Þjóðviljinn - 13.11.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.11.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins Sjálfseignarstofnun? Dr. Alda Möller varpaðiframþeirri hugmynd á Fiskiþingi ígœr. Fjármagn tilfiskiðnaðarrannsókna fæst ekkifrá ríkinu. Sjálfvirkt niðurskurðarkerfi sér tilþess Afiskiþingi í gær varpaði dr. Alda Möller fram þeirri hug- mynd hvort ekki bæri að gera Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins að sjálfseignarstofnun, með aðild fískvinnslu, útgerðar og sjávarútvegsráðuneytisins. Sagði hún að áður fyrr hefðu rannsóknarverkefni mest ráðist af vali starfsmanna stofnunarinn- ar sjálfrar, en nú koma mörg verkefni vegna óska frá fiski- ðnaðinum sjálfum, sem hann greiðir fyrir. Þá er orðin hætta á að útundan verði verkefni tengd þeim aðilum, sem ekki bera sig eftir rannsóknum, en nauðsyn- legt er eigi að síður að sinna. Hún sagði einnig að aukið fé til rannsókna fengist ekki frá ríkinu, það yrði að koma frá iðnaðinum sjálfum, nánast sjálfvirkt niður- skurðarkerfi fjárveitingavaldsins sér til þess. Dr. Alda benti einnig á að aukinni rannsóknaþörf væri ekki hægt að svara nú nema með laus- ráðnu fólki, sem væri slæmt og skapaði vandamál, þar sem sá tími sem fer til þjálfunar þess ný- tist ekki. Þá taldi dr. Alda heppilegra að í stað beinna fjárframlaga frá rík- issjóði, styrkti hann einstök rann- sóknaverkefni sem sérstaklega væri sótt um styrki til. Stakk hún uppá að stofnaður yrði Rann- sóknasjóður fiskiðnaðarins, þar sem umsóknir yrðu afgreiddar til eins árs í senn. í þennan sjóð kænri fé frá ríkissjóði sem og frá iðnaðinum sjálfum. Þetta myndi hinsvegar kalla á breytt rekstrarf- yrirkomulag og væri þá eðlilegast að Rannsóknastofnun fiskiðnað- arins yrði breytt í sjálfseignar- stofnun. - S.dór BSRB Aroöursnefndin tekin til starfa Útbreiðslunefndin sem kosin var á þingi BSRB á dögunum hef- ur hafíð störf. Á fyrsta fundi sín- um kaus hún sérformannn Úlfar Teitsson, og varaformann Jó- hannes Gunnarsson. Á fundinum var ákveðið að endurskoða útgáfumál banda- lagsins, kanna hljóðversmálið og keyra svo af stað í upplýsinga- og áróðursstarfi. -óg Ríkisstarfsmenn 230 stöðugildi skorin niour Launaútgjöld ríkisins lœkkuð um 130 miljónir Anæsta ári er fyrirhugað að lækka launaútgjöld ríkissjóðs um 130 miljónir króna með því að endurráða ekki í störf þeirra sem hætta, draga úr yfírvinnu og ráðningu afleysingafólks. Þetta jafngildir kostnaði við 230 stöðu- gildi á einu ári. Þorsteinn Pálsson tilkynnti þetta m.a. í fjárlagaræðu sinni á alþingi í gær og ekkert kom fram um hvar ætti að fækka fólki. „Nú er unnið að gerð ýtarlegra til- lagna um framkvæmd þessa at- riðis,“ var allt og sumt sem ráðherrann sagði. Þorsteinn áréttaði að hjá rík- inu væru nú um 10 þúsund stöðu- gildi og launakostnaður vegna þeirra næmi 8 miljörðum króna á næsta ári. „Hér er í raun verið að tala um mjög lítinn sparnað mið- að við heildarlaunakostnað ríkis- ins,“ sagði hann. - ÁI T Eining Skref fram á við Bónus hœkkar um 8.4% Samið um lágmarkstryggingu Bónussamningur Verkalýðsfé- lagsins Einingar á Akureyri sem undirritaður var á sunnu- dagskvöldið var samþykktur með miklum meirihluta atkvæða í skriflegri atkvæðagreiðslu meðal fiskverkunarfólks. Samningur- inn felur í sér 8.4% hækkun á bónus, auk hækkunar á bónusg- runni og premíu. Ekki tókst að knýja fram kröfur Einingar um fast álag. „Sú kerfisbreyting sem við stefndum að og fólkið vill ná fram varð ekki að veruleika í þetta sinn. Þessi samningur gengur úr gildi 31. mars á næsta ári og þá verður að breyta þessu kerfi og gera það manneskjulegra. En þetta teljum við vera skref fram á við,“ sagði Jón Helgason formað- ur Einingar í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. Samningurinn felur í sér að kjör fiskverkunarfólks innbyrðis jafnast nokkuð auk almennra hækkana. Bónusgrunnur var hækkaður upp í 97.67 kr. Samið var um lágmarkstryggingu, eða gólf, sem gerir ráð fyrir að enginn fái minna en 17.5% af bónus- grunni í sinn hlut hverju sinni. Það þýðir um 17 kr. hækkun og nær hún til um 11 % fiskverkunar- fólks á þessu svæði að sögn Þóru Hjaltadóttur forseta ASN. Bónus verður áfram reiknaður eftir marknýtingu, en nú verður með- altal borðanna reiknað út frá helmingi í stað þriðjungs áður og mun meðaltalið lækka við það. „Munurinn á hæsta og lægsta manni í bónus fer úr 140% í 122.5%,“ sagði Þóra Hjaltadóttir í gær. - gg Jóhann Kr. Sigurðsson Jón Páll Halldórsson Björgvin Jónsson Kristján Ragnarsson Metafli Allt á hausnum Útgerðin á hausnum. Fiskvinnslan á hausnum. Ríkissjóður á hausnum. Metfiskaflií góðœri til lands og sjávar Upplýst hefur verið að árið 1985 verði metár hvað sjávar- afla snertir. Aldrei fyrr í íslands- sögunni hefur annar eins sjávar- afli borist á land. Veðurfar þetta sama ár er með þeim hætti að annað eins góðæri hefur ekki komið, hvorki til lands né sjávar í áratugi. Á sama tíma og þetta allt liggur fyrir upplýsa Samtök fisk- vinnslunnar á ársfundi á dögun- um að allt sé á hausnum hjá þeim. Fiskvinnslan sé rekin með botn- lausu tapi. Útgerðarmenn fund- uðu um síðustu helgi og þótt út- koman hjá þeim sé skárri en oft- ast áður er útgerðin samt rekin með tapi. Og í gær skýrði Ijár- málaráðherra frá botnlausum niðurskurði í ríkisfjármálunum vegna þess að ríkissjóður er á hausnum. Hvað er að gerast? Hvað þarf að koma til svo allt sé ekki á hausnum? Með þessar spurningar fór Þjóðviljinn á fund fjögurra sérfróðra manna úr út- gerð og fiskvinnslu á Fiskiþingi. Þeir sem beðnir voru að svara eru þeir Jóhann Kr. Sigurðsson frá Neskaupstað, Kristján Ragn- arsson formaður LÍÚ, Björgvin Jónsson forstjóri Meitilsins í Þor- lákshöfn og Jón Páll Halldórsson forstjóri Norðurtanga h.f. á ísa- firði. Allir viðurkenndu þeir að hér væri eitthvað meira en lítið að. Þeir bentu einnig á að þótt talað væri um metaflaár, mættu menn ekki gleyma því hve stór hlutur loðnunnar væri í þessum afla og að hún væri ekki jafn verðmæt og þorskurinn. Eigi að síður væri þorskafli viðunandi og loðnuafli aldrei meiri. Jóhann Kr. benti á að árið 1985 væru vextir og olíukostnaður hjá Sfldarvinnslunni í Neskaupstað 40% af kostnaði. Með fimm skip á veiðum keypti Sfldarvinnslan olíu fyrir 600 þúsund krónur á dag. Okur á álagningu varahluta væri gegndarlaust. „Það er gó- ðæri, það aflast mikið, sem segir okkur að einhverjir aðrir en út- gerð og fiskvinnsla eyða of miklu, þá aðila verður að finna,“ sagði Jóhann. Hann benti einnig á doll- aralánin, sem allt eru að drepa, og einnig nefndi hann til fólks- eklu í fiskiðnaði sem væri stórt vandamál fyrir fiskvinnsluna. Kristján Ragnarsson sagðist óánægður með framsetningu þess að nú er metaflaár, vegna sam- setningar aflans, taka verði tillit til aflaverðmætis. „Aftur á móti tel ég að svona mikill afli og svona gott árferði ætti að skapa viðunandi starfsskilyrði ef rétt væri að öllu staðið," sagði Krist- ján. Hann sagði það ljóst vera að íslendingar beri sig svo vel á öllum öðrum sviðum, að það taki of mikið til sín. Það væri alveg ljóst að þessi ágæti afli dygði ekki til að halda fyrirtækinu ísland h.f. gangandi. Fólkið í landinu kaupir þann gjaldeyri sem við leggjum fram á allt öðru verði en við leg- gjum hann fram á þegar búið er að leggja á hann toll, söluskatt, vörugjald og hvað þetta nú allt heitir,“ sagði Kristján. „Hér virðist allt stillt inná eyðslu. Þessu má líkja við nokk- uð stórt heimili þar sem fyrirvinn- an væri ein og inni frá morgni til kvölds fyrir ákveðna upphæð en allir aðrir á heimilinu væru útum hvippinn og hvappinn og eyddu eins og þeir gætu,“ sagði Björgvin Jónsson. Hann sagði ennfremur að þjóðina vantaði heiðarlega stjórnmálamenn hvar í flokki sem þeir standa sem segðu henni sannleikann um það hvar hún stendur, en það er mjög tæpt. „Stjórnmálamenn segja fólkinu ósatt um ástandið af misskildum ótta við kjósendur," sagði Björ- gvin. Hann benti einnig á millilið- ina og spurði hvort þörf væri á verslunarplássi í Reykjavík sem nemur 4 fermetrum á íbúa: Jón Páll Halldórsson benti á að afkoma útgerðar og fiskvinnslu væri miðað við aflatoppa. Það væri ekki aflatoppur nú, nema í tonnum talið vegna loðnunnar, ekki hvað verðmæti snertir. Samt sagði hann þetta gott ár, en hann sagðist ekki geta sagt til um hvað þyrfti að koma til, svo allt væri ekki á hausnum hjá okkur. Taldi þó milliliði allt of fyrirferðar- mikla í þjóðfélaginu. Hann sagð- ist vilja taka fram varðandi fisk- vinnsluna atriði sem menn gerðu sér ekki grein fyrir, en væri að verða að hryllingi í vinnslunni, en það er hringormahreinsunin. Hún væri orðin dýrasti pósturinn í vinnslunni. Hrikalegt og vax- andi vandamál. . _ S.dór Mlðvlkudagur 13. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.