Þjóðviljinn - 22.04.1986, Side 3
IÞROTTIR
mpappif
mmmx
10 SÍÐA - ÞJÓÐVÍLJINN
EM/Körfubolti
Pálmar skaut Islandi
uppí B-keppnina!
Náði boltanum 4 sekúndum fyrir leikslok og skoraði sigurkörfuna gegn hinu
sterka liði Norðmanna. Island vann C-riðilinn og leikur í B-keppninni í Belgíu
Valur Ingimundarson, I hópi
þeirra stigahæstu
Lokastaðan
.....4 3 1 300-296 7
.....4 3 1 353-313 7
.....4 2 2 313-304 6
.....4 2 2 322-288 6
.....4 0 4 282-369 4
Stigahæstir:
Haakon Austerfjörd, N...........111
Pálmar Sigurðsson, (s............94
Ralton Way. S.....................86
Karl Butler, ÍR..................71
Valur Ingimundarson, Is...........70
Flest fráköst:
Haakon Austerfjörd, N............45
Joao Seioa, P.....................39
Ralton Way, S.....................36
Símon Ólafsson, Is................34
Georg Posti, N...................31
Flestar 3ja stiga körfur:
PálmarSigurðsson, Is..............15
EugenioSilva, P....................9
TomOSullivan, ír...................8
Valur Ingimundarson, Is............6
Vítahittni (10 skot eða fleirl):
Graeme Hill, S.......22/22 100,0%
T.OSullivan.lr.......14/13 92,9%
Valurlngim., fs......18/16 88,9%
H.Austerfjörd, N.....17/15 88,2%
RaltonWay.S........24 720 83,3%
Island...
Noregur..
Skotland.
Portúgal.
(rland...
Frá Jóni H.Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Sigurður Sveinsson og Pólverj-
inn Jerzy Klempel háðu mikið
markaeinvígi þegar Göppingen
og Lemgo mættust í Bundeslig-
unni í handknattleik um helgina.
Klempel náði að vinna þann slag,
skoraði 11 mörk en Siggi 10 en
Lemgo stóð uppi sem öruggur sig-
urvegari i þýðingarmiklum fall-
baráttuleik, 25-18, eftir að Göpp-
ingen hafði leitt 11-10 í hléi. Sig-
urður lék stórvel og er greinilega
búinn að ná sér af meiðslunum
Wanne-Eickel, lið Bjarna Guð-
mundssonar, vann Lichtenrade
24-15 á útivelli.
Staðan í Bundesligunni:
Essen.................19 387-314 31
Grosswallstadt........18 420-354 30
Schwabing.............18 435-389 29
Gummersbach...........20 436-387 28
Kiel..................18 403-375 21
Dusseldorf............17 349-316 20
Dortmund..............18 343-324 20
Handewitt.............19 410-436 15
Gunzburg..............19 370-400 13
Göppingen.............19 437-483 13
Dankersen.............19 387-436 12
Hofweier..............18 374-418 11
Lemgo...............19 355-394 11
Reinedorfe Berlin... 19 367-451 6
Tvö neðstu lið falla, það þriðja
leikur aukaleiki um sæti í
deildinni. Hameln, lið Kristjáns
Arasonar, á möguleika á að leika
um það.
Grosswallstadt komst í úrslit
Evrópukeppni meistaraliða um
helgina með því að sigra FC Min-
eur Baira Mare frá Rúmeníu 25-
16. Frækilegur sigur því Rúmen-
arnir unnu fyrri leikinn með 6
marka mun.
Vestur-Pýskaland y
„Engan frakka á Asgeir!“
Afdrifarík mistök Csernais og hann missti starfið fyrir vikið!
Ásgeir og Atli skoruðu og léku báðir mjög vel
Þvílíkar lokamínútur. Torfl
fær vítaskot þegar 23 sekúndur
eru til lciksloka og skorar úr báð-
um, staðan þá jöfn, 72-72. Norð-
menn byrja með boltann, en
Pálmar nær honum þegar 4 sek-
úndur eru eftir, skorar með lang-
skoti á síðustu sekúndunni og
tryggir íslandi sigur 75-72. Glæsi-
legur árangur og Island komið í
B-keppni í fyrsta sinn í sögu körf-
uboltans.
Leikurinn var jafn framan af.
Norðmenn komust þó í 8-14, en
.ísland skoraði 12 næstu stig.
Norðmenn náðu þó forystunni
aftur og leiddu í hálfleik 33-36.
Vörn íslenska liðsins var góð í
fyrri hálfleik. Vel tókst að halda
besta manni Norðmanna,
Austerfjord, í skefjum. Þá losn-
aði um aðra í liðinu, en íslending-
ar máttu vel við una með vörnina
í hálfleik. Sama var ekki að segja
um sóknarleikinn. Hittni var afar
slök. Þó gekk vel að opna norsku
vörnina, en þegar komið var í
skot gekk ekkert. Líklega má
kenna um taugaspennu, en það
var sorglegt að sjá hve mörg góð
færi voru misnotuð.
Norðmenn hófu síðari hálf-
leikinn af miklum krafti og náðu
14 stiga forýstu, 41-55. Þá skoraði
Valur 2 þriggja stiga körfur í röð
og lagaði stöðuna aðeins, en þó
héldu Norðmenn góðu forskoti.
Þegar rúmar 6 mínútur voru til
leiksloka var staðan 60-67, Norð-
mönnum í hag. Þá skoraði ísland
9 stig í röð og komst yfir, 69-67.
Norðmenn jöfnuðu þegar 2 mín-
útur voru eftir. Pálmar fékk 2 vít-
askot þegar 1 mínúta og 20 sek-
úndur voru til leiksloka. Hann
hitti aðeins úr öðru. Bryn skoraði
svo fyrir Norðmenn og fékk vít-
askot að auki og kom Noregi yfir,
70-72, þegar tæp mínúta var eftir.
íslendingar misstu boltann. Torfi
náði frákasti þegar 23 sekúndur
voru eftir og Norðmenn brutu á
honum. Hann fékk víti og
skoraði úr báðum og jafnaði 72-
72. Norðmenn hófu sókn en
Pálmar náði boltanum þegar 4
sekúndur voru eftir og skoraði
glæsilega eins og áður sagði. ís-
lenskur sigur í höfn og ísland
komið í B-riðil í fyrsta sinn í sög-
unni. Hreint ótrúlegur árangur
og betra en menn höfðu þorað að
vona.
íslenska liðið byrjaði síðari
hálfleikinn illa. Minnti þar helst á
leikinn gegn Portúgölum. Hittni
var í lágmarki og ekkert gekk
upp. Liðið skoraði aðeins 4 stig
fyrstu fimm mínútur hálfleiksins
á meðan Norðmenn skoruðu 13.
Strákunum gekk þó betur er líða
tók á síðari hálfleikinn. Vörnin
small saman og hittnin var mun
betri. Munaði þar mest um góðan
leik hjá Val, Pálmari og Birgi.
Baráttan var mikil hjá liðinu og
stuðningur áhorfenda á lokamín-
útunum vóg þungt.
Valur, Pálmar, Guðni og Birg-
ir voru mjög góðir í sókninni,
hittu vel og tóku mörg fráköst.
Torfi og Símon voru aðalmenn-
irnir í vörninni og stóðu sig báðir
mjög vel.
í norska liðinu bar mest á þeim
Austerfjord og Beck sem munu
ekki vera hreinræktaðir Norð-
menn. Aðrir stóðu sig einnig vel
þó ekki hafi þeim tekist að finna
svar við sterkum leik íslendinga.
Þeir áttu erfitt með að komast í
gegnum vörn íslendinga og
skoruðu flest sín stig með lang-
skotum.
Stig Islands: Valur Ingimundar-
son 25, Pálmar Sigurðsson 24, Birgir
Mikaelsson 9, Guðni Guðnason 7,
Símon Ólafsson 4, Torfi Magnússon
2, Þorvaldur Geirsson 2 og Matthías
Matthíasson 2.
Stig Noregs: Austerfjord 16, Beck
15, Grönli 13, Bryn 9, Posti 6, Frey 6,
Skorpen 5 og Nettli 2.
Það verður að segjast eins og er
að þessi sigur íslands kemur á
óvart. Eftir slakán leik gegn írum
og tap gegn Portúgal var ekki bú-
ist við miklu gegn Norðmönnum,
sem voru álitnir með langbesta
liðið. Annað kom þó á daginn.
Við óskum landsliðinu til ham-
ingju með þennan frábæra árang-
ur sem er fyrst og fremst upp-
skera margra mánaða vinnu og
fórnfúss starfs landsliðsins og að-
standenda þess. Svo er bara að
bíða og sjá hvernig gengur í Belg-
íu í næsta mánuði. -Logi
íslenska landsliðið I körfuknattleik — sigurvegari I C-riðlinum og leikur í B-keppninni I næsta mánuði. Mynd: E.ÓI.
EM/Körfubolti
„Þessi stund mun
aldrei gleymast“
Torfi Magnússon, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins:
„Það sem lagði grunninn að
sigrinum var þessi barátta sem ís-
lenska landsliðið er þekkt fyrir og
skytturnar okkar sem áttu stór-
leik. Við reyndum að koma þeim
á óvart með því að leika ekki okk-
ar venjulegu vörn og það tókst
vel.
Við höfum leikið við flestar
þjóðirnar í B-keppninni og staðið
upp í hárinu á þeim. Þó get ég
ekki lofað því að okkur takist að
halda okkur uppi.“
Einar Bollason, þjálfari ís-
Icnska landsliðsins:
„Þetta var fyrst og fremst takt-
ískur sigur hjá okkur. Við spiluð-
um vörn sem við höfum ekki
mikið æft (3-2), en ekki okkar
venjulegu vörn (1-3-1). Við sáum
hvernig Skotum gekk með hana
gegn Norðmönnum og tókum
hana því upp. Svo tókst okkur að
stöðva hraðaupphlaupin hjá
þeim. Strákarnir hafa gott úthald
og náðu að halda baráttunni út
allan leikinn.
Að mínu mati voru gerðar of
miklar kröfur, en tapið gegn
Portúgölum kom á besta tíma og
þjappaði okkur saman. Við stóð-
umst þessar kröfur og erum
kornnir í B-riðil í fyrsta sinn í sögu
körfuboltans. Og þessi stund
mun aldrei gleymast í sögu ís-
lenska körfuboltans.“
Pálmar Sigurðsson:
„Að sjá hann fara ofan í var
frábært, svona gerist bara einu
sinni á ævinni. Við höfum yfirleitt
verið í botnbaráttunni, en núna í
tveim síðustu mótum höfum við
verið á toppnum.
Fyrirfram bjuggumst við við að
, 10-15 stiga tap væri vel sloppið,
en eftir leikinn gegn Skotum
sáum við að við áttum mögu-
leika. Ég er sannfærður um það
að ef við hefðum unnið Portúgala
hefði taugaveiklunin verið mun
meiri. En tapið jók baráttuna og
við börðumst vel. Við náðum 40
fráköstum, en þeir aðeins 28 og
þeir með alla þessa risa! Þetta er
sigur fyrir þjóðina, en ég er ekki
búinn að ná þessu ennþá.“ -Logi
Þriðjudagur 22. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA Í1
ÍÞRÓUIR
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
„Við setjum cngan „yfir-
frakka“ á Sigurvinsson, þess þarf
ekki,“ sagði Pal Csernai, þjálfari
Dortmund, fyrir leikinn gegn
Stuttgart á laugardaginn. Csern-
ai er greinilega enn ekki búinn að
viðurkenna að hann hafi gert mis-
tök með að nota ekki Ásgeir þegar
báðir voru hjá Bayern Munchen.
Þetta reyndist honum dýrkeypt á
laugardaginn, Ásgeir var feginn
frelsinu og nýtti sér það vel —
hann var besti maður vallarins og
stjórnaði algerlega leik Stuttgart
sem vann yfirburðasigur, 4-0.
Ekki nóg með það, stjórnarmenn
Dortmund voru ekki hrifnir af
leikaðferð Ungverjans og ráku
hann strax og leiknum var lokið!
Ásgeir lék frábærlega og spilar
nú eins og þegar Stuttgart varð
meistari. Hann fékk mjög góða
dóma, bæði í blöðum og sjón-
varpi, og er áfram í liði vikunnar
hjá Kicker, fékk þar 2 í einkunn.
Ásgeir gerði þriðja markið, hirti
boltann af varnarmanni á vallar-
helmingi Dortmund, lék inní
vítateiginn og skoraði með
hörkuskoti. Það var á fyrstu mín-
útu seinni hálfleiks, Klinsmann
skoraði tvisvar í þeim fyrri og síð-
an Karl-Heinz Förster tveimur
mínútum á eftir Ásgeiri.
Atli Eðvaldsson var líka í
sviðsljósinu með Bayer Uerding-
en. Fyrst lék hann stórvel í Evr-
ópuleiknum gegn Atletico Ma-
drid á miðvikudag, á föstudags-
kvöld lék hann einn sinn besta
leik í vetur þegar Uerdingen vann
Nurnberg 6-2 í Bundesligunni og
á sunnudag skoraði hann og lék
vel í 1-1 jafntefli liðsins í Hanno-
ver í Bundesligunni. Lárus Guð-
mundsson lék ekki tvo seinni
leikina vegna meiðsla. Loontienr
kom í hans stað gegn Nurnberg
og skoraði þrennu. Atli fékk 2 í
einkunn hjá Kicker fyrir þann
leik og 3 fyrir leikinn í FÍannover.
Gegn Hannover lék hann í stöðu
framherja í fyrsta sinn í vetur og
kunni vel við sig. Markið var lag-
legt, vinstrifótarskot í bláhornið
eftir að hafa snúið á varnarmann í
vítateig Hannover. Það var á 19.
mínútu en Hannover jafnaði, 1-
1, á lokamínútunni.
Úrslit í Bundesligunni í knatt-
spyrnu um helgina:
Uerdingen-Nurnberg...............6-2
Stuttgart-Dortmund...............4-0
Bayern Munchen-Leverkusen........0-0
Köln-Dusseldorf..................1-3
Hamburger-Mannheim...............3-0
Saarbrucken-Bochum...............o-1
Schalke-Kaiserslautern...........2-3
Hannover-Uerdingen...............1-1
Bayern tapaði dýrmætu stigi á
heimavelli gegn Leverkusen og
var heppið því gestirnir léku vel
og voru nær sigri. Heimamenn
voru greinilega með hugarm við
leikinn í Bremen, eiginlegan úr-
slitaleik deildarinnar, sem fram
fer í kvöld.
Staða efstu og neðstu liða:
Bremen ...32 20 8 4 82-39 48
Bayern ...32 20 6 6 76-31 46
Gladbach ...32 15 12 5 64-43 42
Stuttgart ...32 16 7 9 66-42 39
Uerdingen ...31 16 7 8 55-57 39
Hamburger ...32 16 5 11 51-33 37
Dusseldorl ...32 10 7 15 50-72 27
Kaiserslaut ...32 8 10 14 42-54 26
Köln ...32 8 10 14 42-58 26
Dortmund ...32 9 7 16 44-63 25
Saarbrucken... ...32 5 9 18 36-61 19
Hannover ...32 5 8 19 42-87 18
Saarbrucken og Hannover eru
fallin í 2. deild en þriðja neðsta
liðið leikur aukaleiki við þriðja
efsta lið 2. deildar um sæti í
Bundesligunni. Svo gæti farið að
Köln og Fortuna Köln myndu
heyja það einvígi!
langvinnu.
Páll Ólafsson lék líka frábær-
lega, í vörn og sókn, þegar Dank-
ersen fékk Essen í heimsókn. Páll
gerði 9 mörk en það dugði þó
ekki, Essen vann 22-19 og er
komið á topp deildarinnar. AI-
freð Gíslason lék sérstaklega vel í
vörn Essen en hann gerði 2 mörk
í leiknum, Fraatz 9.
Kristján Arason skoraði 10
mörk fyrir Hameln sem vann Alt-
jurden 21-15 á útivelli í 2. deild.
Knattspyrna
14 mörk
Þórsara
Þórsarar voru á skotskónum
þegar KRA-mótið í knattspyrnu
hófst á Akureyri um helgina. Þeir
sigruðu Magna 10-0 á laugardag-
inn og Vask 4-1 á sunnudaginn.
Siguróli Kristjánsson 3, Krist-
ján Kristjánsson 3, Bjarni
Sveinbjörnsson 2, Sigurbjörn
Viðarsson 1 og Hlynur Birgisson 1
gerðu mörkin gegn Magna. Gegn
Vaski skoraði Bjarni fyrst en
Valdimar Júlíusson jafnaði fyrir
Vask. Jónas Róbertsson og Óskar
Gunnarsson bættu síðan við mörk-
um og varnarmaður Vaskanna
skoraði loks sjálfsmark.
—K&H/Akureyri
Skíði
Armenningar unnu
svigkeppnina
Ármenningar sigruðu i sveita-
keppninni í svigi á Mullersmótinu
sem haldið var í 20. skipti um helg-
ina. Keppt var í Bláfjöllum og
fengu Ármenningar tímann 240,8
sek, ÍR 249,5 sek, Víkingur 264,7
mín. og Fram 269,6 mín. KR
mætti ekki til leiks. Sigursveit Ár-
manns skipuðu Einar Ulfsson,
Tryggvi Þorsteinsson, Árni
Sæmundsson og Hafliði Bárðar-
son.
Göngukeppni mótsins fór fram
strax á eftir. Eiríkur Stefánsson og
Guðni Stefánsson, bræðurnir úr
Skíðafélagi Reykjavíkur, urðu
jafnir og fyrstir á 36,45 mín. (10
km) í karlaflokki en aðrir féllu úr
keppni. Matthías Sveinsson, SR,
sigraði í flokki 50 ára og eldri,
Lilja Þorleifsdóttir, SR, í kvenna-
flokki og Einar Guðmundsson,
SR, í drengjaflokki. Pálmi Guð-
mundsson var mótsstjóri bæði í
sviginu og göngunni.
—VS
Ásgeir Sigurvinsson, I fínu forml
Vestur-Pýskaland
Víkingar mega teljast heppnir
að hafa sigrað IR 2-1 í Reykjavík-
urmótinu á sunnudagskvöldið.
Andri Marteinsson skoraði sigur-
mark Víkings eftir frábæran
undirbúning Jóhanns Þorvarðar-
sonar 5 mínútum fyrir leikslok en á
undan og eftir áttu IR-ingar gullin
færi til að skora, eitt skiptið hrökk
boltinn t.d. í báðar stangir Vík-
ingsmarksins!
Það var Jón Bjarni Guðmunds-
son sem skoraði fyrst fyrir Víkinga
en Bragi Björnsson jafnaði fyrir
ÍR. Víkingar hlutu fullt hús stiga í
riðlinum og leika í undanúrslitum
en Valur og Ármann leika á
fimmtudagskvöld úrslitaleik um
hvort liðanna fylgir þeim. í kvöld
mætast hinsvegar Fylkir og KR í
hinum riðlinum, kl. 20.30 á gervi-
grasinu. —VS
Pálmar Sigurosson skorar sigurkörfuna
gegn Norðmönnum — einhverja þýðingarmestu
körfu sem íslenskur körfuknattleiksmaður hefur
gert. ísland 75, Noregur 72, Pálmar er vel utan
við 3ja stiga línuna og bregst ekki á örlaga-
stundu. Mynd: E.ÓI.
Sigurður með 10 í
góðum útisigri Lemgo
Páll gerði 9 gegn Essen og Kristján 10 í 2. deild
Knattspyrna
Heppnir Víkingar