Þjóðviljinn - 08.08.1986, Síða 9
SUÐURLAND
Skrýna piltanna sem urðu úti á Mælifellssandi árið 1868. Þórður setti fjalirnar
saman sem þá höfðu legið úti á sandinum í eina öld. Ljósm. Sig.
við tókum í notkun árið 1954,“
segir Þórður og sýnir okkur með
stolti áttæringinn alkunna.
Skrínan góða
Við göngum með safnverði um
húsakynni og einnig utan dyra.
Þar hafa á síðustu árum verið að
rísa hús sem hvert með sínum
hætti leiða nútímamanninn í allan
sannleika um hvernig húsakynni
forfeðra hans voru að allri gerð.
Fyrir utan sjálft safnahúsið eru
þar 7 gömul torfhús og eitt allveg-
legt timburhús. Dálítill vísir að
hverfi, eins og Þórður kemst hó-
gværlega að orði. Um er að ræða
gamlan bæ sem myndaður er úr
einstökum húsum frá ýmsum
stöðum en nýjasta húsið, endur-
reist árið 1984, er skemma frá
Gröf í Skaftártungu, en hún var
byggð árið 1840.
Árið 1868 urðu fjórir menn úti
á Mælifellssandi, en þeir voru á
leið í ver. Einn þeirra var Þorlák-
ur Jónsson frá Gröf í Skaftár-
tungu. Lík mannanna fundust
ekki fyrr en 10 árum síðar. 100
árum eftir þennan vofveiflega at-
burð á Mælifellssandi hafði Er-
lingur Filippusson grasalæknir
frumkvæði að því að menjar þar á
sandinum yrðu hirtar og annaðist
Árni Halldórsson lögfræðingur
það verk. Og við gefum Þórði
orðið:
„Árni kom hingað til mín með
ýmsa muni af sandinum, m.a.
hálfan karlmannsjakka úr vað-
máli og hálft smjörstykki, illa
lyktandi. En hann kom með
fleira. Þar á meðal voru fjalir úr
skrínu sem mennirnir höfðu haft
meðferðis. Þær setti ég saman og
hér höfum við skrínuna góðu til
minningar um þennan hörmung-
aratburð,“ segir Þórður um leið
og hann ber gripinn út fyrir vegg
til myndatöku.
Þórður Tómasson sýnir blaðamönnum verklag fyrri tíma. Ljósm. Sig.
Sýslumannshúsið
Efst í brekkunni fyrir ofan
Byggðasafnið gefur að líta reisu-
legt timburhús. Það er frá árinu
1878, reist að Holti á Síðu af
Árna Gíslasyni sýslumanni á
Kirk jubæj arklaustri.
„Sýslumaður reisti þetta hús af
myndarskap í Holti en þar hafði
hann nokkurn rekstur. Húsið er
þiljað innan með viði úr möstrun-
um á St. Pauli, frönsku spítala-
skipi sem strandaði á Meðal-
landsfjöru undir lok síðustu
aldar. Þetta hús hefur verið vand-
að að allri gerð, endá talinn hæfi-
legur mannabústaður í 98 ár því
þar var búið allt fram til ársins
1976. Þar bjuggu síðast 3 kyn-
slóðir sömu ættar, síðast Siggeir
Björnsson í Holti og á undan
honum faðir hans og afi“.
Mörgu bjargað
Þórður Tómasson í Skógum er
einn þeirra manna sem hafa lagt
fram ómetanlegan skerf til varð-
veislu íslenskrar menningar með
starfi sínu. Ef ekki hefði verið
fyrir tilverknað hans og annarra
líkra, sem hófust handa fyrir 30-
40 árum væri stærstur hluti minja
frá síðustu öldum orðinn möl og
ryði að bráð.
„Það sem ýtti á okkur hér
eystra að hefjast handa um 1950
að safna saman áhöldum og öðr-
um munum úr menningar- og
atvinnusögu okkar var einmitt sú
staðreynd að flest af þeim lá
undir skemmdum. Hins vegar er
enn margt ógert og draumur
minn einn er sá að fá að taka nið-
ur fjósbaðstofu á Heiðarseli á
Síðu og endurreisa hér að
Skógum," segir hinn síungi bar-
áttumaður Þórður Tómasson um
leið og við kveðjumst. -v.
SEBRA
Rúmdýnur eftir máli.
Þú dregur línurnar
við vinnum úr þeim
Póstkröf u þjón usta
RAÐSETT
RAÐSETT eru sófasett sem hægt er að raða
upp á óteljandi vegu. Hér að ofan eru aðeins tvö
dæmi af mýmörgum.
heimalist
Síöumúla 23 — sími 91-84131.
t