Þjóðviljinn - 06.06.1985, Side 15

Þjóðviljinn - 06.06.1985, Side 15
ÍÞRÓTTIR Preben Elkjær (efri mynd) og Michael Laudrup (neöri mynd), „Italirnir" í danska landsliðinu, gerðu tvö mörk hvor í gær, gegn Sovétmönnum. Handbolti Biynjar í Olympia Brynjar Harðarson handknatt- leiksmaður scm áður lék með Val skipti um félag í Svíþjóð fyrr í þessari viku - gekk til liðs við 2. deildarféiagið Olympia sem Ólafur Bencdiktsson markvörður lék eitt sinn með. Brynjar var hjá Lugi sl. vetur en fékk lítið að spila, aðallega vegna þess að hann var ólöglegur i Evrópukeppni og mátti heldur ekki spila í úrslitakeppni um meistaratitilinn. Hann lék aðal- lega með dótturliði Lugi sem sigr- aði í 2. deild og skoraði grimmt. -VS Golf Fyrsta opna kvennakeppnin Fyrsta opna kvennakeppnin hjá Golfklúbbnum Keili verður haldin sunnudaginn 9. júní. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar. Ræst verður út frá kl. 11. Wella-umboðið, Halldór Jónsson hf, gefur verðlaunin. Danmörk Mexíkó blasir við! Fyrsti sigurinn á Sovétmönnum, 4-2 í HM ígœr Frá Emil Björnssyni fréttamanni Þjóð- viljans í Danmörku: Já, hann var sögulegur leikur Dana og Sovétmanna í gær. Danir höfðu aldrei sigrað Sovétmenn í knatt- spyrnu og voru mjög taugastrekktir. En danska þjóðin krafðist sigurs, og strax í gærmorgun söfnuðust áhorf- endur saman í miðborg Kaupmanna- hafnar, sungu baráttusöngva og veifuðu fánum, íklæddir „þjóð- legum“ ættjarðarbúningum, rauðum og hvítum. Hinn fornfrægi leikvangur Idræts- parken skartaði sínu fegursta og var eins og billjardborð yfir að líta. Veð- urfræðingar höfðu spáð roki, rign- ingu og þrumuveðri, og að sjálfsögðu var útkoman blíðviðri þannig að að- stæður voru hinar ákjósanlegustu. Um 45,700 áhorfendum var troðið inná leikvanginn og voru síðustu mið- ar svartamarkaðsbraskaranna keypt- ir á allt að 5000 dönskum krónum. Danir hófu leikinn með mikilli sókn og strax á 3. mín. skaut Bertels- en framhjá úr dauðafæri. Skyndi- sóknir Sovétmanna voru hættulegar og þeir áttu skot sem smaug framhjá stöng á 5. mínútu. Danir pressuðu og á 16. mínútu sendi Michael Laudrup á Preben El- kjær sem komst í gegn og skoraði, 1- 0. Fjórum mínútum síðar sneri El- kjær af sér þrjá sovéska varnarmenn og skoraði aftur, 2-0. Sovétmenn skiptu sóknarmanni inná fyrir miðju- mann og tóku öll völd. Þeir skoruðu, 2- 1, á 26. mínútu og áttu stangarskot á undan markinu og eftir. Seinni hálfleikur byrjaði svipað og sá fyrri, Danir meira í sókn, og á 61. mínútu var komið að þætti Michaels Laudrups. Hann sneri á varnarmann með einfaldri bolvindu og skoraði ör- ugglega hjá Dasayev, besta mark- verði heims, 3-1. Og aðeins þremur mínútum síðar gerði Laudrup útum leikinn. Hann fékk boltann á miðju, óð uppað vítateig og skoraði af miklu öryggi, 4-1. Sovétmenn tóku öll völd eftir þetta og Gotsmanov skoraði, 4- 2, á 67. mínútu, en nær komust þeir ekki þrátt fyrir mikla pressu. Danir léku skynsamlega og yfirvegað þegar þeir náðu knettinum og ekkert var um færi þar til í lokin að Sovétmenn fengu tvö dauðafæri sem þeir náðu ekki að nýta. Úrslit 4-2, Danir efstir í 6. riðli og sæti í úrslitakeppninni í Mexíkó blasir við. „Vi er pá vej til Mexiko“ sungu áhorfendur mest all- an seinni hálfleikinn, og svo mikið er víst að nú er Sepp Piontek þjálfari danska landsliðsins vinsælasti maður Danmerkur. Laudrup var stjarna dagsins en lið- ið lék allt vel. Ástæða er einnig til að nefna Sören Lerby, Frank Arnesen og stjórnandann frábæra, Morten Ol- sen. Staðan í 6. riðli: Danmörk.................4 3 0 1 8-3 6 (rland..................5 2 1 2 4-4 5 Sviss...................5 2 1 2 4-9 5 Sovótríkin..............5 1 2 2 9-8 4 Noregur.................5 1 2 2 2-3 4 Tvö efstu liðin komast til Mexíkó og Sovétmenn standa best að vígi með að ná öðru sæti þar sem þeir eiga aðeins heimaleiki eftir. Knattspyrna Sigurjón til ÍBK! Sigurjón Kristjánsson, fyrrum leikmaður með Breiðabliki, gekk í fyrrakvöld til liðs við 1. deildar- lið Keflvíkinga. Sigurjón, sem lék með Campinese í Portúgal sl. vet- ur, verður löglegur eftir mánuð og getur leikið með ÍBK gegn Vík- ingi þann 6. júií. „Mér líst mjög vel á mig í Keflavík, góður og skemmtilegur hópur og góður þjálfari,“ sagði Sigurjón við Þjóðviljann í gær, en þá mætti hann á sína fyrstu æfingu með ÍBK. „Ég á eftir að fá staðfestingu frá Portúgölunum á félagaskiptunum en reikna alls ekki með að það verði neitt vandamál.“ Sókn Keflvíkinga ætti því að vera enn beittari, með þá Ragnar Margeirsson, Óla Þór Magnús- son, Helga Bentsson og Sigurjón innanborðs. -VS Kvennaboltinn Bikarkeppnin r Aftur Ovænt í Kópavogi tapar Valur Bikarmeistarar Vals töpuðu sínum öðrum lcik í 1. deild kvenna í gærkvöldi - 0-1 gegn ís- landsmeisturum ÍA á Valsvellin- um. Valsstúlkurnar, sem léku í mjög ósamstæðum búningum, voru meira með boltann í leiknum en gekk illa að skapa sér færi og ÍA var alltaf inni í mynd- inni. Sigurmark Skagastúlkn- anna kom 12 mínútum fyrir leiks- lok - Vanda Sigurgeirsdóttir skaut nánast frá miðju vallarins og knötturinn fór yfir markvörð Vals og í netið. „Þetta er erfitt hjá okkur núna - við höfum misst einar sex stúlk- ur úr liðinu frá því í fyrra og það tekur tíma að ná sér á strik eftir það,“ sagði Hafsteinn Tómasson þjálfari Vals við Þjóðviljann eftir leikinn. -VS Grindavík vann Breiðablik. ÍR vann Skallagrím. Árvakur með 13 Grindvíkingar komu mjög á óvart í gærkvöldi er þeir slógu Breiðablik útúr bikarkcppni KSÍ - unnu 1-0 á Kópavogsvelli. Símon Alfreðsson skoraði sigurmark 3. deildarliðsins sem mætir Árvaki í 3. umferð. ÍR, sem leikur í 4. deild, vann 2. deildarlið Skallagríms 2-1 á ÍR- vellinum. Páll Rafnsson og Gústaf Björnsson komu ÍR í 2-0 en Ólafur Jóhannesson lagaði stöðuna fyrir Borgnesinga. Úrslit í 2. umferð í gærkvöldi urðu þessi: IR-Skallagrímur......................2-1 Víkingur O.-Augnablik................8-6 Reynir S.-Léttir.....................5-1 Árvakur-Tálknafjörður....:...........13-1 Breiðablik-Grindavík.................0-1 Stjarnan-Njarðvík....................5-6 Tindastóll-KA........................0-3 Leiftur-KS...........................0-1 Huginn-Austri........................4-5 1. umferð: Einherji-LeiknirF....................3-2 Þórarinn Hannesson skoraði fyrir Tálknfirðinga á gervigrasinu í þeirra fyrsta opinbera leik - en fyrir Árvak- ur svöruðu Friðrik Þorbjörnsson sem gerði 4 mörkj Ragnar Hermannsson skoraði 3, Árni Guðmundsson 3, Haukur Arason 2 og Björn Pétursson 1. Ari Haukur Arason skoraði 3 mðrk fyrir Reyni gegn Létti, Þórður Þork- elsson eitt og Júlíus Jónsson eitt úr víti en Egill Ragnarsson kom Létti á blað. Tryggvi Gunnarsson 2 og Erlingur Kristjánsson skoruðu mörk KA á korters kafla um miðjan seinni hálf- leik á Sauðárkróki. Einherjasigur í framlengdum leik á Vopnafirði - Stefán Guðmundsson 2 og Kristján Davíðsson skoruðu fyrir Einheria en Steinþór Pétursson og Einar Áskelsson fyrir Leikni. Hörður Júlíusson tryggði KS sigur á Ólafsfirði. Vítaspyrnukeppni þurfti á þremur stöðum og í þeim höfðu Víkingur Ólafsvík, Njarðvík og Austri betur. Ingólfur Ingólfsson skoraði fyrir Stjörnuna en Guðmund- ur V. Sigurðsson fyrir Njarðvík í venjulegum leiktíma. ÍBV og ÍBÍ leika í Eyjum á laugardaginn. -VS Knattspyrna Góður sigur Svía Akureyri „Wembley" tilbuinn Aðalleikvangurinn á Akureyri er tilbúinn til notkunar. Hann er fagurgrænn og glæsilegur og ekk- ert að vanbúnaði til að leika á Svíar unnu þýðingarmikinn sigur á Tékkum, 2-0, í undankeppni HM í knattspyrnu í gær. Robert Prytz og Lars Larsson skoruðu mörkin. Þar með eiga Tékkar nánast enga von um að komast í úrslitakeppnina í Mexíkó en Svíar berjast við Portúgal um ann- að sætið. Staðan í 2. riðli er þessi: V.Þýskaland 5 5 0 0 18-4 1 Svíþjóð 5 3 0 2 9-4 Porlúgal 5 3 0 2 8-7 Tékkóslóvakía 5 1 1 3 6-9 Malta 6 0 1 5 3-20 -VS Akureyri EÓP-mótið Sigurður setti vallarmet Hefði orðið annar á Grand Prix! Landsliðið mætir Þór Allir bestu úr íslensku liðunum og Pétur að auki. Þór 70 ára Sigurður Einarsson úr Ár- manni setti vallarmet í spjótkasti á frjálsíþróttavellinum í Laugar- dal á EÓP-mótinu í fyrrakvöld. Sigurður kastaði spjótinu 84,30 nietra sem er frábær árangur, á heimsmælikvarða, og heíði t.d. dugað honum í annað sætið á síð- asta Grand-Prix móti í Banda- rikjunum, á eftir Einari Vil- hjálmssyni. Önnur úrslit á mótinu uröu þau að Svanhildur Kristjánsdóttir, Bréiöabliki, sigraði bæði í 100 og 200 m hlaupi kvenna, á 11,9 og 24,9 sek. Helga Halldórsdóttir, KR, sigraði í 100 m grindahlaupi á 14,2 sek, Soffía R. Gestsdóttir, HSK, í kúluvarpi með 13,07 metra og Bryndís Hólm, ÍR, í hástökki nteð 1,60 metra. Már Hermannsson, UMFK, sigraði í 5000 m hlaupi á 15:34,8 mín, Hjörtur Gíslason, UMSE, í 110 m grindahlaupi á 14,5 sek, Aðalsteinn Bernharðsson, UMSE, í 200 m hlaupi á 22,2 sek, Viggó Þ. Þórisson, FH, í 400 m grindahlaupi á 57, 8 sek, og Kristján Gissurarson, KR, í stangarstökki með 4,90 metra. Þá unnu ÍR-sveitirnar boðhlaup karla og kvenna í 4x100 m, karla- sveitin hljóp á 44,8 sek, en kvennasveitin á 52,2 sek. -VS honum. Fyrsti knattspyrnuleikur sumarsins á honum verður á laugardaginn kl. 15 en þá mætast KA og Fylkir í 2. deildarkeppn- 'nn*- -K&H/Akureyri Ragnar Margeirsson, sem er besti leikmaður 1. deildarinnar að margra mati og er með forystu I stjörnugjöf Þjóðviljans, leikur með landsliðinu á Akureyri í kvöld. íslcnska landsliðið í knatt- spyrnu, skipað lcikmönnum úr 1. og 2. deild og Pétri Péturssyni að auki, mætir Þórsurum á Þórsvell- inum á Akureyri í kvöld kl. 20. Þór á 70 ára afmæli í dag, 6. júní, og er leikurinn af því tilefni. í landsliðinu eru átta leikmenn sem spiluðu eða voru í hópnum gegn Skotum. Það er þannig skipað: Markverðir: Friðrik Friðriksson, Fram Stefán Jóhannsson, KR Aörir leikmenn: Árni Sveinsson (A Einar Ásbjörn Ólafsson, Víði Guðmundur Steinsson, Fram Guðmundur Þorbjörnsson, Val Guðni Bergsson, Val Gunnar Gíslason, KR Kristján Jónsson, Þrótti Njáll Eiösson, KA Ómar Torfason, Fram Pétur Pétursson, Feyenoord Ragnar Margeirsson, IBK Sveinbjörn Hákonarson, ÍA Sævar Jónsson, Val Þorgrímur Þráinsson, Val Lið Þórs verður væntanlega skipað eins og að undanförnu í 1. deildinni. Þess má geta að áhorf- endum verður boðið uppá kafli í iþróttahúsi Glerárskóla í hálfleik. -K&H/Akureyri Fimmtudagur 6. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.