Þjóðviljinn - 27.06.1985, Blaðsíða 19
ÍÞRÓTTIR
Frjálsar
Bryndís fær
góðan styrk
Um 200þúsund krónur. Fer íháskóla í
Alabama til náms og keppni
„Ég er ekki alveg viss hve mikill
styrkur þetta er, ég fæ frí skóta-
gjöld og bækur, en ætli það nemi
ekki svona 200 þúsundum ís-
lenskra króna,“ sagði Bryndís
Hólm, frjálsíþróttakonan kunna,
í samtali við Þjóðviljann í gær.
Bryndís er á förum til
Alabama-fylkis í Bandaríkjunum
þar sem hún mun stunda háskóla-
nám og keppa fyrir hönd skólans.
Þráinn Hafsteinsson er þjálfari
við skólann og var Bryndísi innan
handar í málinu, en skólinn styrk-
ir hana vegna árangurs hennar í
frjálsum íþróttum.
„Þetta gefur mér mjög góð
tækifæri til að bæta minn árang-
ur, þarna er allt önnur og betri
aðstaða en hér heima,“ sagði
Bryndís. Ég er ekki alveg ákveð-
in í hvað ég ætla a læra, ætli ég fari
ekki í eitthvað létt og almennt
nám til að byrja með. Maður
hugsar ekki um annað en að bæta
sig - ég ætla að ieggja meiri
áherslu á að keppa í sjöþraut en
áður, en aðalgreinarnar verða
samt sem áður langstökk og há-
stökk.“
Það má búast við að Bryndís
dvelji allavega fjögur ár ytra, eins
og hún sagði, byggist það að
Flugleiðamótið
ísland U21-Holland
og Ísland-Noregur
Tveir landsleikir í Kópavogi í kvöld
Flugleiðamótið - fyrsta alþjóð-
lega mótið sinnar tegundar sem
haldið er hér á landi - hefst í
kvöld í íþróttahúsinu Digranesi í
Kópavogi með tveimur leikjum.
fslenska 21-árs landsliðið
mætir þá landsliði Hollands kl. 20
og á eftir mætast Island og Noreg-
ur.
Mótið er liður í undirbúningi
A-landsliðsins fyrir heimsmeist-
arakeppnina sem hefst í febrúar á
næsta ári og 21-árs liðið býr sig
undir heimsmeistarakeppnina í
sínum aldursflokki sem fram fer í
dcsember. -VS
2. deild
Barátta
í Leiftri
KA-Leiftur 2-0 (1-0) * *
Ólafsfirðingar gáfu sig ekki
fyrr en í fulla hnefana á blautum
og þungum Akureyrarvellinum í
gærkvöldi. KA var þó heldur
sterkari aðilinn án þess að ná að
sýna neina yfirburði.
Um leið og Njáll Eiðsson, sem
ekki lék með KA vegna meiðsla,
birtist skoraði Tryggvi Gunnars-
son en markið var dæmt af vegna
rangstöðu. Á 11 mínútu var Friö-
geir Sigurðsson einn við mark
KA og skallaði en Þorvaldur
Jónsson náði að verja. Tryggvi
skaut framhjá opnu Leifturs-
markinu eftir að óeigingjarn
Steingrímur Birgisson hafði gefið
á hann á 17. mínútu - og á 29.
mínútu kom fyrra markið. Logi
Einarsson markvörður Leifturs
sló fyrirgjöf frá, til Haralds Har-
aldssonar sem skaut, Logi kom
hönd á boltann sem fór í slá og
niður - og línuvörður, vel stað-
settur, dæmdi mark, 1-0.
1 byrjun seinni hálfleiks varði Logi
vel skalla frá Steingrími og rétt á eftir
voru tveir fluttir meiddir á spítala,
Bergþór Ásgrímsson úr KA og Guð-
mundur Garðarsson úr Leiftri.
Steingrímur skallaði síðan í mark
Leifturs eftir fyrirgjöf Þorvalds Ör-
lygssonar á 77. mínútu, 21-0. Sölvi
Ingólfsson lék á Þorvald markvörð
KA á 85. mínútu en hitti ekki úr
þröngu færi og í lokin var höfð víta-
spyrna af KA þegar Tryggvi var
greinilega felldur í vítateig Leifturs.
Maður leiksins: Erlingur Krist-
jánsson, KA.
-K&H/Akureyri
2. deild
Rautt í
Árbænum
Fylkir-Völsungur 0-0 **
Fylkismönnum tókst hvorki að
nýta sér sinn eiginlega heimavöll,
Árbæjarvöllinn, né það að vera
manni fleiri síðasta hálftímann
gegn Húsvíkingum í gærkvöldi.
Ekkert mark var skorað, Fylkir
er enn án sigurs og Völsungar
náðu ekki að saxa á forystu efstu
liðanna.
Fylkismenn voru sterkari
framanaf og á 10. mínútu komst
Óskar Theodórsson í dauðafæri
en hitti ekki boltann. Tveir Völs-
ungar komust einir í gegn á 25.
mín. en skotið fór framhjá. Fylk-
ismenn skoruðu eftir hálftíma, en
markið var dæmt af vegna rang-
stöðu. Völsungar komu meira
inní leikinn síðari hluta hálf-
leiksins og Ómar Rafnsson átti
hættulegan skalla á 43. mín. sem
Ólafur Magnússon varði.
Síðari hálfleikur var jafn, mikil
barátta en engin teljandi færi.
Birgir Skúlason var rekinn af
leikvelli á 65. mínútu fyrir endur-
tekið brot og Völsungar því
manni færri það sem eftir var en
þeir börðust bara betur og héldu
sínum hlut fyllilega.
Fylkisliðið lék mun betur en gegn
ÍBV á dögunum og Anton Jakobsson
átti bestan leik. Völsungar eru með
mjög sterka einstaklinga en þeir ná
ekki nógu vel saman. Sigurður Hall-
dórsson var bcstur, Kristján Olgeirs-
son, Jón Leó Ríkharðsson, Helgi
Helgason og Ómar Rafnsson komust
allir vel frá leiknum.
Maður leiksins: Sigurður Iialldórs-
son, Völsungi. -hs
Bryndís Hólm - til Alabama.
mestu leyti á því hve góðum ár-
angri hún nær. Mikil viður-
kenning fyrir hana og frjálsar
íþróttir á Islandi en um leið enn
eitt dæmi þess að íslenskt frjálsí-
þróttafólk þarf að fara úr landi til
að geta æft og keppt við viðun-
andi aðstæður. _VS
2. deild
Blikamir
stinga af
Briðablik-KS 0-2 (0-1) * * *
Blikarnir virðast ætla að stinga
af í 2. deildinni - þeir komu mjög
ákveðnir til leiks, eins og öll lið
reyndar nú orðið á Siglufirði, og
unnu sanngjarnan sigur.
KS sótti mjög fyrsta korterið
en Blikar voru atkvæðameiri það
sem eftir var hálfleiksins. Fram-
herjar KS fóru illa með ágæt færi
en Blikar ógnuðu mest með lang-
skotum. Úr einu slíku skoraði
Gunnar Gylfason, af 25 m færi,
ágætis mark, 0-1.
Brtiðablik var áberandi betri aðil-
inn í seinni hálfleiknum, lék af festu
og grimmd, og strax á 50. mínútu
gerðu þeir útum leikinn. Vel útfærð
aukaspyrna svæfði Siglfirðinga, Jó-
hann Grétarsson hljóp yfir boltann og
fékk hann síðan framhjá varnar-
veggnum og skoraði auðveldlega. Vel
gert. Eftir það voru ekki mörg færi og
það er orðið áhyggjuefni fyrir
Siglfirðinga hve illa þeim gengur að
skora mörk.
Jóhann Grétarsson var bestur
Blikanna, duglegur, og Sigurjón
Rannversson og Guðmundur
Baldursson stóðu sig vel. Bræð-
urnir Tómas og Jakob Kárasynir
voru bestir hjá KS.
Maður leiksins: Jóhann Grét-
arsson, Breiðabliki.
-rb/Siglufirði
Bikarinn
KA-Einherji
Einherji frá Vopnafirði er kominn í
16-liða úrslit bikarkeppni KSÍ í knatt-
spyrnu eftir sigur á Austra, 1-0, á
Eskifirði í gærkvöldi. Baldur Kjart-
ansson skoraði sigurmarkið eftir 20
mínútna leik. Einherji leikur gegn KA
á Akureyri í 16-liða úrslitunum.
-VS
Spjótkast
Einarvann
Einar Vilhjálmsson vann sinn
fjórða sigur í spjótkasti á móti í
Svíþjóð á rúmri viku, er hann
kastaði 86,72 metra í Vásterás í
gærkvöldi. Sænski methafinn,
Dag Wenlund, veitti honum
harða keppni og kastaði 85,76
metra. Þetta er tíundi mótssigur
Einars í röð á þessu ári.
1. deild
Sanngjamt
Tvö KR-mörk á síðustu 12 mínútunum
og sigur ífjörugum leik gegn Þór
Það er ekki hægt að segja ann-
að en að réttlætinu hafi verið
fullnægt þegar Jósteinn Einars-
son skoraði sigurmark KR eftir
hornspyrnu á 86. mínútu gegn
Þósurum frá Akureyri á Þórsvell-
inum í gærkvöldi. KR var mun
betri aðilinn í leiknum og það var
ekki að sjá á leik Þórsara að þeir
ættu möguleika á að skjótast uppí
annað sæti dcildarinnar. KR-
sigur, 3-2, og Vesturbæingar hafa
náð að komast vel uppyfir
botnliðin, Víði og Víking.
Eftir 20 mínútur hefði staðan
hæglega getað verið 4-0 í stað 1-0
fyrir KR. Hrikalegt óöryggi kom
upp í Þórsvörninni eftir 14 mínút-
ur og KR fékk hvert dauðafærið
eftir annað. Fyrst komst Sæbjörn
Guðmundsson einn í gegn eftir
slæm mistök Óskar Gunnars-
sonar en þruntaði í stöngina og
út. Rétt á eftir klikkaði rang-
stöðutaktik Þórs illilega, Willum
Þórsson komst einn uppað
Þórsmarkinu og skoraði auðveld-
lega. Á næstu mínútu var Sæ-
björn kominn einn í gegn eftir ein
rosamistökin í viðbót en Baldvin
Guðmundsson markvörður Þórs
bjargaði vel og síðan va'rði hann á
stórkostlegan hátt skalla frá Jó-
steini.
Síðan jafnaðist leikurinn en
Þór fékk aðeins eitt umtalsvert
færi í fyrri hálfleik, Bjarni
Sveinbjörnsson skallaði framhjá
á 44. mín. Margir misstu af jöfn-
unarmarki Þórs, svo fljótt kont
það í seinni hálfleik. Kristján
Kristjánsson sendi fyrir frá vinstri
og Bjarni var á undan Stefáni Jó-
hannssyni að boltanum og jafn-
aði, 1-1. Og um miðjan hálf-
leikinn virtust Þórsarar stefna
beint í annað sæti deildarinnar -
2. deild
Fyrsti
sigurinn
Skallagrímur-UMFN 1-0 (0-
0) * *
Þar kom að því að Skallagrím-
ur vann leik og hlaut dýrmæt stig í
fallbaráttunni. Njarðvíkingar
voru öllu hættulegri í fyrri hálf-
leik en Skallagrímur átti nánast
seinni hálfleik. Bæði lið vildu
vítaspyrnur seint í leiknum,
Njarðvíkingar á síðustu mínútu,
en ekkert slíkt var dæmt.
Björn Jónsson átti fyrsta færið,
en Njarðvíkingar björguðu skoti
hans í horn. Þórður Karlsson átti
síðan tvö góð skot, eitt óvænt af
30 m færi sem Kristinn Arnarson
sló í samskeytin og annað sem
Ólafur Jóhannesson bjargaði í
horn. Kristinn varði síðan glæsi-
lega frá Guðmundi Val Sigurðs-
syni á 37. mínútu. Ólafur þjálfari
Skallagríms var borinn af
leikvelli á lokamínútu hálfleiks-
ins eftir ljótt brot.
Skallagrímur hóf stórskotahríð
eftir hlé, Örn Bjarnason varði frá
Valdimar Halldórssyni og Ómari
Sigurðssyni áður en Ómar
skoraði uppúr þvögu á 59. mín-
útu, sigurmarkið. Eftir það átti
Gunnar Orrason tvö góð skot rétt
yfir, Örn varði frá Birni Ax-
elssyni og Ómar komst í gegn á
87. mínútu en Örn sá við honum
og varði.
Maður leiksins: Kristinn Arn-
arson, Skallagrími.
-eop/Borgarnesi.
KR-Þór 3-2 (1-0) ★ ★★★
Mörk KR:
Willum Þórsson 16. og 78. mín.
Jósteinn Einarsson 86. min.
Mörk Þórs:
Bjarni Sveinbjörnsson 47. mín.
Jónas Róbertsson 65. mín (viti).
Stjörnur KR:
Willum Þórsson **
Ágúst Már Jónsson *
Gunnar Gislason •
Hálfdán Örlygsson *
Stefán Pétursson *
Stjörnur Þórs:
Baldvin Guömundsson •
Bjarni Sveinbjörnsson *
Kristján Kristjánsson *
Siguróli Kristjánsson *
Dómari Eyjóifur Ólafsson **
Áhorfendur 356
Gunnar Gíslason felldi Bjarna
Sveinbjörnsson og úr vítaspyrn-
unni skoraði Jónas Róbertsson af
miklu öryggi, 1-2.
KR-ingar gáfust ekki upp.og
hver sóknin af annarri rann upp
frá bakvörðununr Gunnari og
Hálfdáni og í gegnum hina iðnu
Willum og Ágúst Má á miðjunni.
Sá frægi Jón G. Bjarnason konr
inná sem varamaður á 73. mín-
útu, námkvæmlega sama tíma og
í Þróttarleiknum umtalaða, og
það virtist hrífa. Björn Rafnsson
tók hornspyrnu rétt á eftir, og
uppúr þvögu varð Willum fyrstur
á boltann og renndi honum í net-
ið. Annað mark hans, 2-2. Sókn-
irnar gengu til skiptis í lokin,
Baldvin varði naumlega frá Jóni
G. og Stefán Jó. varði frá Bjarna
Sveinbjörns, en Jósteinn var
hetja í lokin, 3-2.
-VS
2. deild
Stórskota-
hrið ÍBV
ÍBV-ÍBÍ 0-0 ***
Þrátt fyrir stórskotahríð að
marki ÍBÍ síðustu tíu mínúturnar
tókst Eyjamönnum ekki að skora
og tryggja sér þrjú stig í köldum
strekkingsvindinum í gærkvöldi.
Strax á 6. mínútu varði Hreiðar
Sigtryggsson vel frá Tómasi Páls-
syni og á 19. mín. fékk ÍBÍ sitt
eina umtalsverða færi - Jón
Oddsson átti gott skot sem Þor-
steinn Gunnarsson varði. Bergur
Ágústsson komst í dauðafæri á
markteig á 28. mín. en hitti ekki
markið. Mikil barátta á miðjunni
í fyrri hálfleik og heldur stór-
karlaleg knattspyrna.
ÍBV gtrði harða hríð að marki fs-
firðinga í seinni hálfleik. Tómas átti
stórfallegt skot í stöng á 61. mín,
Sigbjörn Óskarsson fylgdi en skaut
yfir af markteig. Bergur sLaut í stöng
úr dauðafæri á 65. mín. og á 81. mín.
hófst stórskotahríðin. Tómas átti
hjólhestaspyrnu sem bjargað var á
línu, Ómar Jóhannsson negldi úr
aukaspyrnu af 35 m færi en Hreiðar
varði vel, Bergur komst aftur frír á
markteig en hitti ekki. Hreiðar varði
enn vel, nú frá Tómasi og á 87. mín-
útu small boltinn greinilega í hendi
ísfirðings í vítateig en ekkert dæmt.
Sigbjörn átti síðasta færið en ís-
firðingar björguðu í horn og einu stigi
endanlega í leiðinni.
Maður leiksins: Jóhann Georgsson,
Miðvikudagur 26. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
-JR/Eyjum