Þjóðviljinn - 10.05.1986, Page 3
FRÉTTIR
Heimdallur
Hreinræktaðar persónunjósnir
Heimdellingargera skoðanakönnun meðal ungra kjósenda. Fara með spurningalistana heim til viðkomandi
og ná íþá aftur er búið erað svara. Minnir á vinnubrögð íeinrœðisríkjum, sagði foxillurfaðir.
KristínA. Ólafsdóttir: Siðleysi á hœsta stigi
Er Davíð vel að sér um borg-
armálefni? Er hann lýðræð-
islegur forystumaður? Er hann
einráður i borgarstjórn? Bara
fulltrúi sjálfstæðisfjölskyldna í
Reykjavík? Framsýnn? Hugsar
hann fyrst og fremst um heildar-
hagsmuni? Hefur hann leiðinlega
framkomu? Er hann skemmti-
legur? Á hann auðvelt með að
starfa með öðrum? Of stjórn-
samur?
Þetta er dæmi um eina spurn-
ingu í skoðanakönnun sem
Heimdallur er nú að gera meðal
ungs fólks í Reykjavík. Alls sam-
anstendur könnunin af 23 spurn-
ingum þar sem fólki er ætlað að
svara með já eða nei ýmsum
spurningum, sem varða persónu
viðkomandi og hvað móti val
hans í næstu borgarstjórnarkosn-
ingum auk þess sem spurt er
hvaða flokk viðkomandi muni
kjósa.
Spurningalista þessum er dreift
til 500 kjósenda á aldrinum 18-30
ára og að sögn eru nöfnin valin að
handahófi. Heimdellingar fara
sjálfir með listann heim til við-
komandi og mæta nokkrum
dögum seinna aftur á staðinn til
að ná í listann.
„Þetta eru ekkert annað en
persónunjósnir og siðleysi af
hæstu gráðu,“ sagði foxillur faðir
sem hafði samband við Þjóðvilj-
ann út af þessu. „Að stjórnmála-
flokkur í lýðræðisríki skuli leyfa
sér þetta sýnir að einskis er svifist
á atkvæðaveiðum. Satt að segja
minnir þetta á vinnubrögð
stjórnmálaflokka í einræðisríkj-
um.“
Kristín Á. Ólafsdóttir, annar
maður á lista Alþýðubandalags-
ins í borgarstjórnarkosningunum
sagði að þetta væru ekkert nema
persónunjósnir af versta tagi.
„Flokkurinn fer með spurninga-
listann til þessara ungu kjósenda
og nær í hann aftur og auðvitað er
slíkt ekkert annað en siðleysi á
hæsta stigi."
—Sáf
Utankjörstaðaatkvœðagreiðsla
Kosningin
hefst
i dag
Kosið íArmúlaskóla íReykjavík. Alþýðubandalagið
með opna skrifstofu að Hverfisgötu 105. Sœvar
Geirdal, starfsmaður kosningaskrifstofunnar:
Hvetjumfólk til að kjósa tímanlega tilaðforðast
örtröð
Sævar Geirdal og Stefanía Traustadóttir á utankjörstaðaskrifstofu Alþýðubandalagsins: hvetjum alla þá sem ekki
verða heima á kjördag til að kjósa. Sérstaklega þurfa sjómenn að kjósa áður en þeir fara út. Ljósm. Sig.
Utankjörstaðaatkvæða-
greiðsla til bæjar- og sveitastjórn-
arkosninga hefst í dag, laugar-
daginn 10. maí. í Reykjavík er
kosið i Ármúlaskóla og hefst
kosningin kl. 14:00. Verður kjör-
staður opinn alla virka daga frá
kl. 10-12, 14-18 og 20-22. Sunnu-
daga og aðra helgidaga opnar
kjörstaður kl. 14 og er opinn til
kl. 18. Þá er einnig opið frá kl
20-22 á sunnudögum.
Utan Reykjavíkur fer utan-
Atvinnumál fatlaðra
Engin skipulögð leit
Fötluðu skólafólki boðin sumarvinna í Kópavogi á vernduðum vinnustað. Ekki íReykjavík
Lítil sem engin skipulagning
virðist vera í atvinnumálum
fatlaðs skólafólks í Reykjavík eins
og kom fram hér í blaðinu á
fímmtudag. Gunnar Helgason
forstöðumaður ráðningarskrif-
stofu borgarinnar sagði að til
þeirra lcituðu ekki margir fatlað-
ir en reynt væri að greiða fyrir
þeim sem þangað leituðu. Hann
sagðist ekki vita til þess að margir
hefðu þurft að fara bónleiðir frá
þeim. Aftur á móti væri engin
skipulögð leit að atvinnu fyrir
fatlaða.
Þjóðviljinn leitaði upplýsinga
um hvernig þessi mál stæðu í
Kópavogi og fékk þær upplýsing-
ar hjá Hrafni Sæmundssyni at-
vinnumálafulltrúa hjá Félags-
málastofnun Kópavogs að nú
væri mjög illa fötluðum í fyrsta
skipti boðið upp á sumarvinnu á
verndaða vinnustaðnum Örva. í
þessu sambandi hefur öllum
skólum í Reykjaneskjördæmi
verið send bréf þar sem leitað er
upplýsinga um fjölda þeirra fatl-
aðra sem áhuga hefðu á sumar-
starfi. Ing.
kjörstaðaatkvæðagreiðsla fram
hjá bæjarfógetum, sýslumönnum
og hreppstjórum. Erlendis er að
venju hægt að greiða atkvæði í
sendiráðum og í helstu ræðis-
mannaskrifstofum í Evrópu og í
Bandaríkjunum.
Alþýðubandalagið verður með
opna skrifstofu að Hverfisgötu
105 en þar starfa þau Sævar Geir-
dal og Stefanía Traustadóttir.
Sagði Sævar við blaðamann Þjóð-
viljans í gær að þau veittu allar
upplýsingar og aðstoð einsog t.d.
við kjörskrá og akstur á kjörstað
auk þess að aðstoða við að kæra
fólk inn á kjörskrá en kærufrestur
rennur út 16. maí.
Annarsstaðar á landinu er
hægt að leita aðstoðar á kosn-
ingaskrifstofum Alþýðubanda-
lagsins.
Sævar sagðist hvetja fólk til að
kjósa tímanlega til að forðast ör-
tröð á síðustu dögum, einnig væri
það vissara svo atkvæði bærust í
tæka tíð, en skrifstofan sér um
milligöngu um atkvæðasendingu
út á land. Þá er full ástæða til að
hvetja fólk, sem ekki verður
heima á kjördag, einsog t.d. sjó-
menn og ferðamenn, til að kjósa.
Símar á skrifstofunni eru 91/
12665 og 91/12571. —Sáf
Seyðisfjörður
Eyjar
Ékkert miðar
Enn hefur ekkert miðað í
samningsátt hjá sjúkraliðum í
Vestmannaeyjum en eins og
kunnugt er sögðu þeir upp störf-
um og hættu fyrsta maí þar eð
þeim er ekki greidd launauppbót
eins og hjúkrunarfræðingum er
greidd.
Á fundi sem haldinn var í fyrra-
dag þar sem voru samninganefnd
bæjarins, bæjarráð og fulltrúar
starfsmannafélags Vestmanna-
eyjabæjar sem er samningsaðili
sjúkraliða í sérkjarasamningum,
voru kjaramál sjúkraliða rædd en
engar niðurstöður fengust. Á
miðvikudaginn settu sjúkraliðar
fram gagntilboð en því hefur enn
ekki verið svarað.
Ing.
Tveir AB listar
G-listi Alþýðubandalagsins og S-listi alþýðubandalagsmanna og óháðra boðnir
fram
ASeyðisfirði urðu þau tíðindi í Ólöf Sigurðardóttir húsmóðir,
Albýðubandalaginu að ekki 10. Stefán Haukur Jónsson
Seyðisfírði urðu þau tíðindi í
Alþýðubandalaginu að ekki
náðist samstaða um einn lista til
bæjarstjórnarkosnina. Útkoman
varð sú að tveir listar tengdir
flokknum eru boðnir fram. Þessir
listar eru þannig skipaðir:
G-iisti Alþýðubandalagsins:
1. Hermann Vestri Guð-
mundsson verkamaður, 2. Mar-
grét Gunnlaugsdóttir hár-
greiðslukona, 3. Kolbeinn Agn-
arsson verkamaður, 4. Alfreð
Sigmarsson sjómaður, 5. Inga
Hrefna Sveinbjarnardóttir hús-
móðir, 6. Stefán Smári Magnús-
son verkamaður, 7. Guðborg Sig-
tryggsdóttir húsmóðir, 8. Snorri
Emilsson verkamaður, 9. Sigrún
verkamaður, 11. Sigurbjörn Sig-
tryggsson rafvirki, 12. Erla Páls-
dóttir verkakona, 13. Einar Ár-
mann Harðarson verkamaður,
14. Egill Sölvason sjómaður, 15.
Níels Atli Hjálmarsson rafvirki,
16. Einar Pálmi Ottesen verka-
maður, 17. Sveinhildur ís-
leifsdóttir húsmóðir, 18. Einar
Hjálmar Guðjónsson skáld.
S-listi Alþýðubandalagsmanna og
óháðra:
1. Þóra Guðmundsdóttir arki-
tekt, 2. Jón Halldór Guðmunds-
son gjaldkeri, 3. Jóhanna Gísla-
dóttir kennari, 4. Sigrún Ólafs-
dóttir hjúkrunarfræðingur, 5.
Einar Hilmarsson véistjóri, 6.
Stefán Pétur Jónsson verkamað-
ur, 7. Erla Blöndal skrifstofu-
maður, 8. Hilmar Sigurðsson
verkamaður, 9. Kristjana Bergs-
dóttir kennari, 10. Einar Jónsson
smiður, 11. Pétur Kristjánsson
kennari, 12. Karólína Þor-
steinsdóttir verslunarmaður, 13.
Hrafnhildur Gestsdóttir starfs-
maður, 14. Friðgeir Garðason
netagerðarmaður, 15., Árdís Sig-
urðardóttir húsmóðir, 16. Hrafn-
hildur Borgþórsdóttir verka-
kona, 17. Þórður Sigurðsson
verkamaður, 18. Elín Frímann
verkakona.
Sjá grein um framboðsmálin á
Seyðisfirði á bls. 16 í laugardags-
blaði.
Barnabœkur
Sveinn fékk
verðlaunin
Baltasar heiðraður fyrir
myndskreytingar, Njörð-
ur fyrir þýðingu
Sveinn Einarsson rithöfundur
og leiklistarmaður fékk á mið-
vikudag viðurkenningu Reykja-
víkurborgar fyrir bestu frum-
sömdu barnabókina árið 1985.
Borgarstjóri afhenti Sveini viður-
kenninguna í hófi að Höfða,
Njörður Njarðvík tók þar við
viðurkenningu fyrir bestu þýddu
bókina, og Baltasar fyrir bestu
myndskreytingarnar.
Sveinn var verðlaunaður fyrir
fyrstu barnabók sína, Gabríellu í
Portúgal og Baltasar fyrir myndir
sínar í þá bók. Þýðing Njarðar er
Jóakim eftir norska bamabóka-
höfundinn Tormod Haugen.
Laugardagur 10. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3