Þjóðviljinn - 08.08.1986, Side 3
SUÐURLAND
í>aö var bjart yfir Skeiðunum
þegar við renndum í Hlað á
Hlemmiskeiði einn góðviðrisdag-
inn fyrir skömmu. Húsráðendur
stóðu á hlaðinu og bjuggust til að
heimta síðasta heyfenginn í hlöðu
en Ingólfur bóndi Bjarnason var
svo vinsamlegur að gefa blaða-
mönnum hlut í sínum dýrmæta
tíma um stund og bauð til stofu.
Við spurðum fyrst hvernig hey-
skapur hefði gengið í sumar:
„Hér á Skeiðunum hefur
sumarið verið gott og gjöfult og
heyfengur með besta móti. Maí-
mánuður var að vísu kaldur en
eftir að sumarið gekk í garð hefur
verið blíðviðri og kafspretta. Nú
eru bændur almennt að ná inn
síðustu heyjum og er þá ekki lið-
inn nema um það bil mánuður frá
því menn fóru að bera niður ljá.“
Á Hlemmiskeiði eru þrír bæir
þar sem búa fimm fjölskyldur.
Ingólfur og kona hans Kristín
Eiríksdóttir búa á Hlemmiskeiði
I og hafa gert það í 36 ár. Þau eru
með blandað bú; um 30
nautgripi, 100 fjár og svo hesta til
„Hins vegar er þessi kvóta-
skipting í landbúnaðinum ekki af
hinu góða. Ég vil, eins og raunar
flestir bændur, hafa stýringu á
framleiðslunni en að mínu mati
er þessi aðferð ekki rétt. í stað
þess að vera með svona flatan
niðurskurð hefði átt að fá bændur
á svæði eins og þessu til að ein-
beita sér að nautgriparæktinni en
láta öðrum, eins og t.d. í Þing-
eyjarsýslum eftir sauðfjárrækt-
ina. Hér eru lönd best fallin til
mjólkurframleiðslu auk þess sem
aðalmarkaðssvæðið er í seiling-
arfjarlægð. Kvótaskiptingin hef-
ur þýtt að á okkar svæði hefur
orðið um 20% rýrnun í mjólkur-
framleiðslu í júnímánuði í ár mið-
að við sama tíma í fyrra og það er
því fyrirsjáanlegur mjólkur-
skortur í þettbýlinu þegar dregur
að vetri. Auk þess skilst mér að
Mjólkurbú Flóamanna hafi ekk-
ert getað lagt til hliðar af mjólk til
framleiðslu á ýmsum geymsluaf-
urðum í vetur“.
Skeiðin eru blómleg sveit. Það
er hverjum manni ljóst sem ekur
þarum. Jarðhiti erþarvíða ogvið
Kristín Eiríksdóttir og Ingólfur Bjarnason með tvo uppáhaldsgæðingana Tvist og Glað. Ljósm.: Sig.
Litið við á Hlemmiskeiði I í Skeiðahreppi
Það vantar betri stýringu
Rætt við Ingólf bónda Bjarnason um fullvirðisrétt, heyskapartíð og viðhald vega
ánægjuauka í frístundum. Við
spurðum Ingólf hvernig þau
hefðu farið út úr kvótaskipting-
unni í mjólkurframleiðslunni.
„Við fórum tiltölulega illa út úr
þeim skollaleik. Ég nýtti mér
ekki fullvirðisréttinn á sínum
tíma og hef þvf orðið að skera
niður framleiðsluna um 17% en
hefði hins vegar viljað fá að
standa í stað. Margir bændur
framleiddu mun meira en þeir
höfðu átt rétt á og njóta þess í dag
með hærra marki. Það er nú einu
sinni svona að þeir löghlýðnu fá
refsinguna en hinir sleppa“.
spyrjum Ingólf hvort hann hiti
ekki sín húsakynni upp með jarð-
hitanum.
„Jú, það höfum við gert síðan
1949. Þá létum við bora hér en
þegar borinn var kominn á 80
metra dýpi festist hann og brotn-
aði. Þar er hann ennþá, en við
hefðum viljað komast eitthvað
yfir 100 metrana. Þetta varð til
þess að ekki var nægur hiti í hol-
unni til upphitunar á vetrum og
rættist ekki úr fyrr en við fengum
rafmagnið árið 1958. Þá gátum
við snerpt á vatninu þegar kaldast
var. Annars eru bæir hér í
Ekki var slegið slöku við heyskapinn þótt blaðasnápar gerðu tilraun til að tefja.
Inga Birna, dóttir Ingólfs og Kristínar fleygir böggum í hlöðu með aðstoð
vikapiltsins Björns Pálmarssonar. Ljósm.: Sig.
hreppnum óðum að fá heitt vatn
því borað var á Blesastöðum í
fyrra og er verið að tengja 14 bæi
við veituna"
Nú er búið að leggja slitlag á
þjóðveginn austur á Skeið og við
spurðum hvort ekki væri munur
að búa við svona góðan og rykfrí-
an veg.
„Jú, það er mikill munur og
vert að lofa það sem vel er gert.
Hins vegar eru stórir hlutar veg-
anna hér um slóðir órykbundnir
og eru þeir vægast sagt í hörm-
ungarástandi og Vegagerðinni
eða kannski frekar fjárveitinga-
valdinu til stórskammar.“
Ingólfur bóndi er farinn að ó-
kyrrast í stólnum enda blaða-
menn að tefja hann frá útiverkum
yfir hábjargræðistímann. Við
þökkum fyrir kaffisopann og
göngum með bónda út á hlað þar
sem ferðalangar kveðja hús-
bændur á Hlemmiskeiði I með
ósk um að sólin skíni þar til öll
hey hafa náðst í hlöðu. -v.
SMIÐSHÚS
Sumarhús - Heilsárshús
Ql BYGCINGAVÖRURl
Stórhöfða - sími 671100
Renndu við eða hafðu samband.
Föstudagur 8. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3