Þjóðviljinn - 14.12.1986, Page 7
Rúnar Ármann Arthúrsson les upp úr bókinni Algjörir byrjendur í Bústöðum
Mynd Sig.
Tæplega Bryndís
Fangbrögð þeirra Karvels og
Sighvats um efsta sæti krata-
listans á Vestfjörðum fóru
tæpast framhjá einum. Vændi
Sighvatur m.a. Bryndísi for-
mannsfrú um að hafa staðið í
símhringingum fyrir Karvel.
Það var þó tæplega Bryndís
sem hringdi þessa limru inn á
ritstjóri Þjóðviljans:
Fæti undan kappanum kippti
á klofbragði og voninni svipti;
Já Sighvati farvel gaf kratinn
hann Karvel
en hver var það sem tólinu
lyfti?m
IH Útboð
Útboð - forval
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
byggingadeildar borgarverkfræðings og skóla-
skrifstofu Reykjavíkurborgar, auglýsir eftir verk-
tökum sem hefðu áhuga á að hanna og byggja
skóla í Ártúnshverfi samkvæmt svokölluðu „alls-
herjarútboðsformi".
Verktakar leggi inn nöfn og símanúmer fyrir
næstkomandi fimmtudag þ.e. 18. desember á
skrifstofu vora, Fríkirkjuvegi 3.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikifkjuvcgi 3 Simi 25800
EINSTAKT SMÁSAGNASAFN
Höfundarnir leitast við að lýsa
unglingum einsog þeir sjá sjálfa
sig og það var nokkuð sem ég
einsetti mér að gera. Sérhver bók
er heimur útaf fyrir sig. Þar sem
sagan átti að snúast um unglinga
varð ég að endurskapa þeirra
heim. Hvort sagan verður trú-
verðug veltur svo á því hvort höf-
undi takist að skapa rétta tilfinn-
ingu fyrir þessum heimi í sögunni
og að hún komist til skila til les-
anda.“
Unglingar
eru sjálfbjarga
Afhverju að kalla þetta ung-
lingabók? Eftir lestur bókarinnar
finnst mér hún ekkert síður eiga
erindi til fullorðinna en unglinga.
„Það er kannski eitthvað til í
því. Ég las upp fyrir hóp af ungu
fólki í Biskupstungum og þau
héldu þessu fram. Að fullorðnir
ættu að lesa bókina. Þá fengju
þau kannski einhverja innsýn í líf
unglinga. Fullorðnir sjá yfirleitt
unglingana í ljósi eigin unglings-
ára. Þeir muna rótleysið, uppá-
tækin og annað sem fylgir þessum
mótunarárum manneskjunnar.
Gleyma því hinsvegar að þeir
einsog unga fólkið í dag, voru al-
veg sjálfbjarga og kunnu fótum
sínum forráð.
Annars getur engin bók bara
verið fyrir einhvern ákveðinn
hóp, unglinga eða aðra. Slíka bók
er einfaldlega ekki hægt að
skrifa. Þar sem ég vonast til að
unga fólkið í Biskupstungum hafi
haft rétt fyrir sér reikna ég með
að foreldrarnir lesi þessa bók
líka. Hafi þeir gaman af bókinni
hefur mér tekist að búa til
eitthvað annað en unglingabók."
Engar slaufur
Það aðþú einsettir þér að skrifa
fyrir unglinga, takmarkaði það
þig að einhverju leyti?
„Takmörkunin fólst kannski
einna helst í því, að þar sem ég
hef verið kennari, m.a. lestrar-
kennari, gerði ég mér fulla grein
fyrir því að ritað mál er ekki jafn
aðgengilegt fyrir alla. Þar sem ég
hafði tekið áskoruninni að skrifa
bók um unglinga fyrir unglinga,
reyndi ég að hafa hana þannig að
hún væri ekki bara fyrir lestrar-
hestana. Uppbygging bókarinnar
er þannig að ég vonast til að hún
sé aðgengileg fyrir flesta.
Þetta takmarkaði mig að ein-
hverju leyti í stfl og kom í veg fyrir
óþarfa slaufur. Það að ég ætlaði
að skrifa fyrir breiðan lesenda-
hóp orsakaði það að ég varð fyrst
og fremst að gera kröfur til sjálfs
mín.“
Kennarinn
er dauður
Kennarinn takmarkaði þig en
hjálpaði það ekki að þú hefur ver-
ið í návígi við unglingana sem
kennari?
„Nei. Kennarinn er dauður ég
drap hann. Mé leiðist þetta tal
um unglinga, einsog þeir séu ein-
hver sérstakur kynstofn eða
þjóðflokkur. Þeir eru bara fólk af
holdi og blóði einsog ég og þú og
allir aðrir. Fólk í mótun og sem
betur fer er þeim flestum
treystandi til að hafa vit fyrir
sjálfum sér þó fullorðnir virðist
álíta eitthvað annað.
Þessi mótunarár eru fyrra
breytingarskeið mannsins. Þú
ferð inn í það, það verður spreng-
ing og þú kemur allt annar út úr
því. Þessvegna hefst bókin á
sprengju. Það væri annars þarft
að fara að ræða þetta fyrra breyt-
ingaskeið af álíka alvöru og um-
ræðan um seinna breytingaskeið-
ið er.
Heimur þessa fólks á mótunar-
árunum er sá sami og við lifum í.
Ungt fólk einsog annað fólk
lendir í ýmsum aðstæðum en
nauðugt viljugt heldur það áfram
að vera til. Unga fólkið á í sínu
stríði alveg einsog eldra fólk, en
er ekkert að bera sínar tilfinning-
ar á torg. Það verður fyrir marg-
siunginni lífsreynslu sem mótar
það á einn veg eða annan.
Þó ég hafi skrifað svokallaða
unglingabók þá hef ég ekkert
sérstakt dálæti á unglingum um-
fram annað fólk. Mér er ekkert
illa við þá heldur. Unglingar eru
bara fólk einsog við hin með
öllum þeim annmörkum sem það
hefur í för með sér.“
Sagan er
ekki fullsögð
Þegar lestri er lokið finnst
manni enn vera opnir endar í
söguþrœðinum. Má kannski bú-
ast við framhaldi?
„Fái ég tækifæri til mun ég
skrifa framhald af bókinni. Sagan
er alls ekki fullsögð og ég vona
bara að ég fái að klára söguna í
annarri bók.“
Þó sagan af Grími og Lukku sé
enn ókláruð þá er maturinn bú-
inn og klukkan farin að nálgast
níu að kvöldi. Við verðum að
drífa okkur af stað því Rúnar á að
vera mættur í upplesturinn
klukkan níu. Við rennum í gegn-
um Norðurmýrina, þar sem
sprengingin varð, í áttina að Bú-
staðakirkju. í Bústöðum tók á
móti okkur hópur af ungu fólki,
bauð okkur kaffi undir drynjandi
rokktónlist. Skömmu seinna
hófst upplesturinn á því að Eð-
vard Ingólfsson las uppúr Ástar-
bréfi til Ara. Hann var á hraðferð
og yfirgaf samkomuna áður en
Rúnar Ármann hóf lestur sinn:
Sprengingin var miklu öflugri
en við bjuggumst við...
-Sáf
Sunnudagur 14. desember 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
VAKA' 'ljrigafitll
Ólafur Jóhann Ólafsson
Höfundur bókarinnar er 24 ára
Reykvíkingur, sem nú kveöur sér hjjóös
með athyglisveröu smásagnasafni. Það
er enginn byrjendabragur á þessari
fyrstu bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar,
þvert á móti bera sögurnar vott um öguð
vinnubrögð og listræna framsetningu.
MÍU lyklar Heiti bókarinnar
gefur vísbendingu um að
lesandinn finni í bókinni eins
konar lykla að ýmsum sviðum
mannlegs samfélags, lífsreynslu
og mannlegu eðli. í sögunum
birtast trúverðugar og fallegar
mannlífsmyndir dregnar skýrum
dráttum.
Níu lyklar eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson er tvímælalaust
umtalsvert framlag til
íslenskra bókmennta.
GOTT FÓLK / SÍA