Þjóðviljinn - 10.12.1985, Side 9

Þjóðviljinn - 10.12.1985, Side 9
BÆKUR Dáiítil ferðasaga Sveins og Baltasar Dálítil ferðasaga heitir bók um Gabriellu, litla stelpu sem fer með foreldrum sínum í skemmti- ferðalag til Portúgal. Ferðasögu hennar skrifar Sveinn Einarsson, og Baltasar teiknar myndir af því sem fyrir þau ber. Almenna bókafélagið gefur út. „Foreldrar Gabriellu hegða sér eins og fullorðnir eru vanir að gera í slíkum ferðum,“ segir í frétt frá forlaginu „en Gabriella er ekki alltaf sátt við það, henni finnst sumt af því ekki neitt vitur- legt. Og svo gerast auðvitað ýmis ævintýri í ferðalaginu. Bókin er auðvitað skemmtilegust fyrir jafnaldra Gabriellu litlu, en for- eldrar gætu einnig haft af henni gagn og gaman.“ v. BKl.W l’H KIM VION öBlómln á þakinu i\(.iBKM> SR,I K|).\R|K tl'l 1K Brian og Ingibjörg Amma flytur Blómin á þakinu heitir ný bók um Gunnjónu ömmu að flytja úr sveitinni í bæinn. Ingibjörg Sig- urðardóttir skrifaði og Brian Pilkington teiknar myndir. Amma átti heima í torfbæ uppí sveit, með blóm á þakinu, en dettur í hug að flytja barasta í bæinn, pantar vörubíl, setur á hann hafurtask sitt og heldur af stað, með allt nema dýrin. „Ég sýndi henni borgina" segir sögu- maður „og hjálpaði henni eins og ég gat en samt saknaði húndýr- anna sinna. „Af hverju ferðu ekki bara og sækir þau?“ spurði ég. „Þú getur haft þau í barnaher- berginu." Það fannst Gunnjónu frábær hugmynd.“ Brian Pilkington: amma á fartinni Flautan og vindurinn Unglingabók eftir Steinunni Flautan og vindurinn heitir unglingasaga eftir Steinunni Jó- hannesdóttur leikara og leik- skáld, nýkomin út hjá Náms- gagnastofnun, eitt þeirra verka sem hlaut fyrr á árinu viðurkenn- ingu í samkeppni um bækur á léttu lesmáli. Það er óveður einn daginn, og einhvern veginn teppist Asta heima hjá Hlyni, - þau eru skólafélagar en hafa eiginlega ekki talað mikið saman áður. Um kynni þeirra fjallar Flautan og vindurinn, og um sitthvað fleira. Myndir við bókartexta hefur Val- garður Gunnarsson gert. Stelnunn Jóhannesdóttir: ný ung- lingabók. Það var skrœpa Það var skræpa heitir ný barnabók eftir Andrés Indriða- son, ein þeirra bóka sem Náms- gagnastofnun veitti viðurkenn- ingu í samkeppni um lesefni á Iéttu máli fyrr á árinu. Brian Pilk- ington teiknar myndir í bókina. Krakkar í nýju hverfi hafa of- anaf fyrir sér með ýmsum hætti: svo finna þau dúfu, -skræpu-, og hefjast þá miklar framkvæmdir við dúfnakofa og annað stapp kringum skræpuna. Bókin er sett skýru letri og stuttum línum. Bara stœlar! Einn vinsælasti höfundur barna- og unglingabóka á landinu Andrés Indriðason ætlar ekki að bregðast sínu fólki þetta haustið. Nú kemur eftir hann bókin Bara stælar! og er gefin út af Máli og menningu. í bókinni er sagt frá Jóni Agn- ari Péturssyni, fjórtán ára eyja- peyja sem flytur til Reykjavíkur á miðjum vetri og sest í nýjan skóla, „fullur af gleði og eftir- væntingu" segir í forlagsfrétt „en kannski einu númeri of lítill mið- að við aldur og himnastigana í bekknum hans. Hann þarf að sýna þeim að hann sé karl í krap- inu og engin veimiltíta, en eink- um þarf hann þó að reyna að ganga í augun á skrautblóntinu í bekknum með taglið í hárinu, sem virðist reyndar alls ekki frá- bitin því að kynnast honum. Jón Agnar þarf að gangast undir ýmis karlmennskupróf og fjöldi kát- legra og grátlegra atvika sprettur af þeim raunum“. Andrés Indrlðason Ekki kjafta Hvernig er að vera hrifin af þeim sem vill mann ekki, er spurt í forlagskynningu unglingabókar eftir nýjan íslenskan höfund, Helgu Agústsdóttur. „Hvað gerist í skólanum, frí- tímum og forboðnum partíum? Af hverju hafa flestir eitthvað að fela, eitthvað sem ekki má kjafta frá?“ í bókinni fjallar Helga um reykvíska unglinga nútímans og fylgir þeim eftir „í sorgum og gleði þegar átökin við lífið eru að hefjast". Iðunn gefur út. KNUT 0DEGÁRD Arnungar Ari er af ætt Arnunga, og á heima í Noregi á sögutíma ís- lendingasagna. Hann hefur feng- ið nisti í arf eftir föður sinn sem myrtur var af Eiríki konungi blóðexi og hinni fjölkunnugu Gunnhildi drottningu ... Knut Ödegaard forstjóri Nor- ræna hússins skrifar um ungling á víkingatímum ntilli heiðni og kristni; hafa bækur hans um Arn- unga notið hylli norskra unglinga og sú fyrsta þeirra nú komin á íslensku í þýðingu Heimis Páls- sonar. Örn og Órlygur er útgef- andi. Kaspían Kaspían konungsson heitir barna- og unglingabók eftir Carl Lewis, og er nú komin út hjá Al- menna bókafélaginu. Bókin gerist í ævintýralandinu Narníu og segir frá fjórum Lund- únabörnum sem þangað eru kölluð til að koma málunum í lag, - þarna ríkir borgarastyrjöld sem þau reyna að stýra á besta veg með hjálp ljónsins Aslans. Lewis er prófessor í Cambri- dge, og hefur bókum hans verið líkt við verk H.C. Andersens, að því er segir í frétt frá útgáfunni. Eftir hann kom út í fyrra Ljónið, nornin og skápurinn. Þýðandi er Kristín R. Thorlacius. Fhtmbards setrið 3 Sumar á Flambards Þriðja bókin um fólkið frá Flambardssetrinu heitir Sumar á Flambards. Höfundurinn er K.M. Peyton, og er þetta níunda saga höfundar á íslensku. „Þegar sagan hefst er heimsstyrjöldin fyrri í al- gleymingi, og Kristína, söguhetj- an, hefur orðið fyrir þungu áfalli. Vilhjálmur Russel hefur verið skotinn niður í flugvél sinni yfir Frakklandi. í vandræðum sínum snýr hún heint á Flambardssetr- ið... og afræður að verða sjálf bóndi", segiríbókarkynningu frá útgefandanum, Máli og menn- ingu. Þýðandi er Silja Aðal- steinsdóttir. Leynisveitin Leynisveitin og bragðarefur- inn brellni og Lcynisveitin og bóf- arnir á Blístursey eru tvær bækur í nýjum bókaflokki sem Forlagið hefur hafið útgáfu á. Leysið gát- una sjálf er nafn bókaflokksins en höfundur hans er breski rithöf- undurinn Martin Waddell. Leyniveitina mynda fjórir ung- lingar, Kalli, Smári, Anna og Bogi, og leggur þessi sveit ýmsar gátur fyrir lesandann. Takist honum ekki að ráða úr vísbend- ingunum fær hann rjómabúðing í andlitið. í lokin eru stigin gerð upp og þá kemst lesandinn að því hvort hann er jafnoki Derricks, hálfgerð sveitalögga eða algjör byrjandi í faginu. Bækurnar eru hvor um sig 96 bls., prentaðar í Odda. Á gallabuxum Rúdólf frá Amsterdam er 14 ára, - og hefur verið sendur með tímavél frá 20. öldinni til hinnar 13., tíma krossferða og ævintýra allskyns. Hann gerist foringi barnanna sem lögðu upp í her- ferð til Jerúsalem ... Krossferð á galtabuxum heitir bókin um Rúdólf og er eftir Theu Beckman, og hlaut árið 1976 hol- lensk verðlaun sem besta ung- lingabók þess árs. Margrét Jóns- dóttir þýddi, Iðunn gefitr út. ........ ... . ... . i'm ,, Þrlðjudagur 10. desember 1985 ÞJÓÐVILJftlN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.