Þjóðviljinn - 27.04.1985, Blaðsíða 6
ÍÞRÓTT1R
V. Pýskaland
Bremen tapaði
Bayern áfram á toppnum
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Bremen nýtti ekki tækifærið til
að komast uppfyrir Bayern
Munchen og á topp Bundeslig-
unnar í knattspyrnu í fyrrakvöld
- liðið tapaði 3-2 í Köln. Úrslitin
voru ósanngjörn, Bremen var
betra liðið, en heimsklassa-
frammistaða Klaus Allofs og Pi-
erre Littbarskis færði Köln sigur.
Allofs gerði tvö markanna og
Littbarski eitt en Frank Neubarth
og Bruno Pezzey skoruðu fyrir
Bremen, minnkuðu þá muninn í
2-1 og 3-2. Allofs hefur nú gert 20
mörk og er markahæstur ásamt
Rudi Völler frá Bremen, sem ekk-
ert gat gert í fyrrakvöld vegna
strangrar gæslu Dieter Prestins.
Dusseldorf, án Atla Eðvalds-
sonar (vegna landsleiksins í Lux)
vann sinn fyrsta sigur í 10 leikjum
- 1-0 heima gegn Kaiserslautern.
Sanngjarn sigur og GunterThiele
skoraði með sk illa í fyrri hálfleik.
Möncheng' .dbach og Dort-
mund gerðu ,afntefli og jafnaði
Dortmund ikinn, 1-1, með síð-
ustu spyrr leiksins. Mannheim
er ósigrað í 12 leikjum í röð eftir
2-0 sigur á Braunschweig sem er
sama og fallið í 2. deild. Loks
gerðu Karlsruhe og Schalke jafn-
tefli, 2-2. Gerd Kleppinger,
fyrrum leikmaður Karlsruhe,
jafnaði rétt fyrir leikslok fyrir
Schalke og sendi þar með sitt
gamla félag langleiðina niður í 2.
deild.
Körfubolti
Sturla í Val
Njarðvík endurheimtir tvo
Sturla Örlygsson, körfuknatt-
Iciksmaðurinn öflugi frá Njarð-
vík, mun leika með Valsmönnum
í úrvalsdeildinni næsta vetur.
Sturla, sem er 23 ára gamall,
þjálfaði og lék með Reyni Sand-
gerði sl. vetur og hefur leikið með
landsliðinu, stundar nám í
Reykjavík næsta vetur. Hann
verður vafalítið mikill styrkur
fyrir lið Vals, ekki síst þar sem
Kristján Agústsson hefur lýst því
yfir að hann sé búinn að ieggja
skóna á hilluna.
Njarðvíkingar hafa endur-
heimt tvo leikmenn sem léku
með öðrum félögum sl. vetur.
Ástþór Ingason kemur aftur frá
KR og Ingimar Jónsson frá Létti
þar sem hann var þjálfari á ný-
loknu keppnistímabili.
-SÓM7VS
Tölvubækur
Dagana 29. apríl til 3. maí gengst Bóksala stúdenta
fyrir sýningu á nýjum bókum um tölvur og tölvufræði
frá Prentice-Hall, Inc., í húskynnum Félagsstofnunar
stúdenta við Hringbraut.
Sýningin verður opin frá kl. 10.00 til kl. 17.00 ofantalda
daga, nema þann 1. maí frá kl. 13.00
bók/a,lfc /túdervtk
Félagsstofnun stúdenta Háskóla íslands
Til sölu
Tilboð óskast í eftirfarandi bifreiðar vegna Slökkvi-
stöðvar og vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar:
2 stk. Chevrolet Malibu fólksbifreiðar, árg. 1980.
Bifreiðarnar verða til sýnis á verkstæði Slökkvistöðv-
arinnar, Skógarhlíð 14, mánudaginn 29. og þriðjudag-
inn 30. apríl.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri, að Fríkirkjuvegi
3., þriðjudaginn 30. apríl kl. 15.00 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800
Ferðastyrkir
Fulbright stofnunin býður nokkra ferðastyrki handa
íslenskum námsmönnum sem munu hefja fram-
haldsháskólanám (t.d. M.A., M.S., P.h.D.) íBandaríkj-
unum haustið 1985.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofunni Garðastræti
16.
Umsóknarfrestur til 22. maí 1985.
Eiginmaður minn,
Björn Jónsson,
fyrrverandi alþingismaður frá Akureyri,
Leifsgötu 20 Reykjavík,
er látinn.
Þórgunnur Sveinsdóttir.
1
Körfubolti
Basl í Firðinum
Með góðum lokakafla tókst
landsliðinu að tryggja sér annan
sigur yfir Luxemborg í Hafnar-
firði í gærkvöldi. Lúxarar höfðu
yfir mest allan leikinn, misstu
niður dampinn undir lok leiksins
er þeir misstu 2 bestu menn sína
útaf með 5 villur. Leikurinn
endaði 76-70, en í hálfleik var
staðan 35-36 fyrir gestina.
Lúxemborgarar leiddu oftast í
fyrri hálfleik og höfðu 1 stig yfir í
leikhléi. Þeir komu sprækir inná
eftir hlé og eftir 5 mín. var staðan
orðin 39-51 og útlitið ekki bjart.
Þá var Pálmar Sigurðsson settur
inn og stuttu síðar Hreinn Þor-
kelsson og þeir ásamt Jóni Kr.
Gíslasyni drifu áfram leik liðsins
og náðu að jafna og komast yfir
62-61 þegar 5 mín. voru eftir.
Jafnt var 66-66, en eftir það hittu
Valur Ingimundarson - 32 stig gegn
Luxemburg í Keflavík.
gestirnir ekki úr 4 bónusskotum
og var þá ekki að sökum að
spyrja, Landinn spilaði af öryggi
og Valur Ingimundar og fvar We-
bster settu punktinn yfir góðan
leik sinn með síðustu körfunum.
Bestir íslendinga voru þeir sem
að ofan eru nefndir, en hjá gest-
unum þeir Roth, sem fékk sína 5.
villu þegar 7 mín. voru eftir, og
Moes bestir.
Hálfgerð upplausn var í lokin
og höfðu þeir Jón Otti og Sigurð-
ur Valur ekki nógu góða stjórn á
leiknum.
Næsti leikur liðanna verður í
Seljaskóla í dag kl. 14:00 og má
búast við hörkuleik.
f dag munu þeir Björn Stef-
fensen og Hreiðar Hreiðarsson
leika sinn fyrsta landsleik í körfu-
bolta.
Stigin:
Island: Valur 22, ívar og Jón Kr. 14,
Hreinn og Pálmar 8, Tómas Holton og
Birgir Mikaelsson 3, Gylfi Þorkelsson 2.
Lúxembor: Roth 18, Moes 10, Kalmes
8, Arendt 8, Grethen 6, Keiser 6.
Handbolti
Víkingur
vann FH
Tveir leikir voru í úrslita-
keppninni í handbolta í
Laugardalshöll í gærkvöldi. Vík-
ingur sigraði nýkrýnda íslands-
meistara FH með 28 mörkum
gegn 27 eftir að staðan hafði verið
13-10 fyrir FH í leikhlé. Einnig
léku KR og Valur og sigraði Val-
ur 30-23, í hálfleik var staðan 16-
15 fyrir Val.
Frekar lítill áhugi er fyrir úr-
slitakeppninni þar sem úrslitin
eru þegar ráðin og helst að hér sé
um að ræða æfingu fyrir F.H. og
Víking fyrir bikarúrslitaleikinn.
-gsm.
Körfubolti
Örnggt í Keflavík
Átjáníhléi, úrslit 93-84
Knattspyrna
Sjö möric
Þórsara
Þór sigraði Vask 7-2 í bikarkeppni
KRA í fyrradag. Vaskarnir komust
þó í 2-1 snemma leiks - Þór náði 3-2
forystu fyrir hlé og skoraði síðan
fjögur í seinni hálfleik. Halldór
Askelsson 2, Bjarni Sveinbjörnsson
2, Óskar Gunnarsson, Siguróli Krist-
jánsson og Sigurður Pálsson skoruðu
fyrir Þór en Jónas Baldursson og Jón
Gunnar Berg fyrir Vask. f dag leika
Leiftur og Vaskur kl. 14 og á morgun
Þór og Leiftur kl. 14. Báðir leikirnir
fara fram á Sanavellinum.
Sex mörk í Krikanum
ísland vann mjög öruggan
sigur á Luxemburg í fyrsta lands-
leik þjóðanna af fjórum sem fram
fór í Keflavík í fyrrakvöld. Loka-
tölur urðu 93-84 fyrir ísland eftir
að staðan í hálfleik hafði verið
50-32.
Luxemburg komst yfir eftir
nokkrar mínútur, 12-15, og var
Íiað í eina skiptið í leiknum sem
sland var undir. Valur Ingi-
mundarson jafnaði 15-15, og eftir
það var ísland með örugga for-
ystu, allt til leiksloka - munurinn
var 14-18 stig allan seinni hálf-
Ieik, minnstur 91-84 á Iokamínút-
unni.
ValurogJón Kr. Gíslason voru
bestu menn íslenska liðsins en
Gylfi Þorkelsson og Birgir Mika-
elsson gerðu góða hluti á þeim
tiltölulega skamma tíma sem þeir
voru inná. Luc Grethen og Fern-
and Roth voru bestu leikmenn
Luxemburgara - frábærir báðir
tveir. Grethen skoraði 23 stig og
Roth 18.
Stig fslands: Valur 32, Jón Kr. 16, Torli
Magnússon 12, Gylfi 10, Birgir Mikaelsson
8, ívar Webster 8, Pálmar Sigurðsson 5 og
Árni Lárusson 2.
Leikið verður í Seljaskóla í
Reykjavík kl. 14 í dag og loks á
Akureyri á morgun, sunnudag.
Jóhann Dagur og Sigurður
Valur dæmdu leikinn ágætlega.
-SÓM/Suðurnesjum.
UTBOÐ
FH og Breiðablik gerðu jafntefli,
3-3, í Hafnarfirði í Litlu bikarkeppn-
inni í fyrradag. Blikar jöfnuðu þrisv-
ar, Hákon Gunnarsson síðast á loka-
mínútunni. Guðmundur Baldursson
og Þorsteinn Hilmarsson skoruðu hin
mörk Breiðabliks og Ingi Björn Al-
bertsson 2 og Kristján Gíslason
skoruðu fyrir FH. í Keflavík töpuðu
heimamenn 0-2 fyrir ÍA. Ólafur
Þórðarson og Lúðvík Bergvinsson
skoruðu mörkin. í dag verða tveir
leikir í keppninni, í A-FH og Haukar-
ÍBK. í Litlu bikarkeppninni í kvenna-
flokki vann ÍA stórsigur á ÍBK, 7-o.
Víðir vann stórsigur á Selfyssing-
um, 6-2, í Garðinum í Stóru bikar-
keppninni. Grétar Einarsson skoraði
3 mörk fyrir Víði, Guðjón Guð-
mundsson 2 og Svanur Þorsteinsson
eitt. Sævar Sverrisson og Jón Birgir
Kristjánsson skoruðu fyrir Selfoss.
Afturelding og ÍK gerðu markalaust
jafntefli í sömu keppni um síðustu
helgi.
Fylkir áfram
Fylkir komst í fyrrakvöld í undan-
úrslit Reykjavíkurmótsins með því að
sigra Ármann 3-2 í hörkuspennandi
leik á gervigrasinu. Smári Jósafatsson
kom Armanni strax yfir en Hörður
Guðjónsson svaraði með tveimur
glæsimörkum fyrir Fylki. Ármanni
dugði jafntefli og Bryngeir Torfason
jafnaði 15 mín. fyrir leikslok en rétt á
eftir skoraði Kristinn Guðmundsson
sigurmark Fylkis. Fylkir mætir Fram í
undanúrslitum á gervigrasinu kl.
20.30 annað kvöld og Valur leikur við
Þrótt á mánudagskvöldið á sama
tíma. Úrslitaleikurinn fer síðan fram
þann 7. maí milli sigurliðanna
tveggja.
K&H/SÓMWS
Tilboð óskast í að undirbyggja og steypa gangstéttir, víðs-
vegar í Reykjavík fyrir Gatnamálastjórann í Reykjavík.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 1.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 8. maí
nk„ kl. 11.00 f.h.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN