Þjóðviljinn - 23.04.1985, Síða 2
ÍÞRÓTTIR
Þorvaldur I. Þorvaldsson og Tryggvi
Gunnarsson skoruöu sín fyrstu mörk
fyrir KA á laugardaginn.
Knattspyrna
Níu mörk
KA-manna
KA skoraði níu mörk í tveimur
fyrstu leikjunum í bikarkeppni
Knattspyrnuráðs Akureyrar sem
hófst um helgina. KA vann Vask
6-0 á laugardaginn og Leiftur 3-0
á sunnudaginn.
Vaskarnir stóðu í K A framanaf
en mörkin hlóðust upp þegar á
leið. Nýju leikmennirnir Þor-
valdur í. Porvaldsson og Tryggvi
Gunnarsson skoruðu sitt mark
hvor, Stefán Ólafsson 2, Bjarni
Jónsson og Njáll Eiðsson eitt
hvor.
Staðan í hálfleik hjá KA og
Leiftri, sem bæði leika í 2. deild í
sumar, var 0-0. í seinni hálfleik
fékk KA tvær vítaspyrnur og
skoraði Njáll úr báðum og Bjarni
skoraði einu sinni.
Næst verður leikið á
fimmtudag, sumardaginn fyrsta.
Þá eigast við Þór og Vaskur.
-K&H/Akureyri
Oliver Steinn Jóhannesson.
Minning
Oliver Steinn
jarðsettur
í dag
' Oliver Steinn Jóhannesson bókaút-
gefandi og bóksali í Hafnarfirði er
látinn og fer útför hans fram í dag.
Oliver Steinn var um langt árabil
einn fræknasti jþróttamaður landsins
og margfaldur Islandsmeistari í lang-
stökki, hástökki, þrístökki, 100 m
hlaupi og boðhlaupum. Hann varð ís-
landsmeistari í langstökki í sjö ár í röð
á árunum 1940-1946 og stökk fyrstur
fslendinga yfir 7 metra. Stóð íslands-
met hans í greininni mjög lengi.
AUa tíð keppti Oliver Steinn fyrir
FH og starfaði lengi fyrir það félag
eftir að hann hætti keppni og var
árum saman í stjórn þess.
Tómas Guðjónsson
✓
Islandsmeistari eftir að hafa lent 0-2 undir.
Ragnhildur örugg í kvennaflokki ogþau
Tómas urðu tvöfaldir meistarar
Ragnhildur
Sigurðardóttir
Borðtennis
Ragnhildur Sigurðardóttir, UMSB, og Tóm-
as Guðjónsson, KR, urðu í fyrrakvöld ís-
landsmeistarar í einliðaieik kvenna og karla í
borðtennis, en íslandsmótið fór fram í Laugar-
dalshöllinni um helgina. Þau urðu bæði tvö-
faldir meistarar, Ragnhildur sigraði einnig í
tvenndarleik ásamt Stefáni Konráðssyni og
Tómas í tvíliðaleik karla ásamt Tómasi Sölva-
syni.
Þegar tvær lotur voru búnar í úrslitunum í
einliðaleik karla benti allt til þess að Stefán
Konráðsson, Stjörnunni, ynni öruggan sigur á
Tómasi. Stefán lék vel og vann fyrstu tvær
sannfærandi, 21-15 og 21-12. En Tómas er
reyndur keppnismaður og hann náði að vinna
þriðjum lotuna 21-18. Sú fjórða endaði með
algerum yfirburðasigri Tómasar, 21-5, og þá
var ljóst að hann hafði náð undirtökunum í
einvíginu, öryggi Stefáns var rokið útí veður og
vind. Tómas vann svo síðustu lotuna nokkuð
sannfærandi, 21-15, og tryggði sér íslands-
meistaratitilinn. Sigraði 3-2. Hilmar Konráðs-
son, Víkingi, varð síðan þriðji.
Ragnhildur þurfti talsvert skemmri tíma til
að sigra Sigrúnu Bjarnadóttur, UMSB, í úrslit-
um einliðaleiks kvenna. Ragnhildur vann
fyrstu lotuna auðveldlega, 21-9, og spurði Sig-
rúnu um hana miðja hvort hún ætlaði eklci að
fara að byrja. Sigrún hélt síðan betur í við hana
það sem eftir var en Ragnhildur hafði undir-
tökin og vann 21-17 og 21-16, úrslit 3-0. Hafdís
Ásgeirsdóttir, KR, hafnaði í þriðja sæti.
Stefán og Ragnhildur unnu öruggan sigur á
Tómasi G. og Elísabetu í úrslitum tvenndar-
leiksins, 21-16, 21-8 og 21-19. Kristinn Már
Emilsson, KR, og Sigrún Bjamadóttir,
UMSB, höfnuðu í þriðja sæti.
Kristín Njálsdóttir og Sigrún Bjarnadóttir
unnu frækinn sigur á tvíburunum Ragnhildi og
Ernu Sigurðardætrum í alborgfirskum úrslita-
leik í tvíliðaleik kvenna. Tvíburarnir unnu
fyrstu tvær loturnar, 21-12 og 21-18, en Kristín
og Sigrún sýndu mikið keppnisskap og unnu
þrjár, 21-17,21-18 og 21-17, og leikinn þar með
3-2. Elísabet Ólafsdóttir og Hafdís Ás-
geirsdóttir úr KR urðu í þriðja sæti.
Tómasarnir, Guðjónsson og Sölvason, sigr-
uðu Stefán Konráðsson og Hilmar Konráðsson
í úrslitum tvíliðaleiks karla, 3-2. Loturnar end-
uðu 14-21, 21-16, 21-19, 17-21 og 21-11. Jafnt
og tvísýnt, þar til Tómasarnir unnu úrslitalot-
una á afar sannfærandi hátt. Kristján Jónasson
og Kristján Viðar Haraldsson urðu í þriðja
sæti.
-VS
Tómas vann upp
forskot Stefáns
Essen úr leik
Tapaði í Kiel. Alfreð gerðifjögur. Einvígi Kiel og
Gummersbach. Sigurður skoraði sjö
V -Pýskaland
Essen..................22 428-356 30 Reinefusche Berlin.....22 468-471 18
Schwabing..............22 433-430 24 Húttenberg..............22 459-490 17
Grosswallstadt.........22 414-431 23 Bergkamen...............21 405-429 16
Dankersen..............22 413-410 22 Lemgo...................22 401-441 16
Dússeldorf.............21 413-406 21 Handewitt...............22 434-488 16
Hofweier...............22 471-474 21 Massenheim..............22 387-427 15
Evrópuknattspyrnan
Verona slakar á
Anderlecht þarf aðeins eitt stig enn
Frá Jóni H. Garðarssyni, frétta-
manni Þjóöviljans í V-Þýskalandi:
Essen er dottið útúr keppninni
um meistaratitilinn í handknatt-
leik eftir ósigur í Kiel um helgina,
21-19. Baráttan stendur því á
milli Kiel og Gummersbach sem
eiga eftir að mætast í seinni um-
ferðinni.
Það var uppselt á leikinn í Kiel,
7000 áhorfendur sáu leikinn en 20
þúsund vildu fá miða. Sigur Kiel
var öruggur, liðið hans Jóhanns
Inga leiddi 13-8 í hálfleik og var
21-16 yfir skömmu fyrir leikslok.
Essen skoraði þrjú síðustu mörk-
in. Alfreð Gíslason átti ágætan
leik með Essen og var í aðalhlut-
verki ásamt Fraatz eins og venju-
lega. Fraatz skoraði 8(4v) mörk
og Alfreð 4(lv). Wiemann
skoraði 9 mörk fyrir Kiel og
Schwenker 6.
Lemgo er að missa flugið og er
á ný komið í geigvænlega fall-
hættu eftir ósigur gegn Hútten-
berg, 29-23. Sigurður Sveinsson
skoraði 7 marka Lemgo, 2 úr víti,
og var tekinn úr umferð allan tím-
ann.
Botnliðin unnu flest. Hándew-
itt vann furðulegan útisigur gegn
Hofweier, 26-17, og Berlin vann
Dankersen úti, 22-19. Schwaging
vann Massenheim 18-16 og
Grosswallstadt tapaði 12-13 fyrir
Gummersbach eftir að hafa leitt
8-5 í hálfleik.
Staðan í Bundesligunni:
Kiel ..............22 487-412 34
Gummersbach........22 479-427 33
Verona, efsta lið ítölsku 1.
deildarinnar í knattspyrnu, lék á
sunnudaginn sinn þriðja leik í röð
án sigurs. Það var gegn AC Mi-
lano á útivelli, úrslitin urðu 0-0 og
slapp Verona mjög vel með þau
úrslit því heimaliðið sótti látlaust
allan seinni hálfleik.
Sampdoria og Torino geta því
enn skotist uppfyrir Verona þó
skammur tími sé til stefnu. Sam-
pdoria vann Lazio 3-0 í Róm og
Torino vann Avellino 2-0. Ver-
ona er með 37 stig en Sampdoria
og Torino 34 þegar fjórum um-
ferðum er ólokið. Inter Milano
tapaði 3-1 í Napoli og Juventus
náði aðeins jafntefli, 1-1, gegn
Ascoli.
Anderlecht þarf aðeins eitt stig
í viðbót úr 5 leikjum til að tryggja
sér belgíska meistaratitilinn. Lið
Arnórs Guðjohnsens gerði jafn-
tefli 1-1 á útivelli við Waregem
sem er í öðru sæti í deildinni.
Anderlecht er með 51 stig en
Waregem 41.
Bordeaux færist enn nær sigri í
frönsku 1. deildinni, vann nú Ro-
uen 2-0 á föstudagskvöldið.
Nantes vann 2-0 sigur á Laval en
hefur 48 stig gegn 53 hjá Borde-
aux þegar fimm umferðum er ó-
lokið.
Ajax tapaði óvænt 1-3 á heimavelli
gegn Groningen í Hollandi en það
kom lítt að sök því PSV Eindhoven
gerði jafntefli við Zwolle, 1-1, og Fe-
yenoord tapaði 3-1 fyrirSpörtu. Ajax
hefur 45 stig, PSV 43 og Feyenoord
39.
Real Madrid endaði spænsku 1.
deildina á 0-1 heimatapi gegn Hercu-
les, sem með því bjargaði sér frá falli.
Allt í kalda koli hjá Real síðustu vik-
urnar. Barcelona, meistararnir, end-
uðu á markalausu jafntefli gegn Real
Santander.
Porto er komið með 6 stiga forystu í
Portúgal eftir 3-0 sigur á Penafiel.
-VS
Handbolti
Úthaldið
brást!
Gömlu Valsararnir stóðu heldur
betur í Víkingum í bikarkeppninni í
handknattleik á sunnudaginn. Þeir
höfðu undirtökin lengst af, leidu 11-8 í
hálfleik og voru yfir, 19-18, þegar
langt var liðið á leikinn. Þá var út-
haldið á þrotum og Víkingar gerðu
átta mörk gegn einu á endasprettinum
og sigruðu 26-20. Steinar Birgisson
skoraði 6 mörk fyrir Víking og Hilm-
ar Sigurgíslason 5 en Ólafur H. Jóns-
son gerði 7 marka Vals-b og Hermann
Gunnarsson 4.
Dregið var til undanúrslita í keppn-
inni í beinni útsendingu í íþróttaþætti
sjónvarpsins á laugardaginn. Víking-
ar leika við Va! og FH mætir Stjörn-
unni og fara báðir leikirni fram á mið-
vikudagskvöldið - sá fyrrnefndi í
Seljaskólanum en sá síðarnefndi í
Hafnarfirði. _ys
Knattspyrna
Ólafur H. Jónsson sýnir gamla takta
og skorar eitt 7 marka sinna. Mynd:
E.ÓI.
Knattspyrna
Sigrar hjá
ÍA og FH
Yfirburðir Vals
í B-riðlinum
Aftur aukastig, núgegn Víkingi
Akurnesingar sigruðu Breiðablik
2-1 á Akranesi í Litlu bikarkepninni í
knattspyrnu á laugardaginn.
Sveinbjörn Hákonarson og Hörður
Jóhannesson skoruðu fyrir ÍA en
Steindór Elísson fyrir UBK.
FH og Haukar léku á Kaplakrika í
Hafnarfirði og sigraði FH 2-1. Ingi
Björn Albertsson og Guðmundur
Hilmarsson skoruðu mörk FH.
Staðan í keppninni:
FH....................2 2 0 0 3-1 4
Breiðablik............2 1 0 1 9-3 2
(A....................1 1 0 0 2-1 2
IBK...................10 0 10-1 0
Haukar................2 0 0 2 2-10 0
Tveir leikir verða á sumardaginn
fyrsta. Þá mætast Breiðablik oc FH
og ÍBK-ÍA.
Valsmenn tryggðu sér yfirburðasigur I
B-riðli Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu
með því að sigra Víking 3-2 á gervigrasinu
á laugardaginn. Þar með fengu þeir tvö
aukastig í mótinu, og átta stig alls. Guð-
mundur Þorbjörnsson skoraði tvö mark-
anna 0g Þorgrímur Þráinsson eitt en
Andri Marteinsson og Aðalsteinn Aðal-
steinsson skoruðu fyrir Víkinga.
Staðan í A-riðli er þessi:
Valur............................3 3 0 0 11-4 8
Ármann...........................2 10 1 1-2 2
Víkingur.........................3 0 1 2 4-6 1
Fylkir...........................2 0 11 4-8 1
Ármanni dugar því jafntefli gegn Fylki
í síðasta leik riðilsins á fimmtudag til að
komast í undanúrslit. Fylkir þarf að sigra.
í kvöld mætast KR og Þróttur í síðasta
leik A-riðils kl. 20.30. Þróttur þarf að
sigra til að leika við Ármann eða Fylki í
undanúrslitum, annars mætir liðið Vals-
mönnum. -VS
ÍÞRÓTTIR
V. Þýskaland
Bremen líklegra
Fékk góða hjálp í Bochum meðan Bayern tapaði.
íslendingarnir fengu allirfjóra. Roeleder enn of hátt uppi.
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Eftir fyrsta ósigur Bayern
Múnchen í níu leikjum er Werder
Bremen orðið sigurstranglegra í
Bundcsligunni í knattspyrnu. Ba-
yern sótti Hamburger SV heim og
mátti þola 2-1 tap þrátt fyrir að
leika síst verr en tvenn mistök
belgíska landsliðsmarkvarðarins
Jean-Marie Pfaff urðu til þess að
heimaliðið sigraði.
Eftir fimm mínútna leik einlék
Belgíumaðurinn Plessers upp all-
an völl og skaut af 20 m færi -
knötturinn skoppaði yfir landa
hans og í netið! Á 20. mínútu lék
Skotinn Mark McGhee uppað
endamörkum hægra megin, sneri
við útað vítateigshorni og lyfti
þaðan glæsilega yfir Pfaff, sem
var of framarlega, og í bláhornið
fjær, 2-0. Bayern sótti meira það
sem eftir var og Roland Wo-
hlfarth lagaði stöðuna með marki
á 50. mín. Það var Felix Magath
sem dreif HSV áfram með stór-
leik en Sören Lerby og Lothar
Mattháus voru sem fyrr lykil-
menn Bayern.
Bremen fékk á meðan góða
hjálp frá Bochum til að sigra 1-3 á
útivelli. Á 3. mín. skoraði Frank
Benatelli fyrir Bochum en Walter
Oswald jafnaði með glæsilegu
sjálfsmarki, 1-1. Síðan skullu
Zumdick markvörðu og Tenhag-
en varnarmaður Bochum saman
og Rudi Völler sendi boltann í
tómt markið, 1-2. Loks stýrði
Heinz Knúwe knettinum í eigið
mark eftir fyrirgjöf frá Benno
Möhlmann, 1-3. Bremen hefur
nú tapað fæstum stigum í Bund-
esligunni.
Urslit um helgina urðu þessi:
Dusseldorf-Mannheim..............1-1
Kaiserslautern-Dortmund...........5-0
Gladbach-Uerdingen................0-0
Schalke-Köln......................2-3
Frankfurt-Stuttgart...............2-0
Leverkusen-Bielefeld.............1-1
Bochum-Bremen.....................1-3
Karlsruher-Braunschweig..........4-1
HamburgerSV-BayernMúnchen........2-1
Ég sá viðureign Dússeldorf og
Mannheim á föstudagskvöldið.
Mannheim kom greinilega til að
ná jafntefli og Dússeldorf gat
ekki unnið svo jafntefli var rétt-
látt. Dússeldorf fékk að halda
knettinum að vild úti á vellinum
en sterk vörn Mannheim stöðv-
aði allar sóknaraðgerðir. Greini-
lega engin tilviljun að liðið hefur
ekki tapað í Bundesligunni eftir
áramót. Fullkomlega löglegt
mark var dæmt af Gúnter Thiele,
Dússeldorf, í fyrri hálfleik en á
47. mín. skoraði Rudi Bommer
úr vítaspyrnu, 1-0. Þá tók Mann-
heim leikinn í sínar hendur í sjö
mínútur, þar til Dimitros Tsion-
anis jafnaði. Þá lagðist liðið í
vörn á ný og Dússeldorf sótti án
þess að skapa sér færi. Atli Eð-
valdsson lék í framlínu Dússeld-
orf og sýndi lítið en fékk eitt gult
spjald. Hann fékk 4 í einkunn hjá
Kicker. Bommer var langbestur
hjá Dússeldorf og það verður erf-
itt að fylla skarð hans, en hann
skrifar sennilega undir samning
við Uerdingen í dag.
Mönchengladbach og Uer-
dingen gerðu markalaust jafntefli
í lélegasta leik umferðarinnar.
Gladbach var óhemju lélegt og ef
leikmenn Uerdingen hefðu þor-
að að taka einhverja áhættu
hefðu þeir unnið leikinn. Lárus
Guðmundsson lék allan leikinn
með Uerdingen og fékk 4 í ein-
kunn.
Frankfurt vann Stuttgart 2-0 og
getur þakkað Helmut Roeleder
markverði Stuttgart fyrir sigur-
inn. Hann virðist enn ekki kom-
inn niður á jörðina eftir meistara-
tignina sl. vor. Achim Kraatz, 18
ára, skoraði með lausu skoti af 40
m færi, Roeleder hreyfði sig ekki
og horfði á eftir boltanum í netið!
Cezary Tobollik skoraði síðan úr
aukaspyrnu, skaut beint í hornið
sem Roeleder stóð í!
Eintracht Braunschweig er
komið í botnsætið, steinlá gegn
Karlsruher 4-1 eftir að hafa náð
forystuna með marki Reinhards
Kindermann og sótt látlaust
fyrsta hálftímann. Magnús Bergs
lék ekki með Braunschweig.
Klaus Allofs lék nú í fyrsta
skipti í langan tíma án þess að fá
sprautu fyrir leikinn og skoraði 2
mörk í 2-3 sigri Kölnar í Schalke.
Hann var langbesti maður vallar-
ins en Köln stal sigrinum með
tveimur mörkum á lokamínútun-
um. Kaiserslautern stoppaði sig-
urgöngu Dortmund með 5-0
sigri. Andreas Brehme skoraði
tvö markanna. Leverkusen var
heppið að sleppa með jafntefli
heima gegn Bielefeld. Finninn
Pasi Rautianen kom Bielefeld
yfir en Kóreumaðurinn Bum-
Kun Cha jafnaði fyrir Leverkus-
en.
Efstu og neðstu lið Bundeslig-
unnar eru þessi:
Bayern........28 16 7 5 64-36 39
Bremen........27 15 8 4 72-41 38
Gladbach.....27 13 7 7 64-39 33
Hamburger....26 12 8 6 48-37 32
Köln..........27 14 3 10 52-46 31
Uerdingen....27 11 7 9 47-71 29
Dússeldorf.......27 6 8 13 43-58 20
Bielefeld........28 4 12 12 33-54 20
Karlsruher.......27 4 9 14 38-70 17
Braunschweig... 27 7 2 18 31-65 16
Janus Guðlaugsson og félagar í
Fortuna Köln sigruðu Blau-
Weiss Berlin 1-0 í 2. deild og
kómust uppí 12. sæti. Janus fékk
4 í einkunn.
Knáttspyrna
Tékkartöpuðu
dýrmætu stigi
Tékkar töpuðu dýrmætu stigi í
undankeppni HM t knattspyrnu á
sunnudaginn. Þeir léku við
Möltubúa í Rabat á Möltu og úr-
slitin urðu markalaust jafntefli.
Staðan í 2. riðli Evrópu er því
þessi:
V-Þýskaland........4 4 0 0 13-3 8
Portúgal...
Svíþjóð
Tékkóslóvakía
Malta........
..5 3 0 2 8-7 6
..4 2 0 2 7-4 4
„3111 5-2 3
.5 0 1 4 3-14 1
Baráttan ætlar greinilega að
standa á milli Portúgala, Svía og
Tékka um annað sætið í riðlinum
en tvö efstu liðin komast í loka-
keppnina í Mexíkó.
Kanadabúar hafa staðið sig vel
í Ameríkuriðli og eygja nú von
um að komast í lokakeppni HM í
fyrsta skipti. Þeir komust í milli-
riðil þegar Jamaica hætti þátt-
og síðan Guatemala 2-1 á sunnu-
daginn. Þá komust Egyptaland
og Marokkó áfram í 3. umferð
undankeppninnar í Afríku með
því að slá Madagaskar og Malawi
útúr 2. umferðinni á sunnudag-
inn.
-VS
Maraþon
Tvö
heimsmet
Heimsmet karla og kvenna í mara-
þonhlaupi fuku bæði um helgina.
Portúgalinn Carlos Lopez sigraði í
Rotterdam á nýju heimsmeti karla,
2:07,11 klst., og norska stúlkan Ing-
rid Christiansen setti nýtt heimsmet
kvenna í London er hún hljóp vega-
. lengdina, 42 km og 195 metra, á
2:21,06 klst..
Polar Cup
Sætur sigur á Dönum
Pálmar og Valurfmoærir. ísland stakk af í lokin.
Það hefur löngum verið haft á
orði að æðsta takmark íslenskra
íþróttamanna sé að vinna sigur á
Dönum. Hvort sem það er rétt
eður ei þá vann íslenska landslið-
ið í körfuknattleik sætan sigur á
Dönum á Polar Cup í Finnlandi á
sunnudagsmorguninn, 84-68.
Þetta var sfðasti leikur íslands á
mótinu og hafnaði liðið í fjórða
sæti með 2 stig.
Leikurinn var jafn mest allan
tímann og í hálfleik hafði Island
nauma forystu, 46-43. „Við
stungum þá af þegar fimm mínút-
ur voru eftir, allt gekk upp hjá
okkur en örvænting hljóp í Dan-
ina og sextán stig skildu liðin í
lokin. Þetta var sennilega besti
leikur okkar á mótinu, baráttan
var í toppklassa og hittnin ótrú-
leg, sérstaklega hjá Pálmari Sig-
urðssyni og Val Ingimundar-
syni,” sagði Jón Kr. Gíslason
landsliðsmaður frá Keflavík í
samtali við Þjóðviljann eftir
leikinn.
„Árangur okkar á þessu móti
er svipaður og við buggumst við,
þó við hefðum talið okkur geta
sigrað Norðmenn. Þeir reyndust
hins vegar geysisterkir, voru
jafnvel með sterkasta liðið á mót-
inu,” sagði Jón Kr.
Stig Islands: Pálmar 29, Valur 24, Ivar
Webster 10, Jón Kr. 6, Guöni Guðnason 6,
Birgir Mikaelssón 4, Tómas Holton 3 og
Gylfi Þorkelsson 2.
Svíar stóðu uppi sem sigurveg-
arar í mótinu þrátt fyrir tap gegn
Finnum. Finnar töpuðu fyrir
Norðmönnum þannig að Sví-
þjóð, Noregur og Finnland hlutu
6 stig hver þjóð og höfnuðu í
þessari röð á stigahlutfalli. ísland
varð í fjórða sæti með 2 stig en
Danir töpuðu öllum sínum
leikjum. -VS.
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 23. apríl 1985