Þjóðviljinn - 27.04.1986, Blaðsíða 18
KROSSGATA
NR. 514
i T-1 w~ r V T~ T~~ 8 T~~ 10 m
ur d ;3 IV- Já n 5? iS n r n fp TT~ 7ó
r & II l> L i7 /D 3 )0 u V </ 2/ \7 25
1* f 14 T s 25 n 1Z~ 18 ? v Vj
L w U 'V' V \á ic> 2t> & 3 II 10 $
ie u n- U, {s> 11 L / b L> L II ;3
V 2S 55 10 II 7T~ Í7- 5' )7 10 !Í ÁyW
2T Kr il 2S* L T~ y w T þ 17
ib w n 2S iH lá> L U 1/
d 9 )3 T~ is- 7 M /3 z~ /3 )#
3«? 5- V T~ JS r is1 u> L ir " y
TT is Uo U, w v- is i/ 9?
(p b li w~ 5 5 i7- (p 52 11 V- V-
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá
kvenmannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni
til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr.
514“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinn-
ingshafa.
IZ II zs zz 5 /? JD (0
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Verðlaunin fyrir krossgátu nr.
511 hlaut Elías Valgeirsson,
Sólheimum 25, 104 Reykja-
vík. Þau voru skáldsagan
Froskmaðurinn eftir Hermann
Másson, útgefandi Forlagið.
Lausnarorðið var Flateyri.
Verðlaunin að þessu sinni eru
spennusagan Hrossakaup
eftir enska rithöfundinn Dick
Francis, útgefandi bókafor-
lagið Nótt.
SKAK
Af stórmeisturum
Fyrir nokkru lauk skákmótinu
mikla í Ncw York en þar kepptu fjórir
íslenskir skákmenn. Tékkinn Smcjkal
og Ungverjinn Sax urðu efstir og jafn-
ir með sjö vinninga úr níu skákum.
Helgi Ólafsson hafnaði í 3.-7. sæti
með 6V2 vinning. Jón L. Árnason fékk
sex vinninga en Margeir Pétursson
■ 5'/2 og Karl Þorsteins 5 vinninga. Ár-
angur þeirra fjórmenninga í heildina
er góður og mjög góður hjá Helga sem
var allt mótið i hópi cfstu manna.
Það er mikið gert úr hlut verð-
launanna á slíkum mótum og hér
heima var því „slegið upp" hvað
mikla peninga Helgýfékk í verðlaun.
Það er svosem ekki ástæða til að ant-
ast við því þótt menn fái nokkuð fyrir
sinn snúð en það getur samt aldrei
orðið aðalatriði í sambandi viö árang-
ur manna í mótum. Líklega helst að
skattstofan hafi áhuga á verðlauna-
hlut manna. Mestu skiptir árangurinn
og gæði taflmennskunnar - góö skák
verður trautt metin til fjár frekar en
önnur listaverk.
JÓN
TORFASON
Undirrituðum hafa ekki enn borist
skákir frá mótinu en þess í stað skal
hugað að skák sem Helgi Ólafsson
tefldi hér heima fyrr í vetur. Það er
skák hans við Alburt en hann er einn
þeirra sovésku skákmeistara sem
undanfarin ár hafa flust til Bandaríkj-
anna og setja svo mikinn svip á skák-
lífið þar vestra um þessar mundir. Svo
mikið kveður að þessum skákmann-
aflutningi að það hvarflar að manni
að hann sé skipulagður af æðsta ráð-
inu og undir búi lævísleg vélabrögð
þeirra austantjaldsmanna til að leggja
Bandaríkin undir sig á skáksviðinu.
Mætti það þá verða þeim illu komm-
únistum eystra til nokkurrar huggun-
ar ef kjarnavopnin bregðast þeim.
Helgi tefldi mjög faglega gegn Al-
burt, náði heldur meira rými og fékk
biskupaparið en kom í veg fyrir allt
mótspil andstæðingsins. Það eru eng-
ar flugeldasýningar í þessari skák en
fróðlegt aðsjá hvernig Helgi snýr jafn
öflugan stórmeistara niður og Alburt.
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Lev Alburt
1. Rf3 - Rf6 s. Rxd4 - a6
2. c4 - c5 6. g3 - Dc7
3. Rc3-e6 7. Dd3 - ...
4. d4 - cxd4
Það er kcnnt í fræðunum að ekki
eigi að leika drottningunni of
snemma fram á borðið en þarna
stendur hún vel og svartur getur ekk-
ert gert henni.
7. ... - Rc6
8. Rxc6 - Dxc6
9. e4 - 1)6
10. Bg2 - Bb7
11. Bd2 - Hc8
12. b3 - Ba3
13. 0-0 - 0-0
Miðborð hvíts er tryggt og hann
heldur niðri hugsanlegri framrás
svarts (b6-b5 eða d7-d5). Svartur
reynir nú að nota sér löngu skáklín-
una en það kostar hann biskupaparið.
14. Hf-dl - Bb2
15. Ha-bl - Bxc3
16. Bxc3 - Rxe4
abcdefgh
Eftir uppskipti á e4 væru komnir
upp mislitir biskupar og gæti orðið
snúið að vinnaþaðendatafl. En Helgi
á betri leik.
17. Bb4 - d6
Annars fer biskupinn til d6 og lam-
ar spil svarts.
18. f3 - Rg5
19. Kf2 - f6
20. Dxd6 - Hf-e8
21. Dxc6 - Bxc6
22. Bd2 - Rf7
Hér hefði mátt reyna 22. ... e5 og
leika síðan riddaranum til e6 og d4.
Eftir 23. Bxg5 fxg5 aflagast að vísu
peðastaða svarts en hann getur lagað
það með því að leika g5-g4 við tæki-
færi.
23. Be3 - b5
24. cxb5 - axb5
25. Bfl - Ha8
26. Hd2 - He-c8
27. Hcl - Be8
28. Hd-c2 - Hd8
29. Bb6 - Hb8
30. Bc7 - Hc8
31. Bf4 - Hd8
32. Bc7 - Hd-c8
33. Bd3 - g5
Hvítur hefur komið mönnum sín-
um vel fyrir en menn svarts eru allir í
vörn. Biskupinn verður að valda b5-
peðið og riddarinn getur sig hvergi
hrært. Ef svartur hefst ekki að kemur
kóngur hvíts fram á miðborðið og síð-
an sækir hann að b-peðinu eða fer í
peðaframrás á kóngsvæng. En nú
myndast nýir veikleikar í svörtu
stöðunni.
34. h4 - h6
35. Ke3 - Kg7
36. f4 - Ha7
37. Bb6 - Hxc2
38. Bxc2 - Hb7
39. Bd4 - e5
Eitt hagræðið við biskupaparið er
að oft er hægt að láta annan biskupinn
fyrir riddara sér til hagsbóta. Sú verð-
ur einmitt raunin hér. Nú opnast
hvíta kónginum leið fram.
40. fxe5 - Rxe5
41. Bxe5 - fxe5
42. Hc5 - Kf6
43. Hc8 - Ke7
'44. Ha8 - gxh4
45. gxh4 - Hb6
46. Ha7+ - KI8
47. Bf5 - Hd6
48. Ke4 - Hd4+
Fyrr eða síðar verður svartur að
reyna eitthvað í þessa veru. Annars
fellur c-peðið bótalaust. En þetta
dugar heldur ekki.
49. Kxe5 - Hxh4
50. Kf6 - Hf4
51. Ha8 - h5
Nú verður svartur að láta skipta-
mun. Eftir51. ... Hfl ereinfaldast52.
a4 bxa4 53. bxa4 og peðið rennur upp
því svarti hrókurinn má ekki fara af
f-línunni vegna Bd7 eða Bg6 og bisk-
upinn á e8 fellur.
52. Kg5 - Hxf5+
53. Kxf5 - Ke7
54. Kg5 - Bc6
55. Hc8 - Bd7
56. Hc5 - Kd6
57. b4 - Be8
58. a3 - Ke6
59. Hc8 - Bd7
60. Hcl - Be8
61. Hel+ - Kd7
62. Kf6 - h4
63. He7+ - Kd8
64. Hh7 og loks gafst Alburt upp.
BRIDGE
Hverjir sigra?
Úrslitakeppni íslandsmótsins í tví-
menningskeppni hefst á Loftleiðum í
dag, kl. 13. 24 í dag okkar bestu
pörum spila til úrslita og verða spiluð
5 spil milli para, alls 115 spil. Spila-
mennsku verður síðan framhaldið í
kvöld og lýkur annað kvöld. Ef litið
er á þátttökupörin sjáurn við, að
nokkur af okkar bestu pörum, sbr.
Jón-Símon, Valur-Aðalsteinn, Jón-
Hörður og Oddur-Hrólfur eru ekki
með, auk þess sem Sigtryggur Sig-
urðsson nv. íslandsmeistari í tví-
menning náði ekki í úrslit, á móti fé-
laga sínum Jakobi R. Möller. Páll
Valdimarsson, hinn Islandsmeistar-
inn náði hins vegar í úrslit, á móti
Magnús Ólafssyni fv. ritstjóra NT.
Umsjónarmaður hefur ekki sér-
ÓLAFUR
LÁRUSSON
staklega lagt sig eftir að spá um úrslit
einstakra móta fram að þesu, enda
úrslit yfirleitt háð ýmsu (veðurfari,
hitastigi spilasalar og þess háttar,
ekki satt Sigurður?), en óneitanlega
verður gaman að fylgjast með þeim
Jóni Baldurssyni og Sigurði Sverris-
syni. Ef þeim bregst spilalistin, væri
ekki úr vegi að fylgjast með Þórarni
og Þorláki. Þeir hljóta að vera ansi
hungraðir eftir magran vetur á Þórar-
ins mælikvarða. Nú, pör einsog Björn
Eysteinsson og Guðmundur Her-
mannsson, Örn Arnþórsson og Guð-
laugur R. Jóhannsson og Ásmundur
Pálsson og Karl Sigurhjartason gætu
„dottið" niður á gott mót og unnið
sannfærandi. Og í tilefni af ári æsk-
unnarr (eða var það í fyrra?) gætu pör
einsog Karl Logason og Svavar
Björnsson eða Valgarð Blöndal og
Ragnar Magnússon eða Stefán Páls-
son og Rúnar Magnússon eldað grátt
gaman við þá „gömlu".
Megi þeir bestu sigra. (sleppi latín-
unni...)
Frá Skagfirðingum
Reykjavík
Sl. laugardag sóttu Skagfirðingar
norðan heiða okkur heim til spila-
mennsku. Spilað var á 9 borðum.
Leikar fóru þannig, að sunnanmenn
sigruðu á 7 borðum og hlutu 186 stig,
en norðanmenn á 2 borðum og hlutu
72 stig.
Um kvöldið var gestum boðið á
Hótel Sögu og var nokkurt jafnræði
með liðum þar. Sl. þriðjudag var
framhaldið eins kvölds tvímenning
hjá félaginu. Úrslit urðu þessi:
N/S: Ingvar Hauksson - stig
Sverrir Kristinsson Jón Þorvarðarson - 421
Þórir Sigursteinsson Ari Konráðsson - 394
Kjartan Ingvarsson Jakob Kristinsson - 387
Garðar Hilmarsson A/V: Hrannar Erlingsson - 382
Matthías Þorvaldsson Jón Viðar Jónmundsson - 366
Þórður Þórðarson Magnús Ólafsson - 362
Páll Bergsson Ármann J. Lárusson - 351
Karólína Sveinsdóttir 350
32 pör mættu til leiks.
Og næstu þriðjudaga verður fram-
haldið eins kvölds tvímennings-
keppnum. Spilað er í Drangey v/
Síðumúla 35. Öllum velkomin þátt-
taka meðan húsrúm leyfir.
Frá Tafl-&
Bridgeklúbbnum
Föstudaginn 2. maí n.k. koma Ak-
ureyringar í heimsókn og taka þátt í
sveitakeppni (6-8 sveitir) og hefst
keppnin kl. 19,30. Daginn eftir eða
laugardaginn 3/5 verður opinn tví-
menningur með félögum T.B.K. og
B.A. Öllum félögum er heimil þátt-
taka. Hefst sú kcppni kl. 13.30. Spil-
að verður báða dagana að Síðumúla
35, (Skagfirðingaheimilið). Félagar
eru hvattir til að mæta þar sem þetta
er síðasta keppni vetrarins á vegum
T.B.K.
Frá Bridgefélagi
Tálknafjarðar
Firmakeppni félagsins, sem jafn-
framt er meistaramót í einmennings-
keppni hófst sl. mánudag. Alls taka
20 spilarar þátt í keppninni. Eftir 1.
spilakvöldið af 3, er staða efstu firma/
spilara þessi:
1. Bókhaldsstofan 155 stig spilari
Kristin Magnúsdóttir.
2. Hraðfrvstihús Tálknafjarðar
136 spilari Þórður Reimarsson.
3. Þorsberg 134 spilari Heiðar Jó-
hannsson.
4. V.B. Frigg 130 stig spilari Stein-
berg Ríkharðsson.
5. Kaupfélag V. Barðstrcndinga
128 stig spilari Stelán Haukur
Ólafsson.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. apríl 1986