Þjóðviljinn - 02.06.1985, Page 3
Nýtt helgarblað
Magnús Olafsson, sem var
ritstjóri NT viö góöan orðstír
þangaö til í síðustu viku, er
ekki búinn að snúa baki við
blaðaútgáfu. Hann mun hafa í
hyggju við fleiri menn að hefja
útgáfu á einhvers konar viku-
blaði, sem þó yrði um flest
ólíkt hinum hefðbundnu helg-
arblöðum sem nú eru á mark-
aðnum, svo sem HP og Sunn-
udagsblaði Þjóðviljans sem
þú hefur í höndum núna. Ekki
fer þó sögum af því hvers kon-
ar blað þetta á að vera, og
Magnús brosir tvíræðu brosi
ef grennslast er fyrir um það
og er allur hinn laumulegasti.
Þó er málið komið á það alvar-
legt framkvæmdastig, að
hann hefur þegar beðið
Blaðaprent um tilboð í á-
kveðna vinnu fyrir sig. Hann
hefur nú sent stjórn Blaða-
prents skriflegt tilboð, og auk
þess hefur sést til hans og
Óðins Rögnvaldssonar,
framkvæmdastjóra Blaða-
prents, á laumulegum fund-
um. Ekki munu þó allir hafa
tekið málinu jafnvel, þannig er
talið að Haukur Ingibergs-
son, sem átti sæti í þeirri
stjórn NT sem gerði Magnúsi
lífið hvað leiðast, sé ekki mjög
hrifinn af tiltækinu...B
Guðni og
gamli bærinn
Guðni rektorGuðmundsson
og félagar í Menntaskólanum
í Reykjavík ætla sér nú að
leysa húsnæðisvanda
skólans með því að byggja
hæð ofaná um 15 ára gamla
nýbyggingu aftast á skóla-
lóinni, Casa Nova (nýja húsið
á latínu). Sú bygging er
tveggja hæða með góðum
kjallara og ekki víst að þriðja
hæðin mundi verða til mikillar
prýöi. Enda hefur máliö ekki
verið lagt fyrir viðkomandi
borgarnefndir svo talist geti
ennþá. Arkitektinn hefur hins-
vegar þegar verið ákveðinn
Guðmundur Kr. Guðmund-
son, einn af þeim sem átti
hugmyndina að Skúlagötu-
múrnum.
Næstu íbúar eru víst lítið
hrifnir, að undanteknum
heildsalanum sem á húsa-
lengjuna við Þingholtsstræti
ofanvið Cösu. Fái MR að
hækka Cösu getur ekkert ver-
ið því til fyrirstöðu að hann fái
að byggja ofaná sig líka á ein-
um eftirsóttasta stað í borg-
inni. Hlálegast er að MR hefur
lengi staðið í samningavið-
ræðum við KFUM sem hefur
aðsetur ofan og utan við
skólann og munaði síðast að-
eins skitinni milljón á verðs-
koðunum aðila.
Þess má geta að Guðni á
góða að í borgarkerfinu, til
dæmis gamlan nemendafé-
lagsformann í borgarstjóra-
stól.a
Jakinn á
fimmtíu kall
Á aðalfundi Dagsbrúnar á
fimmtudagskvöld spunnust
nokkrar umræður um fyrir-
hugaðar líftryggingar félags-
manna. Guðmundur J. Guð-
mundsson sagði þá frá því
að líftryggingar hefðu í raun-
inni verið eyðilagðar á árum
áður sökum verðbólgunnar.
Hann tók sem dæmi að þegar
hann var tíu ára gamall hefðu
foreldrar hans vakað heila
nótt til að íhuga hvort þau ættu
ekki að líftryggja þá bræður.
„Og það varð úr,” sagði Guð-
mundur, „að móðir mín ákvað
að líftryggja okkur og borgaði
inn á trygginguna allt sitt líf.
En núna myndi tryggingar-
upphæðin ekki verða nema
50 þúsund krónur” bætti Guð-
mundur við sem dæmi um
áhrif verðbólgubálsins.
Þröstur Ólafsson fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar
gall þá við og spurði hvort
tekið hefði verið tillit til mynt-
breytingarinnar?
Jakinn lygndi þá aftur
augunum og íhugaði málið.
„Nei það er rétt” svaraði hann
svo, „því gleymdi ég. Ég er
semsagt ekki metinn nema á
fimmtíukallF’B
Vindöld, vargöld
Það er þungt í mönnum hljóð-
ið báðumegin víglínunnar í
atkvæðagreiðslumálinu fár-
ánlega um Kennarasam-
bandið og BSRB. Málið allt er
orðið að harmrænum farsa:
með atkvæðagreiðslunni átti
á opinn og lýðræðislegan hátt
að skera úr í viðkvæmu deilu-
máli þannig að allir gætu unað
við, - en lagaklúður hefur orð-
ið til þess að fylkingar standa
andspænis hvor annarri enn-
þá og aldrei grárri fyrir járnum.
Heyrast jafnvel sögur um að
minnihlutinn í KÍ sem telur sig
beittan órétti muni kljúfa sig
útúr Kennarasambandinu og
stofna eigið félag sem yrði
áfram innan BSRB, og hefði
þá úrsögnin leitt til enn frekari
sundrungar í stéttinni í stað
sameiningarþróunar.
Það er mál manna að flestir
aðilar hafi hagað sér einstak-
lega klaufalega í málinu,
þarmeð vakið óþarfa ýfingar
og spennu og komið í veg fyrir
að málið leystist í sæmilegu
bróðerni. Síðasta dæmið mun
vera það að um leið og stjórn
BSRB mæltist til þess að at-
kvæðagreiðslan hjá kennur-
um yrði endurtekin var brugð-
ið fæti fyrir hefðbundna úthlut-
un á styrk til KÍ vegna nor-
ræns þings á árinu. Til eru
þeir sem telja að þessi „fjárk-
úgun” hafi ráðið úrslitum
innan KÍ...B
Haraldur
oddviti
Nú þykir sýnt að Guðmundur
G. Þórarinsson eigi ekki
nokkurn möguleika á því að
fara í prófkjör innan Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík
gegn Haraldi Ólafssyni.
Upplýsingarnar um nefndar-
þóknanir Guðmundar G. og
félaga í álviðræðunum þykja
líklegar til þess að Guðmund-
ur jafnvel vogi sér ekki í fram-
boðið - og ef hann gerði það
ætti hann ekki nokkurn kost á
að vinna Harald, sem nú er að
verða oddviti þeirra Framm-
ara í Reykjavík.B
Bjórkórinn
Þessa ágætu limru sendi
Fræmundur Sóði okkur í til-
efni af þeim sviptingum sem
eiga sér stað á þingi, og raun-
ar víða, um blessaðan bjór-
inn.
A þinginu’er kröftugur
kórinn
sem kyrjar „Nú leyfum við
bjórinn”!
En við sjáum hvað setur.
Kannske sannast enn betur
hve seigur er Kirkjubóls-
Dórinn. ■
Sunnudagur 2. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍPA 3
VIÐ SENDUM ÍSLENSKUM
SJÓMÖNNUM
ÁRNAÐARÓSKIR í TILEFNI DAGSINS
Viljirðu vera áhyggjulaus um sparifé þitt í 18
mánuði eða lengur, þá er Sparireikningur
okkar. . .
með
er
hæstu
arireikning
ávöxtun sem bankinn býður
Sparifé á 18 mánaða Sparireikningum nýtur
fullrar verðtryggingar og eru vaxtakjör borin
saman við kjör 6 mánaða verðtryggðra reikn-
inga. Sé ávöxtun þeirra hærri,hækkar ávöxtun
18 mánaða reikninga sem nemur mismuninum.
Vextir eru færðir tvisvar á ári og eru lausir
til útborgunar eftir færslu.
Að lokinni 18 mánaða bindingu er innborgun
ávallt laus til útborgunar, en heldur engu að
síðurhæstu ávöxtun.
Vextir eru nú 35% (maí ’85) og ávöxtun
ársins’85 því 38,9% (vextir + vaxtavextir).
BUNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI