Þjóðviljinn - 27.06.1985, Page 5
Vinir og velunnarar Maríu
Markan héldu henni afmæl-
ishóf þegar hún varð 80 ára
þann 25. júní. Mikill mann-
fjöldi kom til að heilsa upp á
afmælisbarnið og óska
Maríu til hamingju. Það var
Kvenfélag Laugarnessókn-
ar ásamt nemendum henn-
ar sem stóð fyrir hófinu og
var boðið upp á Ijúffengar
veitingar og skemmtilega
dagskrá.
María lék á als oddi og söng
við raust þegar allir stóðu upp
til að syngja „Island ögrum
skorið”. Höfðu menn á orði
að ekki væri að heyra á rödd-
inni að María væri orðin 80
ára. Veislustjóri í afmælishóf-
inu var Unnur Valfells.
Meðal þess sem boðið var
upp á, Maríu og gestum henn-
ar til heiðurs, var söngur hluta
Ljóðakórsins og nemenda
Maríu, en Garðar Cortes
stjórnaði. Þá söng Elín Sigur-
vinsdóttir lög eftir Maríu, en
hún hefur fengist nokkuð við
að semja lög á ævinni. Margir
gestir héldu ræður og fluttu
árnaðaróskir- og kvæði sem
Svala Nielsen, afmælisbarnið og Elín Sigurvinsdóttir.
María Markan
áttræð
- tugir þúsunda gefnar
Blindrabókasafninu í tilefni
afmœlisins -
Ljóðakórinn og nemendur Maríu sungu nokkur lög undir stjórn Garðars Cortes. Hér ávarpar María þau að loknum
söngnum. Myndir: Valdís.
Guðrún Þorsteinsdóttir söngkennari óskar Maríu til hamingju með afmælið.
tileinkuð voru afmælisbarn-
inu. María þakkaði öllum við-
stöddum og fjærstöddum hlýj-
ar kveðjur og gjafir.
Eins og fram hefur komið
óskaði María eftir því að
Blindrabókasafnið njóti þess
sem fólk vill færa henni og gefi
andvirðið til safnsins í stað
þess að senda henni blóm eða
gjafir. Strax daginn eftir af-
mælið höfðu tugir þúsunda
króna safnast til safnsins
vegna afmælis Maríu. Er þessi
stuðningur safninu mjög
mikilvægur og gerir því kleift
að bæta þjónustu sína enn
fremur við alla þá sem vilja
nýta hljóðbækurnar. Meðal
annars hefur forsætisráðherra
sent 10 þúsund krónur til
safnsins af þessu tilefni.
-þs
Þegar „(sland ögrum skorið” var sungið tók María undir og söng hástöfum,
Fimmtudagur 27. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5