Þjóðviljinn - 28.11.1985, Qupperneq 1
LANDIÐ
MANNLIF
HEIMURINN
Stálvík
Ekki til fyrir launum
Skipasmíðastöðin Stálvíkígreiðsluerfiðleikum. Helmingur
starfsmanna ekkifengið útborgað. Reiknað með úrlausn í
dag. Jón Friðriksson stjórnarform.: Raðsmíðaskipið gleypir
nœr allt rekstrarfé. Stjórnvöld ábyrgfyrir stöðunni
Um helmingur starfsmanna
Skipasmíðastöðvarinnar
Stálvíkur í Garðabær hefur ekki
enn fengið greidd laun sín sem
borga átti út sl. föstudag, en Stál-
vík á við nokkra fjárhagserfið-
leika að etja ekki síst vegna mikils
fjármagnskostnaðar af því rað-
smíðaskipi sem búið er að vera í
stöðinni í nær þrjú ár og hleður á
sig kostnaði.
„Þetta er vissulega erfið staða
en menn eru að reyna að leysa
þetta. Þessir erfiðleikar stafa að
mestu leyti af þessu raðsmíða-
skipi sem við erum búnir að vera
með í um þrjú ár en í því liggja
80-90 miljónir. Ríkissjóður hefur
lánað 80% af þeirri fjárhæð en
við þurfum að kosta það sem
uppá vantar og þetta gleypir nán-
ast allt rekstrarfé stöðvarinnar,"
sagði Jón Friðrik.sson stjórnar-
formaður Stálvíkur í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins áttu þeir Guðjón Jónsson for-
maður Félags járniðnaðarmanna
og Jón Sveinsson forstjóri Stál-
víkur viðræður við Albert Guð-
mundsson iðnaðarráðherra í gær
vegna greiðsluerfiðleika Stálvík-
ur og er vonast til að bankayfir-
völd greiði úr stöðu fyrirtækisins í
dag eða á morgun.
„Það kaupir enginn skip sem
hefur ekki kvóta en það þarf
meira til. Verðið á þeim er orðið
svo hátt vegna fjármagns-
kostnaðar öll þessi ár að vilyrði
um 65% lán frá Fiskveiðasjóði
hrökkva skammt. Ég veit ekki
hverjir eiga að ráða við þetta
dæmi,“ sagði Jón Friðriksson
stjórnarformaður Stálvfkur.
-lg-
Fjölkvœni
Fírugir
öldungar
Peking — í héraðinu Xinjiang í
norðvesturhluta Kína er uþb.
helmingur íbúanna múhameðs-
trúar en hjá þeim trúflokki tíðk-
ast fjölkvæni, þótt í mismiklum
mæli sé. í kínversku dagblaði er
nýlega frá því greint að 102ja ára
gamall bóndi i héraðinu hafi gifst
hvorki meira né minna en 38 kon-
um um ævina.
Auk þess að hýsa marga mús-
lima eru í Xinjiang samankomnir
flestir öldungar landsins. Þar
hafa 865 manns ná hundrað ára
aldri. Og ntargir karlanna eru
upp á kvenhöndina því auk þess
sem að ofan er greint frá eru í
héraðinu 33 öldungar sem gifst
hafa 2-15 konum hver um dag-
ana.
—ÞH/reuter
Bœkur
Djass í hálfa öld
Jón Múli skrifar yfirlitsverk um djasstónlist.
Iðnskólaútgáfan og FIH gefa út
Jón Múli Árnason: Bókin er fyrir næstum því alla sem til eru nema þá sem ekki eru með á nótunum. Ljósm. Sig.
Þetta er ekki fagleg músikbók
heldur nokkurn veginn það
sem ég þykist hafa haft uppúr því
að heyra, sjá og hlusta í hálfa öld,
sagði Jón Múli Árnason höfundur
bókarinnar Djass sem Félag ís-
lenskra hljómlistarmanna og
Iðnskólaútgáfan gefa út í samein-
ingu.
I fyrstu var ætlunin að gera
stutta handbók til hagræðis fyrir
nemendur Tónlistarskóla FÍH en
það kom í ljós að efnið var viða-
meira en svo og varð úr að Jón
Múli Árnason tókst á hendur að
semja yfirlitsverk um djassmúsík
í hálfa öld. í bókinni er miðað við
djass á plötum frá 1917-1967.
Bókin er byggð upp eins og
kennslu- eða útvarpsþættir enda
mikið af efni bókarinnar verið
flutt í djassþáttum útvarpsins,
þar sem vísað er beint í tónlistina.
Bókin er að öðru þræði plötuskrá
með nöfnunt og númerum á út-
gáfuplötum, gömlum og nýjum,
og hægur vandi að nálgast þá tón-
list.
Aðspurður sagði Jón Múli það
ekkert einkennilegt að Iðnskól-
aútgáfan gæfi bókina út, fyrstu
djassistarnir í New Orleans, kre-
ólarnir hefðu margir hverjir verið
iðnlærðir menn og Halldór Lax-
ness hefði sagt í Brekkukotsannál
að öll tónlistarmenning ef ekki öll
menning væri frá iðnaðar-
mönnum komin.
Bólcin Djass lýkur á þætti sem
heitir Hér heima en gæti alveg
eins heitið íslandssagan 1874-
1974 að sögn Jóns Múla og sagð-
ist hann telja sig hafa sannað þar
að án lúðrasveita væri lítið um
tónlistarmenningu og í næstu bók
ætlaði hann að sanna að án karl-
akóra væri engin tónlistarmenn-
ing á íslandi
Hafskipsmálið
Skellurinn verður mjög harður
Matthías Bjarnason viðskiptaráðherra: Útvegsbankinn mun tapa
miklufé íHafskipsmálinu, en hve miklu veit enginn ennþá. Stuttí
úrslit málsins. Vantrúá Islenska skipafélaginu
Ólafsvík
Aukið atvinnuleysi
Atvinnuleysisdagar í Olafsvík
eru orðnir 2000 talsins það
sem af er þessu ári, en allt síðast
liðið ár voru þeir um 800. Fjöldi
manna hefur verið á atvinnuleys-
isskrá í Ólafsvík nú í haust, en að
sögn Bárðar Jenssonar formanns
verkalýðsfélagsins Jökuls er nú
full atvinna á staðnum.
Hraðfrystihús Ólafsvíkur hóf
vinnslu á ný í síðustu viku eftir að
vinnsla hafði legið niðri í nokkrar
vikur vegna hráefnisskorts. „Það
má segja að það sé full atvinna
hér núna og við vonum að svo
verði fram að jólum. En þessi
aukning atvinnuleysisdaga er í-
skyggileg“ sagði Bárður í gær.
Bátar á Ólafsvík eru nú flestir á
snurvoð. Aflabrögð voru frekar
léleg fram eftir hausti, en eru nú
að glæðast. “88
Mér er það ljóst að Útvegs-
bankinn mun fá skell og tapa
miklu fé í Hafskipsmálinu, en það
liggur ekki enn Ijóst fyrir hve stór
sá skellur verður, sagði Matthías
Bjarnason viðskiptaráðherra í
samtali við Þjóðviljann í gær. I
fyrrakvöld boðaði Matthías
stjórn Seðlabanka íslands og
stjórn Útvegsbankans á sinn fund
um þetta mál og þar fékk ráð-
herra upplýsingar um stöðu
mála, sem þó er enn óljóst, eins og
hann orðaði það.
Matthías sagði það sína skoðun
að Útvegsbankinn hefi færst of
mikið í fang í viðskiptunum við
Hafskip miðað við eigin fjárstöðu
bankans þá. Hitt væri annað mál
að það væri lögmál í viðskiptum
að taka áhættu, en hún gæti
gengið of langt.
Þeir aðilar sem Þjóðviljinn hef-
ur rætt við og best þekkja til mála
hjá Hafskip/ísl. skipafélagið,
hafa ekki trú á að þessum aðilum
takist að standa af sér storminn.
Það sé aðeins tímaspursmál hve-
nær dregur til uppgjörs í þessu
máli. -S.dór.
Glansmynd hafnað í Kvosinni
í Þjóðviljanum í dag er flett
ofan af þeirri glansmynd sem aðr-
ir fjölmiðlar hafa dregið upp af
nýrri deiliskipulagstillögu fyrir
Kvosina, miðborg Reykjavíkur.
Tekið er dæmi af aðeins einu húsi
af þeim hálfa þriðja tug sem á að
rífa samkvæmt tillögunni og sýnt
framá hversu ótvírætt varðveislu-
gildi þess er.
Sjá bls 7-9