Þjóðviljinn - 28.06.1986, Blaðsíða 8
MENNING
NAIP-hópurinn
Hvað gerír
Ijósamaður?
Þaö er alltaf sérkennilegt, aö
sjá leikrit án þess að skilja orö
af því sem sagt er. Þó er ekki
þarmeð sagt, aö þaö sé
eitthvað verra en hitt - bara
öðruvísi. Maður gerir meira af
því aö viröa fyrir sér hlutina,
lætur augun renna yfir sviöiö
endrum og sinnum, án tillits til
þess hver er aö tala hverju
sinni.
Og það var sitthvað fyrir augað
í sýningu NAIP-hópsins. Leik-
myndin var einföld og snotur.
Málverkið af jöklunum, sem var í
bakgrunni, listilega vel gert og
ekki voru búningarnir síðri. Bak-
grunnurinn ásamt eldunum sem
loguðu á sviðinu og þessum fal-
legu selskinnsbúningum, setti fal-
legan svip á sýninguna og einkar
grænlenskan.
NAIP-leikhópurinn er eini
áhugaleikhópurinn á Grænlandi
og var stofnaður fyrir aðeins
tveim árum. Þau hafa enga til-
sögn hlotið; hafa engan leik-
stjóra; engar leikbókmenntir;
enga reynslu, hvorki af innlendu
né erlendu leikhúsi. Þau sögðu
meðal annars frá því í umræðum
eftir sýninguna, að við komuna
hingað hefðu þau verið spurð
hvort þau hefðu ljósamann. Þau
langaði mest að svara: „Hvað
gerir hann?“
Sýningin ber glögg merki
þessa, bæði leikgerðin og leikur-
inn. Engu að síður og raunar ein-
mitt þessvegna, er sýningin allrar
athygli verð. Leikhús þeirra á sér
afar óljósa fyrirmynd og því er
frásögnin einsog þeim þykir eðli-
legt að segja frá, engin tilgerð,
engar eftirapanir.
Til að mynda lá þeim ekkert á.
Þyrfti að skipta á sviðsmynd,
urðu áhorfendur bara að bíða og
gjarnan voru langar þagnir og
ekkert sérstakt að gerast á svið-
inu. Þessu eigum við ekki að
venjast, við sem erum í sífelldu
kapphlaupi við tímann og erum
orðin svo firrt af því vonlausa
hlaupi, að við þolum sjaldnast
aðgerðarleysi. En þetta er
Grænlendingunum tamt, því þeir
taka ekki þátt í þessu hlaupi.
Þegar svo ólík lífsviðhorf mæt-
ast; annarsvegar þeirra er sýna og
hinsvegar þeirra er sjá; reynir á
víðsýni áhorfandans. Hvort hann
getur sætt sig við og sett sig inní
menningu þeirra er sýna. Takist
honum það, fer hann af sýning-
unni dýrmætri reynslu ríkari.
Þó leikgerðin hafi verið frum-
stæð og hugmyndasnauð og
leikurinn einsog búast mátti við
af sjálfmenntuðum leikurum,
naut ég sýningarinnar vel. Eftir
hana velti ég lengi vöngum yfir
því, hvað okkur hefði áunnist við
að iðn- og tæknivæðast. Bera
saman veiðimannasamfélagið -
náttúruþjóðina, og nútíma iðn-
aðarsamfélag. Það eitt gaf mér
meir en margar aðrar sýningar
hafa.
Það þyrfti ekki sérfræðing -
bara strákhvolp einsog mig, til að
rakka þessa sýningu niður. En sá
sem gerði það, gæti allt eins út-
húðað nýfæddu barni fyrir það,
að kunna ekki að lesa. Þeir sem
bera umhyggju fyrir barninu,
sem NAIP er, vita hins vegar, að
með hjálp góðra manna, lærir
það fljótt að lesa.
Að lokum: Grænlendingar
hafa gert sér ferð til íslands með
leiksýningu og sýnt hana fyrir
fólk, sem hefur alla aðstöðu til að
kynna sér leikhús og leiklist. Fólk
sem hefur aðgang að námskeið-
um, getur farið í leikhús þegar því
hentar, og á kost á kennslu í
grunnskóla, í framhaldsskóla og í
háskóla.
í stuttu máli: Þeir komu til ís-
lands, stigu á stokk frammi fyrir
fólki, sem veit miklu meira en
þeir sjálfir um leikhús. Sögðu:
hér erum við; við kunnum lítið;
vitum nær ekkert; en samt ætlum
við að reyna að leika fyrir ykkur
og skömmumst okkar ekkert
fyrir það. Slíkt heimtar þor, slíkt
krefst áræðni og fyrir þennan
óvanalega kjark eiga Grænlend-
ingar sennilega meira lof skilið en
nokkur annar hópur er sýndi hér
á hátíðinni. -Hhjv.
100ARA AFMÆLI LANDSBANKAISLANDS OG ÍSLENSKRAR SEÐLAÚTGÁFU
LANDSBANKASÝNING
28.JÚM-20.JÚLÍ í SEÐLABANKAHÚSINU
rr
Itilefni 100 ára afmælis Landsbankans og
íslenskrar seðlaútgáfu hefur verið sett upp
vegleg sýning í nýja Seðlabankahúsinu við
Kalkofnsveg. Þarerm.a. rakin saga gjaldmiðils
á íslandi allt frá landnámsöld, fyrsta afgreiðsla
bankans endurbyggð, skyggnst inn í
framtíðarbankann, sýndar gamlar gullfallegar
vélar og fylgst með hvernig peningaseðill
verður til.
rr
sýningunni verða seldir sérstakir
minnispeningar og frímerki, þar er vegleg
verðlaunagetraun og léttur útibúaleikur
og daglega eru sýndar kvikmyndir um
Landsbankann og sögu íslenskrar seðla- og
myntútgáfu.
Þá eru einnig sýnd saman opinberlega í fyrsta
sinn málverk í eigu bankans eftir marga bestu
listmálara þjóðarinnar.
Veitingasala er á sýningunni og leiksvæði
fyrir börn.
ýningin er opin virka daga frá
kl. 16.00-22.00 og frá 14.00-22.00
um helgar.
Við hvetjum alla til þess að sjá þessa
stórskemmtilegu sýningu.
Aðgangur er ókeypis.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna 1100 ár