Þjóðviljinn - 08.08.1986, Síða 12
Mannlíf á Klaustri
Jafnvel fagurt
í rigningu
Hús tekin á Margréti ísleifsdóttur hótelstýru á
Kirkjubæjarklaustri sem rekur 56 herbergja hótel á 4 stöðum
Mér finnst það táknrænt fyrir
veðursældina hér á Klaustri sem
kona ein sagði við mig á dögun-
um: „Jafnvel þótt hann rigni er
hér alltaf gott veður“.
Þetta sagði hótelstýran á Hótel
Eddu á Kirkjubæjarklaustri,
Margrét ísleifsdóttir í samtali við
blaðamenn Þjóðviljans er þeir
tóku hús á henni í síðustu viku.
Og við getum svo sannarlega
tekið undir með Margréti því
þrátt fyrir rigningarsudda var fag-
urt um að litast í byggðakjarnan-
um græna undir Systrafossi.
Hótel allt árið
Við spurðum Margréti hvenær
hún hefði gerst hótelhaldari á
Kirkj ubæj arklaustri.
„Það mun hafa verið árið 1974
og hef ég verið hér síðan utan
sfðastliðið ár er við tókum að
okkur stjórn hótelsins í
Reykholti," sagði Margrét. Hún
kvað nýtinguna á Hótel Eddu
hafa verið mjög góða í sumar,
raunar 100%, „enda er Klaustur
sérstaklega vel í sveit sett sem án-
ingarstaður ferðamanna“. Frá
Klaustri er ágæt dagleið til
Reykjavíkur og álíka Iangt að
fara til Hafnar í Hornafirði í au-
stri.
„Hér rekum við hótel allt árið
enda þótt umsvifin séu auðvitað
mest yfir sumartímann. Hótel
Edda er rekstraraðili hótelsins
sem starfrækt er á nokkrum stöð-
um hér í byggðakjarnanum. Þar
er fyrst að telja 18 herbergi í
Kirkjubæjarskólanum, þá 11 her-
bergi í gamla hótelinu, sem ný-
lega hefur verið endurbætt, 22
herbergi eru í tveimur húsum hér
austan við skólann og loks rekum
við einnig gistiaðstöðu í einbýlis-
húsi hér ofan við. Samtals starf-
rækjum við því hótelið í 56 her-
bergjum á fjórum stöðum,“ sagði
Margrét hótelstýra.
Margt að sjá
Margrét var spurð hvaða staðir
teldust áhugaverðir fyrir ferða-
menn að skoða á Klaustri og í
grennd.
„Þeir eru ótal margir. Ætli flest-
ir fari ekki að skoða Lakana, en
þangað er 46 km leið frá þjóðveg-
inum hér skammt fyrir vestan. Þá
er ekki löng leið í fegurð þjóð-
garðsins í Skaftafelli. Fleira
mætti nefna hér á heimaslóðum:
Kirkjugólfið, Systrastapa,
Núpsstaðarskóg eða þá Sandinn
þar sem menn finna fyrir smæð
sinni. Síðast en ekki síst langar
mig að minnast á Fjaðrárgljúfur,
sem samnefnd á hefur sorfið í
bergið og er náttúrufegurð þar
með eindæmum."
Margt til staðar
Þótt byggðakjarninn á Kirkju-
bæjarklaustri sé ekki stór er þar
að finna margháttaða atvinnu-
starfsemi, sem fyrst og fremst
þjónar sveitunum í kring og ört
vaxandi ferðamannastraumi. Þar
er að finna Kirkjubæjarskóla,
sem rekinn er af Kirkjubæjar-
hreppi, Hörgslandshreppi,
Leiðvallahreppi í Meðallandi,
Skaftártunguhreppi og Álftaveri.
Kaupfélag Austur Skaftfellinga
rekut þar verslanir. Þar er að
finna hlið við hlið í sama húsi
Búnaðarbanka og Samvinnu-
banka. Heilsugæslustöð er á
Klaustri, félagsheimili, bifreiða-
verkstæði, trésmíðaverkstæði,
hárgreiðslustofa, saumastofa,
pósthús og símstöð, sláturhús,
elliheimili, dagheimili, heilsu-
ræktarstöð, mínigolf og dýra-
læknir!
Margrét ísleifsdóttir hótelstýra á Klaustri ásamt dóttur sinni Sif Steinþórsdóttur.
Ljósm.: Sig.
Okkur verður tíðrætt um
skóginn fyrir ofan byggðina sem
teygir sig hátt upp í hlíðar og ekki
síður uppgróinn sandinn austur
af byggðinni.
„Siggeir Lárusson, einn hinna
ágætu Klausturbræðra, sem ný-
lega er látinn, var eins og fjöl-
skyldan öll mikill áhugamaður
um ræktun skógar og uppgræðslu
sandanna. Hann og bræður hans
gróðursettu fyrstu trén upp með
Systrafossi og í áranna rás hefur
gróðurinn teygt sig út með hlíð-
inni. Siggeir mun einnig hafa
veitt ánni Stjórn hér austur á
sandana og hefur það m.a. orðið
til þess að þeir eru óðum að gróa
upp.
Landgræðsla ríkisins hefur á
síðustu árum sáð og borið á þetta
svæði sem hefur svo verið nýtt af
bændunum hér í kring“.
Uppgangur
í plássinu
Þegar ekið er að Kirkjubæjar-
klaustri vekur athygli stór og
mikil þyrping nýbyggðra húsa
austur frá gamla Kirkjubænum.
„Á síðustu árum hefur verið tal-
sverður uppgangur hér á Klaustri
enda ferðamannastraumur aukist
á sumrum. Því miður hefur ekki
tekist að halda fullum dampi hér
á vetrum sem er synd því þetta
svæði er ekki síður skemmtilegt
heim að sækja þegar Vetur kon-
ungur hefur tekið völdin,“ sagði
Margrét ísleifsdóttir hótelstýra á
Kirkjubæjarklaustri að síðustu.
-v.
VIÐ KYNNUM
NÝJA BLÁA BORÐANN
Annað eins smjörlíki hefur þú
aldrei bragðað. Stórkostlegt til
steikingar - bragðgott á brauðið,
Við hlökkum til að heyra þitt álit.
□ smjörlíki hf.