Þjóðviljinn - 28.06.1986, Síða 13
HEIMURINN
Nicaragua
Bandaríkjastjórn
braut alþjóðalög
Haag — Alþjóðadómstóllinn í
Haag úrskurðaði í gær að
Bandaríkjastjórn hefði brotið
alþjóðalög með aðstoð sinni
við svonefnda Contra skæru-
liða í Nicaragua og með því að
leggja tundurdufl í hafnir í Nic-
aragua.
Einnig samþykkti dómstóllinn
sem er ein af stofnunum Samein-
uðu þjóðanna, kröfu Nicaragua
um að Bandaríkjamenn þyrftu að
borga viðgerðakostnað og sagði
að upphæð kröfunnar yrði ákveð-
in síðar. Reagan stjórnin hefur
sniðgengið umfjöllun dómstóls-
ins og sagt að allur málatilbúning-
ur sé áróðursbragð. Segist stjórn-
in munu virða að vettugi úrskurð
dómstólsins.
Alþjóðadómstóllinn hefur
ekkert framkvæmdavald en úr-
skurðaður hans hefur mjög sjald-
an verið virtur að vettugi, m.a.
vegna þess að mál hafa oft verið
leyst með sáttagjörð deilandi
þjóða. Bandaríkjamenn lögðu
árið 1980 gíslamálið í íran fyrir
dómstólinn en íranir neituðu þá
kröfu dómstólsins um að gíslarnir
Haag — Æðstu leiðtogar að-
ildarþjóða Evrópubandalags-
ins samþykktu í gær ákveðnar
aðgerðir gegn stjórn S-Afríku
vegna neyðarástandslaganna
í landinu. Aðgerðirnar voru þó
fjarri kröfum nokkurra aðildar-
þjóða um efnahagslegar refsi-
aðgerðir.
Niðurstaðan var túlkuð á þann
veg að Margaret Thatcher og
Helmut Kohl hefðu haft vinning-
inn í deilunum um efnahagslegar
refsiaðgerðir. Leiðtogarnir sam-
yrðu látnir lausir.
Búist er við að úrskurður dóm-
stólsins nú komi Reaganstjórn-
inni mjög illa og styrki málstað
þeirra sem gagnrýna stefnu
Reaganstjórnarinnar gagnvart
Nicaragua. Sandinistastjórnin
lagði málið fyrir dómstólinn í apr-
íl, 1984 og sakaði Bandaríkja-
stjórn um að brjóta gegn
stofnsáttmálum Sameinuðu
þjóðanna og Samtaka Ameríku-
ríkja. Pá úrskurðaði dómstóllinn
einnig að Bandaríkjastjórn hefði
gerst brotleg með því að setja við-
skiptabann á Nicaragua og með
því að banna skipum þaðan að
koma í bandarískar hafnir. Með
þessum aðgerðum hefðu þeir
brotið alþjóðlega viðskiptasamn-
inga. Bandaríkjastjórn afneitaði
þeim samningi en dómstóllinn til-
kynnti að stjórnin hefði ekki gef-
ið þann eins árs fyrirvara sem
þarf til að afneita samningnum.
Nicaraguastjórn tilkynnti í
kjölfar samþykktar Fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings um 100
miljón dollara aðstoð við Contra
samtökin, að neyðarástandið
sem verið hefur í landinu yrði
þykktu að athuga þann inögu-
leika eftir þrjá mánuði. Margaret
Thatcher vildi hins vegar leggja á
það áherslu að samþykkt þeirra
tveggja bæri ekki að skilja á þann
veg að verið væri að setja S-
Afríkustjórn úrslitakosti.
Eftir þrjá mánuði verður sá
möguleiki kannaður að helstu
iðnaðarþjóðir heimsins setji
bann á nýjar fjárfestingar í S-
Afríku og innflutning kola járns,
stáls og gullpeninga frá S-Afríku.
Forsætisráðherra Hollands,
Ruud Lubbers sagði um
hert. Tilkynnti stjórnin að hún
hefði ákveðið stöðva útgáfu
stjórnarandstöðublaðsins La
Lundúnum — Það hefur verið
draumur bandaríska leikarans
samkomulagið: „Þetta eru ekki
skýr skilaboð til Pretoríu. Þau
setja að vísu þrýsting á S-
Afríkustjórn en beinast frekar að
því að hún sé að taka áhættu frek-
ar en að um áminningu sé að
ræða.“
Evrópubandalagið fordæmdi
neyðarástandslögin og krafðist
þess að Nelson Mandela, leiðtogi
Afríska þjóðarráðsins (ANC), og
aðrir pólitískir fangar verði látnir
lausir svo leið opnist til viðræðna
við blökkumenn.
Prensa. Gaf stjórnin þá skýringu
að allt yrði að gera til að öryggi
ríkisins yrði ekki stofnað í hættu.
Sam Wanamakers í ein 17 ár að
sjá hið forna Globe leikhús
meistara Shakespeare rísa á
ný þar sem það stóð í Lundún-
um áður fyrr. Sá draumur virð-
ist nú ætla að rætast.
Það er borgarstjórn í South-
wark hverfinu í Lundúnum sem
hefur verið andstæð þessum fyrir-
ætlunum í fjölda ára. Málið var
komið fyrir rétt en nú hefur verið
gert samkomulag utan dómssala
milli Globe sjóðsins sem Wana-
maker veitir forstöðu og stjórnar-
innar í Southwark. Wanamaker
fær nú að hefjast handa við eftir-
líkingu Globe Ieikhússins á
vinstri bakka Thames árinnar,
beint á móti dómkirkju heilags
Páls.
Wanamaker sagðist vonast til
að geta opnað leikhúsið með því
leikriti sem Shakespeare opnaði
sitt leikhús með, Hinrik fimmta,
árið 1599. Hann sagði ennfremur
að vinna við leikhúsið myndi
hefjast eins fljótt og mögulegt
væri, í því yrðu sæti fyrir 1000
manns og aðra 500 standandi.
0g þetta
gerðist
líka...
Róm — Bettino Craxi, forsætisráð-
herra Ítalíu, hefur afhent forseta ít-
alíu afsögn sína og stjómar sinn-
ar. Cossiga forseti hefur hins veg-
ar tekið sér frest til að ákveða
hvort hann samþykkir afsögnina
og Cossiga hefur beðið Craxi að
vera áfram við völd þar til hann
hefur tekið ákvörðun sína.
Jóhannesarborg — Stjórnvöld í S-
Afríku tilkynntu t gær að sex
manns hefðu látist í óeirðum í
hverfum svartra þann sólarhring.
Einn þeirra var lögregluþjónn sem
lést þegar handsprengju var kast-
að til hans.
Brioni, Júgóslavíu — Olíumálaráð-
herrar OPEC rikja ræddu í gær í
smáatriðum hvernig þeir skyldu
skipta olíuframleiðslunni á milli
sín og hvernig mögulegt væri að
hækka olíuverð.
París — Geimferðastofnun Evrópu
tilkynnti í gær að hún hefði ákveð-
ið að styðja tveggja miljarða doll-
ara áætlun Frakka um svokallaða
Hermes geimferjuáætlun. Stofn-
unin ákvað að bjóða aðildarþjóð-
um að taka þátt í lokaþætti
rannsóknanna.
Beirut — Miklir bardagar brutust út
í gærmorgun við flóttamannabúðir
Palestínuaraba og á götum í Vest-
ur Beirut þar sem Múhameðstrúar-
menn ráð» Þar með brugðust von-
ir manna að sinni um að samið yrði
um vopnahlé.
Washington — Bandaríska þingið
samþykkti í fyrrinótt ströng fjárlög
fyrir 1987 þar sem m.a. er dregið úr
framlögum til hermála, miðað við
það sem Reagan hafði farið fram á.
Þá var einnig dregið mjög úr fram-
lögum til ýmissa félagsmála.
Belgrad — Forsætisráðherra Júgó-
slavíu, Branko Mikulic, hét því á
þingi júgóslavneska kommúnista-
flokksins sem nú stendur yfir, að
snúa við þeirri þróun niður á við
sem verið hefur í efnahagsmálum
landsins. Lofaði hann m.a. að
minnka verðbólgu landsins um
fjórðung.
Madrid — Spænska lögreglan hef-
ur nú í haldi 25 ára gamlan mann
með spánskt vegabréf. Hún ætlar
að yfirheyra hann um sprenging-
una sem varð á Madrid flugvelli í
fyrradag.
Colombo — Junius Jayewardene,
forseti Sri Lanka hét því í gær að
binda endi á deilur sem verið hafa
milli þjóðflokka á eyjunni, jafnvel
þó skæruliðar aðskilnaðarsinna
Tamíla og stjórnarandstöðuflokk-
ar á eyjunni mótmæltu ráðstöfun-
unum.
s
Irland
Skilnaðarlögum hafnað
60 % kosningabœrra íra greiddu atkvœði gegn nýjum lögum um að leyfa skilnaði og eru
úrslitin talin áfallfyrirstjórn landsins ogforsætisráðherrann, Garrett Fitzgerald
Evrópubandalagið
Neyðarástand fordæmt
Leiðtogar aðildarþjóða Evrópubandalagsins náðu ekki samkomulagi
um efnahagslegar refsiaðgerðir gegn S-Afríku en fordœmaframferði
stjórnarinnar
Shakespeare
Globe leikhúsið
enduifcyggt
Undir mynd:
Garret Fitzgerrald,
forsætisráðherra
Ira. „Núverðum
viðaðhjálpaþeim
tugum þúsunda
sem búaviðupp-
lausn hjónabands.
Dyflinni — Forsætisráðherra ír-
lands, Garret Fitzgerald, varð
fyrir miklu pólitísku áfalli í gær
þegar Ijóst varð að írar höfðu í
þjóðaratkvæðagreiðslu neitað
að samþykkja löggjöf sem
hann hafði lagt fram um að
leyfa skilnaði í landinu.
Þegar talningu var svo til lokið
um miðjan dag í gær var ljóst að
60 % íra höfðu neitað að sam-
þykkja skilnaðarlögin. Hin nýju
lög kváðu á um að skilnaður væri
leyfilegur ef hjónaband hefði
ekki verið með eðlilegum hætti í
fimm ár. Tilraunir Fitzgeralds um
að færa írland að hlið annarra
Evrópuríkja, þar á meðal ka-
þólskra ríkja, hvað varðar skiln-
aði, hefur mistekist. Fréttaskýr-
endur á írlandi töldu líklegt að
þessi úrslit myndu hafa áhrif á
sambandið við N-írland þar sem
mótmælendur eru í meirihluta og
skilnaður er leyfilegur. Töldu
þeir jafnvel líklegt að framtíðar-
draumurinn um sameinað írland
væri nokkru fjær nú. Einnig er
sagt að úrslitin séu áfall fyrir
stjórnina sem barðist hart fyrir
því að löginn yrðu samþykkt.
Talsmenn hennar eru hins vegar
ekki á sama máli. Þeir sögðu í gær
að stjórnin hefði efnt það kosn-
ingaloforð sitt að leggja þetta mál
undir þjóðaratkvæði.
Michael Higgins, þingmaður
írska Verkamannaflokksins, en
sá flokkur er í stjórn nteð Fine
Gael, flokki forsætisráðherrans,
sagði að úrslitin sýndu að írum
væri vart treystandi fyrir velferð
minnihlutahópa í landinu. „Úr-
slitin sýna einnig djúpstæðan
ágreining milli þeirra sem trúa á
lýðveldið og þeirra sem vilja ríki
þar sem kirkjan ræður mestu.
Einn þingmaður sem barðist
einna mest fyrir að skilnaðir yrðu
leyfðir sakaði klerka um að nota
predikunarstólinn til að hræða
fólk til fylgis gegn lögunum.
Garret Fitzgerald, forsætisráð-
herra sem var á fundi leiðtoga
Evrópubandalagsríkja þegar úr-
slitin bárust, sagðist harma úrslit-
in en sagði að nú yrði að hjálpa
þeim 70.000 manns sem ættu um
sárt að binda vegna upplausnar í
hjónabandi. Hann sagðist ekki
hafa áhyggjur af fylgi stjórnar-
innar né sínu eigin. „Ég mun
leiða flokk minn í næstu kosning-
abaráttu og úr henni í nýja
stjórn,“ sagði Fitzgerald.
ERLENDAR
FRÉTTIR
hjörleifsson'R EUIER
Laugardagur 28. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13