Þjóðviljinn - 27.04.1985, Síða 15

Þjóðviljinn - 27.04.1985, Síða 15
Kalevala á tveim stöðum í dag, laugardag, verður út- komu finnsku þjóðkvæðanna Kalevala minnst á tveimur vígstöðvum í Reykjavík. Klukkan 10 árdegis hefst mál- þing um Kalevala í stofu 101 í Hugvísindahúsi Háskólans og kl. 20.30 í kvöld efnir Nor- ræna húsið og Reykjavíkur- deild Norrænafélagsinstil Kalevala-kvölds í Norræna húsinu. Það er heimspekideild Há- skóla íslands sem heldur mál- þingið en það stendur frá kl. 10 - 17 með matarhléi milli 12 og 13. Þar flytja fjórir norrænir fræði- menn erindi um hinar ýmsu hlið- ar á Kalevala, og ferðir Elíasar Lönnrots sem fyrir 150 árum af- henti Finnska bókmenntafé- laginu kvæðabálkinn sem hann hafði safnað meðal íbúa Kirjála- héraðs í austurhiuta Finnlands. Þessir fræðimenn eru Lauri Honko, Juha Pentikáinen, Ann- ikki Kaivola-Bregenhöj og Car- sten Bregenhöj. Einnig leggja fræðimennirnir Aðalsteinn Da- víðsson, Davíð Erlingsson og Hallfreður Örn Eiríksson sitt af mörkum. Að erindum loknum verða umræður. Á kvöldvökunni í Norræna húsinu flytur Knut Ödegárd ávarp, Sigurður A. Magnússon rithöfundur flytur erindi um Kal- evala, Karl Guðmundsson les úr þýðingum Karls ísfeld á kvæðun- um, finnski sönghópurinn Nelip- olviset syngur og Annikki Kaivola-Bregenhöj flytur fyrir- lestur og sýnir litskyggnur. - ÞH Ljúdmfla Zykina, sem um iangt árabil hefur verið vinsæl- asta og kunnasta þjóðlaga- og vísnasöngkona í Sovétríkjunum, heldur tónleika ásamt þjóðlaga- sveitinni „Rossía“ í Þjóðleikhús- inu nk. mánudagskvöld 29. aprfl kl. 21. Efnisskráin er afar fjöl- breytt, gömul rússnesk þjóðlög og lög seinni tíma tónskálda sungin og leikin. Stjómandi hljómsveitarinnar er Viktor Gri- din. Rússneska listafólkið kemur til ísiands í tilefni Sovéskra daga MÍR 1985 og heldur tónleika utan Reykjavíkur í Neskaupstað 30. apríl, á Egilsstöðum 1. maí, Akureyri (Sjallanum) 2. maí, Laugum og Húsavík 3. maí. NVSV Reykjavík að vori Náttúruverndarsamtök suð- vesturlands hefja sumarstarf sitt með 10. ferðinni í ferðaröðinni „Umhverfið okkar". Að þessu sinni verður umhverfi Reykjavík- ur skoðað. Lagt verður upp frá Norræna húsinu í dag, laugardag kl. 13.30 og áætlað að koma úr ferðinni í Grófina kl. 18 - 19. Ferðin kostar 200 kr. fyrir full- orðna en frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Allir borgarbúar ættu að nota tækifærið og kynnast eigin umhverfi og sögunni. Leiðsögumenn í ferðinni verða þeir Árni Hjartarson jarðfræð- ingur, Árni Einarsson líffræðing- ur og Guðlaugur R. Guðmunds- son cand. mag. sem fræðir menn um sögu og örnefni. Hraunhellar Kafaðí Raufarhólshelli, Borgarhelli og Jörund austan Hlöðufells Hellar hafa löngum vakið for- vitni manna. Þó eru þeirfrem- urfáir, sem hafa lagt stund á að rannsaka þá enda er sjaldnast hlaupið að því. Hellafræði eða speleologi, eins og hún nefnist á er- lendum málum, ersérstök fræðigrein. Mánudaginn 29. apríl kl. 8.30 í stofu 201 í Árnagarði flytur Árni B. Stefánsson, augnlæknir er- indi: Hraunhellar á Islandi. Árni er manna fróðastur um íslenska hella og hefur eytt mörgum stundum í rannsóknir á þeim. Hann ræðir um myndun þeirra og ýmsar aðrar forvitnilegar hraunmyndanir. Árni sýnir lit- skyggnur teknar inni í hellum, m.a. úr Raufarhólshelli, Borgar- helli og hellinum Jörundi austan Hlöðufells. Hinn síðastnefndi fannst fyrir nokkrum árum, en honum hefur verið lokað fyrir al- mennri umferð vegna óvenju- legra og hárra dropsteina sem sýndar verða myndir af. Drop- steinarnir í Jörundi eru nær þeir einu, sem vitað er um, því að óbætanlegar skemmdir hafa ver- ið unnar á öðrum eins og í Víð- gelmi og Bláfjallahellunum. Brýn nauðsyn er á að vernda hina fáu, sem enn eru til. Kötturinn og Piaf Hóskólabíó Sinfónían og Lyran í dag, laugardag, kl. 14 heldur Sinfóníuhljómsveit (slands áskriftartónleika í Háskólabíó. Tónleikar þessir áttu að vera þann 18.októbersl.en þeim varð að f resta vegna ver kfalls. Gilda því áskriftarskír- teini fyrra misseris á þessa tónleika. Stjórnandi á tónleikunum verður Jean-Pierre Jacquillat sem verið hefur aðalstjórnandi hljómsveitarinnar síðan 1980. Með hljómsveitinni syngur að þessu sinni sænsk-finnski háskól- akvennakórinn Lyran undir stjórn Lenu von Bonsdorff. Á efnisskrá tónleikanna eru verkin Taras Bulba eftir Leos Janachek, Impromtu opus 19 eftir Jean Sibelius, Þrjár nokt- úrnur eftir Claude Debussy og Þríhyrndi hatturinn eftir Manuel de Falla. - ÞH Slappaðu af Sumri fagnað aðsœnskum sið í fyrradag héldum við (slend- ingar upp á sumardaginn fyrsta en samsvarandi dagur heitir meðal Svía Valborgar- messa og er á þriðjudaginn, 30. apríl. Islensk-sænskafé- lagið hyggst nú endurreisa hátíðarhöld í tilefni af þessum degi og verður hún í Skíðask- álanum í Hveradölum á þriðj- udagskvöld. Þar verður á boðstólum sænskur húsmannskostur, léttar ræður, söngur og dans. Aðalræðumaður verður Þórarinn Eldjárn rithöf- undur en Þór Magnússon þjóðm- injavörður verður veislustjóri. Sérstakur gestur verður sænski trúbadúrinn Jerker Engblom sem syngur lög eftir Bellman og Taube. Lagt verður af stað í rú- tum frá Hlemmi kl. 19 á þriðju- dagskvöld en þátttöku þarf að til- kynna í síma 99-4414. - ÞH Á morgun, sunnudag, kl. 17 frumsýnir Leikfélag Akureyrar nýtt leikrit fyrir alla fjölskylduna eftir Ólaf Hauk Símonarson. Það nefnist Kötturinn sem fór sínar eigin leiðir og má fræðast um það í viðtali við höfundinn á bls. 9 í blaðinu í dag. Leikfélagið sýnir einnig hinn vinsæla söngleik um Edith Piaf í kvöld, laugardag, kl. 20.30. í kvöld laugardag, verður vor- fagnaður Skaftfellingafélagsins í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178. í tilefni af því heldur Söngfélag Skaftfellinga tónleika á sama stað kl. 15.30. Á morgun, sunnudag, veröur opnuð í anddyri Norræna hússins sýning á skartgripum og öðrum munum úr silfri eftir silfursmiðina Rosa T aikon og Bernd Janusch. Rosa Taikon er sígauni og lærði hefðbundna silfursmíði ætt- flokks síns af föður sínum. Hún kenndi síðan manni sínum, Bernd Janusch, handverkið og í Mánudagskvöldið 29. apríl verður rætt um drauma, útlenda og innlenda í Norræna húsinu. Annikki Kaivola-Bregenhöj tal- ar um áhrif menningar á draumaráðningar og Carsten Bregenhoj fjallar um alþýðlegar ráðningar drauma. Hafa þau hjónin unnið lengi að þjóðfræði- Kvikmyndaklúbburinn Norð- urljós sýnir á morgun, sunnudag, kl. 16 dönsku gamanmyndina Slap af Frede eftir Erik Bailing. Mynd þessi er beint framhald myndarinnar Slá först Frede sem sýnd var á vegum klúbbsins sl. haust. í aðalhlutverkum eru Stjórnandi kórsins er Violeta Smidova og undirleikari Pavel Smid. Munu þau einnig leika saman fjórhent á píanó. Gestur á tónleikunum verður Friðrik S. Kristinsson einsöngvari. - ÞH sameiningu hafa þau þróað sitt eigið handbragð og stfl. Þau nota mikið víravirki í list sinni. Þau hafa sýnt víða í Svíþjóð og árið 1969 vöktu þau mikia athygli á mannréttindabaráttu sígauna með sýningu á hefðbundnum síg- aunaskartgripum í Nationalmus- eet í Stokkhólmi. Sýningin verður opin á venju- legum opnunartíma hússins til 12. maí. - ÞH legum rannsóknum á draumum. Þá skýrir Erlendur Haraldsson, dulsálfræðingur frá rannsóknum sínum á innihaldi drauma eftir kynferði og Hallfreður Örn Eiríksson rabbar um mismunandi merkingar nokkurra íslenskra draumtákna. Að þessu loknu verður svarað spumingum. Morten Grundvald, Ove Sprog- öe, Dirch Passer, Clara Pontopp- idan ofl. - ÞH Gítartónar ó Austurlandi Eins og frá var greint hér í biað- inu í fyrradag eru gítarleikararnir Símon H. ívarsson og Siegfried Kobilza á mikilli tónleikaferð um landið þessa dagana. í dag, laug- ardag, koma þeir til Austurlands og halda fyrstu tónleikana í Fjarðarborg á Borgarfirði eystra í dag kl. 15.30. Annað kvöld kl. 21 leika þeir í Fáskrúðsfjarðar- kirkju, á mánudaginn kl. 20.30 í safnaðarheimilinu í Neskaup- stað, á þriðjudaginn í félags- heimilinu á Eskifirði og á mið- vikudaginn 1. maí kl. 17 í Egils- staðakirkju. - ÞH Kórsöngur í Garði Á morgun, sunnudag, kl. 14 verða haldnir tónleikar á vegum Tónlistarfélags Gerðahrepps í samkomuhúsinu í Garði. Þar flytur kór Öldutúnsskóla í Hafn- arfirði undir stjóm Egils Frið- leifssonar fjölbreytta dagskrá. Einnig koma fram tveir fyrrver- andi kórfélagar, þær Valgerður Andrésdóttir píanóleikari og Margrét Pálmadóttir sópran- söngkona. Undirleikari á tón- leikunum er Jómnn Viðar. - ÞH Laugardagur 27. apríl 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Lausar stöður Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rannsóknastöður við Raunvísindastofnun Háskólans sem veittar eru til 1 -3 ára: a) Tvær stöður sérfræðinga við eðlisfræðistofu. b) Ein staða sérfræðings við efnafræðistofu. Sér- fræðingnum er einkum ætlað að starfa á sviði eðlisefnafræði. Fastráðning kemur til greina í þessa stöðu. c) Ein staða sérfræðings við jarðfræðistofu. Sérfræð- ingnum er einkum ætlað að starfa að rannsóknum í setlagafræði. d) Ein staða sérfræðings við stærðfræðistofu, en á stærðfræðistofu fara fram rannsóknir í stærðfræði og stærðfræðilegri eðlisfræði. Fastráðning kemur til greina í þessa stöðu. Stöðurnar verða veittar frá .1. september n.k. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Um- sækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða tilsvar- andi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við rann- sóknir. Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomu- lagi milli deildarráðs verkfræði- og raunvísindadeildar og stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans og skal þá m.a. ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti af starfsskyldu viðkomandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykja- vík, fyrir 25. maí n.k. Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dóm- bærum mönnum á vísindasviði umsækjenda um menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og má senda þær beint til menntamálaráðuneytisins. Menntamálaráðuneytið, 24. apríl 1985. - ÞH Skaftfellingar skemmta sér Silfursmíði og sígaunar Draumar í Norrœna

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.