Þjóðviljinn - 08.08.1986, Side 5
SUÐURLAND
renna út og við hyggjum á flutn-
inga upp að Stóra-Ármóti hér
skammt fyrir ofan. Sú jörð var
gefin til starfsemi þessarar og
höfum við nú byggt þar fjós og
hlöður og stefnum á að flytja
nautgripina uppeftir með haust-
inu. Það er að vísu háð því að við
fáum úthlutað kvóta á þeirri jörð
og gerum við okkur vonir um að
það megi takast".
Að nýta fóðrið
sem best
Eins og áður sagði hafa tilraun-
amenn á síðustu árum einkum
fengist við fóðurtilraunir og hafa
rannsóknimar einkum beinst að
eiginleikum próteins í fóðri jórt-
urdýra og próteinfóðrun. Við
báðum Gunnar um að lýsa fyrir
leikmönnum hvernig þessar
rannsóknir færu fram.
„Nautgripir eru einkum fóð-
raðir á tvenns konar fóðri, gróf-
fóðri og kjarnfóðri. Mjög mikil-
vægt er fyrir okkur að vita hvaða
þættir valda mestu um nýtingu
fóðursins til afurðaframleiðslu. í
því skyni höfum við verið að
rannsaka próteinhluta fóðursins
og athugað hvers konar prótein
brotnar minnst niður í vömb
dýrsins, en aðeins sá hluti sem
ekki brotnar niður nýtist skepn-
unni til viðhalds og afurðafram-
leiðslu. Hversu stór hluti fóður-
próteinsins sleppur gegnum
vömbina óniðurbrotið ræðst m.a.
af eðliseiginleikum próteinsins,
fóðursamsetningunni og því
hversu flæði fóðursins er hratt
gegnum vömbina. Höfuðvand-
amál í próteinfóðrun jórturdýr-
anna er því að meta umfang
niðurbrotsins".
Tappinn stendur
í kúnni!
„ „Ýmsar aðferðir hafa verið not-
aðar við að mæla niðurbrot prót-
einsins í vömbinni en á síðustu
árum höfum við notast við eina
og tiltölulega fljótvirka aðferð.
Hér á býlinu erum við með tvær
kýr sem við höfum gert uppskurð
á þannig að við getum komið
pokum með fóðursýnum inn í
vömbina gegnum sérstakt gat á
belgnum. Þessi aðferð, sk. nylon-
pokaaðferð byggist á því að pok-
arnir með sýnunum eru látnir
vera í mislangan tíma inni í vömb
dýrsins. Pokarnir eru úr þétt-
riðnum dúk með gatastærðinni
35-45 míkron. Það þýðir að
vambarvökvinn og örverur í
vömbinni komast að fóðrinu, en
prótein þess sleppur ekki úr pok-
anum fyrr en örverurnar hafa
brotið það nógu smátt niður.“
Yfirburðir fiski-
mjöls
Að sögn Gunnars voru niður-
stöðurnar úr þessum tilraunum á
Laugardælum mjög athyglisverð-
ar. Þær sýndu í stuttu máli að
prótein í fiskimjöli brotnaði
minnst niður og tók hann sem
dæmi að einungis 30% þess hefðu
brotnað niður eftir 10 klukku-
stundir í vömb kýrinnar en að allt
að 80% af próteini í soyamjöli
hefði verið niðurbrotið á sama
tíma.
„Þessar tilraunir sýna okkur
kannski betur en margt annað
hvaða framtíð innlend fóður-
framleiðsla á fyrir sér. Prótein úr
jurtaríkinu hentar greinilega
mjög illa til framleiðslu fóðurs
handa gripum í mikilli fram-
leiðslu og fiskmjölið sem hráefni
er afar vel til slíkrar framleiðslu
fallið“.
Áhrifa farið að gæta
Rannsóknirnar á Laugardæl-
um voru fyrst kynntar á ráðu-
nautafundi árið 1984, en þær hóf-
ust ári áður.
„Ég hóf strax kynningarstarf á
meðal bænda eftir að niðurstöður
höfðu verið ræddar meðal sér-
fræðinga og má segja að áhri-
fanna af því starfi sé þegar farið
;östudagur 8. ágúst ÞJÓÐVILJINN - S(ÐA 5
Hórerþaðekkihnífurinnsemstenduríkúnniheldurtappinnlígegnumþettaop á vömb kýrinnar eru sýnispokarnir settir sem segir frá í meðfylgjandi viðtali.
Ljósm. Sig.
að gæta. Strax fyrsta árið mátti
sjá aukningu á sölu fóðurblanda
með fiskimjöl sem aðaluppistöðu
en hefðbundnu blöndurnar hafa
verið á undanhaldi. Innfluttar
blöndur með soyamjöli, sem
alltaf voru fluttar inn í talsverðu
magni eru nánast að hverfa“.
Það er greinilegt á máli Gunn-
ars Guðmundssonar tilrauna-
stjóra á Laugardælum að þar eru
menn að sýsla eitt og annað sem
kemur íslenskri bændastétt og
þjóðinni allri til góða. Það eru
ekki aðeins þeir 1200 virku bænd-
ur í Búnaðarsambandi Suður-
lands sem hafa hag af þessum
rannsóknum og öðrum sem á
eftir koma, heldur bændastéttin
öll og neytendur landbúnaðaraf-
urða einnig.
Blaðamenn Þjóðviljans héldu
áfram ferð sinni með þeim heit-
strengingum að líta betur á til-
raunastarf Búnaðarsambandsins
og RALA þegar það hefur komið
sér fyrir í glæsilegum húsakynn-
um að Stóra-Ármóti.
-v.
GANGSTÉTTARHELLUR
VINNUHÆL® LITLA-HRAUNI, SÖLUSÍMI99-3104 SÖLUAÐILI í REYKJAVÍK: J.L. BYGGINGAVÖRUR
ÓDÝRAR OG STERKAR
SLÉTT YFIRBORÐ
SENDUM HEIM
GOTTVERÐ
HAGSTÆÐ KJÖR
MAGNAFSLÁTTUR
FYRIRBÍLAPLÖN
FYRIRGANGSTÍGA
40x40
20x40
DÆMI
SEM VERT ER AÐ ATHUGA
í HÚSGAGNADEILDJ|H
15°/<
-HUSSINS
STAÐGREIÐSLU-
O AFSLÁTTUR
Dæmil:
Húsgagnakaup fyrir kr. 25.000, kr. 5000 út og kr.
5000 pr. mánuð í 4 mánuði. VAXTALAUST.
Dæmi2:
Húsgagnakaup fyrir kr. 50.000, kr. 10.000 út og
kr. 10.000 pr. mánuð í 4 mánuði. VAXTALAUST.
r
SERSTAKT SUMARTILBOÐ
Engir vextir í 4 mánuði
Ath. Aðeins í húsgagnadeild
Opið mánud.-fimmtud. 9-18.30 - föstudaga kl. 9-20
ATH. Einnig sknldabréf í allt að 8 mánuði með
20% útborgun.
JIK
KORT
Ji
Jón Loftsson hf.
— L i ^ lH kllJfDQJD'
WS4
Hringbraut 121 Sími 10600
Lokað á laugardögum í sumax.
Húsgagnadeild - Sími 28601