Þjóðviljinn - 06.05.1986, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 06.05.1986, Qupperneq 3
Knattspyrna ÍBK hlaut Litla bikarinn ÍBK tryggði sér sigur í Litlu bikarkcppninni í karlaflokki á laugardaginn með 2-1 sigri á FH. Hinn ungi Kjartan Einarsson skoraði bæði mörk Keflvíkinga en mark FH gerði Ingi Björn Al- bertsson. Breiðablik vann Hauka 7-2 og þá er aðeins ólokið leik FH og IA. Staðan er þessi: IBK...............4 3 1 0 9-4 7 Breiðablik........4 1 3 0 11-6 5 FH................3 111 9-3 3 lA................3 111 9-3 3 Haukar............4 0 0 4 2-24 0 —VS Knattspyrna Mexíkó sigraði Landslið Mexíkana heldur áfram sigurgöngu sinni. í fyrra- kvöld lagði það vestur-þýska liðið Hamburger SV að velli í Los Angeles, 2-0, Carlos Munoz og Francisco Javier Cruz skoruðu mörkin. Hamburger lék án lands- liðsmannanna Felix Magath og Ditmar Jacobs. —VS/Rcuter Frjálsar Vormót UMFK Vormót ÍBK í frjálsum íþrótt- um fer fram í Keflavík á laugar- daginn, 10. maí, og hefst kl. 14. Þátttökutilkynningar berist Helga Eiríkssyni í síma 92-4821 í síðasta lagi miðvikudaginn 7. maí. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Sveinn Hreinsson skellir ígólf pressuliðsins í pressuleik í Digranesi á sunnudaginn. Mynd: E.Ol. Blak Norðurlandamót í Digranesi Byrjað á fimmtudag. ísland, Noregur og Svíþjóð saman í riðli Norðurlandamótið í blaki karla verður haldið hér á landi síðar í þessari viku. Leikið verður í íþróttahúsinu Digranesi í Kópa- vogi og hefst mótið á fimmtudaginn, uppstigningadag, en lýkur á laugardaginn. ísland er í riðli með Svíþjóð og Noregi en hinn riðilinn skipa Finnland, Danmörk og Færeyjar. Mótið er haldið annað hvert ár og hefur farið fram 12 sinnum. Finn- ar hafa ávallt sigrað og Svíar hafa verið í öðru sæti síðan 1970. Björgólfur Jóhannsson lands- liðsþjálfari hefur valið 12 leik- menn fyrir leikina og eru þeir eftirtaldir: Páll Svansson, ÍS, Einar Hilm- arsson, Þrótti, Guðmundur E. Pálsson, Þrótti, Haukur Valtýs- son, ÍS, Ástvaldur J. Arthúrsson, HSK^ Sveinn Hreinsson, Þrótti, Jón Árnason, Þrótti, Lárentsínus Ágústsson, Þrótti, Þorvarður Sigfússon, ÍS, Stefán Jóhannes- son, Víkingi, Leifur Harðarson, Þrótti, og Kjartan Busk, HK. —Logi/VS ÍÞRÓniR Vestur-Þýskaland Yfirburðir Bayem gegn Stuttgart Bayern komst í 4-0. Ásgeir í strangri gœslu allan tímann. Bayern tvöfaldur meistari Frá Jóni H.Garðarssyni, frétta- manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi: Bayern Munchen hafði mikla yfirburði gegn Stuttgart í úrslita- leik bikarkeppninnar í knatt- spyrnu á Ólympíuleikvanginum í Berlín á laugardaginn. Leikurinn fór að mestu fram á vallarhelm- ingi Stuttgart og úrslitin, 5-2 voru mjög sanngjörn. Bayern hefur því unnið það afrek að verða bæði vestur-þýskur meistari og bikarmeistari, sannarlega glæsi- legur árangur. Þrátt fvrir að flestir áhorfenda væru á bandi Stuttgart og létu vel í sér heyra byrjaði Bayern af krafti og náði strax undirtökun- um. Stuttgart varðist vel og Ba- yern gekk illa að skapa sér færi og það var því nokkuð slysalegt þeg- ar Bayern náði forystunni á 34. mínútu. Roland Wohlfarth skaut utan vítateigs, knötturinn hefði hafnað í höndum Jagers mark- varðar en breytti stefnu af Karli- Heinz Förster og sveif yfir Jager, 1-0. Förster hafði stjórnað vörn Stuttgart af snilld framað því. Wohlfarth skoraði síðan aftur á 42. mínútu, 2-0 í hléi. Um miðjan seinni hálfleikinn gerðu svo Bæjarar endanlega útum leikinn. Með 8 mínútna millibili skoraði Michael Rum- menigge tvisvar, í bæði skiptin eftir fallegar sóknir og fyrirgjafir frá Pflugler. Staðan 4-0 og úr- slitin ráðin. Guido Buchwald svaraði fyrir Stuttgart á 76. mín, 4-1, en Wohlfarth fullkomnaði þrennu sína tveimur mínútum síðar, 5-1. Jurgen Klinsmann átti síðan lokaorðið fyrir Stuttgart á 82. mínútu, 5-2. „Bayern hefur náð sér á strik á réttum tíma, þeir eru hrikalega sterkir og Stuttgart á litla mögu- leika,“ sagði Franz Beckenbauer landsliðseinvaldur í hálfleik. Ekki bætti úr skák fyrir Stuttgart að Allgöwer og Nushör gátu ekki leikið síðari hálfleikinn vegna meiðsla. „Leikmenn Stuttgart voru of hræddir og léku of aftarlega. Gegn Bayern á að taka áhættu og sækja,“ sagði Egon Coorders, aðstoðarþjálfari Bayern sem nú tekur við stjórn Stuttgart. Ásgeir Sigurvinsson komst aldrei að marki inní leikinn. Hans var mjög vel gætt allan tímann. Fyrir leikinn var mikið rætt um einvígi Ásgeirs og Sörens Lerby en lítið fór fyrir því. Lerby hafði hægt um sig en braut reyndar tvisvar gróflega á Ásgeiri. Ólympíuleikar Sovétmenn ítreka stuðning sinn Marat Gramov, íþróttamála- ráðhcrra Sovétríkjanna, til- kynnti um helgina að Sovétríkin stæðu fast við þá skoðun sína að Ólympíuleikarnir 1988 ættu að fara að hluta til fram í Norður- Kóreu. Leikana á að halda í Suður- Kóreu en nágrannarnir í norðri, sem eru pólitískir andstæðingar sunnanmanna, hafa krafist þess að fá hluta leikanna til sín. Við- ræður hafa farið fram milli ríkj- anna, með milligöngu alþjóða Ólympíunefndarinnar, en þær hafa engan árangur borið. Gram- ov sagði ennfremur að Kínverjar, Tékkar og fleiri þjóðir myndu styðja skiptingu leikanna. —VS/Reuter Kicker Ásgeir í liði ársins Frá Jóni H.Garðarssyni frétta- manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi: Ásgeir Sigurvinsson er í liði ársins hjá íþróttablaðinu Kicker fyrir keppnistímabilið 1985-86. Ásgeir var valinn 7 sinnum í lið vikunnar hjá blaðinu, jafnoft og Andreas Brehme og Bruno Pezz- ey, og aðeins Norbert Maier hjá Bremen var valinn oftar, 9 sinn- um. Lið ársins lítur þannig út, í svigum er hve oft viðkomandi var í liði vikunnar. Markvörður: Eike Immel, Dortmund (6) Varnarmenn: Manny Kaltz, Hamburger (6) Andreas Brehme, Kaiserslautern (7) Norbert Eder, Bayern (6) Bruno Pezzey, Bremen (7) Tengiliöir: Karl Allgöwer, Stuttgart (6) Ásgeir Sigurvinsson, Stuttgart (7) Norbert Maier, Bremen (9) Framherjar: Thomas Allofs, Kaiserslautern (5) Manny Burgsmuller, Bremen (6) Bum Kun Cha, Leverkusen (6)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.