Jón að hafa viðhaft orðið
„finlandisering" og þar með gefið
í skyn að Finnar réðu ekki utan-
ríkisstefnu sinni í sjónvarpinu 11.
desember sl. (Það gátu erlendu
blaðamennirnir að sjálfsögðu
ekki sannreynt, en hinir íslensku
vissu betur.) Hann kvaðst því
ekki geta beðið Kalevi Sorsa,
leiðtoga finnskra jafnaðarmanna
og forsætisráðherra Finna, afsök-
unar á slíkum ummælum, en
Sorsa mótmælti þeim eftirminni-
lega með því að hundsa kvöld-
verðarboð Alþýðuflokksins sl.
mánudag. Þjóðviljinn skýrði frá
þessu í gær og vitnaði Jón í blaðið
sem „kommunistisk avis“ af því
tilefni. Þess skal getið að í gær-
kvöldi sendi Jón finnska forsætis-
ráðherranum afsökunarbeiðni á
ummælum sínum um „fínlandis-
eringu“ eftir að hafa hlustað á
Hann stendur lanL
upptöku á sjónvarpsþættinum frá
í desember.
í blaðagreininni bætir Jón hins
vegar um betur og varð það drop-
inn sem fyllti mælinn að mati
finnskra blaðamanna. Þar líkir
hann Finnum við Afgani: þeir séu
aðeins hlutlaust smáríki á landa-
mærum Gulagsins. „Öll vitum
við hvernig fór fyrir Afgönum,"
segir þar. Og síðar: „Við
treystum þeim (þe. Finnum) til
að halda eins vel á spilunum og
unnt er - í erfiðri stöðu. Án hj álp-
ar frá Svíum (Sagan segir sína
sögu).“!
Svíar
En sænskir fá stærri skammt.
Grundvallaratriði í utanríkis-
stefnu sænskra jafnaðarmanna er
að viðhalda hlutleysi Svíþjóðar.
Það segir Jón í greinninni að sé
„dálítið sérstakt" hlutleysi og
bendir á að Svíar verji 10. hverri
krónu í vígbúnað og séu í hópi
mestu vopnasala í heimi.
„Auðvitað eru Svíar ekkert hlut-
lausir í átökum Gulagsins og Iýð-
ræðisríkjanna. En það borgar sig
fyrir þá að hafa þetta svona,“
segir þar.
I greininni fær utanríkisráð-
herra Svía, kratinn Lennart Bo-
ström sérstaka kveðju, þar sem
Jón fjallar um sovéska kafbáta í
Eystrasalti. „Þá ber stundum upp
á sker, undir bólvirkjum hins
konungiega sænska flota, þótt
utanríkisráðherra Svía þykist
ekki sjá þá né heyra“.
Danir
Sem kunnugt er brigslaði Jón
Baldvin Anker Jörgensen, leið-
toga danskra krata um afskipti af
innanríkismálum íslendinga og
hindraði hann í að taka til máls á
fundi kjarnorkuvopnaandstæð-
inga s.l. sunnudag. í greininni
víkur hann að ágreiningi sínum
við Anker Jörgensen um kjam-
orkuvopnalaust svæði á Norður-
löndum og ítrekaði að Alþýðu-
flokkurinn hafi ekki skipt um
skoðun varðandi uppsetningu
Nató-kjarnavopna í Evrópu.
]t til hœgri.
Hins vegar segir hann að svo sé
að sjá „sem sumir vina okkar á
Norðurlöndum hafi eitthvað
ruglast í ríminu upp á síðkastið“.
Norðmenn
Og þá eru aðeins eftir skeytin
ti! Norðmanna. Á blaðamanna-
fundinum urðu fjörugar um-
ræður um ríkisstyrki Norðmanna
til sjávarútvegsins, en Jón Bald-
vin hefur boðað til útifundar á
Lækjartorgi til að mótmæla þeim
í dag. Er han.n þar eini ræðumað-
urinn. Norskir jafnaðarmenn,
þeirra á meðal leiðtogi þeirra
Gro Harlem Bruntland, telja
styrkina afar mikilvægan hlekk í
byggðastefnu Norðmanna sem
hafí verið óbreytt í áratugi. Vilja
þeir fremur auka styrkina en
minnka þá. Rakti Jón umræður
sem urðu á alþingi fyrir skömmu
um þetta mál og minnti á yfirlýs-
ingar ráðherra um að þetta yrði
mál málanna á Norðurlandaráðs-
þingi. Er rósamál ráðherranna á
þinginu ein ástæðan fyrir fundar-
boði Jóns í dag.
Á blaðamannafundinum var
Jón spurður hvort hann ætlaði
ekki lflca að krefjast þess að Dan-
ir hættu að styrkja sjávarútveg
Færeyinga, en hann kvað nei við
því. Færeyingar væru algerlega
háðir fiskveiðum eins og Islend-
ingar og því í annarri stöðu en
Norðmenn. Þá var einnig spurt
hvort ekki mætti líta á sífelldar
gengisfellingar íslensku krónunn-
ar sem beinan styrk til útgerðar-
innar en engin svör fengust við
því.
Af viðtölum við norrænu blað-
amennina eftir fundinn í gær var
ljóst að þeir túlkuðu svör Jóns
sem yfirklór. Yfirlýsingagleðinni
og kokhreystinni hefði verið ætl-
að að vekja athygli á honum sjálf-
um innanlands en óvígur her nor-
rænna blaðamanna og fókus
þeirra á íslenska pólitík þessa
dagana hefði gleymst. Hann
hefði með þessum uppákomum
komið sjálfum sér í erfiða klípu
og einangrað sig og sinn flokk til
hægri langt frá jafnaðarmönnum
á Norðurlöndum.
-ÁI
8 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN