Þjóðviljinn - 10.05.1986, Qupperneq 2
FRÉTTIR
Farmenn
„Sviptir lýðréttindum“
Ríkisstjórnin setur bráðabirgðalög á undirmenn og skipsstjóra áfarskipum. Mikil reiði meðal
farmanna. Höskuldur Skarphéðinsson formaður Skipstjórafélagsins:
Mótmœlum harðlega. Yfirlýsingforsætisráðherra gagnslaus
Ríkisstjórnin ákvað í gær að
stöðva verkfall undirmanna
og skipstjóra á farskipum með
bráðabirgðalögum, eftir að slitn-
að hafði uppúr samningafundum
seint í fyrrinótt. Undirmenn og
stjórn Skipstjórafélagsins fund-
uðu um gerðardómslögin þegar
eftir að þau voru birt síðdegis í
gær, og mótmæltu þessari aðför
að löglegum rétti sínum harðlega.
-Við erum ákaflega óánægðir
með að vera sviptir á þennan hátt
okkar lýðréttindum og við mót-
mælum þessu því harðlega. Við
höfum verið í fyllilega löglegu
verkfalli og farið í einu og öllu
eftir leikreglunum. Þetta virðist
vera orðin handhæg ráðstöfun
hjá stjórnvöldum að setja lög á
sjómenn í hvert sinn sem þeir
beita sínu verkfallsvopni, sagði
Höskuldur Skarphéðinsson for-
maður Skipstjórafélagsins í sam-
talí við Þjóðviljann í gær.
Skipstjórar á farskipum höfðu
boðað aftur vinnustöðvun þann
14., 15. og 16 maí, en verkfall
undirmanna hefur staðið yfir frá
mánaðamótum. Stýrimenn og
vélstjórar hafa einnig lausa samn-
inga en þeir höfðu ekki boðað
verkfall.
Meginágreiningsefni í kjara-
deilu skipsstjóra snerist um líf-
eyrisréttindi en þeir fóru fram á
samræmingu miðað við þá
breytingu sem gerð var fyrir fáum
árum í lífeyrismálum sjómanna.
Lífeyrissjóður sjómanna veitir
sjómönnum sem starfað hafa í 25
ár fullan rétt til eftirlauna við 60
ára aldur en farmenn hjá Eimskip
fá sinn rétt 67 ára og farmenn hjá
Sambandinu ekki fyrr en við 70
ára aldur. Undirmenn lögðu í sín-
um kröfum megináherslu á að
grunnlaun þeirra hækkuðu úr 20
þúsundum í 27 þúsund krónur á
mánuði.
-Þessi fundur með Steingrími
Hermannsyni um lífeyrismálin
sem hefði getað leyst málið, gaf
lítið. Yfirlýsing hans var almenns
eðlis og ótímabundin og því engin
trygging fyrir okkur. Við höfum
Vímulaus œska
Tæp 8 þúsund
hafa skráð sig
Félagafjöldi er kominn langt
fram úr björtustu vonum, nú eru
tæplega átta þúsund manns búin
að skrá sig í samtökin, sagði
Ragnheiður Guðnadóttir hjá
SÁÁ, er Þjóðviljinn spurði um
Samtök foréldra gegn vímuefn-
um í gærmorgun. Ragnhéiður
sagði jafnframt að sími samtak-
anna 688050 yrði opinn eitthvað
áfram, væntanlega yfirhelgina en
síðan tæki sími SAÁ 82399 við
skráningunni. Ing.
Kristín
Guðrún
Össur
Sigurjón
OPIÐ HÚS ABR
ALDRAÐIR í REYKJAVÍK
sunnudaginn 11. maí í Miögarði, Hverfisgötu 105, 4.
hæð (lyfta) kl. 15.
Umsjón með opnu húsi: Guðrún Ágústsdóttir, borg-
arfulltrúi.
DAGSKRÁ:
Einsöngur: Kristinn Sigmundsson.
Upplestur: Steinunn Jóhannesdóttir.,
Adda Bára Sigfúsdóttir og Kristín Á. Ólafsdóttir
ræða um stöðu aldraðra í Reykjavík og stefnu Alþýðu-
bandalagsins.
Sigurjón, Guðrún, Össur og Kristín svara fyrir-
spurnum og ræða málefni aldraðra.
Kaffi og heitar vöfflur.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Steinunn
Kristinn
Alþýðubandalagið í Reykjavík.
verið sviknir um þau loforð sem
Steingrímur Hermannsson meðal
annara gaf okkur á sínum tíma
um leiðréttingu á okkar líf-
eyrismálum. Því sættum við okk-
ur alls ekki við annað en að þessi
mál yrðu nú samræmd, sagði
Höskuldur Skarphéðinsson. -lg.
Davíð er skemmtilega einráður
lýðræðislegur forystumaður.
Sjúkraliðafélagið
Erum að
fylkja okkur
saman
Hulda S. Ólafsdóttir kjörin nýr
formaður Sjúkraliðafélagsins. Það
er ákveðin uppreisn í okkarfólki.
Það eru um 1900 manns í
landinu sem hafa réttindi sem
sjúkraliðar en af þeim eru aðeins
um helmingur starfandi. Það er
því mikill skortur á sjúkraliðum
og skýringin á því er fyrst og
fremst óviðunandi launakjör.
Víða úti á landi hafa bæjarfélögin
gert sérsamninga við sjúkraliða
sem aðrar heilbrigðisstéttir en við
búum við einna verstu kjörin hér
í Reykjavík, segir Hulda S. Ól-
afsdóttir nýkjörinn formaður
Sjúkraliðsfélagsins.
Á aðalfundi félagsins á dögun-
um urðu mikili uppskipti í stjórn-
inni og eiga aðeins tveir af fyrr-
verandi stjórnarmönnum sæti í
núverandi 9 manna stjórn. — Ég
finn að það er mikill áhugi hjá
sjúkraliðum að fylkja sér saman í
baráttunni og efla starfsemi fé-
lagsins. Það er mjög brýnt að
bæta kjörin ef stöðva á flóttann
úr stéttinni.
Hulda S. Ólafsdóttir: Verður að bæta
kjörin til að stöðva flóttann úr stétt-
inni. Mynd-Sig.
Sjúkraliðar hafa ekki sérstak-
an samningsrétt heldur eiga þeir
aðilda að samningum ríkis- og
bæjarstarfsmannafélaga. Víða
úti á landi hafa bæjarstjórnir
samþykkt að greiða heilbrigðis-
stéttum hærri laun að undan-
gengnu starfsmati til að halda í
starfsfólkið og hafa sjúkraliðar
þannig víða náð fram bættum
kjörum.
— Það er einnig mikið baráttu-
mál hjá okkur að sjúkraliðar
komi börnum sínum inn á dag-
heimili spítalanna. Með þessi
lágu laun sem við höfum, tekur
alls ekki fyrir konur með börn, að
koma til starfa og þurfa að greiða
stóran hluta af launum sínum til
dagmæðra. Það er verið að
byggja nýtt dagheimili við
Borgarspítalann og þar verða
börn sjúkraliða tekin inn ásamt
öðrum forgangshópum svo hægt
sé að manna öldrunardeild spítal-
ans, en almennt höfum við ekki
haft aðgang að dagheimilunum,
sagði Hulda S. Ólafsdóttir. —lg.
Bráðabirgðalögin
Mótmæli harðlega
S vavar Gestsson formaður A Iþýðubandalagsins:
Þriðju gerðardómslögin í vetur. Stjórnvöld afnema
verkfallsréttinn. Sjómenn eiga að svaraþessuþegar í
kjörklefanum
Þetta eru þriðju lögin á þessum
vetri sem ríkisstjórnin setur í
kjaradeilum án þess að hún hafi
neitt alvarlegt reynt til að leysa
málin. Þessi bráðabirgðalög á
i sjómenn eru í samræmi við lögin
sem stjórnin setti 1983 sem
bönnuðu verkföll og vinnudeilur
og það er greinilega stefna þessar-
ar stjórnar að afnema verkfalls-
réttinn og ég hlýt fyrir hönd Al-
þýðubandalagsins að mótmæla
þessum vinnubrögðum harðlega
sagði Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins aðspurður
um bráðabirgalögin.
Svavar sagðist minna á yfirlýs-
ingar farmanna um að ef komið
yrði til móts við þá í lífeyrismál-
um yrði hægt að leysa deiluna.
„Þeir eru að óska eftir því að
haldið verði áfram því verki sem
við hófum í síðustu ríkisstjórn
varðandi úrbætur í lífeyrismálum
sjómanna. Hér er ekki verið að
biðja um neitt umfram aðra held-
ur samræmingu miðað við líf-
eyrissjóð sjómanna. Þessu hafa
stjórnvöld ekki sinnt og það er
mjög alvarlegt, heldur virðast at-
vinnurekendur hafa stjórnvöld í
vasanum. Þessari aðför að hags-
munum sínum og rétti geta sjó-
menn svarað þegar með því að
greiða atkvæði utankjörstaðar
áður en þeir fara á sjó og hafna
stjórnarflokkunum í bæjar- og
sveitarstjórnarkosningunum“,
sagði Svavar Gestsson.
-Ig-
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. maf 1986