Þjóðviljinn - 03.11.1985, Blaðsíða 11
þingismaður). Tveimur árum síðar var Gunnar Jökull farinn að sjá
um bítið í bresku hljómsveitinni Syn. Ekki hafðist upp á neinum
myndum frá því tímabili og sagðist Gunnar ekki þá hafa haft hugsun
á að festa neitt á filmu í Englandsdvöl sinni.
14. janúar 1964: standandi eru Jón Þór Hannesson bassa-
leikari (símvirki og einn af forsprökkum Saga-film), Gunnar Jökull
Hákonarson og Guðni Pálsson söngvari (arkitekt). Fyrir framan þá
sitja Birgir Kjartansson gítarleikari (gullsmiður) og Finnur Torfi Stef-
ánsson gítarleikari (lögfræðingur, tónlistarnemi og fyrrverandi al-
Jökull, Rúnar Júlíusson, Magnús Kjartansson.
Trúbrot 1970 ásamt Shady Owens, sem kom til landsins til að hljómplötuverkinu Lifun: Karl Sighvatsson, Shady, Gunnar Jökull,
syngja í einum kafla hljómleikanna sem voru að mestu leyti helgaðir Magnús Kjartansson, Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson.
Eini íslenski
rokktónlistar
maðurinn á
heimsmœli-
kvarða
Gunnar Jökull Hákonarson
var í kringum 1970 talinn besti
trommuleikari á (slandi, og
meira en þaö; forstjóri aðal-
rokkklúbbsins í London á
bítlatímabilinu lét hafa eftirsér
að Gunnar væri besti tromm-
ari Bretlands, er hann spilaði
þarmeð bresku hljóm-
sveitinni Syn árið 1966. Upþ-
rifjun á ferli Gunnars í þætti
hjá Þorgeiri Ástvaldssyni á
Rás 2 fyrir nokkrum vikum
kom osstil að æskjafundar
við trommarann gamalkunna.
Það var auðsótt og undirrituð
boðuð á skrifstofu í Skipholt-
inu þar sem Gunnar situr á
bak við skrifborð, hljómplötur í
rekkum og hillum allt um kring
og orgel og segulband á miðju
gólfi; allt áberandi snyrtilegt
og takmarkað gólfplássið vel
nýtt. Hvað gerir svo trommu-
leikari eftir 12 árafjarveru úr
músikinni?
- Mitt daglega lifibrauð hef ég
af því að selja plötur. Ég er með
10 akandi sölumenn sem fara
með þær í hús, bjóða til sölu, en
eru einnig með lista sem fólk get-
ur pantað eftir. Við seljum tvær
plötur fyrir verð einnar. Þetta er
ekki stórt í sniðum. Ef ég hefði
fjármagn mundi ég stofna stærsta
og besta plötufyrirtæki hérlendis
þar sem hægt væri að fá verulegt
úrval af bæði innlendum og er-
lendum hljómplötum. Hvar er
slík verslun hér á landi? Þeir
kaupa nær eingöngu inn það sem
þeir eru vissir um að selja í stór-
um stfl. Hér virðist líka verslunin
almennt einungis vera til þess að
græða á en ekki til að þjóna við-
skiptavininum. En það verður
bið á að ég fari út í bissnes - ég fæ
ekki lán í bönkum, ekki einu
sinni fyrir trommusetti, hvað þá
meiru.
- Hvernig stendur á því?
- Það sem ég gerði var að fara
illa út úr kjötverslun sem ég rak.
Til að greiða skuldirnar seldi ég
hana í júlí 1979, allar eignir og
bíla, sem nægði fyrir öllu nema
einni skuld. Þá kom á mig gjald-
þrotakrafa sem ég er nú búinn að
borga. En það þýðir lítið að biðja
um greiðslufrest þegar svo er
komið, jafnvel þótt allir sjái að
greiðsluskilmálamir séu óraun-
hæfir. Ég lagði spilin á borðið og
vildi semja um eitthvað sem ég
gæti staðið við, en nei takk. Það
er annars merkilegt með lögfræð-
inga - fleiri þeirra gera ógagn en
gagn - maður hefði haldið að þeir
væru til að vernda fólk en ekki
sækja á það í sífellu. Það hlýtur
að vera offramboð á fólki í þess-
ari merku fræðigrein eða mikið
að í þjóðfélaginu þegar obbinn af
Iögfræðingum virðist vera í því að
rukka fólk af óbilgirni fyrir ann-
arra hönd og fá vænar prósentur
fyrir ófarir annarra. Ég held að
Háskólinn ætti að takmarka inn í
þær deildir sem ekki er þjóðhags-
lega hagkvæmt að fleiri útskrifist
úr. Fólk á auðvitað að geta lært
það sem það vill, en það getur
ekki ætlast til að þjóðfélagið eða
skattborgarar séu að styrkja nám
sem er þjóðhagslega óhagkvæmt.
Fólk á að borga fyrir slfkt nám
sjálft.
En, sem sagt, ég fæ ekki banka-
Ián af því að ég á ekki steinsteypu
til tryggingar láninu. Hins vegar
er ekkert spekúlerað í hvað lánin
fara svo í. Hér er annar hver mað-
ur kominn út í brask. En ef fólk á
steinsteypu fær það lán, alveg
sama þótt það ætli að setja á fót
óarðbært fyrirtæki. Það er ekkert
spekúlerað í hæfileikum viðkom-
andi. Ég hef hæfileika sem tón-
listarmaður og bissnessmaður en
get ekkert gert vegna bankakerf-
isins sem ekki þorir að fjárfesta í
hæfileikum. Ég get ekki heldur
fengið mér húsnæði þar af
leiðandi. Mér finnst ég vera alveg
innilokaður og sú tilfinning hefur
þjáð mig mest eftir að ég ákvað
að taka mig saman og snúa mér
aftur að músikinni. Og það er
mikil reiði innra með mér þegar
ég fer að tala um þetta við þig...
kannski mundi einhver segja að
hún kæmi út í monti, þegar ég
segist telja mig vera eina íslenska
rokktónlistarmanninn á
heimsmælikvarða, en ég þarf
samt að sanna að ég hafi hæfi-
leika. Ég er ekki að segja að ég
hafi verið hundrað prósent en
það hefur enginn trommari hér
sýnt þá tækni sem ég réð yfir. Mig
klæjar í fingurna að komast í sett
og fá aðstöðu til að æfa mig.
Þangað til það gerist sem ég
hérna á orgelið, sem ég keypti
einhverntíma í valíumvímunni,
og safna á segulband, sem ég fékk
mér nýlega. Ég færi aldrei út í að
spila með glamrandi tríói á
böllum þótt það gæfi af sér pen-
inga.
Frá nikku
til tromma
- Hvernig byrjaði tónlistarferill
þinn?
- Ég byrjaði sem harmonikku-
leikari. Þegar ég var 8-9 ára var
ég hjá frænda mínum í Bolungar-
vtk og komst í nikkuna hans. Þeg-
ar ég var kominn suður um haust-
ið sendi hann mér hana, því að
honum þótti ég hafa verið svo
næmur fyrir að læra á hana. Ég
fór svo í nikkunám og tókst að fá
10 á einleikaraprófi skólans að ári
liðnu. Það hafa víst fáir leikið
eftir. Svo man ég eftir að hafa
komið fram á skólaskemmtun 12
ára og í gagnfræðaskóla, 13 ára,
stofnaði ég 5 manna hljómsveit:
þar var píanóleikari, bassa-
leikari, trommari, gítarleikari og
ég á nikku. Trommarinn náði
hins vegar aldrei tökum á taktin-
um og ég var alltaf að segja hon-
um að hann ætti að gera svona en
ekki hinseginn. Hann náði aldrei
að gera „svona” og allt fór í kaos.
Þegar að því kom að við lékum á
okkar fyrsta skólaballi var kvint-
ettinn orðinn dúó: gítarleikarinn
og ég, við trommurnar. Við spil-
uðum tveir allt ballið.
Nokkrum mánuðum síðar
stofnuðum við „Shadows”-sveit
og spiluðum 2-3 kvöld í pásu hjá
Tónum í Lídó. Upp úr því buðu
þeir mér í hljómsveitina. Ég var
þá 14 ára, langyngstur þeirra, en
gat samt gert eins og trommar-
arnir á útlendu poppplötunum.
Hér með hafði tónlistin tekið mig
allan og ég hafði engan huga við
námið. Mér hafði alltaf gengið
vel í skóla, verið hæstur og til stóð
að ég færi í Versló. Ég tók inn-
tökupróf þangað en mátti aldrei
vera að því að láta sjá mig þar. Á
þessum tíma var mér boðið í
Hljóma í stað Eggerts. Þeir voru
þá hættir að vinna með músikinni
og ég hafði ekki efni á því. Þeir
fengu þá Pétur Östlund til liðs við
sig og ég hélt áfram í Tónum, var
þar alls í 2 ár.
Syn
- Þegar hér var komið sögu
fannst mér ég vera heftur tón-
listarlega, að ég kæmist ekki
lengra með hljómlistarmönnum
hér og fannst músikin sem við
vorum að spila ómerkileg. Þá
Gunnar Jökull Hákonarson, fæddur 13. maí 1949, trommusettslaus trommari, en hefur endurkomu sína í músikina með orgel og segulband að vopni,
eftir 12 ára hlé. Ljósm. E.ÓI.
n 'iiifl ■—'i'iiiimiui1 ,i Mf—Mitiw—ww y—m—— aat—Mi
ákvað ég að fara til Bretlands.
Fyrst fór ég í vikuferð með Sigga
Árna bassaleikara í september
1965. Svo fór ég aftur stuttu síðar
og í það skiptið með mynd af mér
við trommusettið í veskinu. Þá
átti ég" dýrasta trommusett í
einkaeign á íslandi. Ég fór sam-
kvæmt auglýsingu í prufu og það
vakti töluverða athygli að 16 ára
gutti skyldi eiga svona glæsilegt
sett prýtt upphafsstöfunum sín-
um, GJ. Ég fékk því að reyna, var
ráðinn á staðnum og til varð
hljómsveitin Syn. Þar með var ég
kominn í hljómsveit með besta
rokkbassaleikara heims, Chris
Squire. Hinir voru Pete Banks,
Andrew Price-Jackman og Step-
hen Nardelli.
Með Syn spilaði ég í 16 mánuði
og við vorum orðnir ansi virtir
meðal annarra rokkmúsikanta.
T.d. spiluðum við í Marquee,
sem í þá daga var frægasti staður-
inn með lifandi tónlist. Forstjór-
inn þar sagði að ég væri „Britain’s
greatest drummer”, en þetta var
óttalegt basl peningalega. Ég bjó
ýmist á „bed and breakfast”
eins-punds-hótelum, eða heima
hjá hinu, oftast hjá Chris. Maður
þurfti stundum að stela sér til
matar og svindla sér með neðan-
jarðarlestinni. Við æfðum mikið
og ferðuðumst, meðal annars til
Frakklands. Þar áttum við m.a.
að spila á einhverskonar kvik-
myndastjóraballi, en einhvern
veginn klúðraðist það og við sát-
um í Cannes í viku peningalausir
og átum bara brauð sem við út-
veguðum okkur með ýmsum
ráðum. Eftir allt þetta basl var ég
alveg búinn að fá nóg. Mér var
sama um heimsfrægð þá, vildi
bara spila með góðum músik-
öntum í ró og næði og geta lifað.
Þetta var vorið 1967 og ég dreif
mig heim.
Gunnar
Jökull
Hákonarson
trommuleikari
í viðtali
eftir 12 ára
„hvflcT.
Seinna frétti ég að þeim í Syn
hefði gengið illa að fá annan
trommara sem þeir voru ánægðir
með og það endaði með að
hljómsveitin var stokkuð upp og
nafninu breytt í Yes. Chris Squire
og Pete Banks voru áfram og
Chris er enn í Yes. Þeir slógu í
gegn árið 1969. Ég hefði aldrei
haldið út að bíða svo lengi eftir
frægðinni. Hins vegar mun Chris
hafa reynt að ná í mig þegar verið
var að stofna Yes, en hann sagði í
viðtali nýlega að það hafi verið
vont að missa mig og ég sé besti
trommari sem hann hefur spilað
með.
- Hvað tók við þegar þú komst
heim?
- Ég byrjaði náttúrulega að
spila og var með Tempó í nokkra
mánuði. í Flowers fór ég svo
snemma árs 1968 og var þar í 16
mánuði, þar til í maí 1969 að Trú-
brot var stofnað.
- Fyrsta íslenska súper-
grúppan, ekki satt?
- Jú, jú, Trúbrot samanstóð af
aðalmönnunum úr Flowers og
Hljómum: við Kalli Sighvats
komum með trommur og orgel úr
Flowers, Gunni Þórðar og Rúnar
Júlíusson með gítar og bassa úr
Hljómum og svo Shady Owens til
að hjálpa upp á sönginn. Síðar
meir bættist Maggi Kjartans við,
Kalli hætti svo og Shady var með
af og til. Upphafleg stefna með
Trúbroti var að semja og spila
bara eigin lög, og við gáfum út 3
stórar plötur og tvær litlar. Ég var
nú reyndar veikur að spila inn á
fyrstu plötuna. Hún vartekin upp
í London og Chris Squire heim-
sótti okkur í stúdíóið. Þá var ég
farinn að finna fyrir að ég var ansi
slæmur á taugum og í maga.
Dópisti
að lœknisráði
- Svo kom að því að ég klikkaði
á sviði þegar við vorum að spila í
Klúbbnum. Ég bara gat ekki
hreyft mig og fór á slysavarðstof-
una og heim. Ég veit ekki hvemig
þeir kláruðu ballið. Ég fór til
geðlæknis næsta dag. Hann skaff-
aði mér pillur því að hann sagði
að ég væri haldinn miklu stressi
og þyrfti á einhverju róandi að
halda. Þetta var valíum og það
reddaði mér úr vanlíðaninni. Ég
vissi ekkert þá að það er vana-
bindandi, tók það bara inn ef mér
leið illa. Svo fór smátt og smátt að
ég lenti í algjörum vítahring; mér
fór að líða illa ef ég tók töflurnar
ekki inn. Það var ekki fyrr en
1971 að mér var bent á að ég yrði
að passa mig á pillunum. Það var
hins vegar orðið hægara sagt en
gert.
- Afhverju stafaðiþessi vanlíð-
an þín?
- Líklega byrjaði þetta þegar
ég var með Syn og hafði hvorki í
mig né á. En þá fékk ég þó útrás í
tónlistinni. Hérna heima fékk ég
peninga, en það sem skipti
sköpum var að ég var sveltur and-
lega í músikinni. Þeir sem ég spil-
aði með hér voru einfaldlega í of
lágum klassa miðað við það sem
ég hafði vanist í Syn. Flowers var
aldrei klassaband, Trúbrot ekki
heldur, þar að auki voru þau í
Trúbroti á amerísku línunni en ég
í breska bítinu. Þegar ég hlusta á
plöturnar okkar heyri ég nú að ég
hef verið langt fyrir ofan það sem
tíðkaðist þá.
Ég var feiminn þarna í gamla
daga og átti erfitt með að um-
gangast fólk, lítillátur, sem kom
sér illa, því að ég fór allur að
koðna niður hægt og hægt. En
auðvitað var þetta sjálfum mér að
kenna. Ég er alls ekki að kenna
neinum öðrum um. Strákarnir
sem ég spilaði með hafa alltaf
gert sitt, en ég gerði óeðlilegar
kröfur í huganum. Maður á
nefnilega að segja eins og er og
ekki byrgja inni réttláta reiði.
Það borgar sig ekki alltaf að
halda friðinn.
Ég varð líka leiður á að spila
svona mikið á dansleikjum, enda
var það ekki stefnan í upphafi. Ég
vildi halda Trúbroti í standard
með því að æfa meira og spila
sjaldnar en þá fyrir góða borgun.
Við vorum líka að þróa með okk-
ur tónlist sem ekki átti heima á
dansleikjum en vorum dinglandi
einhversstaðar þarna mitt á milli.
Ég held að þetta hefði verið öðru-
vísi ef þetta dópvesen hefði ekki
verið í kringum hljómsveitina.
Það er kannski auðvelt að segja ef
eftirá, en ég varð einangraður
innan hljómsveitarinnar því að
mér hafa alltaf leiðst fíkniefni, ég
varð ekki háður valíum fíknar-
innar vegna.
Mér leið best í Flowers af ís-
lensku hljómsveitunum sem ég
hef spilað með. Félagsandinn var
góður og við höfðum fast aðsetur
að spila í, Silfurtunglið. Áhuginn
hjá okkur öllum var mikill, að
vísu unnum við með spila-
mennskunni þannig að ekki var
nægur tími til æfinga að mér
fannst. Ég gerði mér hins vegar
miklu meiri vonir um Trúbrot.
Dópvesenið
skaðaði Trúbrot
- Lifun er nú nokkuð til að vera
hreykinn af eða hvað?
- Það var nú líka lagt ofurkapp
á þá plötu. Ég var alveg ákveðinn
í að við spiluðum ekkert opinber-
lega meðan við vorum að æfa
fyrir plötuupptökuna og síðan
héldum við hljómleika í kjölfar
plötunnar. Platan var tekin upp á
aðeins 30 klst., nú þykja 100-200
tímar ekkert óhóf við svipaða
upptöku. Hljómleikarnir voru
svo haldnir í Háskólabíói kl. 17
þann 13. mars 1971 og var það í
fyrsta skipti að íslensk rokk-
hljómsveit hélt svo langa hljóm-
leika ein síns liðs. Og til að gera
þetta dálítið glæsilegt fengum við
ljósameistara Þjóðleikhússins og
sjónvarps til að sjá um ljóseff-
ekta. Sama ár var rokkhátíðin í
Saltvík. Enda þótt við skiptum
ágóðanum jafnt sem við fengum
eftir hana var það ég sem stóð
fyrir henni. Núna finnst mér vera
stórrugl að hafa skipt öllu jafnt
peningalega í Frúbroti, því að ég
vann langmest í okkar málum
fyrir utan tónlistina. Til dæmis sá
ég alveg um dreifingu og útgáfu
síðustu plötunnar okkar, Mand-
ala, sem út kom 1972. Ég vildi
sanna að ýmislegt væri fram-
kvæmanlegt.
Þegar hér var komið var það
orðin algjör kvöl fyrir mig að fá
ekki ánægju út úr tónlistinni sem
við vorum að spila. Mér fundust
hæfileikar mínir vera að skerðast.
Ég var orðinn dauðþreyttur á að
spila á dansleikjum og gæti ekki
hugsað mér slíkt enn þann dag í
dag. Ég vildi að við færum að
spila undir fyrir aðra og ná okkur
þannig í kapítal fyrir stúdíói, sem
þótti nú aldeilis fjarlægur
draumur í þá daga, og skaffa okk-
ur þannig stúdíóvinnu. Ég hafði
sannað það með Mandala að við
gætum séð um plötuútgáfu sjálf-
ir. En hinir strákarnir vildu bara
hirða sinn pening þannig að ég
fékk engan stuðning, ég hef lík-
lega ekki verið nógu harður.
Þetta sem sagt rann allt í vaskinn,
liðsmenn Trúbrots fóru hver í
sína áttina og ég fór á algjöran
■■■UaHBaaBBBflHriBUHHHHBaMBnBHBSaaKaHaBBH
*
l
:
^,«£SSa®íE]CGaS»®Œ0E2S6SSRSBSE3H
smaasaBB&i
mam Sjá nœstu síðu winBwaw
1-