Þjóðviljinn - 10.12.1985, Qupperneq 15
FISKIMÁL
Smábátaútveguriim og
valdsmaðurinn úr Homafirði
Samkvæmt reglugerð um
framkvæmd fískveiða sem sjáv-
arútvegsráðherra ber ábyrgð á,
þá eru allar fískveiðar smábáta
fyrir neðan 10 lestir lamaðar frá
15. nóv. til áramóta. Um síð-
astliðna helgi gerðist sá atburður
að Skarphéðinn Árnason trillu-
bátasjómaður á Akranesi var tek-
inn af varðskipi þar sem hann var
að draga nokkur ýsunet sem hann
átti liggjandi í sjó nokkurn spöl út
af skipaskaga. Þetta er á sinn hátt
sérstakur atburður sem nauðsyn-
legt er að festist í komandi ís-
landssögu ekki síður en þegar
það, í genginni sögu á tímum
dönsku einokunarverslunarinn-
ar, að Hólmfastur fátækur sjó-
maður af Ströndum var dæmdur
til hýðingar fyrir að selja nokkra
fiska á röngum stað. En hýðingar
eru aflagðar á íslandi nú og þess
vegna sleppur Skarphéðinn við
þá refsingu. En Morgunblaðið
sem í komandi framtíð getur orð-
ið heimild sagnaritara þegar þeir
skrá söguna, segir að Skarphéð-
inn hafi verið dæmdur í 85.000
kr. sekt fyrir brot sitt og skiptist
það þannig, bein sekt 62.000 kr.
og upptækur afíi 23.000 kr..
Trillusjómaður
dæmdur en
ráðherra ekki
Þetta mun vera í fyrsta skipti
síðan við íslendingar eignuðumst
varðskip, að slíku skipi er beitt til
töku á trillubáti. Allt fram til
þessa hafa afskipti varðskipa af
trillum á sjó verið að aðstoða þær
í vondum veðrum. Hér er því um
kaflaskipti að ræða í sögu okkar
landhelgisgæslu.
í umræðum á Alþingi kom það
fram hjá samflokksmanni sjávar-
útvegsráðherra, Ólafi Þórðarsyni
þingmanni vestfirðinga, að hann
efaðist um réttmæti þessarar
JÓHANN
J. E. KÚLD
stjórnunar að hún stæðist
gagnvart ákvæðum í stjórnarskrá
landsins. Talaði þingmaðurinn
um að réttast væri að láta Hæsta-
rétt skera úr því máli.
Ég styð þessa tillögu þing-
mannsins og vonast til að hann
fylgi henni eftir.
En það er fleira í stjórnunar-
ferli Halldórs Ásgrímssonar sjáv-
arútvegsráðherra sem rannsaka
þarf og fá úrskurð Hæstaréttar
um. Vil ég þar til nefna álitsgerð
Sigurðar Líndals lagaprófessors
við Háskóla íslands, þar sem
hann færir að því rök að reglu-
gerð þessa ráðherra um fyrir-
komulag mats og eftirlits standist
engan veginn í veigamiklum at-
riðum gagnvart lögunum um rík-
ismat sjávarafurða sem reglu-
gerðin á að túlka. Alþingi hefur
legið á þessu máli eins og það
væri ekki til í stað þess að leita
úrskurðar æðsta dómstóls lands-
ins, Hæstaréttar, á lagalegu gildi
reglugerðarinnar. Það færi vel á
því að mál það sem vestfjarða-
þingmaðurinn nefndi ásamt því
máli sem ég hef tilgreint hér væru
lögð undir úrskurð Hæstaréttar.
Eða þorir Alþingi ekki að láta
Hæstarétt dæma um lagagildi
nefndra reglugerða.
Það hlýtur að vera áhyggjuefni
Alþingiskjósenda að á Alþingi
séu margir þingmenn sem ekki
skilja þann sannleika að sjósókn
smábáta lýtur allt öðrum lögmál-
um heldur en sjósókn stærri
skipa. Hinir svonefndur smábát-
ar verða oft vegna smæðar sinnar
að liggja bundnir í höfn þegar
stærri bátar geta athafnað sig við
veiðar á miðum. Það er því
lífsnauðsyn fyrir smábátaútgerð-
ina að hafa fríar hendur um sjó-
sókn þegar gæftir eru. Það er
hrein glópska þeirra sem stjórna
fiskveiðum þegar þeir setja
smábátum samskonar reglur um
sjósókn og haffærum skipum.
Slíkt er dauðadómur yfir þeirri
útgerð. Alþingismenn sem hafa
svo lítið inngrip í sjósóknarsögu
okkar íslendinga að þeir skilja
þetta ekki, þeir ættu að fá sér
aðra atvinnu.
Ofstjornun
smábátaveiða er
aukin slysahætta
Það er ekki nokkur vafi á því að
ef ráðherra kemst upp með það
að tilkalla ákveðin tímabil þegar
smábátar mega róa og svo önnur
Halldór sjávarútvegsráðherra. Er ofstjórn hans aðfinnsluefni fyrir forsvars-
menn slysavarna?
tímabil sem þeir skulu vera í
landi, allt án nokkurs tillits sjó-
veðurs og þá er verið að bjóða
hættunni heim. Freista manna
sem þurfa að bjarga sér til að
sækja á mið í tvísýnu veðri sem
þeir mundu ekki gera ef þeir réðu
sókninni sjálfir. Slysavarnarfélag
íslands hefur unnið hér á landi
gifturíkt starf síðan það var stofn-
að fyrir framgöngu Þorsteins
skipstjóra í Þórshamri, Jóns
Bergsveinssonar og fleiri góðra
manna sem skildu nauðsyn þar til
að fækka slysum.
í dag er það meðal annars bar-
átta gegn aukinni slysahættu þeg-
ar þess er krafist að ofstjórn sjáv-
arútvegsráðuneytisins verði létt
af sjósókn íslenskra smábáta. Ég
vona að hinir ötulu forsvarsmenn
Slysavarnarfélagsins hafi afskipti
af þessu máli.
28.11 1985
Jóhann J.E. Kúld
i hefðu átt að hækka
i síðustu mánaðamót
en við frestum því
framyfiráramót.
Grípið tækifærið.
Við höfum ákveðið
að hafa