Þjóðviljinn - 08.08.1986, Page 11

Þjóðviljinn - 08.08.1986, Page 11
SUÐURLANP HVERABRAUÐ Rúgbrauð seytt (hveragufu MUELLER lEXJROFA B. Vj MJÓLKURKÆLITANKAR Flestar stærðir fyrirliggjandi á mjög hagstæðu verði. BÆNDUR Á OC ALFA-LAVAL MJALTAKERFUM Vekjum athygli á tilboði okkar Um 150 bændur hafa nú notið sérstakrar fyrirgreiðslu með endurbætur á mjaltabúnaði undanfarna mánuði ' T “r — TJ1 Hella á Rangárvöllum Á \\\ \’ \ \ V * V v KJARNA-RUGBRAUÐ VÉLBÚNAÐUR I FÓÐRUN OG HIRÐINGU Sumarhús á bökkum Rangár Verslun Gunnars Ólafssonar Vestmannaeyjum, Vilberg kökuhús Vestmannaeyjum, Garðakaup Garðabæ Matvöruverslun Olís, Hveragerði, Höfn, Selfossi, verslunin Hildur, Þorlákshöfn, Hagkaup, Reykjavík, Njarðvík, HAGKAUP AKUREYRI, Kron Eddufelli, Kron Skemmuvegi, Fjarðarkaup Hafnar firði. Mikliaarður. ALLT FRÁ SPENA OG ÚT í TANK FLÓRSKÖFUKERFIN hafa létt mörgum bóndanum verkin. BUNADARDEILD ÁRMULA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900 OG KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT Rabbað við Jón Óskarsson hjá Mosfelli s/f á Hellu sem rekur umfangsmikla gistiþjónustu á grösugum bökkum Rangár Kjarnfóðurvagn HJÓLKVÍSLAR VOTHEYSVAGNAR Jón Óskarsson við sumarhúsin á Hellu: Okkar gestir hafa mest verið útlendir en hlutur landans fer vaxandi. Ljósm.: Sig. Hella á Rangárvöllum er ekki gamall byggðarkjarni. Uppruna byggðarinnar má rekja til þess er Þorsteinn Bjömsson hóf þar rekstur verslunar fyrir bændur árið 1927. Smám saman þróaðist þar vísir að kauptúni og á síðustu árum hefur uppgangur þar verið mikill. Þjónusta við ferðamenn setur orðið mjög svip sinn á atvinnulff sunnlendinga. Ekki einasta þeirra sem búa þar í þéttbýlinu heldur og bændanna, en sem kunnugt er veitir Ferðaþjónusta bænda hvers konar þjónustu á bæjum víða um Suðurland og raunar aðra landshluta einnig. Hella er engin undantekning í þessu efni. Þar hefur fyrirtækið Mosfell boðið upp á gistiaðstöðu í mörg ár og verið að færa út kví- arnar að undanförnu. Jón Óskarsson, annar eigenda Mosfells s/f sagði í samtali við blaðamenn að þeir félagar hefðu lengi starfrækt gistihús inni í þorpinu, en þar eru 20 herbergi. „Með auknum ferðamanna- straumi varð okkur ljóst að eftir- spurninni yrði að svara með ein- hverjum hætti og þess vegna réð- umst við í að reisa sumarhús hér á eystri bakka Rangár. Reksturinn hefur gengið með ágætum, sem sýnir að mat okkar á þörfinni var rétt,“ sagði Jón. Sumarhús Mosfells, 13 að tölu, blasa við þegar ekið er austur yfir Rangárbrú, til hægri handar. Um er að ræða þrjú 10 fermetra hús með 4 rúmstæðum. í þeim er raf- magn og hitaplata til eldunar. Sólarhrings vist þar kostar 1200 kr. Þá er að finna sex 17 fermetra hús þar sem 6 ferðalangar geta sem hægast hvílst og þar er að finna heitt og kalt vatn ásamt sal- erni. Þar kostar sólarhringsvist 1980 kr. Loks bjóða þeir Mos- fellsmenn upp á fjögur 27 fer- metra hús með tveimur 3ja manna herbergjum. Hafa þau öll framantalin þægindi en sturtu að auki. Þar kostar vistin 2990 kr. „Við byrjuðum með sumar- húsin fyrir þremur árum og höf- um verið að bæta þar aðstöðuna síðan. Auk húsanna er þar að finna þjónustuhús, lítið eldhús, þvottaaðstöðu, salerni og mat- skála þar sem hægt er að taka á móti hópum í einu. Langflestir gestir okkar hafa verið útlending- ar, hvernig sem á því stendur, en hlutur íslendinga fer þó vax- andi,“ sagði Jón Óskarsson að lokum. Hótelstjóri gistiaðstöðunnar hjá Mosfelli s/f heitir Guðrún Hálfdánardóttir, en meðeigandi Jóns heitir Einar Kristinsson. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.