Þjóðviljinn - 03.05.1986, Side 2
FRETTIR
TORGIÐ.
Flugslysanefnd
Oheppileg málaferli
Flugslysanefnd telur það rangt af íslensku ríkisstjórninni að fara í mál
við Síkorský þyrluverksmiðjurnar vegna galla í þyrlu Landhelgisgœsl-
unnar. Málaferlin munu seinka eða koma í vegfyrir að gallar sem komu
í Ijós á Landhelgisþyrlunni verði lagfœrðir
Karl Eiríksson formaður Flug-
slysanefndar lýsti því yfir á
fréttamannafundi í gær að hann
væri mjög óánægður með og al-
gerlega mótfallinn þeim málaferl-
um sem íslenska ríkisstjórnin
hefði farið í gegn Sikorsky þyrlu-
verksmiðjunum vegna óhappsins
þegar þyrla Landhelgisgæslunn-
ar fórst í Jökulfjörðum 1983
Karl benti á að þá galla sem
hefðu komið fram á þyrlunni við
rannsókn slyssins vildu Sikorsky
verksmiðjurnarekki viðurkenna,
vegnai þess að þar með opnuðu
þær leiðir fyrir marga til mála-
ferla.Efekki hefði verið farið í
mál hefði mátt ætla að lagfæring-
ar hefðu verið framkvæmdar
hljóðalaust. Og það væri miklu
meira virði fyrir flugöryggi en
peningar í skaðabætur.
Ljóst væri að á meðan á mála-
ferlum íslensku ríkisstjórnarinn-
ar og Sikorsky verksmiðjanna
stendur munu engar endurbætur
fara fram. Endurbætur væru við-
urkenning verksmiðjanna á gall-
anum og þær myndu bíða fram
yfir lok málaferlanna með að
framkvæma bráðnauðsynlegar
lagfæringar.
-S.dór
f.v. Kristbjörn Jónsson, nýr starfsmaður NRON, ASÍ og BSRB, Gunnsteinn V. Guðmundsson framkvæmdastjóri NRON,
Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur ASI og Sigurður Sigurðarson formaður NRON. (mynd Sig).
Verðkannanir
Nýr starfsmaður ráðinn
Neytendafélag Reykjavíkur og
nágrennis, Alþýðusamband ís-
lands og Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja hafa nú tekið hönd-
ROKKHATIfi
Háskólabíó laugardag 10- maí kl. 2
Lv‘
Kynnir:
Gunnlaugur
Helgason.
um saman og ráðið starfsmann í
hlutastarf til að gera verðkannan-
ir og reyna með því að halda uppi
nokkurri verðgæslu á svæðinu.
Starfsmaðurinn Kristbjörn
Jónsson er þegar tekinn til starfa
og mun hann gera reglubundnar
kannanir á vöruverði í matvöru-
verslunum en auk þess mun hann
af og til kanna verð á sérvöru og
þjónustu. Launþegafélögin
greiða launakostnað hans en
neytendafélagið lætur í té starfs-
aðstöðu og stjórnar daglegu
starfi, en í því mun hann njóta
leiðsagnar og aðstoðar Verð-
lagsstofnunar.
Kristbjörn hefur þegar gert
eina könnun og er það könnun á
gjaldskrám og biðlistum dagvist-
arstofnana í Reykjavík og ná-
grenni. Þar kemur m.a. fram
nokkur verðmismunur milli
sveitarfélaga og einnig að það er
mismunandi hvaða hópa
sveitarfélögin greiða niður.
Þannig greiða Reykjavíkurborg
og Hafnarfjörður niður gjald á
dagheimilum bæði hjá einstæð-
um foreldrum og námsmönnum
en Seltjarnarnes, Kópavogur og
Mosfellssveit aðeins hjá einstæð-
um foreldrum. Ing-
Hækkun í hafl riýtur greinllega enn
vlnsælda.
Enn um
mötuneyti
í Skúlatúni
Haraldur Hannesson
formaður Starfsmanna-
félags Reykjavíkur
skrifar
Vegna frétta, en þó aðallega vegna
fyrirsagna í Morgunblaðinu og Þjóð-
viljanum undanfarna daga, óska ég
að fá eftirfarandi birt:
Þegar ég fékk vitneskju um hækk-
un á matarverði í mötuneytinu í
Skúlatúni, fór ég þegar á fund skrif-
stofustjóra borgarverkfræðings og
óskaði skýringa. Skrifstofustjórinn
tók því mjög vel og skýrði mér frá því
að reksturinn hefði gengið mjög illa
að undanförnu og því hafi verið farið
út í nýtt kerfi, sem byggðist á sölu á
miðum, þar sem hver eining kostaði
kr. 60,-
Eftir þessa breytingu yrði hægt að
fá súpu og brauðsneið með smjöri
fyrir kr. 60.- alla daga.
Fjóra daga vikunnar væri „al-
mennur“ matur seldur á tvær einingar
2x60 eða kr. 120,- Einu sinni í viku
væri „betri“ matur seldur á þrjár ein-
ingar 3x60 eða kr. 180,-
Að sögn skrifstofustjórans var haft
samráð við fulltrúa starfsfólks á
staðnum og voru þeir sammála þess-
ari aðgerð til að rétta af hallann, en
síðan yrði málið endurskoðað að
nýju. Allur matur kostaði áður kr.
100.- á dag eða kr. 500,- á viku. Að
súpunni og brauðinu slepptu má setja
upp einfalt reikningsdæmi um hver
raunveruleg hækkun var.
Eldra fyrirkomulag þ.e. 5x100 eða
kr. 500,- á viku. Nýrra fyrirkomulag
þ.e. 4x120 eða kr. 480,- + 1x180 eða
alls kr. 660.- á viku. Mismunur hækk-
un kr. 660,- - kr. 500. - eða kr. 160
eða 32%.
Ég taldi hinsvegar ekki ástæðu til
að una slíkri hækkun án frekari at-
hugunar og því varð samkomulag um
eftirfarandi, á meðan slík athugun
færi fram:
4x100 eðakr. 400.- + 1x150 eðaalls
kr. 550.- á viku. Mismunur er því 550
- 500 eða kr. 50.- á viku eða 10%.
Allur stuðningur við okkar verð-
lagseftirlit er vel þeginn, en þarf að
vera vel fram settur ef hann á að nýt-
ast.
Með fyrirfram þakklæti fyrir birt-
inguna,
Haraldur Hannesson.
Sauðárkrókur
Alvarlegt slys
18 ára pilturfór með fót í snigil í frystihúsinu
Skildi. Annað slysið þar á tveimur árum
Miðasala:
Þjóðviljanum og
Mál og menningu
Laugavegi
og Hafnarstræti.
Verð 400 kr.
Alvarlegt vinnuslys varð í
Hraðfrystihúsinu Skildi á
Sauðárkróki laust fyrir hádegi í
gær er 18 ára starfsmaður þar
festi annan fótinn í íssnigli og stór-
slasaðist. Þetta er annað slysið á
tveimur árum sem verður með
sama hætti í þessu frystihúsi.
Að sögn Jóns Karlssonar for-
manns verkalýðsfélagsins Fram á
Sauðárkróki er öryggismálum í
frystihúsum víðast hvar mjög
ábótavant. Jón sagði í samtali við
blaðamann Þjóðviljans að verka-
lýðsfélög um land allt hefðu fyrir
réttu ári sent öllum frystihúsum
bréf með kröfum um endurbæt-
ur.
„Forsvarsmenn Hraðfrysti-
hússins Skjaldar hér á Sauðár-
króki fengu slíkt bréf. Aðstæður
hjá húsinu hafa ekki verið sem
skyldi og endurteknum kröfum
um úrbætur hefur ekki verið
sinnt,“ sagði Jón Karlsson enn-
fremur.
Fulltrúi Vinnueftirlitsins í
Skagafirði innsiglaði í gærdag all-
an búnað sem viðkemur þessum
snigli í Hraðfrystihúsinu Skildi.
IVJ/Sauðárkróki
2 SÍÐA - ÞJÓÐVÍLJINN Laugardagur 3. maí 1986