Þjóðviljinn - 23.05.1985, Qupperneq 11
GARÐAR OG GRÓÐUR
Laufhrifa
Slöngukerra
Trjáklippur
Vatnsbyssa
I « 1 ^
Þetta er aðeins
örlítið brot af
úrvalinu okkar.
Sjáðu bara!
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 Sími 91 35200
Kústur
lönaöur
Grátandi
slöngur
Sighvatur Eiríksson: „Það er
auðvelt að rækta upp eyðimerkur
með tilfærslu vatns neðanjarðar.”
Neðanjarðarvökvun hefur reynst mjög vel hjá Garðyrkjuskóla ríkisins.
Kantklippur
Hver leggur ekki eyrun
við og reynir að komast að
sannleikskornunum, þegar
maður hlerar að það sé ver-
ið að framleiða grátandi
slöngur fyrir Saudi Arabiu
sem eiga að geta ræktað
upp eyðumerkurnar.
Forsaga þessa máls er að Am-
eríkani ætlaði að búa sér til garð-
slöngu úr gömlum hjólbörðum,
en sá galli varð á gjöf Njarðar að
slangan lak alltaf, og varð það
kveikjan af þessari framleiðslu.
Þjóðviljinn fór á stúfana og
fann fyrirtækið sem framleiðir
þessar„grátandi slöngur“í Hver a-
gerði og ber nafnið Entek h.f.
við hittum þar Sighvat Eiríksson
og spurðum hann nánar út í starf-
semina.
„Við hófum starfsemina fyrir
rúmu ári, en það eru 10 ár síðan
byrjað var að framleiða þessar
slöngur, og hefur verið stanslaus
þróun síðan, við erum mjög
bjartsýnir því það hefur ekkert
neikvætt komið upp við reynslu á
þessari vöru og eru aðeins tvær
verksmiðjur í heiminum sem
framleiða svona slöngur.
Aðaluppistaðan í þessum
rörum eða slöngum er endurunn-
ið gúmmí, gamlir hjólbarðar,
sem eru unnir á sérstakan hátt.
Hjólbarðarnir eru frystir, þar til
þeir verða glerharðir og malaðir
niður í duft sem er eins fínt og
neftóbak, síðan er duftið notað í
framleiðsluna. Slangan er lokuð í
annan endann og síðan er settur
þrýstingur á hana sem er 0.2-0.5
bar.
Það eru gerðar tilraunir með
þessi rör uppi í Garðyrkjuskóla,
og hafa þau komið mjög vel út.
Uppskeran virðist vera meiri, við
tilfærslu vatns neðanjarðar, held-
ur en við dropavökvun, þetta hef-
ur aðallega verið prufað á gúrku
og steinselju.
Aðalkosturinn við þessi rör er
hve auðvelt er að leggja þau, og
svo eru þau vatnssparandi, fín
fyrir svæði þar sem lítið vatn er,
því þau liggja neðanjarðar og er
yfirborðið alltaf þurrt, sem þýðir
að það er lítil uppgufun og hefur
komið í ljós að þetta sparar vatn
um 50-80%
Við höfum selt þessi rör
eitthvað hér innanlands en aðal
markaðurinn er þar sem vatns-
skortur er eins og t.d. í Saudi Ar-
abíu.“ -SP.
Garðúöari
Sighvatur Eiríksson
GARDENA
GARÐÁHÖLDIN GÓÐU
Þvottabursti
Garðklippur
Sáðlaukur
Hinn venjulegi guli matar-
laukur, heitir í raun sáðlaukur,
hann hefur verið í ræktun síð-
astliðin 3000 ár, og finnst hann
hvergi villtur nú orðið.
Laukbragðið sem við þekkjum er
ekki upprunalega bragðið, en
bragð forföður hans er talið alveg
hræðilegt, en með stöðugum
kynbótum í gegnum aldirnar,
hefur fengist þetta milda bragð
sem við þekkjum.
Fáir hafa reynt að rækta sáð-
lauk hér á landi, en þeim sem
hafa áhuga má benda á að þeir
geta aflað sér upplýsinga um það í
Matjurtabókinni sem Garðyr-
kjufélagið gefur út.
Til gamans má geta þess, að í
Egyptalandi til forna var sáðlauk-
urinn talinn heilagur og var prest-
um bannað að borða hann.
Slöngukefli
■■