Þjóðviljinn - 07.10.1986, Blaðsíða 3
„Bandalag“
„jafnaðarmanna“
Kristín til
íhaldsins
Kristín S. Kvaran, þingmaður
BJ í Reykjavík, er gengin í
Sjálfstæðisflokinn og mun á
næsta þingi vinna í samstarfi við
þann þingflokk. Hún heldur þó
formlegri stöðu sem þingmaður
utan þingflokka vegna þeirra
starfsreglna hjá Sjálfstæðis-
mönnum að í þingflokki þeirra
sitji aðeins þeir sem kjörnir eru á
þing af listum flokksins. Eftir
þessar yfirlýsingar Kristlnar á
Lionsfundi á föstudagskvöldið
situr enginn á þingi fyrir Banda-
lag jafnaðarmanna.
Kristín sagði við Þjóðviljann í
gær að hún hefði tekið þessa
ákvörðun fyrir löngu og verið
búin að ræða við forystumenn
Sjálfstæðisflokksins. Hún hefði
ekki ætlað að gera stuðning sinn
við Sjálfstæðisflokkinn opinber-
an fyrren eftir að kjörtímabilið
rynni út, en í ljósi nýlegra at-
burða í þingflokki BJ talið rétt að
tilkynna þetta nú. „Ég varð vör
við að ýmsir Bandalagsmenn
töldu sjálfgefið að ég væri nú eini
þingmaður BJ, - en það Banda-
lag jafnaðarmanna sem ég gekk
til liðs við er löngu farið veg allrar
veraldar."
Kristín sagði meginástæðu á-
kvörðunar sinnar þá að Sjálf-
stæðisflokkurinn væri sá flokkur
sem hefði styrk til að rétta við
íslenskt efnahagslíf, sem væri
grundvöllur fyrir bættum lífskjör-
um. Aðspurð um hvort hún væri
hérmeð orðinn einn af stuðnings-
mönnum nkisstjórnarinnar á al-
þingi sagði Kristín: „Ég reikna
með því, þarsem ég kem til með
að vinna í fullu samstarfi við þing-
flokk Sjálfstæðismanna.“
Telurðu þessa ákvörðun þína í
samræmi við grundvöll BJ einsog
það var þegar þú gekkst þar til
liðs?
„Innan Sjálfstæðisflokksins er
margt fólk, og skoðanir þar á
breiðum grundvelli. Ég tel ekki
ólíklegt að þar megi finna sam-
svörun við málefni Bandalags
jafnaðarmanna. En ég vek at-
hygli á að með þessu er ég ekki a
halda því fram að BJ sé Sjálfstæð-
isflokkurinn eða öfugt, svipað og
þeir gera sem nú er gengnir í Al-
þýðuflokkinn. Hér ræður fyrst og
fremst mín sannfæring og sam-
viska.“
Kristín hyggur ekki á framboð í
næstu kosningum. - m
FRETTIR
Fiskmarkaður
Skýrsla til ráðherra í dag
Stjórnskipuð nefnd sem hefur
undanfarna mánuði kannað
möguleika á því að koma á fót
fískmarkaði hérlendis mun í dag
skila skýrslu sinni til sjávarút-
vegsráðherra. Nefndin, sem í eiga
sæti aðilar frá öllum hagsmuna-
aðilum sjávarútvegs, mælir með
því að komið verði upp tilraun-
amarkaði á Faxaflóasvæðinu og
beina nefndarmenn augum sínum
fyrst og fremst að Hafnarfirði og
Reykjavík.
Samkvæmt upplýsingum Þjóð-
viljans hyggjast nefndarmenn
boða síðar í mánuðinum til stofn-
fundar félags áhugamanna um
rekstur fiskmarkaðar og er gert
ráð fyrir að bæði fyrirtæki, opin-
berir aðilar og einstaklingar geti
gerst aðilar að slíku félagi. Slíkt
félag myndi síðan ákveða stað-
setningu fyrsta fiskmarkaðarins.
Talið er víst að takist vel til um
rekstur og framkvæmd þessa til-
raunamarkaðar muni fleiri slíkir
fiskmarkaðir rísa bæði á Faxafló-
asvæðinu og víðar um land á
næstu átum.
Hafnarstjórnir Hafnarfjarðar
og Reykjavíkur hafa sýnt því
mikinn áhuga að fá fiskmarkað til
sín. Reykvíkingar hafa boðið
Bakkaskemmurnar við Granda
undir slíkan markað og
Hafnfirðingar eru með í undir-
búningi byggingu sérstaks húss
við suðurhöfnina undir slíkan
markað. Þá hafa hafnaryfirvöld í
Sandgerði sýnt því áhuga að þar
verði komið upp fiskmarkaði.
-lg-
Niels W. Vogensen: Ætlum að kynna grænlenska list og þjóð í og utan Grænlands og norræna list á Grænlandi. Mynd: Sig.
Grœnland
Bæjarstjorinn kann íslensku
NielsW. Vogensen: Ferðumstmeð sýningar ogfyrirlestra ámilli byggða
Mikill áhugi er á Islandi meðal
Suður-Grænlendinga. Þetta
kom fram á blaðamannafundi í
Norræna húsinu í gær. Þar var
staddur Niels W. Vogensen for-
stjóri norrænu stofnunarinnar,
„Nordens Institut i Grönland“.
Hún vinnur í nánu samstarfí við
Norðurlandaráðið, og var stofn-
uð í ár. Aðalstarf hennar er fólgið
í því að kynna grænlenska list og
þjóðlíf í og utau Grænlands, og að
kynna norræna list á Grænlandi.
T
Ákveðið hefur verið að byggja
ekki norrænt hús á Grænlandi,
heldur að ferðast með sýningar
og fyrirlestra á milli byggða. Er
það fyrst og fremst vegna þess að
Grænland er svo stórt og erfitt að
ferðast á milli. f Nuuk höfuðstað
Grænlands, býr ekki nema
fimmti hluti grænlensku þjóðar-
innar, og af þeim er bara helm-
ingur Grænlendingar. í flest
öllum stærri byggðum landsins
eru samkomuhús, þar sem má
halda málverkasýningar og ýmis-
skonar kynningar á list, svo
auðvelt ætti að verða að ná til alls
fólksins.
í Qaqortoq á Suður-Grænlandi
er hús þar sem listamenn geta
unnið og haldið sýningar á verk-
um sínum. Geta þeir þá sótt um
styrk til þess. Einnig blaðamenn
sem hefðu áhuga á að kynnast
Grænlandi og skrifa um það.
Geta þeir þá haft samband við
Nordens Institut i Grönland, Box
770, DK 390 Nuuk. Tlf. 009 299 2
47 33. Geta má þess til
skemmtunar að í bæ þessum
Qaqortoq talar bæjarstjórinn ís-
lensku, og einnig vinna þar
nokkrir íslendingar.
í Nuuk er vísir að háskóla og er
þar hægt að taka tvö ár í svokall-
aði Eskimologi, en ljúka þarf því
námi í Danmörku. í Grænlandi
er farið að hanna föt úr selskinni
og eru þar starfræktar tvær verks-
miðjur, og í þeim vinna nokkrir
íslenskir sútunarfræðingar.
- PAV.
Alþýðuflokkur
Jón efast um A-samstarf
Jón Baldvin
Þessa þings verður væntanlega
minnst í sögunni fyrst og
fremst fyrir það að það staðfesti
samrunann við Bandalag jafnað-
armanna, sagði Jón Baldvin
Hannibalsson Alþýðuflokksfor-
maður í samtali við Þjóðviljann
að afstöðnu afmælisþinginu í
Hveragerði. - Þeir létu talsvert að
sér kveða á þinginu og settu sinn
svip á ályktanirnar.
- Þetta er einnig fjölmennasta
þing sem við höfum haldið, og
það hefur aldrei verið jafn fjöl-
mennt lið kvenna á nokkru þingi.
Af þingmálum sagði Jón Bald-
vin gnæfa uppúr tillögur um nýtt
skattakerfi og einn lífeyrissjóð
fyrir alla landsmenn, og nefndi
einnig tillögur um húsnæðismál
og um fylkjaskipun með þriðja
stjórnsýslustiginu. Þá hefðu verið
: Ágreiningur við Alþýðubandalagið ílandsmálum. Tillögur um skatta og
merkust mála á þinginu í Hveragerði
samþykktar ítarlegar tillögur um af stærstu málunum eru tillögur
kjaramál og um utanríkismál. okkar um skattakerfi, og það hef-
Möguleikar Alþýðuflokksins ur valdið okkur vonbrigðum að
lífeyrissjóð
eru miklir að loknu þessu þingi,
sagði Jón Baldvin. Innganga BJ-
manna markar þáttaskil sem ekki
er rétt að vanmeta. Ég tel að
flokkurinn hafi raunhæfa mögu-
leika á að bæta verulega við sig
fylgi frá sveitarstjórnarkosning-
unum.
Ásmundur Stefánsson lýsti því
yfir í ávarpi sínu á þinginu að Al-
þýðuflokkur og Alþýðubandalag
ættu að starfa saman að því að ná
sameiginlegum meirihluta á
þingi. Þitt álit?
- Samstarf við aðra flokka var
ekki meðal viðfangsefna á þing-
inu. Við höfum hinsvegar lagt
mikla vinnu í að marka Alþýðu-
flokknum umbótastefnu, og í
ljósi þeirrar stefnu verður að at-
huga samstarfsmöguleikana. Eitt
Alþýðubandalagsmenn hafa lítt
tekið undir við okkur um kjarn-
ann í þeim tillögum.
- Alþýðubandalagsmenn hafa
heldur ekki samþykkt tillögur
okkar um húsnæðismál, nema
Alþýðubandalagsmenn í forystu
verkalýðshreyfingarinnar. Þriðja
stóra málið er einn lífeyrissjóður.
Margir af forystumönnum verka-
lýðshreyfingarinnar, sem eru í
forsvari fyrir þessa tæplega
hundrað sjóði sem nú eru til, hafa
andæft, þar á meðal menn úr
okkar eigin röðum. Það er spurn-
ing hvort samstaða næðist um
það mál, á það leggjum við gífur-
lega áherslu.
- Fjórða málið er valdatil-
færsla til landsbyggðarinnar.
Hjörleifur Guttormsson hefur
flutt tillögur á þingi sem ganga í
okkar átt, en tók þá fram að það
væri ekki flokksstefna Alþýðu-
bandalagsins. f landbúnaðarmál-
um viljum við stokka upp en þar
hefur mér virst Alþýðubanda-
lagsmenn verja kerfið, að
minnsta kosti landsbyggðarþing-
mennirnir, - en forystumenn í
verkalýðshreyfingunni hafa tekið
undir okkar sjónarmið, til dæmis
Ásmundur. Nefna má sjávarút-
vegsmál, þar sem við teljum nú-
verandi kerfi á fiskverði ónýtt og
viljum fiskmarkaði, undir þá
stefnu hafa Alþýðubandalags-
menn ekki tekið, og ekki heldur
að brjóta niður einokunina á út-
flutningi. í almennum efna-
hagsmálum erum við andvígir of
mikilli beinni íhlutun ríkisins, en
Alþýðubandalagið hefur fyrir
einhvern sögulegan misskilning
kennt þá stefnu við frjálshyggju,
sem er að mínu viti alrangt. Og
um utanríkismál eru verulega
skiptar skoðanir milli flokkanna.
- Mínar niðurstöður eru þær,
sagði Jón Baldvin, - að málefna-
samstaða okkar við Alþýðu-
bandalagsmenh í verkalýðshreyf-
ingunni sé meiri en við Alþýðu-
bandalagið í heild. Við höfum
sýnt augljósan vilja til að vinna
með Alþýðubandalagsmönnum
innan verkalýðshreyfingarinnar,
og höfum átt auðvelt með sam-
starf við Alþýðubandalagið í
sveitarstjórnum, en í landspólit-
íkinni eru stærri ágreiningsmál
uppi. Við viljum umræðu og höf-
um enga hleypidóma fyrirfram
um samstarf við Alþýðubanda-
lagið. En ég tel ekki líklegt að sú
staða komi upp að þessir tveir
flokkar nái samstöðu einir iim
landsstjórn.
- m
Þrl&judagur 7. október 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3