Þjóðviljinn - 27.07.1986, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 27.07.1986, Qupperneq 20
Suður-Afríka Má giftast en ekki búa með Hvítur Suður-Afríkubúi var ný- lega dæmdur fyrir að búa með eiginkonu sinni sem er kynblend- ingur í íbúðarhverfi sem er ætlað hvítum. Honum var skipað að taka hafurtask sitt, konu og þrjú börn og flytja burt frá Maitland sem er í nágrenni Höfðaborgar. Eiginmaðurinn benti dómar- anum á að fasteignasalinn hefði sannfært hann um að Maitland væri grátt hverfi, þar sem blandað fólk mætti búa en dóm- arinn benti honum á að slík svæði væru ekki til samkvæmt stjórn- arskránni. í fyrra afnam ríkisstjórnin í S- Afríku lög sem banna hjónabönd milli kynþáttanna en aðrar reglur Aparheitstefnunnar eru enn í fullu gildi. „Áður mátti ég ekki giftast henni vegna laga sem bönnuðu hjónabönd einsog okkar,“ segir hinn ógæfusami eiginmaður. „Nú má ég giftast henni en ekki búa með henni.“ Laumað á skjáinn Áhorfendur Suður-afríkanska sjónvarpsins fengu fyrir tilviljun að heyra lag sem er á bannlista stjórnar hvíta minnihlutans. Sjónvarpsáhorfendur voru að horfa á bandaríska leynilögreglu- seríu, en í þessum þætti var lagið notað sem bakgrunnstónlist í fimm mínútur. Hér er um að ræða lagið Biko eftir enska söngvarann og lagasmiðinn Peter Gabriel og fjallar það um hvernig Steve Biko, hinn þekkti andstæð- ingur Apartheit-stefnunnar, lést í varðhaldi árið 1977. Opinber talsmaður sjónvarpsstöðvarinnar hefur héitið því að rannsókn verði látin fara fram. Blómin þagna Stærsti blómamarkaður heims, sem staðsettur er í Aalsmeer í Hollandi, heíur ákveöið að selja ekki lengur blóm frá Suður-Afríku. Að sögn talsmanna markaðar- ins er það ekki gert til að sýna pólitíska samstöðu með þel- dökka meírihlutanum í S-Afríku, heldur vegna ótta við mótmæla- aðgerðir andstæðinga Apartheit- stefnunnar. Ákvörðun þessi var tekin efir að andstæðingar Apart- heit kveiktu í bensínstöð sem hafði viðskipti við S-Afríku auk þess sem eignir ýmissa verslana, sem hafa viðskiptasambönd við S-Afríku hafa orðið fyrir skemm- dum. Markaðurinn selur árlega blóm fyrir um 2,5 miljarða króna, þar af hefur hlutdeild S-Afríku í sölunni verið rúmar 33 milljónir króna. lena*1 “íSlan9t - 'SÍSrrBiWöur gsgsss**" * Á leið til útlanda er gott að vita af verslun íslensks Markaðar í flug- höfninni í Keflavík. Þar er mikið vöruval, miðað við þarfir þeirra sem eru að byrja utanlandsferðina. Allskonar minjagripir, gjafavara og efni til afþreyingar. Ullar- og keramikvörur, margskonar landkynningarbækur, blöð og tímarit. íslensk matvara vekur líka síaukna athygli. Ostar og mjólkurvörur, lax og fjölbreyttar fiskafurðir. Hangikjöt og annað lambakjöt. Frá- gangur og pökkun á matvælum er eins og best verður á kosið. Þá er íslenska sælgætið vinsælt erlendis. Þetta er þægileg þjónusta, prófaðu bara næst þegar þú átt leið úr landi. - Þú getur greitt í íslenskum krónum eða með krítarkorti. ÍSUNSKUR MARKADUR FLUGHQFN KEFLAVIK Sími 92-2791

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.